Dagur - 28.11.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 28.11.1998, Blaðsíða 1
Skólaútgj öld hækk- að iim 10 miHjarða Útgjöld sveitarfélag- airna til fræðslimtála hækkuðu úr 27 þús und krónum á íbúa í 63 þúsund krónur frá 1995-1997 eðaum 135% á tveim árum. Utgjöld sveitarfélaganna til fræðslumála hækkuðu um næst- um 10 milljarða króna (úr 7 milljörðum í 17) frá 1995 til 1997, samkvæmt sveitarsjóða- reikningum Hagstofunnar, þ.e. á þeim árum sem sveitarfélögin tóku við rekstri grunnskólans. Þar af hafa rekstrargjöldin hækk- að úr rösklega 5 upp í 14 millj- arða eða 165% á þessum tveim árum. Fræðsluútgjöld á hvern fbúa fóru yfir 63 þúsund krónur að meðaltali í fyrra. I mörgum minni sveitarfélaganna er þessi gjaldaliður orðinn langt yfir 100 þúsund krónur á íbúa, allt upp í rúmlega 160.000 kr. á hvern íbúa Jökulsdals- hrepps - þar sem 72% allra rekstr- argjaldanna fóru til fræðslumála. Hlutfall fræðslu- kostnaðar af skatttekjum hækkaði úr 25% upp í 44% á síð- ustu tveim árum. Eftir hækkun útsvarsprósent- unnar í fyrra hækkuðu út- svarstekjur sveit- arfélaganna um 7,5 milljarða að mati Hagstof- unnar. Þjóðm vill betri skóla „Það er Ijóst að þjóðin vill betri grunnskóla. Og þá er stóra spurningin hvort þessir auknu fjármunir hafi fært okkur betri grunnskóla. Því verður hver og einn að svara fyrir sig,“ svaraði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands sveitarfélaga, spurður hvort sveitarstjórnar- menn hafi gert ráð fyrir svona gríðarlegri hækkun - og jafnframt hvort þau hafi fengið hana bætta úr ríkissjóði. Vilhjálmur segir þær tekjur sem fluttar voru frá ríki til sveitarfé- Iaga með hækk- un útsvarsins nægja til að mæta kennaralaununum sam- kvæmt kjarasamningum ásamt viðbótarkostnaði vegna breytinga grunnskólalaganna. „Þar eru hins vegar engar upphæðir til að mæta viðbótarsamningum við kennara sem einstök sveitarfélög hafa verið að gera. Samningar um meiri launahækkanir eru al- gerlega á þeirra ábyrgð og Jöfn- unarsjóður greiðir ekki þann kostnað. Það sama á við um fjár- muni sem sveitarfélögin hafa verið að bæta í grunnskólastarfið umfram Iögboðna skyldu sína. En það hafa þau verið að gera bæði fyrr og síðar - og ekkert dregið úr því upp á síðkastið," sagði Vilhjálmur. Allt að 160.000 kr. á íbúa Er ekki hætt við að fræðslu- kostnaður upp í 120-160 þús. kr. á hvern íbúa margra litlu sveitar- félaganna sé þeim ofraun? „Við sömdum við rfkið um að hluti út- svarsins færi í Jöfnunarsjóð, sem síðan útdeilir fjármagninu til minni sveitarfélaganna til þess að standa undir þeim kostnaði sem grunnskólalögin kveða á um og kjarasamningar hafa í för með sér. En hafi þau verið að bæta í, í þessum málaflokki, eins og reyndar fleirum, þá er það á þeirra ábyrgð. Hafi sveitarfélög peninga aflögu til að gera það er það auðvitað þeirra mál. Sveitar- stjórnirnar ákveða hvernig þær vilja skipta skatttekjunum milli einstakra málaflokka. — HEI Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formað- ur Sambands sveitarfélaga: „Þar eru engar upphæðir til að mæta viðbótarsamningum við kennara sem einstök sveitarfélög hafa verið að gera." Vilja lánasjóðiim norður Búnaðarsamband Eyjafjarðar hefur boðið stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins húsnæði undir starfsemina ákveði stjórnin að flytja starfsemina til Akureyrar sem sambandið telur góðan kost vegna sterkrar stöðu Iandbúnað- ar í héraðinu. A Akureyri geti sjóðurinn haft góð tengsl við öfl- uga leiðbeiningaþjónustu og flugsamgöngur við aðra lands- hluta eru góðar. Stjórn Búnaðarsambandsins fagnar heilshugar þeirri ákvörð- un að farið sé að láta verkin tala með flutningi stofnana frá Stór- Reykjavíkursvæðinu. Stjórnin fagnar einnig framkominni þingsályktunartillögu Guðna Agústssonar o.fl. um heilsársveg norður um hálendið en sú sam- göngubót mundi styrkja enn stöðu þess að höfuðstöðvar Lánasjóðs landbúnaðarins verði á Akureyri í framtíðinni. — GG Grétar Þór Kristinsson var óhræddur við jólasveininn í Jólalandi Blómavals í Reykjavík í gær. Kannski hjálpaði til að Sveinki var ekki af holdi og blóði. - mynd: teitur Stefán Halldórsson, forstöðumaður Verðbréfaþings: Stanslaus viðskipti allan daginn. Metdagur á Vero- bréfaþingi Metdagur var á Verðbréfaþingi íslands í gær þegar áttu sér stað mestu viðskipti með hlutabréf eins félags á einum degi í sögu þingsins. Heildarviðskipti námu 367,5 milljónum króna, þar af voru mest viðskipti með hluta- bréf í Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins, FBA, eða fyrir tæp- ar 334 milljónir króna. „Þetta er merkilegt á þessum markaði. Fyrri met byggðust gjarnan á því að það urðu ein stór viðskipti með eitt félag en nú er salan mjög dreifð, stans- laus viðskipti allan daginn,“ seg- ir Stefán Halldórsson, forstöðu- maður Verðbréfaþings. Gengi FBA byrjaði í 1,83 og endaði í 1,82 en tók dýfu á milli. Hlutabréfin hækkuðu um 30 prósent frá útboðsverði til al- mennings. Tveir langstærstir Tveir hluthafar eru langstærstir í FBA; Kaupþing, sem hefur 15 prósenta atkvæðisrétt og getur krafist stjórnarsætis í bankanum. Þá hefur hlutabréfasjóður í vörslu Búnaðarbankans tryggt sér fimm til sex prósenta hlut í FBA. Hlutabréf í Landsbanka Is- lands voru skráð á Verðbréfaþing í gær. Heildarviðskipti dagsins námu 13,3 milljónum króna og var lokagengi 2,39. Það þýðir ríf- lega 25 prósenta hækkun frá út- boðsverði til almennings. Heild- armarkaðsverð Landsbanka Is- lands hf. nemur nú 15,5 millj- örðum króna. — GHS SUBUIfíV •suBuinv' ^UBumv' /fíTa') i\ ,ff's * u jql LLT l|l || Toslerone if 'ífátindur $ ánægjunnar [MALT >i ÞIC?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.