Dagur - 13.10.1998, Blaðsíða 13
ttKMsCt
Beet H'iHðtiio .f t Jia a t.a\j vatíta - ££
l’RIDJUDAGU R 13. OKTÓBER 1998 - 13
X^MT
ÍÞRÓTTIR
Skemmtileg keppni
Eggjabikariim í
körfnknattleik er hin
skemmtilegasta kepp-
ni. Sextán liöa nrslit-
um lauk um helgina
og óvænt nrslit litn
dagsins ljós.
Óvæntustu úrslit í sextán liða úr-
slitum Eggjabikarins eru án efa
sigur Valsmanna á Isfirðingum á
þeirra heimavelli á Isafirði á
sunnudagskvöld. KFI sigraði í
útileiknum með þremur stigum
en Valsmenn gerðu betur og sigr-
uðu í síðari leiknum með fimm
stigum. Vanmat Isfirðinganna og
góður stígandi í Valsliðinu kom
þeim í átta liða úrslitin.
Keflvíkingar sigruðu fyrstu
deildarlið ÍR mjög örugglega. I
síðari leik liðanna sem fór fram í
Keflavík endaði leikurinn 150-
77 Keflavík í vil. Keflvíkingar,
sem unnu fyrri leikinn frekar
stórt, brugðu á það ráð að pressa
ÍR-liðið nær allan leiktímann í
síðari leiknum. Ekki veit undir-
ritaður hvað Keflvíkingum gekk
Skallarnir frá Borgarnesi eru úr leik i Eggjabikarnum eftir tapleikinn gegn
Tindastóli á Sauðárkróki. Hér á myndinni sjáum við Ara Gunnarsson, leik-
mann Skallagríms, ná frákasti í leik gegn Tindastóli.
til með að pressa hið óreynda lið
IR, en heyrst hefur að þeir hafi
ætlað sér að slá eitthvert stiga-
met.
Njarðvíkingar komust áfram
með sigri á ÍS sem leikur í fyrstu
deild. Njarðvíkingar sigruðu í
síðari leiknum 91-59. Friðrik
Ingi, þjálfari Njarðvíkinga, press-
aði Iítið lið IS en leyfði í staðinn
ungum leikmönnum liðsins að
sanna sig á vellinum enda unnu
þeir fyrri leikinn nokkuð örugg-
lega.
TindastóII gerði góða hluti og
komst áfram með sigri á heima-
GUNNAR
SVERRIS-
SON
KYNNIR LIÐIN i
ÚRVALSDEILD
KÖRFUBOUANS
velli á Skallagrími. Skallagrímur
sigrað í fyrri leiknum með þrem-
ur stigum. Leikurinn á Sauðár-
króki var frekar ójafn og endaði
leikurinn 83-64 Tindastóli í vil.
KR-ingar voru í miklu basli
með fyrstu deildar lið Stjörnunn-
ar. Höfðu þó sigur á lokasprett-
inum í leiknum á Seltjarnarnesi
95-87. Lið Stjörnunnar kom
skemmtilega á óvart með mikilli
baráttu og sigurvilja.
IA sigraði Þór Þorlákshöfn á
heimavelli sínum á sunnudags-
kvöld, 79-62 eftir að hafa tapað
fyrri leiknum með þremur stig-
um. Heimavöllurinn er greini-
lega mjög mikilvægur Skaga-
mönnum þegar kemur að bikar-
leikjum.
Sama má segja um Hauka.
Þeir tryggðu sér áframhaldandi
þátttöku með því að sigra Snæ-
fell á heimavelli 109-89. Snæfell
vann fyrri leikinn á heimavelli
með tveimur stigum og minntu
þar með lið í deildarkeppninni á
að þeir verða ekki auðsigraðir á
heimavelli.
Grindvíkingar sem mörðu sig-
ur á Þórsurum í Grindavík unnu
öruggan sigur á Akureyri 88-77.
Þórsarar voru klaufar að sigra
ekki í fyrri leiknum og voru frek-
ar andlausir í síðari leiknum
þrátt fyrir að eiga góða mögu-
Ieika á að komast áfram.
Leikirnir f átta liða úrslitum
verða spilaðir dagana 22.-24.
október. Liðin sem leika saman
eru: Njarðvík - Tindastóll,
Grindavík - ÍA, Keflavík - Hauk-
ar og Valur - KR.
Englendingar æfir eftír
tapið gegn Búlgörum
Glenn Hoddle og John Gorman þungstígir eftir leik Englendinga og
Búlgara á laugardaginn.
Úrslitin á Wemhley
martröð fyrir Hoddle.
Pressan viU hann
hurt. Stnðningsmenn-
irnir tóku liðið á
taugum. John Goram
og Eileen Drewery fá
aukavinnu í huglækn-
ingum. Norðmenn í
skýjunum meðan
Danir og Fiimar
sleikja sár sín.
Þau voru þung sporin sem
Glenn Hoddle, landsliðsþjálfari
Englendinga, steig er hann yfir-
gaf Wembley leikvanginn eftir
leik Englands og Búlgaríu eftir
jafntefli þjóðanna í Evrópu-
keppni landsliða á laugardaginn.
Englendingar sjálfir, sem og
flestir aðrir, reiknuðu með auð-
veldum sigri sinna manna. Ann-
að kom á daginn og Glenn
Hoddle og hans menn urðu að
sætta sig við 0-0 jafntefli. Þar
með hafa Englendingar tapað
fimm af sex stigum í leikjunum
tveimur sem Iiðið hefur Ieikið í
keppninni.
Getum ekki tapað fleiri
stígum
„Þetta eru mér mikil vonbrigði.
Nú erum við í þeirri stöðu að við
megum eldd við að tapa fleiri
stigum í keppninni ef við ætlum
að komast í lokakeppnina. Við
lékum engan veginn þá knatt-
sp^Tnu sem við ætluðum og náð-
um ekki að ógna marki Búlgara
að neinu marki. Framherjarnir
fengu lítinn stuðning og því
náðu þeir ekki að skora. Við
megum heldur ekki gera lítið úr
frammistöðu Búlgara. Þeir léku
mjög góðan varnarleik og gerðu
okkur lífið leitt allan tímann",
sagði Glenn Hoddle eftir leikinn.
Enska fótboltapressan heimtar
nú að Hoddle fari frá og veð-
bankar eru þegar farnir að veðja
á eftirmanninn. Þar er Roy
Hogdson, stjóri Blackburn, í
efsta sætinu. Bryan Robson og
Kevin Keegan koma næstir á eft-
ir honum.
Stuðningsinennimir æflr
Þeir sjötíu og fimm þúsund
stuðningsmenn Englendinga
sem urðu vitni að því sem gerðist
á Wembley urðu hreinlega æfir
yfir frammistöðu sinna manna.
Þeir stóðu vel við bakið á okk-
ur í byijun en eftir því sem á
ieikinn Ieið urðu þeir óþolin-
móðari og settu á okkur mikla
pressu. Það þýðir ekkert að
stinga höfðinu í sandinn. Við
verðum að horfast í augu við
staðreyndir. Við stóðum ekki
undir þeim væntingum sem
gerðar voru til okkar", sagði John
Gorman, aðstoðarmaður
Hoddle. Hann, ásamt heilaran-
um Eileen Drewery, fær nú það
erfiða hlutverk að heila lands-
liðsmennina, fyrir þá miklu raun
að mæta Luxemburg á morgun.
Beckham tilbúinn í slaginn
David Beckham hefur nú tekið
út leikbannið, sem hann fékk
eftir rauða spjaldið á HM, og
verður væntanlega í liðinu á
morgun. Liverpoolleikmennirnir,
Paul Ince og Jamie Redknap
verða hinsvegar fjarri góðu
gamni. Redknap tekur út eins
leiks bann en Paul Ince fékk
þriggja leikja bann eftir fram-
komu sína í Svíþjóð í síðasta
mánuði. Það þýðir átta mánaða
bann í raun. Næsti leikur Ince
með landsliðinu verður, gegn
Svíum! A Wembley í maí í vor.
Niels Johan Semb léttstígur
Það var þungu fargi létt af Niels
Johan Semb, landsliðsþjálfara
Norðmanna, eftir leik þeirra
gegn Slóveníu í Lublijana enda
hafði hann ástæðu til að fagna.
Eftir hlálega útreið sem lið hans
fékk á UllevAl gegn Litháum, í
fyrsta leik hans sem stjóra, náðu
Norðmenn að sigra Slóvena.
Þrátt iyrir að lenda undir, 1 - 0,
snéru Norðmenn leiknum sér f
hag og dýrasti leikmaður heims,
Tore Andre Flo og Ketil Rekdal
sáu um að stigin þrjú höfnuðu í
sarpi Norðmanna.
Frændur vorir og fyrrum Evr-
ópumeistarar, Danir, voru ekki
eins lánsamir. Þeir náðu foryst-
unni gegn Wales en urðu að játa
sig sigraða í lokin, 1 - 2, og það á
heimavelli sfnum.
Finnar héldu í víking til Norð-
ur - Irlands og komu aftur með
öngulinn í rassinum. Norður -
Irar sigruðu 1-0. — GÞö
Handbolti - Staðan í úrvalsdeild karla
L U i T Mörk S
UMFA 4 3 I 0 94:80 7
Fram 4 3 0 1 105:95 6
Haukar 4 3 0 1 117:108 6
Valur 4 3 0 1 92:86 6
Stjarnan 4 2 0 2 93:90 4
KA 4 2 0 2 97:96 4
ÍR 4 2 0 2 106:108 4
Grótta/KR 4 1 1 2 94:100 3
Selfoss 4 1 1 2 97:108 3
ÍBV 4 1 0 3 85:85 2
HK 4 1 0 3 81:96 2
FH 4 0 1 3 96:105 1
Markahæstir
Markahæstir
Ragnar Þór Óskarsson, ÍR 28/9
Zoltán Belányi, Gróttu/KR 28/9
Bjarki Sigurðsson, UMFA 25/7
Konráð Olavson, Stjörn._______24/6
Gunnar B. Viktorsson, Fram 23/2
Andrei Astafjev, Fram_________22/0
Lars Walther, KA______________21/4
Knútur Sigurðsson, FH_________21/7
Halldór J. Sigfusson, KA 21/7
Valdimar F, Þórsson, Selfoss 21/8
Heiðmar V. Felixsson, Stj. 19/0
Varin skot
Bergsv. Bergsveinsson, UMFA 67
Reynir Þ. Reynisson, KA 67
Guðmundur Hrafnkelss., Val 67
Gísli R. Guðmundsson, Self. 60
Sigmar Þr. Óskarsson, ÍBV 60
Magnús Sigmundss., Haukum 56
Næstu Ieikir
Föstud. 16. október
KI. 20:00 Haukar - Stjarnan
Kl. 20:00 ÍBV - ÍR
Laugard. 17. október
Kl. 16:15 HK -FH
Sunnud. 18. október
Kl. 20:00 Fram - Grótta/KR
Kl. 20:00 KA - Selfoss
Kl. 20:00 UMFA - Valur
Úrslit í
EUB02000
Úrslit leikja í riðlakeppni EURO-
2000, sem fram fóru á laugardag-
inn:
Azerbaijan - Ungveijaland 0-4
England - Búlgaría 0-0
Norður írland - Finnland I - 0
Skotland - Eistland 3 - 2
Liechtenstein - Slóvakía 0-4
Armenía - ísland 0-0
Bosnía-Herzeg. - Tékkland I - 3
Andorra - Úkraína 0 - 2
Malta - Króatía 0 - 4
Lettland - Georgía 1 - 0
Kýpur - Austurríki 0-3
Danmörk - Wales 1 - 2
Litháen - Færeyjar 0-0
Pólland - Luxembourg 3-0
Rússland - Frakkland 2 - 3
Slóvenía - Noregur 1 - 2
Tyrkland - Þýskaland 1-0
San Maríno - ísrael 0-5
Ítalía - Sviss 2-0
Portúgal - Rúmenía 0-1
Næstu leikir í keppninni fara
fram á morgun og leika eftirtald-
ar þjóðir saman:
Island - Rússland
Tékkland - Eistland
Grikkland - Georgía
Litháen - Bosnia-Herzeg.
Noregur - Albanía
Úkraína - Armenía
Króatía - Makedónía
Búlgaría - Svíþjóð
Liechtenstein - Azerbaijan
Slóvenía - Lettland
Ungveijaland - Rúmenía
Sviss - Danmörk
Israel - Spánn
Luxembourg - England
Moldavía - Þýskaland
írland - MaltaSan
Marino - Austurríki
Slóvakía - Portúgal
Tyrkland - Finnland
Wales - Hvít-Rússland
Frakldand - Andorra
Skotland - Færeyjar