Dagur - 31.10.1998, Blaðsíða 6

Dagur - 31.10.1998, Blaðsíða 6
6-LAUGARDAGUR 31.0KTÓBER 1998 ÞJÓÐMÁL Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjórar: stefán jón hafstein ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aöstodarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 KR. Á mánuði Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Simar auglýsingadeildar: cREYKJAVíK)563-i615 Ámundi Ámundason (AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyro 551 6270 (reykjavi'k) Hæfir einstaklingar í fyrsta lagi Rétt tæp 80% kjósenda vilja að hlutur kvenna í stjórnmálum sé aukinn frá því sem nú er samkvæmt skoðanakönnun Gallup fyrir Skrifstofu jafnréttismála. Þessi afdráttarlausa yfirlýsing almennings um að auka vægi kvenna í stjórnmálum vekur at- hygli í Ijósi þess að lýðræðisleg stjórnmálastarfsemi ætti að vera sá vettvangur sem er hvað næmastur fyrir almenningsáliti af þessu tagi. Þessi sami almenningur hefur heldur ekki látið það neitt sérstaklega sterkt í ljós í kosningum að hann refsi flokkum fyrir kvennmannsleysi á listum. Þó hafa flokkar talið sig hafa vísbendingar um að nauðsynlegt sé að flagga einhverj- um konum á listum sínum. í öðru lagi Þá vekur þessi niðurstaða athygli í ljósi þess að í sveitarstjórn- arkosningunum í vor fjölgaði konum ekki nema örlítið frá því sem var á síðasta kjörtímabili. Þannig eru konur innan við 30% kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum ef skoðuð eru öll sveitarfé- lög, en vissulega nokkuð fleiri ef aðeins eru talin með stærri sveitarfélög. Það virðist því ekki að hlutfallslega lágt hlutfall kvenna í pólitík er viðvarandi ástand sem hefur ekki breyst í grundvallaratriðum frá því fyrir rúmum fjórum árum. Hins vegar er greinilegt að eitthvað er verulega bogið við íslensku flokkana fyrst þessi almenni vilji til að auka hlut kvenna skil- ar sér ekki alla leið. í þriðja lagi Eflaust er tímasetning Skrifstofu jafnréttismála á þessari skoð- anakönun ekki tilviljun, en nú er verið að velja inn á framboðs- lista flokkanna. Skilaboð könnunarinnar eru skýr: Fleiri konur ofarlega á lista! Gamla mótbáran sem jafnan heyrist í flokkun- um er að fólk sé ekki að kjósa milli karla og kvenna, heldur séu menn að kjósa „hæfa einstaklinga“ á vissulega rétt á sér þótt hún sé orðin nokkuð þreytt. Auðvitað vilja menn hæfa einstak- linga - en hæfir einstaklingar eru til af báðum kynjum ekki síð- ur en óhæfir. Hið eðlilega svar flokkanna við þessu ótvíræða almennigsáliti er einfaldlega að slá tvær flugur í einu höggi: Bjóða upp á hæfa einstaklinga, sem jafnframt eru konur! Birgir Guðmundsson. Beinar útsending- ar úr miðbænum Garri er nútímalegur í hugsun. Garri er satt að segja nútíma- maður fram í fingurgóma, kann að senda tölvupóst og líka að opna tölvupóst sem hann fær. Garri drekkur Cappuchino kaffi og hefur vit á rauðvíni og ostum. Hann er með öðrum orðum fijálslyndur og víðsýnn. Garri er á móti öll- um boðum og bönnum og styður upplýsingasamfélagið heilshugar. Þess vegna styður hann heilshugar tilögu stjórnar fé- lags Netveija um að beintengja ör- yggismyndavélar lögreglunnar í miðbæ Reykjavík- ur og senda þær út á Netinu. Það eru æpandi augljósir kostir við beinar útsendingar úr sollin- um í miðbænum. Foreldrar þurfa þá ekki lengur að eyða tíma sínum í þetta foreldrarölt til að fylgjast með unglingun- um sínum. Þeir skella sér bara á Netið og ef ormurinn þeirra er í miðbænum en ekki á körfuboltaæfingu eins og hann átti að vera þá er bara að hringja í gsm símann (sem all- ir unglingar með unglingum eru jú með) og skipa kauða að koma strax heim. Konur og menn sem gruna sinn ektamaka um græsku geta líka kíkt á Netið og tékk- að á því hvort eiginmaðurinn eða -konan eru þar að gera eitthvað sem ekki má með ein- hverjum sem þau eiga ekki að vera með. Sjónvarpað beint Beinar útsendingar frá mið- bænum veita líka lögreglunni nauðsynlegt aðhald. Ef við getum öll fylgst með því hver er að gera hvað í miðbænum er enginn hætta á að Gogg og félagar í lögreglunni í Reykja- vík geta farið að steyta gogg og abbast upp á saklausa borgara. Síðast en ekki síst eru bein- ar útsendingar úr Ijónagryfjunni sem kölluð er miðbær Reykjavíkur ábyggi- lega ljómandi skemmtileg efni og ódýr afþreying. Það er reyndar spurning hvort ekki eigi að tengja öryggismynda- vélarnar beint inn á sjónvarp allra lands- manna. Það myndi örugglega vekja meiri lukku en þessar viðburðalitlu útsendingar frá Alþingi. Ríkissjónvarpið er lfka alltaf búið svo snemma á kvöldin og mesta Ijörið í mið- bænum hefst ekki fyrr en löngu eftir miðnætti. Garri er sannfærður um að beint sjónvarp úr miðbænum yrði feikivinsælt. Framan af. Sennilega myndi leikurum í miðbæjar „showinu" fækka fljótlega. Sennilega myndi allt líf í miðbænum leggjast af fljótlega eftir að útsendingar þaðan hæfust. Og það er kannski best. Þeir sem ekki þola að vera undir stöðugu eft- irlit samborgara sinna eru best geymdir heima sér. GARRl. Heilbrigiðseftirlit Reykjavíkur hefur komist að því að helsta nautnalyf almennings er kraum- andi af saurgerlum og fleiru ógeðslegu sem gengur undir því- líkum nöfnum að venjulegt fólk getur ekki stautað sig fram úr þeim. Eftir rassíu á „líkamsrækt- arstöðvum" tilkynnir eftirlitið að pottanir þar séu gegnumgang- andi pestarbæli sem geti smitað þvagfæri og fleira sem fólki er dýrmætt. Sérstaklega fólki sem heldur að það sé að gæta heíls- unnar. Stórtíðindi í heimi heilsurækt- ar. Fyrir hvern? Ónýtar upplýsingar Eitthvað var talað um að saur- gerlaQöldinn í pottunum væri sums staðar slíkur að hann væri óteljandi, iafrivel fyrir hámennt- aða líffræmnga. Nú spyr ég, maður sem læt oft Fyrir hvem er heilbrigdiseftMit? fara vel um mig í potti á tiltek- inni líkamsræktarstöð: Hvað ber að varast? Þetta heilbrigðiseftirlit er nefnilega ekki svo vel vaxið að Iáta i té upplýs- ingar um búskussa í hreinlæti nema með eftirgangs- munum. Eftir að Morgun- blaðið og Stöð 2 höfðu sagt manni að varla væri fært í nokkurn pott nema í kafara- búningi fóru greinilega að renna tvær grímur á Qölmiðlamenn hingað og þang- að í bænum. I gær hringdu Dag- ur, Stöð 2 og Mogginn í eftirlitið og kröfuðst listans yfir saurgerla- kónga landsins svo hin pottelsk- andi alþýða vissi hvert hún gæti snúið sér með þvagfærin óhult. Það eru nefnilega alveg ónýtar upplýsingar að segja manni að „sumir“ pottar eða „næstum all- ir“ séu hefndar- gjöf. Maður vill vita: hvað um minn pott? Athuga siiin gang Stutt samtal við fulltrúa innan veggja eftirlits- ins í gær leiddi í ljós að þar eru menn ekki al- veg á eitt sáttir um hve „harkalega“ eigi að ganga að óþrifnaðarmönnum með því að ljóstra upp um gerlasafn þeirra. Eftirlitið fór í heimsókn á stöðvarnar og Ieiddi stjórnend- um potta fyrir sjónir hvenig ætti að halda óþrifum í skefjum. Síð- ar var gerð könnun á því hverjir hefðu tekið mark á. Sú niður- staða er nú lýðum ljós. Ekki stóð til að skýra frá því hverjir stæðu vel fyrir sínu, og hvaða potta bæri að varst. Þetta er grundvallar rökvilla hjá Heiibrigðiseftirlitinu. Eftir að eðlileg viðvörun hefur verið gefin og frestur til að bæta ráð sitt á almenningur heimtingu á að vita hverjir standa sig. Hvort sem það eru pottastjórar Iíkams- ræktarstöðvanna, kryddframleið- endur (hér nefndir að gefnu til- efni) eða einhvetjir aðrir sem Iokka fólk og laða til fylgilags við sig undir fölsku flaggi. Nú hafa fjölmiðlarnir fengið saurgerlalistann - með því að hóta lögsókn! Þorirþú í heita potta eftirað í Ijós hefurhom- ið að vatn í 9 afllpott- um á líhamsræhtar- stöðvum í Reyhjavíh reyndist mjög mengað? Stefán Matthíasson læhtir í Reykjavík. “Já, ég geri það. Fyrir það fyrsta er ég viss um að athugasemdir Heilbrigðiseftir- litsins eru þan- nig að flestir munu kippa málum hjá sér í Iiðinn og í öðru Iagi eru athugasemdir hjá flest- um minniháttar." Þorsteinn Þorsteinsson sundlaugarvörður á Ahireyri. “Það myndi ég þora óhikað. Þegar heilbrigð- isfulltrúi hefur verið að mæla hér hjá okkur í Sundlaug Akur- eyrar hefur hann oft furðað sig á því hve vatnið hér sé óvenjulega hreint. Það megi nánast drekka það. Þetta höfum við talið mikinn plús hjá okkur og þetta byggist meðal annars á því að við höfum kappkostað að hafa rétt klór- magn í pottunum. Einnig hefur eftirlitið verið mjög stíft og hreinleiki vatnsins er mældur oft á dag.“ Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og sund- laugargestur á Aktireyri. “Ég fer aldrei í heita potta á lík- amsræktar- stöðvum í Reykjavík, bara í vel hreinsaða potta í Sund- laug Akureyrar og öðrum sundlaugum. Mér hef- ur aldrei orðið meint af þeim pottaferðum - heldur þveröfugt. Og í sjálfu sér lít ég eldd svo á að gruggugt vatn sér hættulegt." Bjöm Leifsson Jtamkvænidastjóri World Class. “Þori ég? Ég set dóttur mína að minnsta kosti einu sinni í viku í pottinn þannig að ég hlýt að þora með henni. En mér finnst ámælivert að í sjö ár var ég með stöð með heitum potti í Skeifunni og aldrei komu menn frá Heilbrigðiseftirilitinu þangað til að athuga mál, þó við greiðum verulegar fjárhæðir í eftirlits- gjald. En nú gera þeir í fyrsta skipti athuganir á heitum pott- um á Iíkamsaræktarstöðvum og slá sér upp á því í fjölmiðlum að þetta skuli ekki vera í lagi - í stað þess að gera athugasemdir og gefa mönnum tækifæri til þess að bæta úr. Sjálfir hafa þeir ekki staðið við eftirlitsskyldu sína með þyí að mæta reglulega og taka staðina út.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.