Dagur - 31.10.1998, Blaðsíða 1
Kratar leiði lista sam-
fylidngar á Reykj anesi
Flokkarnir í samfylk-
inguimi eru farnir að
gefa eftir til að ná
sáttum. Samkomulag
um að kratar leiði
listann á Reykjanesi.
Alþýðubandalagið vUl
leiða listann í Reykja-
vík.
Samkvæmt heimildum Dags hafa
alþýðubandalagsmenn fallist á að
kratar leiði lista samfylkingarinn-
ar á Reykjanesi. Rætt hefur verið
um að kratar fái þar I. sæti, Al-
þúðubandalagið 2. sæti, kratar 3.
sæti og síðan skiptust þrjú
næstu sæti með einhverjum
hætti milli A-flokkanna og
Kvennalistans.
Eftir að alþýðýbandalagsmenn
hafa samþykkt þetta segja þeir
ekki annað koma til greina en að
þeir leiði listann í Reykjavík.
Samkvæmt heimildum Dags eru
þeir Iíka tilbúnir til að snúa
dæminu við - þeir leiði Iist-
ann á Reýkjanesi en kratar
Ieiði þá í Reykjavík. Alþýðu-
bandalagsmenn segja að A-
flokkarnir verði að skipta með
sér að leiða listana í R-kjör-
dæmunum.
viljað uppstillingarnefnd til að
ganga frá listanum.
Eitthvað er farið að draga úr
þessum íturkröfum. Samkvæmt
Prófkjör með girðingum
Af samtölum við fólk úr A-
flokkunum að dæma eru báð-
ir flokkarnir farnir að gefa eft-
ír hvað varðar aðferðina við að
koma saman lista í Reykjavík.
Svo virðist sem báðir hafi spennt
bogann til hins ítrasta í ákveðinni
valdabaráttu.
Lengi vel féllust kratar ekki á
annað en galopið prófkjör. Þar
réð Ossur Skarphéðinsson Ieið-
togi þeirra í Reykjavík ferðinni.
Svavar Gestsson, leiðtogi Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík, hefur
Össur Skarphéðinsson. Svavar Gestsson.
heimildum Dags eru kratar til-
búnir til að hafa ákveðnar girð-
ingar í prófkjörinu. Þeir benda á
að Svavar og Bryndís Ellöðvers-
dóttir muni berjast um efsta sæt-
ið hjá Alþýðubandalaginu, en
Ossur Skarphéðinsson hafi eng-
an keppinaut í Alþýðuflokknum í
Reykjavík, og að ef Svavar og
Bryndís fengju samtals fleiri at-
kvæði en Össur þá eigi Alþýðu-
bandalagið að fá efsta sætið.
Alþýðubandalagsmenn eru líka
farnir að gefa eftir. Þannig munu
þeir nú vera tilbúnir til að
nota sömu aðferð við að koma
saman Iista og Reykjavíkur-
listinn notaði 1994. Þá yrði
fyrst ákveðið hvaða sæti
flokkarnir fá á listanum og
sfðan yrði forval eða prókjör
innan flokkanna um hvaða
menn taki sæti á listanum.
Kosningastefnuskrá
Undanfamar vikur hefur ver-
ið unnið að samningu kosn-
ingastefnuskrár fyrir samfylking-
una upp úr þeim málefnapakka,
sem kynntur var í haust. Sam-
kvæmt heimildum Dags er fullt
samkomulag milli A-flokkanna
og Kvennalistans um það sem
þegar er frágengið varðandi
stefnuskrána, en það verður til
umræðu á Iandsfundi Kvenna-
listans í Reykholti.
í stefnuskránni verður mikil
áhersla lögð á jafnrétti kynjanna
á öllum sviðum. Þar má nefna
fæðingarorlof og fleiri þekkt mál
tengd jafnréttismálunum. Gert
er ráð fyrir að stofnað verði jafn-
réttisráðuneyti.
Menntamálin eru líka mjög of-
arlega á baugi. Þar er talað um
uppbyggingu menntakerfisins
sem hafi sett niður undanfarin
ár.
I stefnuskránni er talað um að
byggja velferðarkerfið upp aftur.
Þar er átt við, svo dæmi séu tek-
in, heilbrigðisþjónustuna, félags-
lega þjónustu og hækkun á elli-
og örorkulífeyri.
Loks er lögð þung áhersla á
málaflokk sem nefnist umhverf-
is—, auðlinda- og atvinnumál og
eru þessir málaflokkar settir sam-
an í einn pakka.
Enda þótt stefnuskráin verði til
umræðu hjá Kvennalistanum í
dag hafa ekki allir endar verið
hnýttir. -S.DÓR
Mega selja
skó í Homa-
fírði
!icMilil. <kkl
Sigurður tveimur kaup-
Fannar Guð- mönnum á Sel-
mundsson: fossi að selja þar
Áfangasigur í föt og skó einsog
málinu. þeir höfðu
áformað. Hefur
sýslumaðurinn
nú veitt þeim leyfi til skósölu, en
föt mega þeir ekki selja að svo
komnu máli.
„Þetta er áfangasigur í mál-
inu,“ sagði Sigurður Fannar
Guðmundsson, kaupmaður í
Maí á Selfossi, í samtali við Dag.
„Eg og félagi minn, Ingvar Jóns-
son í Skóbúð Selfoss, förum
sjálfsagt austur einhverja helgina
nú á næstunni og seljum Horn-
firðingum skó úr því leyfið er
fengið." - SBS.
Úlafur Ragnar Grímsson forseti íslands afhenti í gær Gyrði Elíassyni Ijóðskáldi bjartsýnisverðlaun Bröstes 1998.
Þetta er í 18. sinn sem verðlaunin eru veitt og nemur vinningsupphæðin um hálfri milljón króna. Á myndinni má
sjá Gyrði og Kristínu eiginkonu hans taka við táknrænni ávísun úr hendi forseta. mynd: teitur
Skelfíleg
afkoma
Afkoma landsbyggðarhótela hef-
ur verið „skelfileg" að undan-
förnu, að sögn Ernu Hauksdótt-
ur, framkvæmdastjóra Sambands
veitinga- og gistihúsa. I Hag-
könnun SVG fyrir árið 1997
kemur í ljós að í afkomu fyrir af-
skriftir, leigu og íjármagnskostn-
að skila hótelin í Reykjavík 30,38
prósentum upp í framangreinda
kostnaðarliði og hefur sú tala
verið óbreytt síðari ár. Lands-
byggðarhótelin skila á hinn bóg-
inn aðeins 5,94 prósentum og
hefur sú staða versnað að und-
anförnu.
„Þessi afkoma landsbyggðar-
hótelanna er að sjálfsögðu skelfi-
leg og ljóst að slíkur taprekstur
getur ekki gengið til lengdar,"
segir Erna. Stjórn SVG hefur
þungar áhyggjur af þróun þess-
ara mála. „Það hiýtur að vera
umhugsunarefni hver stefna
lánasjóðanna er þegar litið er til
mikilla fjárfestinga í gistingu út
um allt land á meðan afkomutöl-
ur eru með þessum hætti,“ segir
Erna. — BÞ
WOniDW/DE EXPfíESX
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
Gabriekf
(höggdeyfar)
Gi
varahlutir
Hamarshöfða 1-112 Reykjavík
Sími 567 6744-Fax 567 3703