Dagur - 28.11.1998, Page 4

Dagur - 28.11.1998, Page 4
4- LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 -Ðnptr INNLENT Töpuðu 23 miUjónum á fjárfestiugum Sex (íFeyrissjóðir töpuðu samtals 23 milljónum á síðasta ári við sölu fjárfestinga, samkvæmt skýrslu bankaeftirlits Seðlabankans. Rúmur þriðjungur upphæðarinnar, eða 8 milljónir, tapaðist hjá Líf- eyrissjóði Austurlands. Um 645 þús.kr. tap Lífeyrissjóðs leigubif- reiðastjóra var þó hlutfallslega stærst, því sá sjóður á einungis 166 millj.kr. eignir og er hættur að taka við iðgjöldum. Þess má geta að sjóðurinn greiddi tæpar 17 milljónir í lífeyri í fyrra til um 270 félags- manna, eða um 5.100 kr. að meðaltali á mánuði. Aðrir sjóðir með skráð fjárfestingatap í fyrra voru: Lífeyrissjóðurinn Framsýn 5,3 milljónir, Lífeyrissj. Suðurnesja 4,1 milljón, Lífeyrissj. starfsmanna ríkisins 3,6 milljónir og Lífeyrissjóður lækna 1,4 milljón- ir. - hei Skagaíjöröur og Homafjörður Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, hefur samþykkt beiðni sveitar- stjórna nýrra sveitarfélaga í Skagafirði og Austur-Skaftafellssýslu um að þau fái að heita Skagafjörður og Hornafjörður. Hins vegar hefur félagsmálaráðherra hafnað beiðni um að sameinað sveitarfélag sjö sveitarfélaga í Vestur-Húnavatnssýslu fái að heita Húnaþing og að sameinað sveitarfélag þriggja sveitarfélaga í Borgarfirði fái að bera nafnið Borgarfjörður. Húnbogi Þorsteinsson, ráðuneytisstjóri í félags- málaráðuneytinu, segir að sterkustu rökin séu þau að nöfnunum Húnaþingi og Borgarfirði var mótmælt af nágrenninu, enda nái þessi heiti yfir mun stærri svæði en viðkomandi sveitarfélög. Beiðni um nafnið Arborg á sveitarfélag Selfoss og nágrennis er enn í skoðun í ráðuneytinu og íbúar nýs sveitarfélags Eskifjarðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar munu innan tíðar velja milli nafnanna Miðfirðir og Fjarðarbyggð. Elín Líndal, odviti Vestur-húnvetnska sveitarfélagsins segist hafa búist við þessari neitun en sveitarstjórn hafi viljað fá á hreint afstöðu til nafnsins Húnaþings. Málið verður á dagskrá sveitarstjórnar 10. desember en Elín segist ekki hafa neitt nýtt nafn í handraðanum en Ijóst sé að finna verði Vestur-húnvetnskt nafn á sveitarfélagið. Elín telur líklegt að efnt verði til skoðanakönnunar meðal íbúa um nafn sem Örnefnanefnd hefur áður lagt blessun sína yfir. — GG Með hálendinu gegn náttúruspjöHum Sólveig Hauksdóttir les ijóð á Austurvelli til varnar hálendinu. Náttúruverndarsamtök, útivistarfélög og fjölmargir einstaklingar boða til almenns fundar um verndun miðhálendisins í Háskólabíói í dag. Þar verða flutt ávörp og íjölbreytt skemmtiatriði og leggja flytj- endur allir fram vinnu sína án endurgjalds. Fundurinn hefst klukkan 14:00 og aðgangur er ókeypis en veggspjald til styrktar málefninu verður seld á staðnum og kostar 500 krónur. Læknavaktin flytur í Smárann Læknavaktin er flutt úr húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykja- vík og í dag verður formlega tekið í notkun nýtt húsnæði við Smára- torg 1 í Kópavogi. Ríkið samdi við Læknvaktina í október um að taka að sér kvöld- og helgarlæknisþjónustu fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Atli Árnson formaður stjórnar Læknavaktarinnar segir að nú sé búið að samræma alla þjónustu utan sjúkrahúsa á þessu 165 þúsund manna svæði á einum stað og aðstaðan sé stórglæsileg. Húsið verður vígt í dag að viðstaddri m.a Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráð- herra en starfsemi Læknavaktarinnar hefst ekki fyrr en 3. desember kl. 17:00. Nefnd um Korpúlfsstaði Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt til að nefnd verði skip- uð til að kanna möguleika á samstarfi við félagasamtök eða aðra einkaaðila um nýtingu og rekstur Korpúlfsstaða. Hugmyndin er að húsið verði gert upp og nýtt sem fjölbreytt menningar- og félagsmið- stöð til hagsbóta fyrir alla Reykvíkinga. Borgarstjórn ræddi tillöguna og samþykkti að vísa henni til menningarmálanefndar. Golfarar urðu, sem kunnugt er, fyrstir til að takast á við endurbæt- ur á Korpúlfssöðum - austustu álmunni - fyrir aðeins brot af þeim kostnaði sem áður hafði verið talað um. Og nýlega kom fram að hag- kvæmara kynni að vera að gera upp vestustu álmuna fyrir grunnskóla- starf en að setja upp færanlegar skólastofur í hverfinu. — HEI FRÉTTIR Erlendis eru víða skýrar reglur um tölvupóstnotkun starfsmanna í ráðningarsamningum þeirra. Hér á landi er ekki algengt að fyrirtæki hafi reglur um þetta. Engar reglur til um tölvupóstinii Reglur um tölvupóst- notkim starfsmanna óalgengar í íslenskum fyrirtækjum en er- lendis eru víða skýrar reglur um slíkt í ráðn- ingarsamningum. „Ymis álitaefni varðandi per- sónuvernd hafa komið upp með nýrri upplýsingatækni og vaxandi tölvupóstnotkun starfsmanna á vinnustöðum. Hefur atvinnurek- andi til að mynda aðgang að tölvupósti starfsmanna eða njóta þeir persónuverndar? Engar skýrar og fastmótaðar reglur er að finna um þessi atriði hér á Iandi,“ segir Andri V. Sigurðsson lögfræðingur VSI í fréttabréfi samtakanna. Hann telur vafa- laust að álitaefni þessu tengd eigi eftir að fara vaxandi á næstu árum. Engar skýrar reglur til Erlendis segir hann skýrar reglur um tölvupóstnotkun starfs- manna víða að finna í ráðningar- samningum þeirra. Hér á Iandi sé ekki algengt að fyrirtæki hafi reglur um þetta. Ætla megi að £ þeim tilvikum sem tölvupóstur starfsmanna sé sendur út í nafni fyrirtækis hafi vinnuveitandi rúmar heimildir til aðgangs að honum. Prlvat eöa ekki Það verði þó að meta það í hver- ju tilviki fyrir sig hvenær starfs- menn senda tölvupóst í nafni fyrirtæksins og hvenær sé um persónulegan póst að ræða. Kemur t.d. nafn fyrirtækisins fyrir í netfangi viðkomandi starfsmanns? „I tilvikum þegar ekki er hægt að rekja tölvupóst starfsmanna beint til fyrirtækis- ins, má almennt ætla að eitthvað sérstakt þurfi til að vinnuveit- andi eigi ótakmarkaðan og frjáls- an aðgang, nema að hann hafi áður gert fyrirvara þar um,“ seg- ir Andri. Geti þó skipt miklu máli að vinnuveitandi eigi tækjabún- aðinn sem um sé að ræða. — HEI Hjálparstarf gegn hörmimgiun Karl Sigurbjörnsson, biskup íslands, segir að söfnunarbaukar HK séu viða orðnir ómissandi hluti afskreytingu heimilanna fyrirjól. Árleg söfnun Hjálpar- starfs ktkjuimar (HK) fyrir bágstatt fóUc er- lendis og iimanlands fer af stað á morgun, fyrsta suimudag í að- ventu. Söfnunin hefst með ákalli til þjóðarinnar um að láta fé af hendi rakna. Meðal nýjunga í söfnunarstarfinu er að við út- varpsguðsþjónustu í Flallgríms- kirkju og víðar næsta sunnudag verður efnt til samskota á pen- ingum og gjöfum og „fórnunum" raðað á altari kirkjunnar. Karl Sigurbjörnsson, biskup Islands, segir að söfnunarbaukar HK séu víða orðnir ómissandi hluti af skreytingu heimilanna fyrir jól. „Guði sé lof þá eru Is- lendingar vel aflögufærir, þótt margir hér á landi beri minna úr bítum á allsnægtarborðinu en sums staðar annars staðar og þó við séum lítið land þá skiptir okkar skerfur miklu og skiptir víða sköpum við neyðaraðstoð eða langtíma þróunarverkefni. Söfnun gjafa og samskota í guðs- þjónustunni er táknræn athöfn til að minna á fórnina og hvatn- ing til fólks um að láta af hendi rakna til þeirra sem eru í nauð- um staddir og hjálpar þurfi,“ seg- ir biskup. Söfnunarbaukur HK fer inn á öll 98 þúsund heimili landsins, en einnig er tekið við framlögum í bönkum. I jólasöfnun síðasta árs söfnuðust 10,7 milljónir króna og auk þess matvæli sem varlega má meta upp á 5-6 millj- ónir króna, en maturinn rennur sem kunnugt er til vaxandi inn- lendrar aðstoðar. Þess má geta að sóknarprestar gefajafnan 1% af launum sínum í hjálparstarfið og safnaðist þannig um ein milljón króna á síðasta ári. — FÞG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.