Dagur - 30.10.1998, Síða 1
-ms\í'XT
8?ei aíatnxo ot auinau'taöa - S
Ltffræðingur og
pípulagningamað-
ur áttu sér draum.
Og hann erað ræt-
ast. Á morgun. Þau
eru á leið tilpara-
dísarfallhlífa-
stökkvarans!
Paradís fallhlífastökkvarans
er lítill bær, DeLand, í Flór-
ída í Bandaríkjunum. Þar er
sérstakt stökksvæði með
fallhlífastökksskóla og flykk-
ist þangað fólk af öllu tagi,
allt frá þeim sem vilja prufa
að stökkva einu sinni og til
fallhlífastökkvara í heim-
sklassa. Þangað flytjast þau
Kolbrún Kolbeinsdóttir og
Nikolai Elíasson á morgun
enda forfallnir fallhlífa-
stökkvarar. Þau voru ekki
lengi að ryðja upp úr sér
stökkunum sem þau eiga að
baki þegar blm. Dags heim-
sótti þau í farangurshrúguna
í vikunni. „431 stökk,“ svar-
aði Kolbrún að bragði.
„3700 stökk,“ sagði Nikolai
en hann á Islandsmet í fjöl-
da stökka.
Alclrilarík bíóferð
Nikolai og Kolbrún eru raunar
Islandsmeistarar í 2ja og 4ra
manna mynsturstökki og því eng-
ir aukvisar í greininni. Nikolai
hefur stundað fallhlífastökk í
rúm 12 ár og það var á landsleik
í fótbolta haustið ‘85 sem hann
sá - og féll fyrir - sýningu fall-
hlífastökkvara. Hann fór og
ræddi við stökkvarana eftir leik-
inn og byrjaði að læra um vetur-
inn. Það var hins vegar bíómynd
sem kveikti í Kolbrúnu. Hún fór
ásamt sambýlisfólki sínu á stúd-
eftirsjá í svip þeirra. „Land-
ið á ítök í mér,“ bætti þó
Kolbrún við, „en ekki þjóð-
félagið. Eg verð mjög fegin
að losna úr íslensku samfé-
lagi.“
I Flórída gæti hún hugs-
að sér að fara í framhalds-
nám í líffræði síðar meir
„en fyrst og fremst ætla ég
að ná góðum tökum á
stökkinu". Nikolai hefur
hins vegar unnið í meira en
áratug við pípulagnir uppi á
velli og virtist býsna ánægð-
ur með framvindu mála -
en hann fékk vinnu við
stökkskólann í DeLand án
nokkurra vandkvæða. Enda
hefur hann kennt fallhlífa-
stökk lengi, á Islandi og
víðar. M.a. hefur hann far-
ið þrisvar til Ítalíu að Ieið-
beina sérsveit Iögreglunnar
í fallhlífastökki. En hvað í
ósköpunum hafa ítalskar
löggur að gera með fall-
hlífastökk? „Þetta er svona
til að byggja upp egó og
macho ímynd en þeir hafa
aldrei notað fallhlífastökkið
hingað til - fara nú bara
Iandleiðina."
Lcyfði honum
að fljóta með
- Hefur þig kannski lengi
dreymt um að losna úr
pípulögnunu m og komast í
þetta?
Nikolai: „Þetta hafði
svona blundað með manni
lengi en þegar við unnum græna
kortið [atvinnu- og búsetuleyfi í
Bandaríkjunum] í lotteríinu þá
ákváðum við að kýla á það...“
Kolbrún: „Það var reyndar bara
ég sem vann. Við vorum ógift
þannig að við sendum inn tvær
umsóknir - þá höfðum við tvö-
faldan séns. Svo giftist ég honum
og hann fær að fara með. Eg á
gríðarlega hönk upp í bakið á
honum,“ segir hún brosandi.
Þá læddist út úr Nikolai: „Ég
fékk nú að kaupa húsið.“ -lóa
Kolbrún og Nikolai eru alfarin á morgun, búin að selja íbúðina í Njarðvík og kaupa hús í Flórída. „Það búa allir í einbýlishúsum
þarna. Það er bara ein blokk í bænum og það er elliheimilið, “ sagði Kolbrún. „Við erum ekki á leiðinni þangað í bi!i.“
entagarði við Háskólann á mynd-
ina Drop Zone, „fallhlífastökks-
mynd sem gerði allt vitlaust um
allan heim“ og eftir þá bíóferð
skellti 13 manna hópurinn sér á
fallhlífastökksnámskeið. „Ég ætl-
aði nú alltaf bara að fara eitt
stökk en þetta var svo skratti
gaman að ég hélt áfram..."
- Hvað fáið þið eiginlega tít úr
þessu?
„Þetta er eins og með aðrar
iþróttagreinar," svarar Kolbrún,
„maður stefnir að einhverju
marki og reynir að bæta sig. Fyrst
var þetta náttúrulega bara kikkið:
„vá, ég hoppaði út úr flugvél - og
lifði það af.“ Svo rann það smám
saman af manni og þá fór maður
að vilja læra, var ekkert gaman
lengur að detta bara eins og
steinhlunkur. Það er endalaust
hægt að bæta tæknina við að
stjórna líkamanum. En fallhlífa-
stökk byggir ekki minna á ein-
beitingu og að heilafrumurnar
vinni rétt,“ segir Kolbrún. „Það
má segja að þetta sé aðallega
andleg íþrótt, þótt það hljómi
skringilega," segir Nikolai. „Aðal-
málið er að stjórna nákvæmlega
öllum hreyfingum Iíkamans á
sama tíma.“
Kenndi ítölsku sérsveitinni
Kolbrún er nú búin að æfa í 3 ár
og - eins og menn hafa kannski
getið sér til - þá kynntust þau í
fallhlífastökkinu, hún var nem-
andi hans. En nú eruð þið búin
að selja íbúðina ykkar og kaupa
hús í Flórída - eruð þið farin til
að vera næstu áratugina? „Hik-
laust," segir Nikolai og var engin
IR-330
26 lítra
éo&yj
Fjöltrtörg
eldunatrkerf
8:52 H:&1 ci
D:41 cm\
©J ORMSSON