Dagur - 30.10.1998, Page 2
I
£ I - (í t' t> ' H 'n a ð M ö . i
18-föstudagúr 30.
LÍFIÐ í LANDINU
if a ð a a < *• u i' /, 0 'i
OKTÓBER 1 9 9 B
.TDa^tiir
ÞAD ER KOMIN HELGI
Hvaö
ætlar þú að
gera?
„Tilvalið að skella sér
uppá Skaga, “ segir
Bjarni Ármannsson,
forstjóri Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins.
„Þarfað nota einhvern
tíma til að undirbúa
kennslu, “ segir Elsa B.
Friðfinnsdóttir í heil-
brigðisdeild HA.
Fyrsta árshátíð bankans
„Það er nóg að gera um helgina. Við hjónin
eigum sjö mánaða tvíbura og 4 ára strák
þannig að við höfum alltaf nóg að gera við að
sinna börnunum,“ segir Bjarni Armannsson,
forstjóri Fjárfestingarbanka atvinnulísfins.
„Föstudagskvöld eru oft róleg hjá okkur, við
horfum saman á sjónvarp og höfum það nota-
Iegt. Fyrsta árshátíð bankans er á laugardag
og það verður gaman að gera sér glaðan dag
með starfsfólkinu. - Ef ég get væri tímabært
að mæta á hlaupaæfingu í hlaupaklúbbnum,
það er langt síðan ég hef mætt. En annars
förum við örugglega í gönguferð með börnin
á Iaugardag, hér á Seltjarnarnesi er gaman að
ganga um í góðu veðri. Stóri strákurinn verð-
ur hjá afa og ömmu á Skaganum um helgina.
Það er tilvalið að skella sér þangað um göngin
og fá sér kaffi með fjölskyldunni."
Á skíði á Dalvík
„Komandi helgi verður sambland vinnu og
slökunar. Ég þarf að nota einhvern tíma til að
undirbúa kennslu næstu viku, því stjórnunar-
þáttur starfsins tekur gjarnan virku dagana,"
segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, forstöðumaður
heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri.
„Ég geri ráð fyrir að þurfa eitthvað að sinna
undirbúningi fyrir flokksþing Framsókar-
flokksins sem verður í lok nóvember. Eins er
ég að vinna í mínu eigin framboði hér í kjör-
dæminu. En lífið er ekki bara vinna og ég vil
ekki hvað síst geta eytt tíma með dóttur
minni. Okkur er boðið í tíu ára afmæli systur-
sonar míns og svo er aldrei að vita nema við
skellum okkur á skíði út á Dalvík.“
leiksýningar, “ segir
Halldóra Geirharðs-
dóttir, leikkona.
Fjórar leiksýningar.
„Það er ljóst hvað ég mun gera um helgina,
bókuð í fjórar leiksýningar," segir Halldóra
Geirharðsdóttir, Ieikkona.
„A föstudagskvöld mun ég leika í Máva-
hlátri í Þjóðleikhúsinu og sama geri ég á
sunnudagskvöld. A laugardag ætla ég á Grees
í Borgarleikhúsinu með dóttur minni - og um
kvöldið er ég í Sex í sveit, sem er sýnt er þar.
Þegar sú sýning er búin fer ég í Kaffileikhús-
ið þar sem ég er í Barböru og Úlfari. Þetta er
stór pakki á einni helgi en svona verða helg-
arnar fram að jólum hjá mér. Gott væri að
gera eitthvað utan þessa, til dæmis ef einhver
biði f „brunce“ á sunnudagsmorgun. Það væri
notalegt."
f nýlegu viðtali sagði Árni Þórarinsson blaðamaður að hann kæmist alltafreglu-
lega í tísku aftur, enda þótt hippalegt útlitið virkaði á stundum út úr korti. Árni
hefur breyst mikið frá því þessi mynd var tekin 1976, hann er í raun orðinn
óþekkjanlegur frá því sem var. Skeggið og hárið orðið meira og gleraugun vant-
ar. Eða einsog þar stendur; hvar er húfan mín, hvar er hempan mín, hvar er
falska gamla fjögurra gata flautan mín?
LIF OG LIST
Átakasvæði
í heimiiiuin
„Mér finnst
alltaf gam-
an að lesa
bækur um
náttúru
Iandsins og síðustu dagana hef
ég verið að skoða bókina Skot-
veiðar í náttúru Islands eftir
Olaf E. Friðriksson. I fram-
haldinu langar mig svo til að
eignast fuglabókina eftir Ævar
Petersen með myndum Jóns
Baldurs Hlíðbergs," segir Þor-
björn Jensson, Iandsliðsþjálfari
f handknattleik. ,;Þá hef ég
líka verið að Iesa Atakasvæði í
heiminum eftir Jón Orm Hall-
dórsson og fjallar um helstu
styrjaldir heimsins á síðustu
árum, til dæmis á Norður-ír-
landi, fyrir botni Miðjarðarhafs og á Balkan-
skaga.“
Gítarsnillingurimi Santana
„Mér finnst gaman að hlusta
á gítarsnillinginn Santana og
bregð stundum diskum með
honum undir geislann.
Einnig hef ég alltaf kunnað að meta Toto. Þá
komst ég einhvern tímann á ferð í Þýskalandi
yfir geisladisk með skemmtilegum Iögum frá
Chile, fjörlegri flautu- og gítartónlist. Annars er
það helst að maður heyri þessi nýjustu og vin-
sælustu Iög sem ganga á útvarpsstöðvunum .“
Svæfandi rómantík
„Ég horfí mikið á handboltaleiki.
Að undanförnu hef ég legið yfir
leikjum með Sviss og Finnlandi
og nú er ég byrjaöur að horfa á
ungverskan handbolta vegna
tveggja leikja sem við eigum við Ungveija undir
lok næsta mánaðar. En ef ég horfi á alvöru vídeó-
myndir þá finnst mér skemmtilegast að horfa á
spennu- eða gamanmyndir. En á rómantískar
myndir horfi ég ekki; þá finnst mér tímanum allt
eins vel varið til þess að sofa og slíkar myndir eru
reyndar mjög svæfandi." -SBS.
■ fra degi til dags
Ef djöfullinn væri ekki til, hefðu menn
engar siðferðiskenningar til að fara eft-
ir. Þórbergur Þórðarson.
Þetta gerðist 30. október
• 1270 hófst áttunda krossferðin, og sú
síðasta.
• 1866 rændu Jesse James og félagar
2000 dollurum úr banka í Lexington í
Missouri í Bandaríkjunum.
• 1905 veitti Nikulás II Rússakeisari
þegnum sínum borgaraleg réttindi og
fyrsta Dúman (þing) var mynduð.
• 1922 myndaði Mussolini ríkisstjórn á
Ítalíu.
• 1936 olli sjávarflóð miklu tjóni suðvest-
anlands.
• 1944 var Anna Frank flutt milli nauð-
ungarbúða nasista, frá Auschwitz til
Belsen.
• 1947 undirrituðu 47 ríki GATT-sam-
komulagið í Genf.
• 1985 kom Sjevardnadse, þáverandi ut-
anríkisráðherra Sovétrfkjanna, í heim-
sókn til íslands.
Þau fæddust 30. október
• 1871 fæddist franska skáldið Paul Va-
léry.
• 1885 fæddist bandaríska skáldið Ezra
Pound, æðstiprestur módernista.
• 1930 fæddist spænski kvikmyndaleik-
stjórinn Nestor Almendros.
• 1932 fæddist franski kvikmyndaleik-
stjórinn Louis Malle.
• 1937 fæddist franski kvikmyndaleik-
stjórinn Claude Lelouch.
Vísa dagsins
Hallgrími Péturssyni hefur verið ansi kalt
á kvöldin þegar hann orti þessa vísu:
Kuldinn bitur kinnar manns,
kólnar jarðarfræið;
ekki er heitur andinn hans
eftir sólarlagið.
Afmælisbam dagsins
Charles Atlas, ein stærsta hetja
allra líkamsræktarforkólfa, fæddist
fyrir 105 árum, árið 1893. Hann
vann einhverju sinni í keppni um
fullkomnasta líkama í heimi, og eft-
ir það var keppnin Iögð niður, því
ekki þótti taka því að halda hana
aftur meðan þessi holdgervingur
fullkomleikans átti heimkynni sín á
jörðu niðri. Atlas lést 1972, en
keppnin hefur samt ekki verið tekin
upp aftur.
Brandari dagsins
Kallað var á lækni um miðja nótt úti á
landi. Veður var slæmt og færð frekar
erfið.
Eftir að hafa skoðað sjúklinginn, mann
á miðjum aldri, í krók og kring sagði
læknirinn, nokkuð hugsi: „Ertu búinn að
gera erfðaskrá'?"
„Nei,“ svaraði sjúldingurinn, og ekki
Iaust við að honum brygði. „Þá þarftu að
drífa í því, núna strax," sagði læknirinn.
„Kallaðu á lögfræðing og nánasta ætt-
ingja þinn.“
„Er þetta svona slæmt?" spurði sjúkl-
ingurinn, og var orðinn náfölur. „Nei, en
ég ætla ekki að vera sá eini sem er kall-
aður út um miðja nótt út af engu í þessu
veðri.“
Veffang dagsins
Með því að fletta upp á www.Arabic-
News.com má fá daglega nýjustu fréttir
úr Arabaheiminum.