Dagur - 13.10.1998, Page 1
PáU Pétursson félags-
málaráðherra segir að
endurskoða þurfi fjár-
lög næsta árs til að
veita auknu fjár-
magni í haráttuna við
eiturlyfin.
„Því miður virðist bylgja eitur-
lyfjaneyslu unglinga, einkum
aldurshópsins sem fæddur er
1982, flæða yfir. Ég held að eng-
inn hafi gert sér grein fyrir þeirri
ógnar flóðbylgju eituriyfjaneyslu
sem dunið hefur yfir í sumar. I
það minnsta gerði ég mér ekki
grein fyrir henni. Það er alvara
málsins hvað neyslan virðist
aukast rosalega hjá þessum ung-
Iingum og það af hörðum efnum.
Meðferðarúrræðin sem við höf-
um eru fullnýtt. Ég tók málið
upp í ríkisstjórn í síðustu viku
vegna þess að það verður að end-
urskoða þá fjárhæð í fjárlaga-
frumvarpinu sem ætluð er til
þessa málaflokks," sagði Páll
Pétursson í samtali við Dag eftir
umræður á Alþingi í gær um
þetta mál.
Hann sagði
nauðsynlegt að fá
aukið húsnæði
bæði til greining-
ar og meðferðar
fyrir unglingana.
Hann sagðist
myndu hefja við-
ræður við Reykja-
víkurborg um
hentugt húsnæði
fyrir nauðsynlega
neyðarvistun fyrir
unglingana, jafn-
framt því sem
nauðsyn sé á
auknu húsnæði
annarsstaðar á
Iandinu. Það skjótvirkasta sem
menn sæju eins og er væri að
taka neyðarvistunina út af Stuðl-
um og taka plássið þar undir
greiningarmeðferð. Þá væri
nauðsynlegt að komast yfir allt
húsnæðið í Varpholti í Eyjafirði
til að koma þar fyrir fíkniefna-
neytendum.
90 milljóna
ankakostnað-
ur
Það var Sigríður
Jóhannesdóttir
alþingismaður,
sem hóf máls á
þessum mikla
vanda á Alþingi
í gær. Hún
spurði félags-
málaráðherra
um hvort ráðu-
neytið hefði
fylgst með
þeirri miklu
aukningu eitur-
Iyljanotkunar
sem orðið hefði hjá yngstu ald-
urshópunum og hvort von væri á
sértækum aðgerðum vegna
þessa. Sagði Sigríður að tugir
ungmenna væru á biðlistum eft-
ir að komast í greiningu og með-
ferð. Hér væri um hreint neyðar-
ástand að ræða.
I svari félagsmálaráðherra við
fyrirspurn kom fram að þegar
verið var að undirbúa fjárlög á
síðasta vori var talið að þau með-
ferðarúrræði sem tiltæk eru og
komast í gagnið á þessu ári væru
fullnægjandi eða viðunandi. Það
hefði hins vegar ekki verið neitt
Ieyndarmál að hækkun lögræðis-
aldurs úr 16 árum í 18 ár myndi
auka byrðar félagsmálaráðuneyt-
isins í þessum efnum. Tveir ár-
gangar bætast við til ráðuneytis-
ins, sem áður töldust vera full-
orðið fólk og sjálfráða. Talað
væri nú um að um 90 milljónir
þyrfti til að standa straum af
rekstrarkostnaði meðferðarúr-
ræða, bara fyrir þessa tvo ald-
urshópa.
Páll sagði einnig í svari sítiu
frá því sem hann endurtók í sam-
tali við Dag að hann hefði tekið
málið upp í ríkisstjórn um aukið
fé til þessa málaflokks. -S.DÓR
Sprenging hefur orðið í eiturlyfja-
neyslu unglinga.
Björk
verður
aðaltromp
Björk Guðmundsdóttir söngkona
verður eitt aðaltrompið í menn-
ingarveislunni miklu sem boðið
verður í þegar Reykjavíkurborg
verður menningarborg ársins
2000. Björk ætlar að koma fram
með sérstökum Evrópukór sem
búinn verður til fyrir hátíðina og
hún ætlar að semja sérstakt lag
fyrir „Evrópuraddirnar".
Fram kom á kynningarfundi
um menningarborgarhátíðina
sem haldinn var í Höfða í gær að
áætlað er að veija til hennar
rúmum 600 milljónum króna.
Borgin ætlar að leggja fram 275
milljónir króna, ríkið 235 og
leita á til innlendra og erlendra
fyrirtækja um að kosta það sem
upp á vantar. Var í gær undirrit-
aður sérstakur samningur um
þetta efni af menntamálaráð-
herra, borgarstjóra og formanni
undirbúningsnefndar.
Áætlanir borgaryfirvalda um dagskrá Menningarborgar 2000 voru kynntar á blaðamannafundi í Höfða í gær. Hér
má sjá Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Pál Skúlason formann undirbúningsnefndar og Ingibjörgu Sólrúnu
undirrita samstarfssamning. mynd: hilmar
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir.
Óbreytt
líðan
Líðan forsetafrúarinnar, Guð-
rúnar Katrínar Þorbergsdóttur,
var í gær alveg óbreytt frá því að
henni versnaði á dögunum. Hún
liggur enn á gjörgæsludeild
sjúkrahússins í Seattle. Olafur
Ragnar Grímsson, forseti Is-
Iands, dvelur ytra við sjúkrabeð
konu sinnar.
Sleifarlag
áþingi
Rannveig Guðmundsdóttir, for-
maður þingflokks jafnaðar-
manna, hóf máls á því á Alþingi
í gær, undir liðnum um störf
þingsins, að ekkert bólaði á
frumvörpum frá ríkisstjórninni
en langur listi um slík frumvörp
væri til. Hún benti á að þingstörf
yrðu með stysta móti í vetur
vegna þingkosninga í vor.
Rannveig minnti einnig á að á
síðasta þingi hefði alveg það
sama gerst. Fá mál komu fram
allan veturinn en sfðan kom hol-
skefla undir lok þingsins. Og
þegar stjórnarandstaðan hefði
aðeins viljað skoða þau mál
hefði hún verið sökuð um að
tefja störf þingsins.
Óbreytt starfsáætlun?
Svavar Gestsson, förmaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins, tók
undir með Rannveigu. Sagði
hann að menn hefðu talað um
nýtt og betra skipulag á þing-
störfum. Hann sagðist ekki
verða var við þetta bætta skipu-
lag á þingstörfunum.
,/Etlar forseti Alþingis að
halda sig við fyrri starfsáætlun
þingsins enda þótt þessi stað-
reynd blasi við að engin mál
koma frá stjórnarflokkunum,"
spurði Svavar. Ólafur G. Einars-
son forseti Alþingis sagðist ekki
geta annað en haldið sig við
starfsáætlunina.
Kristfn Astgeirsdóttir, þing-
flokki óháðra, tók undir gagnrýni
fyrmefndra þingmanna. -S.DÓR
wmmmmmommmmmmm
■
......
rs
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI - SÍMI 462 3524