Dagur - 12.11.1998, Síða 7
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 - 23
X^MI-
LÍFIÐ í LANDINU
R A P P i R
FÓLKSINS
MEINHORNIÐ
• Jólabókaflóðið
er að drekkja
Meinhyrningi
eins og fleirum.
Uppstyttulaust
koma höfundar
ffam í öllum
Ijölmiðlum og
tjá sig út og
suður um nýju
bækurnar sínar
og gagnrýnend-
ur fara um þær
mismjúkum
höndum og
bókaútgefendur
auglýsa í blóð-
spreng bestu
bækur ársins
hverja af
annarri. Og er
nú svo komið að
annað tveggja
hafa menn étið
yfir sig af áróðr-
inum fyrir jólin
og nenna því
ekki að lesa öll
þessi meistara-
verk, ellegar
enginn tími
vinnst til þess
vegna anna við
að fylgjast með
umfjöllun um
bækurnar.
• Sem betur fer
hefur lítið borið
á jólasveinum í
Qölmiðlum að
undanförnu og
er fagnaðarefni.
En ekki tók
betra við því
aðrir jólasveinar
hafa komið í
staðinn, próf-
kjörsjólasveinar
Sjálfstæðis-
flokksins sem
fara nú mikinn í
rándýrum aug-
lýsingum og
ódýrari greina-
skrifum. Má ég
þá heldur biðja
um Stúf og
Stekkjarstaur af
tvennu illu.
Brot ú r viötali
í óbirtu viðtali sem ég
tók við íslenskan skip-
stjóra sem stjórnar
verksmiðjutogara sem
veiðir við Alaska kom
fram athyglisverð stað-
reynd. Þegar fiskveiði-
heimildum er úthlutað
þarna á svæðinu þá
kemur í hlut íbúa í
Alaska Ijörutíu prósent
af því sem er úthlutað. Einstaklingarnir
á svæðinu fá ekki kvóta hver fyrir sig
heldur er sérstökum sjóði sem er í
þeirra eigu úthlutað kvóta. Sjóðurinn
selur síðan verksmiðjuskipunum þennan
lcvóta og fær þannig mikið fjármagn til
ýmissa nauðsynlegra framkvæmda. Ekki
er hægt að nota þessar aflaheimildir til
veiða frá landstöðvum vegna fjarlægðar
frá fiskimiðunum. Samt er litið á þessa
auðlind sem eign landsmanna og það
viðurkennt með þessu móti.
Ef þessi háttur væri hafður á hér á
landi þá kæmi mikið fjármagn til fiski-
bæja á landsbyggðinni og gæti þessi
háttur orðið hin ágætasta byggðastefna.
Það sem er líka athyglisvert við þennan
hátt á veiðiheimildum er að úthlutunin
fer fram á hveiju ári og geta skipin því
aldrei eignast kvótann varanlega. Eig-
endur þeirra verða því að keppa inn-
byrðis við að komast yfir kvóta og að
kaupa þessa tvo fimmtu parta á hveiju
ári af landsmönnum og greiða fyrir
hann á hverju ári.
sægreifanna þessa dagana og stjórn-
málasamtök virðast ætla að gera út á
óánægju landsmanna með fiskveiði-
heimildir í varanlegri eign þeirra þá er
fróðlegt fyrir þá sem þannig hugsa að
leggja hugann að þessum upplýsingum.
Uthlutun á þessum fiskveiðiheimildum
á hveiju ári kemur í veg fyrir að þær
verði nokkurn tímann eign þeirra sem
hafa þær undir höndum hveiju sinni.
Þær verða því ekki eignfærðar né af-
skrifaðar. Þær verða ekki veðsettar lána-
stofnunum. Þær koma ekki til arfs eða
til sölu hjá mönnum sem hætta útgerð.
Þeir sem styðja núverandi fyrirkomu-
lag mættu hugsa sinn gang þegar þeir
halda því fram að þeir sem gagnrýna
kvótakerfið geti ekki bent á neitt sem á
að taka við ef breytt verður frá því sem
nú er. Þessi ameríska aðferð gæti orðið
til þess að landsmenn sættu sig betur
við lcvótakerfið ef öfundin minnkaði við
að taka hana upp. Ég vil því leyfa mér
að benda á hana sem lausn og sátt á
milli þeirra sem gagnrýna kvótann og
þeirra sem styðja hann. Þessi aðferð
þarf ekki að hamla veiðum umfram það
sem gerist í núverandi kerfi en það
mundi örugglega taka nokkurn tíma fyr-
ir núverandi veiðiréttarhafa að aðlagast
þessari aðferð við úthlutun veiðiheim-
ilda. Sú aðferð sem nú er höfð við út-
hlutun veiðileyfa getur ekki staðið til
lengdar vegna þess að almenningur er á
móti henni. Það má því reikna með að
hann losi sig við aðferðina í kosningum.
Brynjólíur
Brynjólísson
skrifar
Amerlska aðferðin
Þar sem mikið er þráttað um kvótaeign
„Þar sem mikid er þráttað um kvótaeign sægreifanna þessa dagana og stjórnmálasamtök
virðast ætla að gera útá óánægju landsmanna með fiskveiðiheimildir í varanlegri eign þeirra
þá er fróðlegt fyrir þá sem þannig hugsa að leggja hugann að þessum upplýsingum
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6122
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
Raddir íólksins -
vettvangur skoðanaskipta
Lesendasíða Dags er opin
öllum sem vilja tjá sig með
skrifum um ýmis þau mál
sem á þeim brenna. Mörg
þeirra mála sem í deiglunni
eru þarfnast umræðu, skoð-
anaskipta. Lesendasíða Dags
er kjörinn vettvangur fyrir
slík skoðanaskipti. Hér fá raddir fólks-
ins að heyrast. Hér getur þú sagt þína
skoðun.
Hefur þú skoðun á deilum um góð-
gerðarstarfsemi? Veðrinu? Starfi Vega-
gerðarinnar þegar ófært er? Aðdraganda
jólanna? Leifi heppna? Láttu skoðanir
þínar heyrast. Raddir fólksins fá að
heyrast í Degi.
Stefna blaðsins er að birta lesenda-
bréf með fullu nafni sendanda nema í
undantekningartilfellum. Bréf sem ber-
ast blaðinu án þess að fullt nafn send-
anda fylgi til blaðsins verða ekki birt.
VEÐUR
Veðrið í dag...
Gert er ráð fyrir austan og norðaustan stinningskalda, en
allhvasst verður um landið norðvestanvert. Víða rigning
sunnanlands og eins sums staðar él eða slydduél úti við
norðurströndina, en í öórum landshlutum verður úrkomulaust
og sums staðar léttskýjað. Heldur hlýnandi, en þó áfram frost i
innsveitum norðanlands.
Hiti -2 til 5 stig
Reykjavík
°5 Fös Lau Sun Mán mm
Akureyrí
0-
-5
-10
-10
- 5
-----0
NA4 NNA4 NNA3 SSA3 ASA4
NA4 NNV5 A2 SA4
1-15 5-|
5 Fös Lau Sun Mán
NA3 NNV3 N2 S2 SSA2
NNA3 N3 ANA2 S3
Stykkishólmur
Fös Lau Sun Mán
/ "
Egilsstaðir
°g Fös Lau Sun Mán mm
NA5 NNA6 NA4 SSA4 ASA5
NA6 N6 A3 SSA4
0
-5-
-10
15
10
- 5
0
Bolungarvík
°9 Fös Lau Sun Mán mm
5 -f ........ ....... ' ’ "J" ~~tj-15
0-
-5-
-10
NNA3 NNV3 N4 N2 S2
N4 N3 NNV3 SSV2
Kirkjubæjarklaustur
°9 Fös Lau Sun Mán mrn
5 ”1 |-15
•10
- 5
0
NA5 NNA5 NA2 SSA2 ASA2
NA4 N4 ASA1 SSV3
0-
-5-
-10
-10
- 5
0
NA3 N2 N2 S2 SA2
NNA3 NNV3 NA2 SSA2
Blönduós
Stórhöfði
NA3 N3 NNA2 S2 SSA1 ANA6 NNA6 N5 SSA4 ASA7
NA2 N2 A1 S2
NA5 NNV7 ANA3 SA6
Veðurhorfur næstu daga
Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á
hveijum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu
en vindáttir og vindstig eru tilgreind fýrir neðan.
Færð á vegum
Flestar leiðir eru færar en skafrenningur var í gær á Dynjandis-
heiði og Kleifaheiði. Hrafnseyrarheiði var ófær. Á Austurlandi
opnaði Vegagerðin veginn yfir HeUisheiði eystri.