Dagur - 30.10.1998, Qupperneq 8

Dagur - 30.10.1998, Qupperneq 8
-sms^qt - aee v RíahTío.os HoaoöH'fafta 2é'~7US~TVDAGVR 30. OKTÓBER 199 8 Listasafn Árnesinga Guöjón Stefán Kristjánsson opnar höggmyndasýningu á morgun ki. 14.00 í Listasafni Árnesinga á Selfossi. „Ég hef teiknað og tálgað frá því að ég var krakki, ólst upp við að tálga með hnff og lærði að smíða,“ segir Guð- jón Stefán. Hann notar eggjárn, - axir, hnífa og sporjárn - og heggur út í orðsins fyllstu merkingu. (Listasafninu verður einnig opnuð kynning og sýning Ásdísar Birgisdóttur, Katrínar Andrésdóttur og Margrétar Lindu Gunnlaugsdóttur á vörum söluhópsins Adesign á Netinu. Ýmislegt verður til skemmtunar við opnunina. Afkomendur Vatnsenda-Rósu kveða rímur og sýnendur og aðstandendur þeirra spila þjóðlög. Strandagóss verður á boðstólum. Sýningin er opin daglega kl. 14-17 nema mánudaga. Aðgangur er ókeypis. tfflawi mm _ W f V ' H j ytjj'm Rekaviöarstytturnar Á morgun kl.16 verður opnuð yfirlitssýn- ing á verkum Sæmundar Valdimarssonar í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, en eins og margir vita hefur Sæmundur aflað sér vínsælda með sérstökum rekaviöar- styttum sem hann hefur skorið f gegnum árin. Enginn annar en Guðbergur Bergs- son er sýningarstjóri enda hefur hann nú skrifað bók um ævi og verk Sæmundar sem kemur út á vegum Forlagsins á morgun. Á sýningunni eru 80 verk f einka- og opinberri eigu og munu þau gefa ágætis yfiriit yfir listferil Sæmundar. Auk þess eru þarna 30 ný verk sem flest verða til sölu eftir opnunardag- inn. Sýningin er opin aila daga nema mánudaga kl. 13-18 en henni týkur sunnudaginn 13. desember. Kvikt hold í Borgarbíói Kvikmýndaklúbbur Akureyrar sýnir nú um helgina spænsku kvikmyndina Kvikt hold, nýjustu mynd hins róm- aða leikstjóra Pedro Almodóvar, en hann skrifar einnig handritið eftir sögu Ruth Rendell. Almodóvar á að baki margverðlaunaðar myndir eins og Konur á barmi taugaáfalls, Bittu mig elskaðu mig og Kika. Tilgangslaust vopnaskak út af stúlku, veldur þvi að hinn ungi lögregluþjónn David verður að eyða því sem eftir er ævi sinnar i hjólastól, og hinn óheppni Victor iendir í fangelsi fyrir að hafa skotið hann. David giftist svo stúlkunni, og nær góðum árangri í íþróttum fatlaðra. Victor leggur á ráðin um hefnd, en þegar hann sleppur úr fangelsi verður atburðarásin ekki eins og hann hafði séð fyrir. Myndin er sýnd sunnudaginn 1. nóvember klukkan 17.00 og mánudaginn 2. nóvember klukkan 18.30. Miðaverð er 550 krónur, en ellilifeyrisþegar og skólafólk borga 450. Sýnt er í Borgarbíói. Allir hjartanlega velkomnir. ■ HVAB ER Á SEYÐI? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Unglist - Rokktónleikar Unglist ‘98 líkur með Rokktónleikum í Loftkastalanum í kvöld. Fram koma nokkrar af þekktustu hljómsveitum um þessar mundir: Fitl, Pornopopp, Jagú- ar, Ensími, Stjörnukisi, Bellatrix og Maus. Tónleikarnir eru í boði Skífunn- ar og Hljóðfærahúss Reykjavíkur og byrja kl. 20, aðgangur er ókeypis og er fólk beðið um að mæta tímanlega. Selkórinn Selkórinn á Seltjarnarnesi, ásamt Sin- fóníuhljómsveit Islands heldur tón- leika í Langholtskirkju á laugardaginn Id. 17 í tilefni af 30 ára afmæli kórsins. Tónleikarnir eru tileinkaðir minningu frú Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur fyrrverandi forsetafrúar og bæjarfull- trúa á Seltjamarnesi. Sveifla á Múlanum A sunnudagskvöldið nk. leikur Sveiflu- vaktin í tónleikaröð Múlans. Sérstakur gestur verður básúnuleikarinn Björn R. Einarsson. Með honum spila Guð- mundur R. bróðir Björns á trommur, Sigurður Flosason á sax, Tómas R. á bassa og Gunnar Guðmundsson á pí- anó. Á tónleikunum verða Ieikin þekkt lög frá swing-tímabilinu og byrja þeir kl. 21. Tundurskeytaflugsveitin Kvikmyndin Tundurskeytaflugsveitin var gerð í fyrrum Sovétríkjunum íyrir u.þ.b. 30-40 árum og lýsir baráttu sov- éskra liðssveita á norðurslóðum við flug- og herskipaflota Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni. Myndin er sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, á sunnudaginn kl. 15, aðgangur er ókeypis. Síðustu dagar rússneskrar sýningar Sýningu rússnesku listamannanna í MIR, Vatnsstíg 10, lýkur á sunnudag- inn. Á sýningunni eru um 30 verk. Sýningin er opin frá kl. 14-18. SvartkJædda konan Sjónleikur sýnir Svartklæddu konuna á Mánudagskvöldum í samvinnu við Flugfélag Islands til að koma til móts við þarfir þeirra sem ekki geta notaö helgarnar. Hægt er að verða sér út um pakka sem inniheldur flug, hótel og leikhúsmiða. Breiðfirðingafélagið Félagsvist verður spiluð í Breiðfirð- ingabúð, Faxafeni 14, sunnudaginn 1. nóv. kl. 14.00. Kaffiveitingar. Tónlistardagar Dómkirkjunnar Laugardaginn 31. október verða org- eltónleikar kl. 12 í Dómkirkjunni þar sem Marteinn H. Friðriksson leikur m.a. verk eftir: Bach, Mendelssohn, Leif Þórarinsson, Þorkel Sigurbjörns- son og C. Franck. Á sunnudaginn verða barokktónleikar í Dómkirkjunni í umsjá Þórunnar Guðmundsdóttur. Félag eldri borgara í Reykjavík Kynninga á leikriti Þjóðleikhússins, Sólveig eftir Ragnar Amalds vcrður í dagíÁsgarði kl. 14.30. Alafoss föt bezt I kvöld og laugardagskvöld verður haldið áfram mcð dagskrá sem hefur slegið í gcgn að undanförnu. Það er hljómsveitin Gildrumezz sem flytur dagskrána sem lileinkuð er Creedence Clearvvater Reevival. Miðaverð 600. Tónlistin sleppur laus Tónskóli Sigursveins heldur áfram með haustverkefni skólans í leikskól- anum Leikgarði kl. 14 í dag og lcik- skólanum Mánagarði kl. 15. Nemendaleikhúsið Nemendaleikhús Leildistarskóla Is- lands sýnir ( Lindarbæ leikritið Ivanov, eftir Anton P. Tsjekhov þessa dagana. Uppselt er á flestar sýningar en þó er enn hægt að fá miða 1., 5., og 7. nóv. Þorkelstónleikar í Hallgríms- kirkju A laugardaginn verða haldnir tónleikar til heiðurs Þorkeli Sigurbjörnssyni, en hann varð sextugur fyrr á árinu. Það eru fjórir kórar sem flytja valin kórverk ásamt hljóðfæraleikurum. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og er aðgangur ókeypis. Sjóðheit og dansvæn Hljómsveitin Funkmaster 2000 leikur á veitingahúsinu Vegamót á laugar- dagskvöldið. Ferðafélag íslands Myndakvöld verður í kvöld kl. 20.30 í Ferðafélagssalnum að Mörkinni 6. Inga Rósa Þórðardóttir og Ina D. Gísladóttir sýna myndir og segja frá spennandi gönguleiðum á Austfjörð- um. Carmen í Stýrimannaskólanum Á laugardaginn kl. 14 verður samkoma í Hátíðarsal Stýrimannaskólans þar sem starfsfólk skólans ætlar að minn- ast Þorsteins Valdimarssonar skálds sem hefði orðið áttræður um þessar mundir hefði hann lifað. Dagskráin hefst með erindi um skáldið, þá munu Sigríður Ella Magnúsdóttir og Ólafur Vignir Albertsson flytja lög úr Carmen sem skáldið þýddi við söngleikinn, einnig verður upplestur úr ljóðum Þor- steins. Hvemig við eignuðumst ná- granna Hvordan vi fik vores nabor, er eld- fjörug dönsk mynd sem sýnd verður í Norræna Húsinu á sunnudaginn kl. 14. Þetta er nútíma ævintýri sem gerist í hugarheimi ungs drengs. Myndin hæfir öllum aldri og er sýningartími 38 mín. Listasafh ASÍ Ásmundarsal Á laugardag kl. 16 verður opnuð sýn- ing Katrínar Sigurðardóttur. Katrín sýnir eitt verk og nefnist það Fyrir- mynd. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Ljóðaupplestur Hellasarhópsins Gunnar Dal, Sigurður A. Magnússon, Kristján Árnason og Tryggvi V. Líndal lesa úr ljóðum sínum á veitingahúsinu Lækjarbrekku, sunnudaginn 1. nóv. kl. 14.30. Soirée Francaise Mánudaginn 2. nóv. mun Listaklúbbur Leikhúskjallarans bjóða uppá franskt kvöld. Þar munu Frakkar og Frakk- landsvinir troða upp ásamt fleiri lista- mönnum. Dagskráin hefst kl. 20.30. Norræna Bamamyndahátíðin Nokkrar norrænar barna- kvikmyndir og stuttmyndir sem sýndar voru á Barnamyndhátíðinni verða sýndar í sal Norræna Hússins Iaugardaginn 31. október. Barbara & Úlfar - Splatter Spunaleikritið Barbara og Ulfar sem byggir á klassískum hryllingskvikmynd- um verður á miðnætursýningu í Kaffi- leikhúsinu á laugardagskvöldið kl. 24. Hafnarborg Ævi og list er yfirskrift sýningar Sigur- jóns Ólafssonar sem opnuð hefur verið í Hafnarborg menningar- og listastofn- un Hafnarfjarðar. Kjarvalsstaðir Þrjár sýningar verða opnaðar á Kjar- valsstöðum um helgina. Northern Factor - ný kynslóð í norrænni bygg- ingarlist. Halldór Ásgeirsson, Snorri Sigfús Birgisson og færeysk nútíðarlist. Tónleikar í Norræna Húsinu Sunnudaginn 1. nóv. kl. 17 spila Rún- ar Óskarsson, klarinettleikari og hol- lenski píanóleikarinn Sandra de Bruin, tónlist eftir O. Berg, B. Vistman, M. Arnold, D. Milhaud, E. Pekka Salonen, W. Lutoslawski og Þorkel Sigurbjörnsson. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna Á sunnudag verður Sinfóníuhljómsveit áhugamanna með tónleika í Neskirkju kl. 17. Stjórnandi á tónleikunum er Oliver Kentish og einleikari á fiðlu er Sigrún Eðvaldsdóttir. Fræðsludeild M.H.Í. Fyrirlestur verður á mánudaginn 2. nóvember. Ásta Ólafsdóttir myndlistar- maður fjallar um eigin verk og sýnir skyggnur. LANDIÐ Rúdolf í Reykholtskirkju Söngkvartettinn Rúdolf syngur í Reyk- holtskirkju við messu sunnudaginn 1. nóv. kl. 14. Söng - leikir ísafjörður Ingveldur Ýr sópran og Gerrit SchuII píanó verða á söngskemmtun í sal Grunnskóla Isafjarðar laugardaginn 31. okt. kl. 15.30. Þau munu flytja Iög úr söngleikjum, kvikmyndum og leik- ritum. Skáldið og tónlistarmaðurinn á Vopnafirði Á laugardaginn 31. okt. verður flutt dagskrá í félagsheimilinu Miklagarði, Vopnafirði sem er helguð minningu Þorsteins Valdimarssonar frá Teigi. Meðal annars mun Hjalti Rögnvalds- son lesa úr Ijóðum skáldsins. Dagskrá- in hcfst kl. 15. Sóldögg með Skítamóral og Súrefni Á laugardagskvöldið verða tónleikar og dansleikur í Miðgarði í Skagafirði þar sem fram koma hljómsveitirnar Sól- dögg, Skítamórall og Súrefni. Land-s-Iag Á laugardaginn kl. 15 verður opnuð sýning á verkum Drafnar Friðfinns- dóttur í Gallerí Svartfugli í Listagili á Akureyri. Sýnd verða verk unnin í gler. m, - Húsmóðir á götunni Anna Richardsdóttir' gerir hreint í göngugötunni í dag milli 16.30 og 17 henni til aðstoðar er trommarinn Karl Pedersen sem trommar í blíðu. ,'3s . VIKING vtkuna 30. okt til 6. nóv Stjómandi iistans er | Þróinn Bjömsson NR. i. LAG My favorite gome FLYTJANDI Cordigons VIKA 1 2. Never there Cake 1 3. Loords of the boords Guano opes 2 4. 1 wont you bock Mel b og missy elliott 6 5. 1 just wanno be wliit you E-type 7 6. Somone loves you honey Lutricio Mcneol 11 7. Outside George Michoel 3 8. Relox Deetoh m 9. Tesify M people 12 10. How crozy ore you? Meja r 11. Woter Verve More von dale 4 12. Con'tlakemyeyseof you Louryn Hill 18 13. Big night out Fun loving Criminnls 19 14. Wolking affer you Foo fighters 8 15. You stole the sun from my heort Monic steet preochers 16. If you could reod my mind Stors on 54 Ultro note og omber 5 17. Girlfriend Billie m 18. God is a dj Foithless 17 19. Ifyou tolerate thisyour.. Monic steet preachers 10 20. You got (whot 1 wont) Groof 11 ^»ASTA VIKUR Á LISTA Listinn er spilaður á föstudögum milli kt. 20 og 22 Hlustaðu á Frostrásina í beinni á internetinu http://nett.is/frosrasin • E-mail: frostras@nett.is mælirmeð... • • • að láta hræða úr sér líftóruna bæði á Akureyri og í Reykja- vík. A draugasögukvöldi í Deiglunni í kvöld og á hrollvekjusýn- ingu í Kaffileikhúsinu annað kvöld vúú vúú ... • • • hugsa vel um dýrin sem hýrast í kulda og vosbúð. Ef mað- ur á brauð er hægt að gefa það smáfuglum, öndum og hestum. • • • fara með börnunum í leikhús ekki bara skilja þau þar eftir og sækja þau þegar allt er búið. Einsog einhver sagði: „Upplifun þeirra Iifir mikið lengur ef þau fá tækifæri til að tjá sig um verkið með fullorðna fólkinu á heimilinu.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.