Dagur - 28.11.1998, Blaðsíða 4
4- LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
-Ðnptr
INNLENT
Töpuðu 23 miUjónum á fjárfestiugum
Sex (íFeyrissjóðir töpuðu samtals 23 milljónum á síðasta ári við sölu
fjárfestinga, samkvæmt skýrslu bankaeftirlits Seðlabankans.
Rúmur þriðjungur upphæðarinnar, eða 8 milljónir, tapaðist hjá Líf-
eyrissjóði Austurlands. Um 645 þús.kr. tap Lífeyrissjóðs leigubif-
reiðastjóra var þó hlutfallslega stærst, því sá sjóður á einungis 166
millj.kr. eignir og er hættur að taka við iðgjöldum. Þess má geta að
sjóðurinn greiddi tæpar 17 milljónir í lífeyri í fyrra til um 270 félags-
manna, eða um 5.100 kr. að meðaltali á mánuði.
Aðrir sjóðir með skráð fjárfestingatap í fyrra voru: Lífeyrissjóðurinn
Framsýn 5,3 milljónir, Lífeyrissj. Suðurnesja 4,1 milljón, Lífeyrissj.
starfsmanna ríkisins 3,6 milljónir og Lífeyrissjóður lækna 1,4 milljón-
ir. - hei
Skagaíjöröur og Homafjörður
Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, hefur samþykkt beiðni sveitar-
stjórna nýrra sveitarfélaga í Skagafirði og Austur-Skaftafellssýslu um
að þau fái að heita Skagafjörður og Hornafjörður. Hins vegar hefur
félagsmálaráðherra hafnað beiðni um að sameinað sveitarfélag sjö
sveitarfélaga í Vestur-Húnavatnssýslu fái að heita Húnaþing og að
sameinað sveitarfélag þriggja sveitarfélaga í Borgarfirði fái að bera
nafnið Borgarfjörður. Húnbogi Þorsteinsson, ráðuneytisstjóri í félags-
málaráðuneytinu, segir að sterkustu rökin séu þau að nöfnunum
Húnaþingi og Borgarfirði var mótmælt af nágrenninu, enda nái þessi
heiti yfir mun stærri svæði en viðkomandi sveitarfélög. Beiðni um
nafnið Arborg á sveitarfélag Selfoss og nágrennis er enn í skoðun í
ráðuneytinu og íbúar nýs sveitarfélags Eskifjarðar, Neskaupstaðar og
Reyðarfjarðar munu innan tíðar velja milli nafnanna Miðfirðir og
Fjarðarbyggð.
Elín Líndal, odviti Vestur-húnvetnska sveitarfélagsins segist hafa
búist við þessari neitun en sveitarstjórn hafi viljað fá á hreint afstöðu
til nafnsins Húnaþings. Málið verður á dagskrá sveitarstjórnar 10.
desember en Elín segist ekki hafa neitt nýtt nafn í handraðanum en
Ijóst sé að finna verði Vestur-húnvetnskt nafn á sveitarfélagið. Elín
telur líklegt að efnt verði til skoðanakönnunar meðal íbúa um nafn
sem Örnefnanefnd hefur áður lagt blessun sína yfir. — GG
Með hálendinu gegn náttúruspjöHum
Sólveig Hauksdóttir les ijóð á Austurvelli til varnar hálendinu.
Náttúruverndarsamtök, útivistarfélög og fjölmargir einstaklingar
boða til almenns fundar um verndun miðhálendisins í Háskólabíói í
dag. Þar verða flutt ávörp og íjölbreytt skemmtiatriði og leggja flytj-
endur allir fram vinnu sína án endurgjalds. Fundurinn hefst klukkan
14:00 og aðgangur er ókeypis en veggspjald til styrktar málefninu
verður seld á staðnum og kostar 500 krónur.
Læknavaktin flytur í Smárann
Læknavaktin er flutt úr húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykja-
vík og í dag verður formlega tekið í notkun nýtt húsnæði við Smára-
torg 1 í Kópavogi. Ríkið samdi við Læknvaktina í október um að taka
að sér kvöld- og helgarlæknisþjónustu fyrir allt höfuðborgarsvæðið.
Atli Árnson formaður stjórnar Læknavaktarinnar segir að nú sé búið
að samræma alla þjónustu utan sjúkrahúsa á þessu 165 þúsund
manna svæði á einum stað og aðstaðan sé stórglæsileg. Húsið verður
vígt í dag að viðstaddri m.a Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráð-
herra en starfsemi Læknavaktarinnar hefst ekki fyrr en 3. desember
kl. 17:00.
Nefnd um Korpúlfsstaði
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt til að nefnd verði skip-
uð til að kanna möguleika á samstarfi við félagasamtök eða aðra
einkaaðila um nýtingu og rekstur Korpúlfsstaða. Hugmyndin er að
húsið verði gert upp og nýtt sem fjölbreytt menningar- og félagsmið-
stöð til hagsbóta fyrir alla Reykvíkinga. Borgarstjórn ræddi tillöguna
og samþykkti að vísa henni til menningarmálanefndar.
Golfarar urðu, sem kunnugt er, fyrstir til að takast á við endurbæt-
ur á Korpúlfssöðum - austustu álmunni - fyrir aðeins brot af þeim
kostnaði sem áður hafði verið talað um. Og nýlega kom fram að hag-
kvæmara kynni að vera að gera upp vestustu álmuna fyrir grunnskóla-
starf en að setja upp færanlegar skólastofur í hverfinu. — HEI
FRÉTTIR
Erlendis eru víða skýrar reglur um tölvupóstnotkun starfsmanna í ráðningarsamningum þeirra. Hér á landi er ekki
algengt að fyrirtæki hafi reglur um þetta.
Engar reglur til
um tölvupóstinii
Reglur um tölvupóst-
notkim starfsmanna
óalgengar í íslenskum
fyrirtækjum en er-
lendis eru víða skýrar
reglur um slíkt í ráðn-
ingarsamningum.
„Ymis álitaefni varðandi per-
sónuvernd hafa komið upp með
nýrri upplýsingatækni og vaxandi
tölvupóstnotkun starfsmanna á
vinnustöðum. Hefur atvinnurek-
andi til að mynda aðgang að
tölvupósti starfsmanna eða njóta
þeir persónuverndar? Engar
skýrar og fastmótaðar reglur er
að finna um þessi atriði hér á
Iandi,“ segir Andri V. Sigurðsson
lögfræðingur VSI í fréttabréfi
samtakanna. Hann telur vafa-
laust að álitaefni þessu tengd
eigi eftir að fara vaxandi á næstu
árum.
Engar skýrar reglur til
Erlendis segir hann skýrar reglur
um tölvupóstnotkun starfs-
manna víða að finna í ráðningar-
samningum þeirra. Hér á Iandi
sé ekki algengt að fyrirtæki hafi
reglur um þetta. Ætla megi að £
þeim tilvikum sem tölvupóstur
starfsmanna sé sendur út í nafni
fyrirtækis hafi vinnuveitandi
rúmar heimildir til aðgangs að
honum.
Prlvat eöa ekki
Það verði þó að meta það í hver-
ju tilviki fyrir sig hvenær starfs-
menn senda tölvupóst í nafni
fyrirtæksins og hvenær sé um
persónulegan póst að ræða.
Kemur t.d. nafn fyrirtækisins
fyrir í netfangi viðkomandi
starfsmanns? „I tilvikum þegar
ekki er hægt að rekja tölvupóst
starfsmanna beint til fyrirtækis-
ins, má almennt ætla að eitthvað
sérstakt þurfi til að vinnuveit-
andi eigi ótakmarkaðan og frjáls-
an aðgang, nema að hann hafi
áður gert fyrirvara þar um,“ seg-
ir Andri. Geti þó skipt miklu máli
að vinnuveitandi eigi tækjabún-
aðinn sem um sé að ræða. — HEI
Hjálparstarf
gegn hörmimgiun
Karl Sigurbjörnsson, biskup íslands, segir að söfnunarbaukar HK séu viða
orðnir ómissandi hluti afskreytingu heimilanna fyrirjól.
Árleg söfnun Hjálpar-
starfs ktkjuimar (HK)
fyrir bágstatt fóUc er-
lendis og iimanlands
fer af stað á morgun,
fyrsta suimudag í að-
ventu.
Söfnunin hefst með ákalli til
þjóðarinnar um að láta fé af
hendi rakna. Meðal nýjunga í
söfnunarstarfinu er að við út-
varpsguðsþjónustu í Flallgríms-
kirkju og víðar næsta sunnudag
verður efnt til samskota á pen-
ingum og gjöfum og „fórnunum"
raðað á altari kirkjunnar.
Karl Sigurbjörnsson, biskup
Islands, segir að söfnunarbaukar
HK séu víða orðnir ómissandi
hluti af skreytingu heimilanna
fyrir jól. „Guði sé lof þá eru Is-
lendingar vel aflögufærir, þótt
margir hér á landi beri minna úr
bítum á allsnægtarborðinu en
sums staðar annars staðar og þó
við séum lítið land þá skiptir
okkar skerfur miklu og skiptir
víða sköpum við neyðaraðstoð
eða langtíma þróunarverkefni.
Söfnun gjafa og samskota í guðs-
þjónustunni er táknræn athöfn
til að minna á fórnina og hvatn-
ing til fólks um að láta af hendi
rakna til þeirra sem eru í nauð-
um staddir og hjálpar þurfi,“ seg-
ir biskup.
Söfnunarbaukur HK fer inn á
öll 98 þúsund heimili landsins,
en einnig er tekið við framlögum
í bönkum. I jólasöfnun síðasta
árs söfnuðust 10,7 milljónir
króna og auk þess matvæli sem
varlega má meta upp á 5-6 millj-
ónir króna, en maturinn rennur
sem kunnugt er til vaxandi inn-
lendrar aðstoðar.
Þess má geta að sóknarprestar
gefajafnan 1% af launum sínum
í hjálparstarfið og safnaðist
þannig um ein milljón króna á
síðasta ári. — FÞG