Dagur - 03.11.1998, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1998 - 11
X^HT'.
ERLENDAR FRÉTTIR
Kosið um fleira en
kveimamál Clintons
Úrslit kosninganna gætu haft mikla þýðingu fyrir framtíð Clintons í
embætti.
Demókratar vinna á í
skoðanakömnm, en
aðaltakmark þeirra er
að ná aftur meiriMuta
í fuHtrúadeild.
Gengið verður til kosninga í
Bandaríkjunum í dag. Kosið verð-
ur um öll 435 þingsætin í full-
trúadeild og 34 af 100 þingsætum
í öldungadeild. Ennfremur verða
kosnir ríkisstjórar í 36 af 50 ríkj-
um Bandaríkjanna og Iöggjafar-
þing í 46 ríkjanna. Þar að auki
verður kosið um ýmis sérmálefni í
næstum því öllum ríkjunum.
Þetta eru þvf afar viðamiklar
kosningar, og snúast um margt
fleira en hvort refsa eigi Bill
Clinton fyrir framhjáhald og lyg-
ar, eða á hinn bóginn hvort refsa
eigi Kenneth Starr og
Repúblikönum fyrir að hafa farið
offarí í rannsóknum á kvennamál-
um Clintons. Og ákaflega fáir
frambjóðenda úr báðum flokkum
hafa tjáð sig svo nokkru nemi um
ákæruefnin á hendur Clinton eða
hvernig taka eigi á þeim í þinginu.
Engu að síður verða úrslitin
rannsökuð og túlkuð mikið til út
frá því hvort þau þyki benda til
þess að kjósendur vilji að þingið
haldi ótrautt áfram rannsókn
sinni á Clinton og kæri hann til
embættismissis. Tapi Demókrata-
flokkurinn miklu verður það túlk-
að sem svo, að kjósendur vilji
refsa Clinton, en tapi hann litlu
verður það túlkað sem stuðningur
við Clinton.
Flestir eru á því að Demókrata-
flokkurinn tapi atkvæðum, vegna
þess að það gerist nánast undan-
tekningarlaust að flokkur forset-
ans tapi í þingkosningum sem
fram fara á miðju kjörtímabili for-
setans.
Mikil óvissa um úrslitin
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
Pew rannsóknarmiðstöðin gerði
og birt var í gær, þá hefur stuðn-
ingur við frambjóðendur
Demókrataflokksins engu að síð-
ur aukist nokkuð síðustu dagana
fyrir kosningar. 46% kjósenda
sögðust ætla að greiða Demókröt-
um atkvæði sitt til fulltrúadeilar-
innar, en 44% studdu Repúblik-
ana.
Þetta er veruleg breyting frá því
sambærileg könnun var gerð fyrír
hálfum mánuði, en þá sögðust
48% ætla að kjósa Repúblikana
en 43% Demókrata. Þessar sveifl-
ur undirstrika óvissuna, sem ríkt
hefur og ríkir enn um úrslit kosn-
inganna.
Aðaltakmark Demókrata í þess-
um kosningum er að ná aftur
meirihluta í fulltrúadeild þings-
ins, en til þess þurfa þeir einung-
is að vinna 11 þingsæti af
Repúblikönum sem haft hafa
meirihlutann og óspart notað
hann til að gera Bill Clinton og
ríkisstjórn hans erfitt fyrir á kjör-
tímabilinu.
Takmark Repúblikana væri
hins vegar að ná 60 þingsætum í
öldungadeildinni, sem væri glæsi-
legur árangur, en á þessu kjör-
tímabili hafa Repúblikanar verið
með 55 þingsæti í öldungadeild á
móti 45 þingsætum Demókrata.
- GB
Allt að 1.500 farast í
aurskriðiun
NÍKARAGÚA - Allt að 1.500
manns hafa farist eftir að miklar
aurskriður féllu í hlíðum eldfjalls-
ins Casitas niður á þorp og byggð-
ir fyrir neðan. Skriðurnar féllu eft-
ir að stöðuvatn í gíg fjallsins flæddi
yfir bakka sína, en miklar rigning-
ar hafa verið þar undanfarið.
Ráðstefna um andníms-
loftið í Buenos Aires
ARGENTÍNA - Fjórða alþjóðaráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna um
andrúmsloftið hófst í Buenos
Aires, höfuðborg Argentínu í gær.
Steírít er að því að afgreiða á ráð-
stefnunni skýra og ótvíræða áætl-
un um minnkun útblásturs á gróð-
urhúsalofttegundum, og er ráð-
stefnan haldin í beinu framhaldi af
umhverfisráðstefnunni í Kyoto í
Japan á síðasta ári.
írakar standa enn uppi í
hárinu á S.Þ.
IRAK - Svo virðist sem bandarísk
stjómvöld hyggist, þrátt íýrir hót-
anir um refsiárásir, leyfa Oryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna að ráða
ferðinni að Jjessu sinni í deilunni
við Iraka. Irakar hafa hætt öllu
samstarfi við vopnaeftirlitshópa
S.Þ. Oryggisráðið hefur fordæmt
þessa ákvörðun Iraka.
Aptiva-tölvurnar frá IBM sameina heimsþekkt gæði og háþróaðan
örgjörva sem gefur tölvunni geysilegt afl. Tölvuvinnsla á að
vera auðvald, skammtilag og umiram allt hröð. Þess vegna
eru Aptiva-tölvurnar sérhannaðar með afköst í huga og búnar
3DNow! þrívíddar- og margmiðlunartækni sem tryggir að
myndvinnsla, leikir og samskipti á netinu verða eins og hugur
manns. Aptiva kamur tilbúin baint á barðið.
Á varði sam stanst allan samanburð.
________ __ Gnða skammtun!
NÝHERJI
Skaítahlíð 24 • Sími 5B9 7790
Slóð: http://www.nyherji.is
IBM
tiva E 35J
119.900
örgjðrvi: 300MHz AMD K6-2 3DNow.
Vinnsluminni: 64MB SDRAM, má auka í 256 MB.
Harðdiakur: 6.4 GB. Skjár: 15" IBM.
Skjákort: ATi 3D Rage 11+ 3D mað 2 MB SGRAM.
Margmiðlun 32x geisladrií og 40W hátalarar.
Samskipti: 57.600 baud mótald.
Hugbúnaður: Windows98,
Lotus SmartSuite 97, Aptiva on tha Net,
Aptiva Desktop Customlzatlon, Aptiva
Gulde, Aptiva Installer, IBM AntlVirus,
IBM Aptiv-izer, IBM Product
Registration, Preload/Recovery CD,
Active Movie, Ouiken SE, Norton
Antivirus, Ring Central og PC Doctor.