Dagur - 27.11.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 27.11.1998, Blaðsíða 1
8 1. og 82. árgangur - 225. tölublað Verð í lausasölu 150 kr. íslendingur kærir danskt haréræði ^UBUJfl Y* ^SUBUJflY* «SUBUJflY* Sigurður Gizurarson. VUlbætur fyrir of- soknir Sigurður Gizurarson, fyrrum sýslumaður á Akranesi, hefur höfðað tvö skaðabótamál gegn íslenska ríkinu og krafist millj- óna króna skaðabóta vegna þess sem hann nefnir aðför Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra að starfsheiðri sínum. „Eg höfða þessi mál vegna þeirra ofsókna sem dómsmála- ráðherra stóð leynt og ljóst fyrir á hendur mér árum saman,“ seg- ir Sigurður í samtali við Dag. Annað skaðabótamálið er vegna ÞÞÞ-málsins svokallaða, þar sem dómsmálaráðuneytið áminnti Sigurð og vill Sigurður auk skaðabóta fá áminninguna ógilta. Hitt málið er vegna ákvörðunar Þorsteins um að flytja Sigurð til, gera hann að sýslumanni á Hólmavík. „I báðum málum var um aðför að starfsheiðri mínum að ræða. I ÞÞÞ-málinu var útbúinn úr- skurður um áminningu sem ég tel að standist ekki og vil fá ógildan. Hvað Hólmavík varðar þá eru allir sammála um að emb- ættið þar er svo miklu minna eft- irsóknarvert en hitt embættið og það var hrein meingerð við mig,“ segir Sigurður. — FÞG Ótrygga rafmagniö búið Landsvirkjun hefur tilkynnt al- menningsveitum að afhendingu á svokölluðu ótryggu rafmagni til kaupenda verði hætt 3. des- ember næstkomandi. Fyrirtækið hafði áður hækkað verð á ótryggu rafmagni en það ekki dugað til að draga nógu mikið úr spurn eftir því. Þá hefur stór- iðjunotendum verið tilkynnt að afgangsorka til þeirra verði skert eftir áramótin með sama hætti og verið hefur í haust. Rosalegt að lenda í barsniíöiun, svívirö- ingiun og fangavist út af engu, segir 23 ára námsmaður í Álaborg. Tómur bensínbrúsi gerði allt vitlaust. 23 ára námsmaður frá Akureyri var fyrir skömmu beittur ótrú- legu harðræði af dönsku lögregl- unni í Alaborg. Maðurinn, Páll Tómas Finnsson, er búsettur í Alaborg og var hann barinn, fangelsaður og ákærður án sýni- legrar ástæðu ef marka má frá- sögn hans. Réttað verður í mál- inu eftir helgi en í kjölfarið hyggst Páll Tómas stefna dönsku lögreglunni. „Það er rosalegt að lenda í þessu og ég er búinn að fara aft- ur og aftur yfir það í huganum hvort ég hafi einhvers staðar gert eitthvað vitlaust. Eg hef alltaf komist að sömu niðurstöðu. Þótt við verðum dæmdir þá erum við með allt okkar á hreinu og mað- ur verður þá bara að sætta sig við að lenda gegn kerfinu á þennan hátt. Eg á yfir höfði mér sekt, en félagi minn gæti endað í fangelsi vegna málsins. Eg hef hins vegar fengið mikinn stuðning. Foreldrar mínir hyggjast verða viðstödd réttar- höldin og danskir fjölmiðlar hafa sýnt málinu áhuga,“ segir Páll Tómas. Páll Tómas er sonur hjónanna Finns Birgissonar arki- tekts og Sigur- bjargar Pálsdótt- ur. Fundu bensínbrúsa Tildrög málsins eru þau að Páll Tómas, sem nemur við háskóla í Alaborg, fór út að skemmta sér með fjórum dönskum vinum sín- um. I miðbæ Alaborgar rakst eitt þeirra á tóman bensínbrúsa og tók hann með af rælni. I helsta skemmtistaða- hverfi borgar- innar fóru tveir inn á veitinga- stað en Páll Tómas og vinur hans voru með brúsann utan- húss. Þá bar að tvo einkennis- klædda lög- reglumenn sem spurðu spurn- inga vegna brús- ans. Þriðja fé- lagann bar þá aftur að og vissi hann ekki að um ræddi lög- reglumenn. Hann ldappaði öðr- um lögreglumanninum á bakið og varð það til þess að lögreglu- maðurinn brást ókvæða við. Kastaði félaganum í jörðina og leiddi handjárnaðan í burtu. „Það er rosalegt að lenda I þessu og ég er búinn að fara aftur og afturyfir það í huganum hvort ég hafi einhvers staðar gert eitthvað vitlaust, “ segir Páll Tómas. Páll Tómas reyndi að breyta afstöðu þeirra og fylgdi löggun- um eftir að óupplýstu svæði, þar sem lögreglan hafði lagt bíl sín- um. Páll Tómas hélt áfram að spyrja spurninga, en skyndilega réðist annar lögreglumaðurinn að honum og lamdi hann með kylfunni sex sinnum þannig að hann marðist allur. I kjölfarið var hann handjárnaður og fékk að dúsa í fangageymslu eina nótt. Stangast á Vinur Páls Tómasar hefur verið kærður fyrir ofbeldi gegn lög- reglu en Islendingnum hefur verið stefnt fyrir að hindra lög- reglu í störfum sínum. Fram- burður lögreglumannanna stangast í meginatriðum á við frásögn Páls Tómasar og segir hann þá fara með tómar lygar. Engin vitni urðu að árásinni á Pál Tómas og því stendur orð gegn orði. Páll segist aldrei hafa komist í kast við lögin fyrr en ýmsar vafa- samar sögur fari af óeinkennis- ldæddum löggum í Alaborg. — BÞ Augu lag- annasja leugra Öryggismyndavélakerfi lögregl- unnar í miðborg Reykjavíkur var formlega tekið í notkun í gær eft- ir að Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri hafði ræst kerfið. Sjö myndavélar eru nú á lykil- stöðum í miðborginni en sú átt- unda bætist við von bráðar. Pétur Sveinbjarnarson, fram- kvæmdastjóri Þróunarfélags Reykjavíkur, afhenti Böðvari Bragasyni lögreglustjóra kerfið til starfrækslu áður en borgar- stjóri ræsti kerfið. „Þetta öryggismyndavélakerfi hefur geysilega þýðingu fyrir lög- regluna," segir Jónas Jón Halls- son, aðstoðaryfirlögregluþjónn, í samtali við Dag. „Bæði frá örygg- islegu sjónarmiði þeirra sem starfa þarna á svæðinu og síðan vegna uppljóstrunar mála, þar sem þetta getur létt okkur verk- in.“ - FÞG Böðvar Bragason lögreglustjóri og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri í stjórnstöð Lögreglunnar í Reykjavík en þaðan er nýju öryggismyndavélakerfi stýrt. Jónas Hallsson aðstoðaryfirlögregluþjónn aðstoðar Ingibjörgu en á bak við hann stendur Pétur Sveinbjarnarson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Reykjavíkur. mynd: hilmar li ^fo^EROtlE crrrm sNALT 1 í ‘ifátindur $ ánægjwmar »í ÞIG?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.