Dagur - 03.11.1998, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 3.NÓVEMRER 1S98 - 3
rD^tr
FRÉTTIR
Aðstoðarfólk í stað
meinatæknaima?
Brotthvarf 40-50 meinatækna frá Ríkisspítulum bitnar einna helst á þeim sem
beðid hafa eftir skurðaðgerðum. Viðbúið er að biðlistar muni lengjast frá því sem
verið hefur.
Veruleg röskun á
starfsemi Landspít-
ala. Bitnar á sjúkiun.
40-50 meinatæknar
hættir störfum. Sam-
starf við erlendar
rannsóknarstofur.
Svo kann að fara að stjórnendur
Ríkisspítala ráði til sín aðstoðar-
fólk og annað heilbrigðismennt-
að starfsfólk en meinatækna til
að sinna ýmsu því sem þeir hafa
sinnt í störfum sínum. Sömu
heimildir innan heilbrigðiskerf-
isins segja nokkuð ljóst að ekki
munu allir þeir meinatæknar
sem hafa hætt, sækja um endur-
ráðningu þegar deilan leysist.
Biðlistar lengjast
„Þetta bitnar kannski einna helst
á þeim sem eru að bíða eftir
skurðaðgerðum," segir Anna
Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri
Ríkisspítala. Af þeim sökum tel-
ur hún að sú röskun sem verður
á starfseminni vegna uppsagna
40-50 meinatækna geti leitt til
þess að biðlistar eftir aðgerðum
lengist enn frekar.
Erlendar rannsóknarstofur
Til að bregðast við þessum vanda
eru stjórnendur Ríkisspítala að
Ieita fyrir sér með samstarf við
erlendar rannsóknarstofur til að
senda sýni til rannsókna. Þarna
er um að ræða rannsóknarstofur
bæði á Norðurlöndunum og í
Englandi. Sömuleiðis er verið að
leita eftir samstarfi við innlendar
rannsóknarstofur. Þá hefur því
verið beint til héraðslæknisins í
Reykjavík að hann beiti sér fyrir
því að læknar leitist við að fækka
sjúklingum sem sendir eru á
bráðamóttöku. Jafnframt er ætl-
ast til þess að læknar sem vísað
hafa sjúklingum sínum til rann-
sókna á Landspítalann, vísi þeim
á aðrar rannsóknarstofur, sé það
mögulegt. Þá mun starfsfólk
Sjúkrahúss Reykjavíkur mæla
sýni ef þörf krefur. Hins vegar
verður öllum valaðgerðum hætt.
Hðfnuðu 25% hækkun
Pétur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Ríkisspítala, segir að
meinatæknum hafi verið boðnar
sambærilegar Iaunahækkanir og
aðrir hafa fengið og jafnvel ívíð
meira. Hann segir engar samn-
ingaviðræður í gangi eftir að
slitnaði upp úr um helgina, enda
erfitt að semja við fólk sem hætt
hefur störfum.
I þessu sambandi er m.a. bent
á að meinatæknar á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur hafa sætt sig við
sambærilegar röðunarreglur og
félögum þeirra hefur verið boðið
á Ríkisspítulum. Samkvæmt til-
boði Ríkisspítala til meinatækna
var þeim boðið alls 24,8% launa-
hækkun til viðbótar við 4%
launahækkunina sem þeir fengu
í ársbyrjun. Það þótti meina-
tæknum ekki nóg. GRH
Davíð Oddsson: „Ef skipuritið stang-
ast á við lög þá gilda lögini'
Lögin æðri
skipiiritmu
Ef skipuritið stangast á við lög
þá gilda lögin en ekki skipuritið,
sagði Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra á Alþingi í gær í svari
við fyrirspurn Ogmundar Jónas-
sonar um nýtt stjórnskipurit
sem dómsmálaráðherra hyggst
láta taka upp hjá lögreglustjóra-
embættinu í Reykjavík um ára-
mótin.
Ogmundur hélt því fram að
nýja skipuritið gerði lögreglu-
stjóra að eins konar staðgengli
varalögreglustjóra og það stríddi
gegn landslögum, þar sem
áhersla er lögð á sjálfstæði ein-
stakra lögreglustjóra.
Forsætisráðherra sagðist ekki
hafa séð tillögurnar og að þær
hefðu ekki verið ræddar í ríkis-
stjórn. En ef skipuritið stangað-
ist á við lög þá giltu lögin en ekki
skipuritið. Ogmundur fagnaði
svari Davíðs og sagðist treysta
því að ríkisstjórnin og forsætis-
ráðherra tækju fram fyrir hend-
ur dómsmálaráðherra. — FÞG
Útgerðarmeim sakaðir
um villaudi auglýsingar
Samtök um þjóðar-
eign segja auglýsing-
ar útgerðarmauna
villaudi. Þeir hafi
peninga en engan
málstað. LÍÚ vísar
ásökunum á hug.
Samtök um þjóðareign hafa
ákveðið að kæra Landssamband
íslenskra útvegsmanna, LIÚ, fyr-
ir Samkeppnisstofnun vegna
brota á 20. grein, 21. og 22.
grein laga um samkeppnismál.
Astæðan er villandi og rangar
upplýsingar sem fram koma í
auglýsingum LÍÚ í fjölmiðlum.
Formaður LIÚ vísar þessum
ásökunum á bug.
Peningar en ekki málstað
Bárður G. Halldórsson, varafor-
maður Samtaka um þjóðareign,
Pétur Einarsson og Báður G. Hall-
dórsson eru óhressir með LÍÚ.
segir að LÍÚ hafi gnótt af pen-
ingum en engan málstað í kvót-
anum. Sem dæmi um rangfærsl-
ur og blekkingar bendir hann
m.a. á að í einni auglýsingu út-
vegsmanna sé staðhæft að fisk-
urinn Ieggi landsmönnum til sjö
af hverjum tíu krónum. Hann
segir Þorvald Gylfason hagfræði-
prófessor hafa hrakið þessa full-
yrðingu útvegsmanna til baka
með því að benda á að útvegur-
inn stendur á bak \ið rösklega
helminginn af gjaldeyristekjun-
um. Það þýðir eina krónu af
hverjum sex en ekki sjö af hverj-
um tíu.
Fræða og upplýsa
„Það kemur skýrt fram að þetta
eru sjö krónur af hverjum tíu
krónum af vöruútflutningi
landsmanna,“ segir Kristján
Ragnarsson, formaður LIÚ.
Hann minnir á að með þessum
auglýsingum séu útvegsmenn að
fræða og upplýsa almenning um
almenn atriði um sjávarútveg.
Hann undrast einnig að kært sé
vegna 21. og 22. greina í sam-
keppnislögum vegna þess að þær
fjalla um viðskipti, vöru og þjón-
ustu. - GRH
Sýknaður vegna vafans
Veitingamaður í Reykjavík hefur
verið sýknaður af ákæru um virð-
isaukaskattsvik í rekstri. Fjöl-
skipaður héraðsdómur leit svo á
að þar sem skjöl og gögn sem
ákærði bar að halda og varðveita
væru ekki til staðar væri einungis
hægt að byggja á áætlunum
skattrannsóknarstjóra og taldi að
þessar áætlanir væru reistar á
litlum sem engum gögnum.
Dómararnir sögðu meðal ann-
ars um áætlun um keypt áfengi
að ekki hefði verið sýnt fram á að
veitingamaðurinn hefði keypt
það í rekstur sinn, heldur hefði
annar maður hafa keypt það í
annan rekstur. Töldu dómararnir
að ákæruvaldið hefði ekki lagt
fram gögn til að þeir gætu metið
málið sjálfstætt og væri því ein-
göngu hægt að áætla andlag
brotsins og skorti lagaheimild til
þess fyrir dómara að byggja á
áætlunum og reiknilíkönum.
Veitingamaðurinn rak á um-
ræddum árum, 1992-94, veit-
ingahúsin Apríl í Hafnarstræti,
Glætuna og Tongs takeaway í
Hafnarstræti og Blúsbarinn við
Laugaveg. Skattrannsóknarstjóri
áætlaði vantalda veltu vera 15,3
milljónir og undanskotinn virðis-
aukaskatt því vera 3,4 milljónir
króna. Veitingamaðurinn var úr-
skurðaður gjaldþrota 1995.
Hann neitaði sök allan tímann
og mótmælti áætlununum. — FÞG
ísland til forystu í Evrópuráðinu
Island tekur við varaformennsku í Evrópuráðinu á miðvikudaginn.
Það er undanfari þess að Island taki við formennsku í ráðinu. Það
mun gerast í maí á næsta ári - en þá er hálf öld liðin frá stofnun Evr-
ópuráðsins.
Milljarða hagnaður af spilakössum
I svari Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra á Al-
þingi við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur
um hvað spilakassar og söfnunarkassar hefðu skil-
að Happdrætti Háskólans og Islenskum söfnunar-
kössum miklum fjárhæðum kemur fram, að á árun-
um 1994 til 1997 námu tekjurnar 3,9 milljörðum
króna.
Þeir aðilar sem fá þessar tekjur af söfnunar- og
spilakössum eru Happdrætti Háskólans og Islensk-
ir söfnunarkassar en að þeim standa Rauði kross-
inn, SAA, Landsbjörg og Slysavarnafélag Islands.
Tekjur HI af kössunum nema 2,3 milljörðum króna þessi ár og
fyrstu 9 mánuði þessa árs. Um helmingur teknanna fer í vinninga
þannig að nettóhagnaður HI nam 1,14 milljörðum króna.
Tekjur ISK árið 1994 námu 535 milljónum króna, 595 milljónum
árið 1995, 716 milljónum 1996 og 809 milljónum 1997. Inni í þess-
um tölum eru ekki fyrstu 9 mánuðir þessa árs. -S.DÓR
Óskiljanlegt og óþolandi
Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Islands telur það í senn bæði óskilj-
anlegt og óþolandi að samtök atvinnurekenda skuli markvisst vinna
að því að brjóta niður löglega gerða kjarasamninga og flytja störf úr
landi.
Fundurinn sendir íslenskum farmönnum baráttukveðjur og tekur
heilshugar undir sjónarmið þeirra gegn kaupskipaútgerðum. Bent er
á að Rafiðnaðarsambandið hafi á undanförnum mánuðum staðið í
þva' að verja samkeppnisstöðu íslenskra rafiðnaðarfyrirtækja gagnvart
erlendum undirboðum.
Þá hvetur fundurinn miðstjórn ASI og fulltrúa launamanna í stjórn
Vinnueftirlits að endurskoða afstöðu sína til forstöðumanns stofnun-
arinnar. Astæðan er m.a. sú að forstöðumaðurinn lét ógilda reglu-
gerð sem tryggði þar með „aftöku'1 trúnaðarmanns rafiðnaðarmanna
við Búrfellslínu. — GHR
i .CaSÍ íi ti i v,c )>x oto Vitiicl feií’éH
i j i'r-'e, iik jV
i 1, ÍJltiUl