Dagur - 28.11.1998, Page 1
Skólaútgj öld hækk-
að iim 10 miHjarða
Útgjöld sveitarfélag-
airna til fræðslimtála
hækkuðu úr 27 þús
und krónum á íbúa í
63 þúsund krónur frá
1995-1997 eðaum
135% á tveim árum.
Utgjöld sveitarfélaganna til
fræðslumála hækkuðu um næst-
um 10 milljarða króna (úr 7
milljörðum í 17) frá 1995 til
1997, samkvæmt sveitarsjóða-
reikningum Hagstofunnar, þ.e. á
þeim árum sem sveitarfélögin
tóku við rekstri grunnskólans.
Þar af hafa rekstrargjöldin hækk-
að úr rösklega 5 upp í 14 millj-
arða eða 165% á þessum tveim
árum. Fræðsluútgjöld á hvern
fbúa fóru yfir 63 þúsund krónur
að meðaltali í fyrra. I mörgum
minni sveitarfélaganna er þessi
gjaldaliður orðinn langt yfir 100
þúsund krónur á íbúa, allt upp í
rúmlega 160.000 kr. á hvern
íbúa Jökulsdals-
hrepps - þar sem
72% allra rekstr-
argjaldanna fóru
til fræðslumála.
Hlutfall fræðslu-
kostnaðar af
skatttekjum
hækkaði úr 25%
upp í 44% á síð-
ustu tveim árum.
Eftir hækkun
útsvarsprósent-
unnar í fyrra
hækkuðu út-
svarstekjur sveit-
arfélaganna um
7,5 milljarða að mati Hagstof-
unnar.
Þjóðm vill betri skóla
„Það er Ijóst að þjóðin vill betri
grunnskóla. Og þá er stóra
spurningin hvort þessir auknu
fjármunir hafi fært okkur betri
grunnskóla. Því verður hver og
einn að svara fyrir sig,“ svaraði
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands sveitarfélaga,
spurður hvort
sveitarstjórnar-
menn hafi gert
ráð fyrir svona
gríðarlegri
hækkun - og
jafnframt hvort
þau hafi fengið
hana bætta úr
ríkissjóði.
Vilhjálmur segir
þær tekjur sem
fluttar voru frá
ríki til sveitarfé-
Iaga með hækk-
un útsvarsins
nægja til að
mæta kennaralaununum sam-
kvæmt kjarasamningum ásamt
viðbótarkostnaði vegna breytinga
grunnskólalaganna. „Þar eru
hins vegar engar upphæðir til að
mæta viðbótarsamningum við
kennara sem einstök sveitarfélög
hafa verið að gera. Samningar
um meiri launahækkanir eru al-
gerlega á þeirra ábyrgð og Jöfn-
unarsjóður greiðir ekki þann
kostnað. Það sama á við um fjár-
muni sem sveitarfélögin hafa
verið að bæta í grunnskólastarfið
umfram Iögboðna skyldu sína.
En það hafa þau verið að gera
bæði fyrr og síðar - og ekkert
dregið úr því upp á síðkastið,"
sagði Vilhjálmur.
Allt að 160.000 kr. á íbúa
Er ekki hætt við að fræðslu-
kostnaður upp í 120-160 þús. kr.
á hvern íbúa margra litlu sveitar-
félaganna sé þeim ofraun? „Við
sömdum við rfkið um að hluti út-
svarsins færi í Jöfnunarsjóð, sem
síðan útdeilir fjármagninu til
minni sveitarfélaganna til þess
að standa undir þeim kostnaði
sem grunnskólalögin kveða á um
og kjarasamningar hafa í för með
sér. En hafi þau verið að bæta í,
í þessum málaflokki, eins og
reyndar fleirum, þá er það á
þeirra ábyrgð. Hafi sveitarfélög
peninga aflögu til að gera það er
það auðvitað þeirra mál. Sveitar-
stjórnirnar ákveða hvernig þær
vilja skipta skatttekjunum milli
einstakra málaflokka. — HEI
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formað-
ur Sambands sveitarfélaga: „Þar
eru engar upphæðir til að mæta
viðbótarsamningum við kennara
sem einstök sveitarfélög hafa verið
að gera."
Vilja
lánasjóðiim
norður
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
hefur boðið stjórn Lánasjóðs
landbúnaðarins húsnæði undir
starfsemina ákveði stjórnin að
flytja starfsemina til Akureyrar
sem sambandið telur góðan kost
vegna sterkrar stöðu Iandbúnað-
ar í héraðinu. A Akureyri geti
sjóðurinn haft góð tengsl við öfl-
uga leiðbeiningaþjónustu og
flugsamgöngur við aðra lands-
hluta eru góðar.
Stjórn Búnaðarsambandsins
fagnar heilshugar þeirri ákvörð-
un að farið sé að láta verkin tala
með flutningi stofnana frá Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Stjórnin
fagnar einnig framkominni
þingsályktunartillögu Guðna
Agústssonar o.fl. um heilsársveg
norður um hálendið en sú sam-
göngubót mundi styrkja enn
stöðu þess að höfuðstöðvar
Lánasjóðs landbúnaðarins verði
á Akureyri í framtíðinni. — GG
Grétar Þór Kristinsson var óhræddur við jólasveininn í Jólalandi Blómavals í Reykjavík í gær. Kannski hjálpaði til
að Sveinki var ekki af holdi og blóði. - mynd: teitur
Stefán Halldórsson, forstöðumaður
Verðbréfaþings: Stanslaus viðskipti
allan daginn.
Metdagur
á Vero-
bréfaþingi
Metdagur var á Verðbréfaþingi
íslands í gær þegar áttu sér stað
mestu viðskipti með hlutabréf
eins félags á einum degi í sögu
þingsins. Heildarviðskipti námu
367,5 milljónum króna, þar af
voru mest viðskipti með hluta-
bréf í Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins, FBA, eða fyrir tæp-
ar 334 milljónir króna.
„Þetta er merkilegt á þessum
markaði. Fyrri met byggðust
gjarnan á því að það urðu ein
stór viðskipti með eitt félag en
nú er salan mjög dreifð, stans-
laus viðskipti allan daginn,“ seg-
ir Stefán Halldórsson, forstöðu-
maður Verðbréfaþings.
Gengi FBA byrjaði í 1,83 og
endaði í 1,82 en tók dýfu á milli.
Hlutabréfin hækkuðu um 30
prósent frá útboðsverði til al-
mennings.
Tveir langstærstir
Tveir hluthafar eru langstærstir í
FBA; Kaupþing, sem hefur 15
prósenta atkvæðisrétt og getur
krafist stjórnarsætis í bankanum.
Þá hefur hlutabréfasjóður í
vörslu Búnaðarbankans tryggt
sér fimm til sex prósenta hlut í
FBA.
Hlutabréf í Landsbanka Is-
lands voru skráð á Verðbréfaþing
í gær. Heildarviðskipti dagsins
námu 13,3 milljónum króna og
var lokagengi 2,39. Það þýðir ríf-
lega 25 prósenta hækkun frá út-
boðsverði til almennings. Heild-
armarkaðsverð Landsbanka Is-
lands hf. nemur nú 15,5 millj-
örðum króna. — GHS
SUBUIfíV
•suBuinv'
^UBumv' /fíTa')
i\ ,ff's * u jql LLT
l|l || Toslerone if 'ífátindur $ ánægjunnar [MALT >i ÞIC?