Dagur - 10.10.1998, Blaðsíða 6
6- LAirU'ARDAGUR'l'O. O KTÚB E'R"V9'9V
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöiuverð:
Grænt númer:
Símbréf auglýsingadeildar:
Símar augiýsingadeiidar:
Netfang auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Austurvölliir - Akureyri
í fyrsta lagi
Nokkur helstu náttúruverndarsamtök landsins afhentu í Al-
þingi í vikunni áskorun um að endurskoða þá stefnu sem tek-
in hefur verið varðandi framtíðarnýtingu hálendisins. Þau ótt-
ast að óbætanlegt tjón muni verða unnið á hálendinu. Skáld
og listamenn tóku þátt í mótmælunum með upplestri ljóða.
Þessi athöfn náttúruverndar- og listamanna kemur ekki á
óvart miðað við þá umræðu sem á undan er gengin, en það
breytir ekki því að hún gefur mönnum enn eitt tilefnið til að
staldra við og íhuga hvert stefnir.
í öðru lagi
Svo vill til að nánast á sama tíma og menn lásu upp eldheit
ástarljóð til landsins á Austurvelli í Reykjavík var samgöngu-
ráðherra norður á Akureyri að afhenda umhverfisverðlaun
Ferðamálaráðs. Þau hlaut safnvörðurinn á Skógum, Þórður
Tómasson. Astæða er til að óska Ferðamálaráði til hamingju
með gott val. Samgönguráðherra upplýsti að hann teldi að
Þórður hefði með starfi sínu á Skógum hjálpað til við að
skipuleggja og stýra ferðamannastraumnum um landið og
þannig lagt sitt af mörkum til að draga úr stjórnlausri áníðslu
á viðkvæmri náttúru Islands. Var þessi fulltrúi framkvæmda-
valdsins að kallast á við ljóðalesturinn á Austurvelli?
1 þriöjíi lagi
Viðhorf Þórðar Tómassonar til umhverfisins og hlutverks síns
í því, vekur aðdáun og virðingu í lítillæti sínu. Hjá Þórði, eins
og t.d. náttúrverndarmanninum A1 Gore varaforseta Bandríkj-
anna, kennir trúarlegs undirtóns í þessu Iítillæti. Aðalatriðið er
þó, fyrir trúaða og trúlausa, virðingin fyrir sköpunarverkinu.
Þórður sagði við verðlaunaafhendinguna: „Eg tek við heiðri
þessa dags í auðmýkt og í þökk eins og öllu góðu sem fram er
rétt. Umhverfismál eru mikið til umræðu í dag og hver ein-
staklingur skapar umhverfi og á þátt í að skapa öðrum um-
hverfi með daglegri framgöngu og með Guði að gera land okk-
ar fegurra og betur búið til að fóstra komandi kynslóðir og
veita þeim yndi.“ Aminningarnar voru víðar en á Austurvelli
þennan dag. Birgir Guðmimdsson
Sjálfsmyndar-
kreppan
Höfuð vandi íslenskra stjórn-
mála er að sjálfsmynd stjórn-
málamanna er í kreppu. Eng-
inn veit lengur með neinni
vissu f hvaða stjórnmálaflokki
hann ætti raunverulega að
vera. Þannig hafa sumir
uppgvötað að hneigð þeirra
beinist í allt aðrar áttir en
stjórnmálaflokksins sem þeir
eru í. Einhverjir hafa komið út
úr skápnum á meðan aðrir eru
að engjast enn inn í honum
sjálfum sér og öðrum til ein-
skis gagns. Augljóslega er
þarna á ferðinni alvar-
legt sálfræðilegt
vandamál, sem ef til
vill kristallast hvað
best í umræðunni um
stöðu Kristins H.
Gunnarssonar. Er
Rristinn Alþýðubanda-
lagsmaður? Er hann
krati? Eða er hann
framsóknarmaður?
Yfirlýsiiig
Guðna
I Degi í gær svarar Guðni
Ágústsson þessari spurningu á
þann veg að Kristinn sé fram-
sóknarmaður. Síðan segir
Guðni: „Margir ágætir Alþýðu-
bandalagsmenn eru í rauninni
framsóknarmenn og myndu
með innkomu sinni styrkja
Framsóknarflokkinn.“ Þetta er
mikilvæg yfirlýsing, því ef
margir Alþýðubandalagsmenn
eru í rauninni framsóknar-
menn þá er Alþýðubandalagið
í raun hálfgerður Framsóknar-
flokkur. Það er því kannski
mikill misskilningur hjá Al-
þýðubandalaginu að ætla að
sameinast Alþýðuflokknum.
Væri nær að sameinast Fram-
sóknarflokknum? En sá galli
er á gjöf Njarðar að Alþýðu-
bandalagið er einugis hálf-
gerður Framsóknarflokkur.
Það er Iíka hálfgerður krata-
flokkur þannig að málið er
alls ekki einhlítt.
Sterkt íhalds-
element
Og til að flækja stöðuna enn
frekar er ljóst að Alþýðuflokk-
urinn er ekki bara krataflokkur
heldur er f honum sterkt
íhaldselement. Þannig að
kannski hefði verið nær fyrir
hann að athuga með
sameiningu við Sjálf-
stæðisflokkinn? En
það mál er líka flókn-
ara en sýnist því fram-
sóknarmennirnir í
Sjálfstæðisflokknum
eru merkilega sterkir
og kannski væri eðli-
legast að framsókn og
íhald sameinuðust
eins og Hannes Hólm-
steinn hefur lagt til! I þessari
stöðu er því ekki skrýtið að
menn séu almennt svolítið í
vafa um hneigðir sínar og í
hvaða lið þeir eigi að skipa sér.
I dag lýtur þetta nokkuð sömu
lögmálum og það hvernig
menn skipa sér í íþróttafélög -
menn lylgja bara sínu gamla
liði. En leikmennirnir - stjórn-
málamenn - eru nú farnir að
flakka það mikið milli liða að
Garra sýnist algerlega tíma-
bært að fara sömu leið og fót-
boltafélögin. Það verður að
hlutafélagavæða flokkana og
reka þetta alfarið á viðskipta-
legum forsendum. Þá losna
menn Itka við sálarkvalirnar og
sjálfsmyndarkreppuna og leik-
reglurnar verða skýrar á ný.
GARRI.
Kristinn H.
Gunnarsson.
Starri kveður
með sæmd
Litríkir persónuleikar sem standa
á sannfæringu sinni? Sannfær-
ingu sem byggð er á traustum
grunni og nærð af gagnrýnni
hugsun? Þeir eru alltof fáir. Og
nú hefur þeim fækkað um einn.
Starri í Garði kveður.
Stopul og stutt persónuleg
kynni af Starra nægja ekki til að
skrifa eftirmála við langa ævi.
Það voru ekju alltaf „auðveld"
símtöl sem við áttum þegar hon-
um var heitt í hamsi, en þeim
mun ánægjulegri stuttar heim-
sóknir í Garð. En það er persóna
Starra í opinberu lífi sem vert er
að minnast.
Hann var „ómissandi maður".
Engimn ómissandi?
Það er klisja að enginn sé ómiss-
andi. Hún á við okkur flest. En
þeir eru nokkrir, að sönnu alltof
fáir, sem við getum í raun ekki
verið án. Við skulum ekki segja
að Starri hafi „leik-
ið það hlutverk"
sem felst í að vera
hrópandinn í eyði-
mörkinni. Hann lék
ekkert hlutverk,
heldur var sannur í
sannfæringu sinni,
hvað svo sem hinn
hverfuli tíðarandi
sagði. Og hann var
ekki í eyðimörk,
hvorki í eiginlegum
né óeiginlegum
skilningi. Rödd
hans hljómaði úr
fegurstu sveit Iands-
ins og hún féll oft í
fijóa jörð hjá fólki
sem fann í sjálfu sér samhljóm
við margt sem hann sagði. Oðr-
um stundum síður. Starri var í
flokki ómissandi manna fyrir
hvert þjóðfélag
vegna rótfestu við
gildi. Hver gildin
voru skiptir ekki
öllu, þótt mikil-
væg væru: nátt-
úra, skáidskapur,
mannlíf, sósíal-
ismi. Þau gildi
hefðu getað verið
önnur, og líka
mikilvæg. En það
sem gerði Starra
að þeim fáu sem
ómissandi teljast
er í raun þetta: á
hann mátti
treysta.
Allt að vinna, ekkert að selja
Hann var svo ólíkur því sem ræð-
ur ríkjum á vorum dögum.
Hann var ekki í framboði til
neins, þurfti ekki að hræsna.
Hann „seldi" ekki neitt, þurfti
ekki að skríða fyrir dyntum.
Sjálfstæður maður. Hagsmuni
hafði hann að sönnu, en hann
gekk þeirra erinda sem hann
trúði á, það sem hann miðlaði
var samofið heilsteyptri hugsun.
Forn? Já, því samfélagið gengur
út á að selja ömmu sína og sál
sína hverjum sem er og hvar sem
er á hæsta mögulega verði. Það
er nútíminn. Okkur vantar ekki
fleiri sölumenn. Okkur vantar
sjálfstæða bændur - í þess orðs
víðasta skilningi. Skiptir ekki
máli hver yrkjan er. Þess vegna
saknar maður Starra og óskar
þess að fleiri væru hér sem hann.
Hverju spáirþú um úr-
slitin í leiJt íslands og
Armeníu um helgina?
Þorsteinn Giumarsson
fiamkvæmdastjóri ktiattspymudeild-
arÍBV.
„Ég spái
1-0 fyrir
Island.
Við erum
að spila
við þjóð
sem er
miklu
neðar á
styrk-
leikalista Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins og ég tek undir orð
landsliðsþjálfarans að allt annað
en sigur í leiknum sé hneyksli.
Ég trúi því að strákarnir okkar
fylgi eftir frábærum leik gegn
Frökkum og vinni 1 -0 með öguð-
um leik að hætti Guðjóns Þórð-
arsonar.“
Guðlaugur Þór Þórðarson
borgaifulltrúi.
„Það
verður
jafntefli,
1 mark
gegn 1,
Þórður
Guðjóns-
son mun
skora
markið.
Stærsti andstæðingur íslenska
landsliðsins er þegar við erum of
bjartsýn en ég held að Guðjón
Þórðarson sé tvímælalaust á
réttri leið með íslenska Iiðið,
enda tvímælalaust frábær þjálf-
Lúðvík Bergvinsson
„Ég veit
ekki mik-
ið um
knatt-
spyrnu-
hefð í
Armeníu.
En eigum
við ekki
að segja
að Iyktir leiks verði 2-0 fyrir Is-
land og að Eyjamaðurinn Her-
mann Hreiðarsson skoði bæði
mörkin fyrir Island, með skalla
eftir hornspyrnu."
Jón Kristján Sigurðarsson
blaðainaðurá DV.
„Eitthvað
hef ég á
tilfinning-
unni að
við mun-
um vinna
þennan
leik. Ég
held að
leikmenn
séu fullir
sjálfstrausts eftir leikinn við
Frakka og þá held ég að Guðjón
Þórðarson sé búinn að byggja
upp góða stemmningu í liðinu,
sem muni skila sér alla leið í
þessum leik gegn Armenum í
dag. Ég tippa á 2-0 um tölur í
leiknum."
þingmaður.