Dagur - 03.12.1998, Page 1

Dagur - 03.12.1998, Page 1
V í f ; „Við mæðgurnar höfðum það gott og okkur gekk vel að aðlagast mannlífinu í Englandi. Enda minnumst við dvalar- innar þar með ánægju þó svo stór hluti hennar hafi markast af erfiðleikum vegna sjúkleika míns, “ segir Andrína Jónsdóttir. mynd: pjetur. Samfélagið erkalt. Grafískur hönnuður í fullu starfifær erfiðan sjúkdóm „síþreytu“ og verður óvinnufær. Fólk snýrsérbara undan og vill helst ekki vita af vandamálunum, þau eru „tabú“. Ororkubæturnar duga Andrínu Jónsdóttur rétt til að tóra, síþreyt- an kemur í veg fyrir að hún geti unnið hefðbundna vinnu en ef ekkert breytist missir hún heimili sitt og dætra sinna tveggja. I velferðarþjóðfélaginu Islandi er fjöldi fólks sem þiggur smán- arlaun í formi örorkustyrkja eða atvinnuleysisbóta og er gert að Iifa mánuðinn á upphæðum sem forstjóri eða bankastjóri fer með á einum degi í utanlandsferð. Andrína Guðrún Jónsdóttir vann eins og svo margir Islendingar langan vinnudag og hélt heimili með stúlkunum sínum tveim. „Mér voru allir vegir færir, „segir hún, „ og það var ekkert ómögu- legt. Eg ákvað að fara í nám er- lendis til að nema fræði Rudolfs Steiner, því ég hef alla tíð haft áhuga á uppeldismálum.11 Stöðugt þreytt og veik I fyrstu gekk allt vel en skömmu eftir komuna út, fékk Andrína flensu og svo hveija pestina á fætur annarri. I fyrstu hélt hún að þetta væri hara óheppni. Henni batnaði nefnilega ekki. Einbeitingarörðugleikar tóku að gera vart víð sig, daglegt líf varð vandkvæðum bundið vegna þreytu og verkja víða um lík- amann. „En skólanum Iauk ég,“ segir Andrína og brosir. Þegar heim var komið mætti henni kalt umhverfi og ómann- eskjulegt. Sjúkdómseinkennin voru mörg og sum óljós. Enginn kannaðist við að sjúkdómurinn síþreyta væri annað og meira en ímyndunarveiki konu sem væri búin að leggja heldur hart að sér. „En svo hitti ég Sverri Bergmann og hann er engill," segir Andrína ákveðin. „Hann greindi mig með síþreytu og kom því til leiðar að örorkan mældist 75%. Og nú stend ég frammi fyrir því að missa íbúðina, því ég get ekki með nokkru móti greitt af henni og séð fyrir mér og stelpunum á 45 þús. króna örorkubótum og meðlagi." Þarna er greinilega komið við kviku, því Andrína kemst við og segir svo: „Fyrir- gefðu, ekki það að ég ætli að kvarta en mér finnst vanta svo mikið upp á kærleik fólks og samkennd og er stundum að velta því fyrir mér hvort ástæða þess að svo mörgum er haldið niðri fjárhagslega, geti verið sú að þá geta aðrir upphafið sig. Horft til lítilmagnans og hreykt sér af fínu húsunum sínum, háu laununum og flottu fötunum. Því það er nefnilega erfitt að vera stór, ef maður getur ekki borið sig saman við annan minni.“ Erfíðleikar „tabú“ Abyrgðin er samfélagsins og það er ekki hægt að segja að samfé- lagið beri hana með reisn. Andrína vill bjarga sér sjálf, vill vinna að því sem hún hefur getu til en kerfið er ósveigjanlegt. Enda er það ekki síður kuldi og afskiptaleysi umheimsins en lág- ar tekjurnar sem hafa valdið Andrínu vonbrigðum. „Fólk vill ekki kannast við að eitthvað geti verið að. Það vill helst loka á vandamál annarra, hvort sem þau varða heilsu eða fjármál og þetta verður einskonar „tabú“. Þegar maður biður um aðstoð mætir maður fordómum. Auðvit- að hafa ýmsir stutt við mig, að- stoðað mig og hlustað og verið til staðar í gegnum tíðina. En fólk á samt erfitt með að horfast í augu við veikindin og fátæktina.11 Mamma, elskarðu mig ekki? Dætur Andrínu eru að komast til manns þrátt fyrir erfiðleikana sem á undan eru gengnir og Andrína er hreykin af þeim. „Sú yngri kenndi mér dýrmæta lexíu þegar hún var smástelpa því hún tók uppá því að stoppa allt í einu. Eg var ákveðin í að láta hana ekki ráða og komast upp með þetta en ég tók ekki eftir því sem hún var að segja. Sem var einfaldlega: Mamma, elskar þú mig ekkií Eg bara hélt mínu striki og með því sagði ég henni skýrt og greinilega að hún skipti mig minna máli en erindið sem ég var að reka. Einn daginn áttaði ég mig svo á því hvað barnið var að segja. Sagði henni að ég elskaði hana og að hún skipti máli. Eg hægði sem sagt á ferðinni. Það dugði.“ Þrátt fyrir veikindi og erfið- leika, daglega súrefnismeðferð, dýr vítamín og læknisaðstoð, ber Andrína höfuðið hátt. „Leitin að gleðinni og hamingjunni er ekki í hjóminu. En ég gef aldrei upp vonina, vonina um að mér batni og geti tekið þátt í lífinu á jafn- réttisgrundvelli," segir þessi kjarkmikla kona sem á lítið af veraldlegum eigum en mikinn kjark og dug. -VS - Hlustaðu dalvöru hljómgæði CDC-471 Heimabíóhljómtæki • 2X40W eða 4X40W • RMS-Dolby pro logic magnari • Stafrænt tengi fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari • Útvarp með 20 stöðva minni • RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja. CDC-421 • 2X20W • RMS-Surround • 3ja diska geislaspilari • Útvarp með 20 stöðva minni • RDS-tvöfalt segulband • Surround hátalarar fylgja. CDC5H Heimabíóhljómtæki • 2X100W eða 4X50W «RMS • Dolby prologic magnari • Stafrænt tengi fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari • Utvarp með 20 stöðva minni • RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja. -cUn li liV'lfl bOftl O.H I.UJ.IU £i..l fcVl lillA l + { U)> / j H > <4, ot \ (. l l*

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.