Dagur - 10.10.1998, Síða 2

Dagur - 10.10.1998, Síða 2
- b Vb 1 fi A i* j í' S ö . V» i ’A \í VJ ía a íi. h Vi Vi í\ >1 - LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 FRÉTTIR Gæsaskyttur eru víða á ferðinni þessa dagana en það er að sjálfsögðu ekki sama hvar menn skjóta gæs. Bæjarstjórinn á Dalvík og fleiri hafa undanfarið fengið að kenna á þrálátri kjaftasögu um að hafa skotið gæs í friðlandi og verið handteknir. Algjör þvæia seg- ir lögreglan sem íhugar að rannsaka hvar þessi rógur á rætur. Lögregluranns ókn vegna kjaftasögu? Bæjarstjóriim á Dalvík ásamt fleiri höfðingjiun er sagður hafa skotið gæs á friðlandi. Lögreglan kannast ekkert við það en íhugar rannsókn á upp- tökum rógburðarins, sem þó stafar sennilega af mis- skilningi. Sú saga hefur gengið og breiðst hratt út, að fyrirmenni á Dalvík hafi gerst brotleg við lög nýverið og verið hand- tekin af lögreglu. Bæjarstjórinn á Dal- vík, formaður umhverfisnefndar og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar á Dal- vík, eiga skv. sögunni að hafa skotið gæs í friðlandi skammt fyrir utan bæ- inn en hvorki bæjarstjóri né lögreglan kannast við þetta. Ljóst er þó að að- eins 100-200 metrar voru í friðlandið þar sem bæjarstjórinn og fleiri voru við skotveiðar. Ekkert tilkynnt Felix Jósafatsson, lögreglumaður á Dalvík, segir að sagan sé „kjaftæði" en hann kannaðist vel við orðróminn þeg- ar blaðið bar söguna undir hann. „Það er ekkert lögreglumál í gangi vegna þessa, en ég veit ekki hvað verður. Það endar sjálfsagt þannig að við förum að rannsaka hver kemur þessum rógi af stað. Þeir sem eru taldir eiga hlut að máli eiga sinn rétt í því að komast að því hver stendur fyrir þessari sögu. Einn þeirra rauk á mig í gærkvöld og vildi meina að sagan væri að undirlagi lögreglunnar. Eg benti honum nú á að við yrðum þeir síðustu til að frétta svona lagað,“ segir Felix. Fólk illa upplýst Að sögn Iögreglumannsins hafa menn ekki verið á eitt sáttir um hvar mörkin milli friðlands Iægju. Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, bæjarstjóri á Dalvík, neitar að hafa brotið lög. Hann viður- kennir að hafa verið á veiðum nálægt bannsvæði en segist hafa lesið sér sér- staklega til um mörk friðlandsins áður en hann og félagar hleyptu úr frethólk- unum. „Fólk virðist ákaflega illa upp- lýst um mörk friðlandsins en við vorum einhver hundruð metra frá bannsvæð- inu. Fyrir einhverjum árum voru tekn- ir menn á friðlandi þarna að sagt var og þeir játuðu því, enda töldu þeir svo vera. Þeir voru hins vegar utan þess,“ segir Rögnvaldur Skíði. Hann telur því missldlning ráða sakargiftum en sagði nauðsynlegt að menn kynntu sér hvaða reglur giltu um friðland á þessu svæði sem er aðeins um 2 km frá Dalvík. - BÞ Framsóknarkonur í Reykjavík eru sagðar hafa fundið sér góð- an kandidat í prófkjör fyrir kosningamar í vor. Það er Jón- ína Bjartmars formaður sam- takanna Heimils og skóla, sem kvað nýlega hafa gengið í Fram- sóknarflokkinn. Reykvískar __________ framsóknarkonur eru sagðar vilja sjá hana ofarlega á lista flokksins í höfuð- borginni... Jónína Bjartmars. Og enn af framboðsmálum Frammara. Fullyrt er í heita pottinum að Hjálmar Ámason hafi orðið undir í baráttmmi íyrir prófkjöri í Reykjaneskjör- dæini. Straumurinn er sagður gegn prófkjöri og með uppstill- ingu. Þar mcð þykir Sif Frið- leifsdóttir trygg í efsta sætinu, en Hjáhnar sagður verða að sætta sig við 2. sæt- ið eins og síðast... Nýjasti liðsmaður fréttastofu Sjónvarpsins, Glúmur Bald- vinsson, liefur vakið rækilega athygli á hinum vestfirska framburði sínum, scm faðir hans, Jón Baldvin Hannihals son, hefur haft sein aðals- merki. Glúmur talar um að „menn langi að bera þang í fangi fram á langa tanga á meðan við hin tölum um að „lánga að bera þáng í fángi...“ Hinsvegar hefur það vakið eftirtekt mamia í heita pottin- xun að Glúmur kemst ekki alveg hikstaiaust fram úr þessu, sem bendir til þess að framburð- nrinn vestfirski sé honum ekki jafn tungutamur og fööur hans. Jón Baldvin Hannibaisson. VEÐUR OG FÆRÐ Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súlu- ritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vind- stig eru tilgreind íyrir neðan. Allhvöss suð- austanátt með rigningu í fyrramálið suðvestan- og vestanlands og um miðjan daginn, einnig norðanlands og austan. Lítið eitt hægari vestanátt síðdegis og dreg- ur úr úrkomu sunnanlands og vestan. Hiti 5 til 9 stig á morgun. Færð á vegiun Fært var um alla helstu vegi í gærkvöld en víða hálka. Á Steingrímsfjarðarheiði voru hálkublettir sem og á Þorskafjarðarheiði. Sömu sögu má segja um Möðrudalsöræfí og Fjarðarheiði. Krapi og snjór var á Öxaljarðarheiði. Hálendisvegir eru varasamir vegna snjóa og fara flestir að líkindum að lokast.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.