Dagur - 28.11.1998, Síða 9
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 - 9
Thyftr
FRÉTTIR
nædd augu
Hann kynntist viðkomandi
konu á Reykjalundi en síðar var
hún til meðferðar á lokaðri geð-
deild Landspítalans. Þangað fór
Stefán og fékk konuna til að veð-
setja eign sína vegna 1,5 milljóna
króna láns. Til að bæta gráu ofan
á svart varð honum ekki skota-
skuld úr að fá tvær starfsstúlkur
geðdeildarinnar til að gerast vit-
undarvottar, þar sem þær voru í
pásu að reykja. Var konan þó ekki
einu sinni búin að setja nafn sitt
undir veðheimildina þegar starfs-
stúlkurnar fóru að beiðni Stefáns.
Þá undirritun fékk hann hjá kon-
unni - inni í bíl sínum fyrir utan
geðdeildina.
Dóttuniiissixmn spilaði mjög
á samúðina
Við grípum inn í vætti einnar kon-
unnar sem Stefán blekkti, nýlega
fráskilinnar verkakonu sem varð
„skotin í“ honum.
„Þegar ákærði var búinn að fá
hana til þess að skrifa upp á
skuldabréfin þá sagði hann alltaf
við hana, að það væri auðvelt fyr-
ir hann að borga af þeim, þar sem
hann hefði góða vinnu og ynni
mikið. Hún kvaðst hafa látið
blekkjast af því, sem hann sagði
við hana og trúað honum. Segja
megi að kynni þeirra hafi staðið í
skamman tíma og það hafi tekið
hann mjög skamman tíma að fá
hana til að lána sér framangreind-
ar fjárhæðir og skrifa upp á
skuldabréf. Raunverulega hafi
hún ekki áttað sig á hlutunum
fyrr en allur þessi skaði var skeð-
ur. Aðdragandi þess að þetta bréf
var útbúið var sá, að ákærði var
mikið búinn að hamra á [henni]
og pressa á að þessu yrði að koma
í lag og var búinn að tala um það
í langan tíma...“
Síðar er haft eftir henni: „Hún
kvaðst játa að hún hafi verið ótrú-
lega blind að sjá ekki í hvaða
hættu hún var búin að stofna sér
í þarna... Hún sagði til skýringar á
því af hveiju þetta kom til, að það
hafi verið samúð af hennar hálfu.
Henni fannst hann vera í fjár-
hagserfiðleikum og sorg vegna
dauða dóttur sinnar. Henni var
sagt að hann hefði misst móður
sína tveggja ára og alist upp hjá
vandalausum. Það hafði hann
sagt henni sjálfur og hún haldið
að það væri satt. Þessi dóttur-
missir hafi spilað mjög á samúð
hennar".
vart gjörðum sínum eftirá, en
fram kemur að henni hafi dottið í
hug að það gæti orðið fast sam-
band þeirra á milli.
Aðra konu hitti Stefán á
Kringlukránni. Sú kona hafði átt
við geðræna vanheilsu að stríða
frá 16 ára aldri og var í eftirmeð-
ferð í Hveragerði. Stefán sann-
færði hana um að yfirgefa eftir-
meðferðina og flytjast til sín -
hann myndi sjá um hana og
greiða úr hennar málum. I fyrstu
dvaldist hún hjá honum, en flutti
síðan heim til sín. „Tveimur eða
þremur dögum eftir að hún fór
heim til sín kom ákærði með dót-
ið sitt og flutti inn heima hjá
henni. Hún sagði ákærða að hún
vildi kynnast honum betur áður
en hann flytti inn til hennar, en
hann taldi að það væri ekki eftir
neinu að bíða með þetta. [Hún]
minntist þess, að hann hefði sagt
að þetta kæmi allt að ofan frá
Guði, dóttir hans hefði e.t.v. leitt
þau saman". Skömmu síðar var
hann búinn að kaupa sér nýjan bíl
á hennar kostnað.
Onnur kona, sem alls fimm
sinnum skrifaði undir fjárskuld-
bindingar vegna hans, bar hvern-
ig hann hefði tekið því illa þegar
hún kvartaði undan vanskilatil-
kynningum við hann. „Hún
kvaðst oft hafa hringt í hann þeg-
ar vanskilatilkynningar bárust
henni, en hann hefði alltaf kjaft-
að sig út úr þessu". Hún segist
ekki hafa verið í andlegu jafnvægi
á þessum tíma, einstæð móðirin
með dreng á framfæri og 60 þús-
und króna mánaðarlaun.
Starfsstúlkur geðdeildar í
pásu vottuðu
Stefán hikaði ekki við að notfæra
sér fráfall dóttur sinnar, samúð
fólksins og um Ieið þess eigin erf-
iðleika. Og honum þótti ekkert
óeðlilegt við að fara með skulda-
bréf inn á lokaða geðdeild til að fá
fársjúka konu þar til að skrifa
undir.
Átta dómar og tvenn
gjaldþrot að báki
Stefán fékk sem fyrr segir tveggja
ára fangelsisdóm og er það ekki í
fyrsta skiptið sem hann kemst í
kast við lögin. Hann hafði áður
átta sinnum verið dæmdur fyrir
brot á hegningarlögum, þar af
lengst í fjögurra mánaða fangelsi.
Auk þess hafði honum nokkrum
sinnum verið refsað fyrir brot á
umferðar- og áfengislögum. Þá er
þess að geta að hann á að baki tvo
gjaldþrotaúrskurði.
Við endum frásögnina á vitnis-
burði manns sem kynntist Stefáni
á AA-fundum og heillaðist af hon-
um þar: „[Vitnið] vissi ekki annað
en hann væri heiðarlegur og það
væri óhætt að treysta honum og
tók fram að á þessum tíma hefði
ákærði verið mjög áberandi í AA
samtökunum og gefið sig út fyrir
að vera allt annar maður, en hann
í raun og veru er.“
Hitti ekki og fór íir lið
Vinnuslys varð við Alcureyrarhöfn í gærmorgun þegar skipverji á
Sjöfn ÞH-142 frá Grenivík var að störfum með sleggju við slippkant-
inn. Hann hitti ekki það sem hann var að lemja og fór úr axlarlið og
var fluttur á sjúkrahús. Skipveijar unnu við að taka niður spjöld úr
lest þegar slysið varð.
Lögreglan bendir á að ítrekaðar kvartanir hafi borist að undan-
förnu úr skólum bæjarins þar sem bílstjórar virði ekki gangbrautar-
ljós nægilega. Þörf sé á bragarbót í þessum efnum. Einna mest hafi
verið kvartað við Þingvallastræti nálægt Hrísalundi. — BÞ
Þimgaskattur hækkar vöruverð
Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur mót-
mælt harðlega þeim breytingum sem sam-
þykktar hafa verið á gjaldtöku þungaskatts og
þeim hækkunum sem fyrirhugaðar eru á
þungaskattinum. Fjórðungssambandið telur
breytinguna leggjast með verulegum þunga á
þá vöruflytjendur sem aka á lengri leiðum og
geti hækkunin numið á annan tug prósenta.
Fjórðungssambandið telur að þetta Ieiði til
gjaldskrárhækkunar flutningafyrirtækja sem
síðan leiði til hækkunar vöruverðs. Stjómvöld
eru því hvött til þess að leiðrétta það ranglæti
sem felst í breyttri gjaldtöku þungaskatts.
- GG
Slysahætta vegna sjógangs
Lögreglan á Akureyri hyggst beina pví til bæjaryfirvalda að breyta við-
legukanti við Torfunefsbryggju vegna slysahættu sem myndast hefur
í hvassviðri að undanförnu. Sjó og grjóti hefur rignt yfir bíla sem fara
um Drottningarbrautina skammt frá bryggjunni og hafa bílstjórar
sem stöðvað hafa á rauðu ljósi, margir fengið vænan skammt úr
smiðju Ægis yfir bíla sína. Jón Valdimarsson, varðstjóri hjá Lögregl-
unni á Akureyri, segir að bærinn þurfi að gera ráðstafanir til að
breyta þessu og færa viðlegukantinn lengra fram. — BÞ
Bókmeimtavaka í Freyvangi
Að kvöldi fullveldisdagsins 1. desember klukkan 21.00 stýrir Erling-
ur Sigurðarson bókmenntavöku í Freyvangi í Eyjafjarðarsveit á veg-
um menningarmálanefndar Eyjafjarðar. Lesið verður úr gömlum sem
nýjum verkum eyfirskra skálda og rithöfunda. Ökeypis verður inn og
kaffi selt við vægu verði.
Rauðarárstíg 1, stmi 561 5077