Dagur - 28.11.1998, Page 9

Dagur - 28.11.1998, Page 9
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 - 9 Thyftr FRÉTTIR nædd augu Hann kynntist viðkomandi konu á Reykjalundi en síðar var hún til meðferðar á lokaðri geð- deild Landspítalans. Þangað fór Stefán og fékk konuna til að veð- setja eign sína vegna 1,5 milljóna króna láns. Til að bæta gráu ofan á svart varð honum ekki skota- skuld úr að fá tvær starfsstúlkur geðdeildarinnar til að gerast vit- undarvottar, þar sem þær voru í pásu að reykja. Var konan þó ekki einu sinni búin að setja nafn sitt undir veðheimildina þegar starfs- stúlkurnar fóru að beiðni Stefáns. Þá undirritun fékk hann hjá kon- unni - inni í bíl sínum fyrir utan geðdeildina. Dóttuniiissixmn spilaði mjög á samúðina Við grípum inn í vætti einnar kon- unnar sem Stefán blekkti, nýlega fráskilinnar verkakonu sem varð „skotin í“ honum. „Þegar ákærði var búinn að fá hana til þess að skrifa upp á skuldabréfin þá sagði hann alltaf við hana, að það væri auðvelt fyr- ir hann að borga af þeim, þar sem hann hefði góða vinnu og ynni mikið. Hún kvaðst hafa látið blekkjast af því, sem hann sagði við hana og trúað honum. Segja megi að kynni þeirra hafi staðið í skamman tíma og það hafi tekið hann mjög skamman tíma að fá hana til að lána sér framangreind- ar fjárhæðir og skrifa upp á skuldabréf. Raunverulega hafi hún ekki áttað sig á hlutunum fyrr en allur þessi skaði var skeð- ur. Aðdragandi þess að þetta bréf var útbúið var sá, að ákærði var mikið búinn að hamra á [henni] og pressa á að þessu yrði að koma í lag og var búinn að tala um það í langan tíma...“ Síðar er haft eftir henni: „Hún kvaðst játa að hún hafi verið ótrú- lega blind að sjá ekki í hvaða hættu hún var búin að stofna sér í þarna... Hún sagði til skýringar á því af hveiju þetta kom til, að það hafi verið samúð af hennar hálfu. Henni fannst hann vera í fjár- hagserfiðleikum og sorg vegna dauða dóttur sinnar. Henni var sagt að hann hefði misst móður sína tveggja ára og alist upp hjá vandalausum. Það hafði hann sagt henni sjálfur og hún haldið að það væri satt. Þessi dóttur- missir hafi spilað mjög á samúð hennar". vart gjörðum sínum eftirá, en fram kemur að henni hafi dottið í hug að það gæti orðið fast sam- band þeirra á milli. Aðra konu hitti Stefán á Kringlukránni. Sú kona hafði átt við geðræna vanheilsu að stríða frá 16 ára aldri og var í eftirmeð- ferð í Hveragerði. Stefán sann- færði hana um að yfirgefa eftir- meðferðina og flytjast til sín - hann myndi sjá um hana og greiða úr hennar málum. I fyrstu dvaldist hún hjá honum, en flutti síðan heim til sín. „Tveimur eða þremur dögum eftir að hún fór heim til sín kom ákærði með dót- ið sitt og flutti inn heima hjá henni. Hún sagði ákærða að hún vildi kynnast honum betur áður en hann flytti inn til hennar, en hann taldi að það væri ekki eftir neinu að bíða með þetta. [Hún] minntist þess, að hann hefði sagt að þetta kæmi allt að ofan frá Guði, dóttir hans hefði e.t.v. leitt þau saman". Skömmu síðar var hann búinn að kaupa sér nýjan bíl á hennar kostnað. Onnur kona, sem alls fimm sinnum skrifaði undir fjárskuld- bindingar vegna hans, bar hvern- ig hann hefði tekið því illa þegar hún kvartaði undan vanskilatil- kynningum við hann. „Hún kvaðst oft hafa hringt í hann þeg- ar vanskilatilkynningar bárust henni, en hann hefði alltaf kjaft- að sig út úr þessu". Hún segist ekki hafa verið í andlegu jafnvægi á þessum tíma, einstæð móðirin með dreng á framfæri og 60 þús- und króna mánaðarlaun. Starfsstúlkur geðdeildar í pásu vottuðu Stefán hikaði ekki við að notfæra sér fráfall dóttur sinnar, samúð fólksins og um Ieið þess eigin erf- iðleika. Og honum þótti ekkert óeðlilegt við að fara með skulda- bréf inn á lokaða geðdeild til að fá fársjúka konu þar til að skrifa undir. Átta dómar og tvenn gjaldþrot að báki Stefán fékk sem fyrr segir tveggja ára fangelsisdóm og er það ekki í fyrsta skiptið sem hann kemst í kast við lögin. Hann hafði áður átta sinnum verið dæmdur fyrir brot á hegningarlögum, þar af lengst í fjögurra mánaða fangelsi. Auk þess hafði honum nokkrum sinnum verið refsað fyrir brot á umferðar- og áfengislögum. Þá er þess að geta að hann á að baki tvo gjaldþrotaúrskurði. Við endum frásögnina á vitnis- burði manns sem kynntist Stefáni á AA-fundum og heillaðist af hon- um þar: „[Vitnið] vissi ekki annað en hann væri heiðarlegur og það væri óhætt að treysta honum og tók fram að á þessum tíma hefði ákærði verið mjög áberandi í AA samtökunum og gefið sig út fyrir að vera allt annar maður, en hann í raun og veru er.“ Hitti ekki og fór íir lið Vinnuslys varð við Alcureyrarhöfn í gærmorgun þegar skipverji á Sjöfn ÞH-142 frá Grenivík var að störfum með sleggju við slippkant- inn. Hann hitti ekki það sem hann var að lemja og fór úr axlarlið og var fluttur á sjúkrahús. Skipveijar unnu við að taka niður spjöld úr lest þegar slysið varð. Lögreglan bendir á að ítrekaðar kvartanir hafi borist að undan- förnu úr skólum bæjarins þar sem bílstjórar virði ekki gangbrautar- ljós nægilega. Þörf sé á bragarbót í þessum efnum. Einna mest hafi verið kvartað við Þingvallastræti nálægt Hrísalundi. — BÞ Þimgaskattur hækkar vöruverð Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur mót- mælt harðlega þeim breytingum sem sam- þykktar hafa verið á gjaldtöku þungaskatts og þeim hækkunum sem fyrirhugaðar eru á þungaskattinum. Fjórðungssambandið telur breytinguna leggjast með verulegum þunga á þá vöruflytjendur sem aka á lengri leiðum og geti hækkunin numið á annan tug prósenta. Fjórðungssambandið telur að þetta Ieiði til gjaldskrárhækkunar flutningafyrirtækja sem síðan leiði til hækkunar vöruverðs. Stjómvöld eru því hvött til þess að leiðrétta það ranglæti sem felst í breyttri gjaldtöku þungaskatts. - GG Slysahætta vegna sjógangs Lögreglan á Akureyri hyggst beina pví til bæjaryfirvalda að breyta við- legukanti við Torfunefsbryggju vegna slysahættu sem myndast hefur í hvassviðri að undanförnu. Sjó og grjóti hefur rignt yfir bíla sem fara um Drottningarbrautina skammt frá bryggjunni og hafa bílstjórar sem stöðvað hafa á rauðu ljósi, margir fengið vænan skammt úr smiðju Ægis yfir bíla sína. Jón Valdimarsson, varðstjóri hjá Lögregl- unni á Akureyri, segir að bærinn þurfi að gera ráðstafanir til að breyta þessu og færa viðlegukantinn lengra fram. — BÞ Bókmeimtavaka í Freyvangi Að kvöldi fullveldisdagsins 1. desember klukkan 21.00 stýrir Erling- ur Sigurðarson bókmenntavöku í Freyvangi í Eyjafjarðarsveit á veg- um menningarmálanefndar Eyjafjarðar. Lesið verður úr gömlum sem nýjum verkum eyfirskra skálda og rithöfunda. Ökeypis verður inn og kaffi selt við vægu verði. Rauðarárstíg 1, stmi 561 5077

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.