Dagur - 13.10.1998, Side 4
? - 8«.er aaaoTHo .ti w \i o í.o o vhih a
4- ÞRIÐJUDAGVR 13. OKTÓBER 1998
IKIKERHSLI
KENNI Á SUBARU LEGACY.
Tímar eftir samkomulagi. Útvega náms-
GÖGN. HJÁLPA TIL VIÐ ENDURNÝJUNARPRÓF.
ingvar Bjornsson
ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri
Sími 899 9800 Heimasími 462 5692
Já
Lánasjóður
landbúnaðarim
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins auglýsir eftir
framkvæmdastjóra fyrir sjóðinn. Verkefni framkvæmda-
stjóra eru að stjórna og bera ábyrgð á daglegum rekstri
Lánasjóðsins, auk annarra atriða er fram koma í
5. grein laga 68/1997.
Gerðar eru m.a. kröfur um haldgóða þekkingu á
landbúnaði, fjármálum og stjórnun, auk góðra
samskiptahæfileika.
Umsóknir berist fyrir 25. október til Lánasjóðs landbúnað-
arins, merktar Stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins - umsókn,
Laugavegi 120, 105 Reykjavík.
í umsókn komi fram menntun og fyrri störf umsækjenda.
Nánari upplýsingar veita: Guðni Ágústsson formaður
sími: 563-0500 og Þórólfur Sveinsson varaformaður
sími: 437-1683.
AKUREYRARB/CR
ENDURSKOÐUN
DEILISKIPULAGS í
GILJAHVERFI
Giljahverfi
Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar hefur ákveðið að endurskoða
deiliskipulag þess hluta Giljahverfis sem er norðan Snægils og af-
markast af Merkigili að vestan og norðan og Skessugili að austan.
Skipulagssvæðið er sýnt rúðustrikað á uppdrættinum að ofan.
Ástæður endurskoðunarinnar eru m.a. breyttar forsendur frá því að
skipulagið var samþykkt árið 1991. Gert er ráð fyrir að fjöldi íbúða á
svæðinu verði hinn sami og í gildandi skipulagi eða 88.
Hér með eru bæjarbúar, byggingaverktakar, hönnuðir og aðrir hags-
munaaðilar sem vilja hafa áhrif á skipulag svæðisins áður en tillaga
verður fullunnin og auglýst, hvattir til þess að koma athugasemdum
eða ábendingum á framfæri við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 600 Akureyri í síðasta lagi miðvikudaginn 26. október
næstkomandi.
Skipulagsstjóri.
FRÉTTIR
Gert er ráð fyrir að með breyttu fyrirkomulagi við álagningu og innheimtu umferðarsekta muni tekjur ríkissjóðs
• aukast verulega.
Um 150 milljónimi
meira í sektir 1999
Fj árlagafnunvarpið
áætlar 150 milljóna
aukningu sektartekna
á næsta ári vegna vel-
heppnaðra skipulags-
breytinga.
Nýtt skipulag við álagningu og
innheimtu umferðarsekta sem
tekið var í notkun á árinu hefur
gefist vel og mun auka tekjur rík-
issjóðs á þessu og næsta ári veru-
lega. Fyrirhugað er, um næstu
áramót, að taka f notkun hlið-
stætt skipulag við innheimtu
annarra sekta, dómsekta og
málskostnaðar. „Aætlað er að
sektartekjur geti aukist um allt
að 150 milljónir vegna þessara
breytinga," segir í nýju fjárlaga-
frumvarpi fyrir 1999, þar sem
jafnframt kemur fram að framlög
til Iöggæslu hækka verulega á
næsta ári, einkum til Lögregl-
unnar í Reykjavík og Ríkislög-
reglustjóra.
55.000 kr. á fjölskyldu
Heildarútgjöld Lögreglustjórans
í Reykjavík eru áætluð um 1.480
milljónir króna (um 55.000 kr. á
fjölskyldu) og hækka um rúm-
lega 150 milljónir (10%) milli
ára. Þar af eru 80 milljónir ætl-
aðar sérstaklega til að styrkja lög-
gæslu og rekstur embættisins, til
viðbótar 30 milljónum sem áætl-
aðar eru í frumvarpi til fjárauka-
Iaga m.a. til að bæta embættinu
uppsafnaðan rekstrarhalla fyrri
ára. Frá næstu áramótum hækka
útgjöld embættisins m.a. um 20
milljónir vegna þess að áætlað er
að húsnæði Lögreglunnar á
Hverfisgötu verði fært í umsjón
Fasteigna ríkisins og Lögreglan
verði þar með að fara að borga
20 milljóna húsaleigu á ári.
Helmingi fleiri lögregliuiemar
Rfkislögreglustjóra eru áætlaðar
ríflega 240 milljónir til rekstrar á
næsta ári, rúmlega 58 milljónum
(32%) meira en f ár. Ríflega
þriðjungur hækkunarinnar er til
að mæta raunverulegu umfangi
embættisins og auknu umferðar-
eftirliti, en minni upphæðir fara
til ýmissa verkefna.
Framlag til Lögregluskólans
hækkar þó hlutfallslega lang-
mest, eða um 80% frá fjárveit-
ingu þessa árs, í 75 milljónir á
næsta ári. Enda er áformað að
lögreglunemum fjölgi um helm-
ing. Þetta eykur kostnað skólans
um 29 milljónir á ári, m.a. vegna
launa lögreglunema á seinni önn
skólans, lögreglubúninga, matar-
kostnaðar og fleira. Skólinn
þarfnast Ifka stærra húsnæðis
vegna fjölgunarinnar. HEI
Táka Revkjavík sér
til fyrirmyndar
Akureyriiigar gátu
sparað sér milda
vinuu við kerfisbreyt-
ingar með því að
horfa til þess sem gert
hefur verið hjá
Reykjavíkurborg að
uudaufömu
í áætlanagerð um fjárhagsáætlun
og meðferð fjármuna hjá Akur-
eyrarbæ er gert ráð fyrir breyttu
fyrirkomulagi innan bæjarins.
Hingað til hafa nefndir og deild-
arstjórar gert tillögur til bæjar-
ráðs og ráðið skorið síðan tillög-
urnar niður og mótað þær að
raunverulegum tekjum bæjarfé-
lagsins. Núna er hugmyndin að
breyta þessu ferli þannig að
nefndir, ráð og deildarstjórar fái
þegar í upphafi vinnunnar ákveðna
fjárveitingu til málaflokksins.
Þeir komi síðan með tillögur sem
rúmist innan íjárveitingar en á
sama tíma er þeim gefið aukið
frjálsræði í meðferð fjármun-
anna. Þannig geta deildarstjórar
t.d. fjölgað eða fækkað fólki eftir
aðstæðum og fært á milli. Sumir
þættir eru þó bundnir, s.s launa-
mál, kjarasamningar og fleira.
Þessar breytingar taka gildi við
gerð fjárhagsáætlunarinnar fyrir
árið 1999. Starfsferillinn í því
máli var samþykktur sl. fimmtu-
dag og í gær var fundað með
starfsfólki þar sem breytingarnar
voru kynntar. Síðan mun bæjar-
ráð gera drög að þessum ramma
fyrir næsta fund og þar mun
hann samþykktur að öllu óbreyttu,
að sögn Sigurðar J. Sigurðssonar,
formanns bæjarstjórnar.
Sigurður segir að horft sé til
ákveðinnar fyrirmyndar í þessum
efnum: „Reykjavikurborg gerir
þetta svona f dag og það má segja
að borgin hafi sparað okkur veru-
lega vinnu með því fyrirkomulagi
sem þar hefur verið samþykkt.
Við höfum stefnt að þessu lengi
og hefðum viljað gera þetta fyrr.
Það skal þó tekið fram að um til-
raun er að ræða en það gæti far-
ið svo að ýmsir vankantar yrðu á
þessu við fyrstu gjörð,“ segir Sig-
urður. BÞ