Dagur - 27.11.1998, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGVR 27. NÓVEMBER 1 9 98 - 3
Dagur.
FRÉTTIR
Verður bílstjórum bannað að nota far-
síma i bílum sínum nema með hand-
frjálsum búnaði?
Vitiabanna
farsíma
íbíliun
Starfshópur dómsmálaráðherra
um notkun farsíma \ið akstur
leggur til að bannað verði með
lögum að nota farsíma við akstur
án handfrjáls búnaðar. Oku-
mönnum verði þó gefinn aðlög-
unartími og notkunin refsilaus
fyrsta árið eftir gildistöku lag-
anna. Ljóst er að með þessu
myndast dijúgur markaður með
handfrjálsan búnað og leggur
starfshópurinn til að slíkur bún-
aður verði án tolls og vörugjalds.
Starfshópurinn hafði sérstakar
áhyggjur af farsímanotkun ungra
ökumanna, en tölur frá Lands-
símanum og Tali sýna að mesta
aukningin á farsímanotkun á sér
stað meðal ungs fólks - sem fyrir
er hættulegasti hópurinn meðal
ökumanna, þ.e. 17-20 ára öku-
menn. Fjöldi notenda farsíma
hefur á skömmum tíma vaxið æv-
intýralega og eru GSM-notendur
nú um 67 þúsund og NMT-not-
endur um 26 þúsund. — FÞG
Staða Garðars var
vandlega ígrunduð
Formaður Arkitekta-
félagsins vísar á sam-
keppnisreglur uin
hæfi Garðars Ilall
dórssonar, fymun
húsameistara, vegna
hönnunarútboðs
Leifsstöðvar.
„Það er alltaf alvörumál þegar
upp kemur óánægja innan fé-
lagsins. En stjórnin tók enga
skyndiákvörðun í september þeg-
ar hún komst að þeirri niður-
stöðu að engar athugasemdir
væru gerðar við þátttöku Garð-
ars Halldórssonar í útboðinu. Þá
lá hins vegar ekki fyrir hverjir
myndu skipa dómnefndina. Við
höfum enga vitneskju um tengsl
Garðars við dómnefndarmenn,
en ef í ljós kemur að einhverjir
þeirra og Garðar eru nátengdir
fjárhagslega eða að skyldleika er
hægt að vísa beint í samkeppnis-
reglur félagsins," segir Guð-
mundur Gunnarsson, formaður
Arkitektafélags Islands, í samtali
við Dag.
Arkitektar deila um þátt fyrrverandi húsameistara í fyrirhuguðu útboði á hönnun-
inni á stærri Leifsstöð.
Eins og blaðið greindi frá í gær
er óánægja meðal arkitekta með
að Garðar Halldórsson, fyrrum
húsameistari ríkisins, fái að taka
þátt í hönnunarútboði vegna
stækkunar Leifsstöðvar. Guð-
mundur tekur fram að ekkert
liggi fyrir um þátttöku Garðars
og bendir á að tillögum verði
skilað með nafnleynd, þannig að
dómnefnd sér bara númer en
ekki nafn. „Það má ekki gleyma
því að þetta er samkeppni og
Garðar ekki búinn að fá verkefn-
ið. Stjórn félagsins ígrundaði
stöðu Garðars vandlega til að
meta hvort hann hefði óeðlilegt
forskot á þátttakendur á EES-
svæðinu, ekki bara innanlands,
og komst að þeirri niðurstöðu að
svo væri ekki. Eg \il síðan taka
það fram að þótt dómnefndin
kunni að hafa fengið eitthvað af
fyrirspurnum þá hefur á vett-
vangi félagsins aðeins borist ein
munnleg fyrirspurn og ein skrif-
leg athugasemd," segir Guð-
mundur.
Hann segir aðspurður að af-
hending á teikningum af núver-
andi byggingu á tölvutæki formi
skipti litlu máli fyrir samkeppn-
ina. „Það er búið að afhenda
nauðsynlegar teikningar eins og
tíðkast. Best hefði þó verið að út-
bjóðendur tryggðu að allir fengju
þær á tölvutæku formi til að
forðast tortryggni," segir Guð-
mundur. — FÞG
Vífllfell verður selt
en ekkert br evti st
Coca-Cola Nordic
Beverages A/S í Dan-
mörku kaupir verk-
smiðju og framleiðslu
VífílfeUs.
„Það verða engar merkjanlegar
breytingar á rekstrinum í kjölfar
eigendaskiptanna," sagði Þor-
steinn M. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Vífilfells. En eig-
endur Vífilfells ehf. hafa undir-
ritað viljayfirlýsingu um sölu á
öllum hlutabréfum í félaginu til
Coca-Cola Nordic Beverages A/S
(CCNB) í Danmörku, sem þar
með eignast alla framleiðslu-
starfsemi Vífilfells og þar með
talda verksmiðju þess í Reykja-
vík. Framkvæmdastjórinn neitaði
því að salan hefði nokkuð með
það að gera að framleiðsluleyfi
verksmiðjunnar á Coca-Cola
rennur út í lok næsta árs. En það
væri stefna Coca-Cola að eiga þá
aðila sem átappa fyrir þá. Sala
Frá blaðamannafundi þar sem sala Vífilfells var kynnt mynd: pjetur
hefði verið til tals í nokkur ár en
nú hafi boðist góðir samningar.
Aformað er að ganga frá samn-
ingnum í ársbyrjun 1999, en
ekkert verður gefið upp um fjár-
hagsleg atriði hans. Aðaleigandi
fyrirtækisins, Pétur Björnsson,
mun sitja áfram í stjórn Vífilfells
eftir fyrirhuguð eigendaskipti og
Þorsteinn M. Jónsson áfram
stýra Coca-Cola starfseminni á
Islandi.
CCNB er í meirihlutaeigu
Carlsberg A/S í Danmörku, sem
á 51%, og Coca-Cola Company
í Bandaríkjunum, sem á 49% í
fyrirtækinu. CCNB á nú Coca-
Cola verksmiðjur á öllum hinum
Norðurlöndunum. - HEl
Féfletti fjölmargar konur
Hæstiréttur hefur dæmt 54 ára
karlmann, Stefán Jón Sigurðs-
son, í tveggja ára óskilorðsbund-
ið fangelsi vegna afar Ijölbreytts
safns fjársvikabrota, þar sem
hann virðist hafa sérhæft sig í því
að féfletta konur - með fádæma
góðum árangri. Hæstiréttur
þyngdi 15 mánaða dóm undir-
réttar, þótt tekið hefði verið tillit
til seinagangs við meðferð máls-
ins.
Ákæruliðirnir gegn Stefáni
Jóni voru alls 29 vegna atvika á
tímabilinu 1991-94, en hann var
sakfelldur fyrir 20 þeirra. Um var
að ræða fjársvik og kerfisbundn-
ar blekkingar gagnvart 12 ein-
staklingum, sem lítt eða ekkert
þekktust innbyrðis. Fjölmörg
skuldabréf og víxlar koma við
sögu og heildarupphæð svikanna
nemur tugmilljónum króna.
Minnst 36 vitni komu að málinu.
Hæstiréttur tók tillit til þess að
brot Stefáns Jóns væru stórfelld
og beindust gegn mörgum ein-
staklingum. Hann hafði átta
sinnum áður verið dæmdur fýrir
brot á hegningarlögum og þar af
eitt sinn í fjögurra mánaða fang-
elsi. Við meðferð málsins kom
fram að útibústjóri Islandsbanka
í Garðabæ hefði, án árangurs,
varað eitt fórnarlambanna við
ákærða. — fþg
Kjördæmisþingi frestað imi viku
Kjördæmisþingi Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi sem vera átti á
sunnudaginn hefur verið frestað til Iaugardagsins 5. desember. Svo
virðist sem sunnlenskir sjálfstæðismenn séu mjög kirkjuræknir og
leist mörgum illa á fundahöld fyrsta sunnudag í aðventu. Sigurður
Einarsson, formaður kjördæmisráðs, segir að það hafi komið óskir
víða að um að færa þingið yfir á laugardag og sú hafi orðið niðurstað-
an.
Kjördæmisþingið tekur afstöðu til þess hvort efnt verður til próf-
kjörs eða stillt upp á lista flokksins fyrir kosningar í vor. Líldegast
þykir að haldið verði prófkjör í janúar og þar munu nokkrir bítast um
„örugg“ sæti, þar á meðal Árni Johnsen, alþingismaður, Drífa Hjart-
ardóttir, varaþingmaður, Kjartan Olafsson, framkvæmdastjóri, og
Olafur Björnsson, lögmaður.
Þingmöimiun boðið í leikhús
Fulltrúar bandalags íslenskra leikfélaga
færðu þingmönnum í gær að gjöf skírteini
sem gefur þeim frían aðgang að leiksýningum
aðildarfélaganna á nýbyrjuðu léikári. I yfirlýs-
ingu sagði að tilgangurinn væri að vekja at-
hygli á þróttmiklu starfi áhugaleikfélaga en
segja megi að „hvert einasta bæjarfélag og
hver útnári landsins eigi sér áhugaleikfélag."
Þingmenn eru þessa dagana að fjalla um
frumvarp til nýrra leiklistarfélaga og vildu
fulltrúar leikfélaganna brýna fyrir þeim að
gæta hagsmuna áhugaleikhússins.
Rúmar 15 milljónir til Geðhjálpar
Kiwanishreyfingin færði Geðhjálp í gær risaá-
vísun upp á rúmar 15 milljónir króna, sem er
ágóðinn af sölu K-lykilsins í byrjun október.
Georg Þór Kristjánsson, umdæmisstjóri, af-
henti Pétri Haukssyni, formanni Geðhjálpar,
söfnunarféð í nýju húsi Geðhjálpar að Tún-
götu 7. Það húsnæði gaf ríkið samtökunum
Georg Þór Kristjánsson, nýlega og Kiwanis safnaði fyrir nauðsynlegum
umdæmisstjóri Kiwanis, l'reytingum. Forráðamenn Geðhjálpar vonast
afhendir Pétri Haukssyni, ti! að hægt sé að Oytja starfsemina í eigið hús-
formanni Geðhjálpar, næ^* fyrir jnl-
söfnunarféð.