Dagur - 03.12.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 03.12.1998, Blaðsíða 2
18 —FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 19 9 8 LÍFIÐ í LANDINU ■ SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SiGURDÓR SIGURDÓRSSON Sigurður G. Tómasson. „Ég held að vinstra fólk viti varla sjálft hvaða flokksbrotum það tilheyri og því varla von að ég viti slíkt þegar þú spyrð mig um vinstri hreyfing- una ...“ Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður í spumingu Dags. Hver er þessi Össur? Eftirfarandi saga var sögð í Alþingishúsinu ekki alls fyrir löngu: Ljón, snigill og flóðhestur voru að metast á um hver þeirra væri mestur. „Ég er mestur, ég er konungur dýranna,11 sagði ljónið. „Nei, ég er mestur,“ sagði snigillinn. „Ég er sterkastur allra, því ég get borið húsið mitt á bakinu." „Hvaða rugl er þetta,“ sagði flóðhesturinn. „Auðvitað er ég mestur, ég er flóðhestur, stóri flóðhesturinn." En þar sem þeir gátu ekki komið sér saman um þetta ákváðu þeir að leita til Lykla-Péturs um úr- skurð. Ljónið fór fyrst og koma til baka bros- andi: „Hann staðfesti að ég væri konungur dýranna," sagði ljónið. Snigillinn fór næstur og kom fljótt til baka. „Hann staðfesti að ég væri sterkastur," sagði snigillinn. Flóðhestur- inn fór síðastur inn. Honum dvaldist lengi hjá Pétri. Loks kom hann út grátandi. „Hvað er að, hvað sagði Pétur?“ spurðu hinir. „Strákar," svaraði flóðhesturinn snöktandi, „hver er hann þessi Ossur Skarphéðinsson?" Kominn er hann frá Kúbu Sigurður G. Tómasson, fyrrum dagskrárstjóri Rásar 2, er gamall skólabróðir Hjálmars Jóns- sonar alþingismanns og ortust þeir gjarnan á í skóla. A dögunum hafði Sigurður orð á því við Hjálmar að andinn væri hættur að koma yfir sig. Sigurður fór í vikuferð til Kúbu á dögun- um. Hann varð fyrir því óláni að fá í magann og ferðin því hálf ónýt. Þegar hann kom heim kom andinn yfir hann og hann sendi Hjálmari þessa vísu: Kominn er hannfrá Kúhn rneð kynlega gerlasúpu, fésiðfölt eins og næpa ferleg er þessi....bölvuð þvæla sem þeir eru alltafað birta t blöðunum. Tímans tönn Sigurður hitti svo Hjálmar á dögunum og spurði á hvaða leið samstarfsflokkur hans í ríkisstjórn væri því hann hefði heyrt heilbrigð- isráðherra segja að hún yrði að vera „í takt við tímans tönn.“ Þá svaraði Hjálmar Jónsson: Ráðherrann í amstri og önn, á sig lætur gervið. Heggur eins og tímans tönn taktfast t sjúkrakerfið. Ólyginn sagði I Vestra, óháðu vikublaði á Vestfjörðum, segir að Akureyringar þurfi á einhverju öðru en há- skóla að halda til að læra einföldustu vinnu- brögð. Hafið þið t.d. heyrt um Akureyringinn sem beðinn var að færa togara til f höfninni? Hann fór og sótti Musso-jeppa útgerðarinnar og reyndi svo að draga dallinn í gang!! Sigrún endur- hannaði ísienska þjóðbúninginn fyr- ir um aldarfjórð- ungi og hafa ís- lenskar fegurðar- drottningar notað hann nánast jafn- lengi sem þjóð- búning landsins. Þótt hún sé reglu- lega beðin um þjóðbúninga þá segist hún ekki eiga neina lengur til en nú hefur hún hins vegar út- fært þjóðbúninga á dúkkur sem sjá má á sýningunni í Listhúsi Úfeigs. mynd: pjetur. Harmoní og sampil Sigrún er í miðju kafi að fægja silfurborðbúnaðinn fyrir næstu veislu en leggur það verk fúslega frá sér til að segja eilítið frá sýn- ingunni á sínum óvanalegu lista- verkum, höldum, veggskreyting- um, batík-lampaskermum og fleiru. Þetta er önnur sýning Sig- rúnar hér á landi, sem býr stóran hluta ársins í Svíþjóð, síðan hún lagði niður verslun sína og sýn- ingaraðstöðu í rauða bárujárns- húsinu við hliðina á Alþingishús- inu sem hefur verið gert upp og hýsir nú skrifstofur þingmanna. Sigrún hefur alls ekki látið deig- an síga þótt aðstaðan við Kirkju- strætið sé ekki lengur hennar. Er nýkomin frá Bandaríkjunum þar sem haldin var stór sýning á verkum hennar í þinghúsinu á Capitolhæð í Washington. Sú sýning fer bráð- lega til New York en eins og er vinnur Sigrún að pöntun frá Húsavíkurkirkju. Ljóta myndin Tildrög þessa sýningahalds í Bandaríkjunum voru þau að til hennar kom forstjóri safns í Seattle sem var að safna saman sænskum lista- mönnum. Hann bauð henni að koma með sýn- ingu en ætlaði svo að draga boðið til baka því Sigrún er ekki sænsk. „En ég gaf mig ekki. Fór og sýndi sem Islendingur og það var upphaf þessarar sýningarferðar um Bandaríkin. Én þá hafði ég unnið mynd, sprautandi eldgos, sem mér fannst svo forkastanlega ljót að ég fór og hengdi hana upp inn á háalofti hjá mér þegar ég var búin. En svo þegar kom að því að velja á sýninguna þá var ekki hægt að komast hjá því að vera með þetta ljóta teppi, það er búið að vera úti um allt,“ segir Sigrún og yppir öxlum. „En ég er nú farin að venjast því...“ Listagildið í lireyfilistiimi Eldgosamyndin er fjarri góðu gamni á sýningunni í Listhúsi Ofeigs. Áður en við tiplum niður Skólavörðustíginn til að kíkja á sýninguna, hún með fallegan, íburðarmikinn hatt á höfði og gyllta inniskó á fótum sem óneit- anlega glöddu augað í skamm- degisrigningunni, útskýrir hún sýningarhaldið hér: „Það eru svo margir sem óska eftir að kaupa lampaskermana. Ég legg náttúrulega hug minn allan í að sýna þessu umhyggju og það er eins og það virki á fólkið. Ég hef líka fengið Ijölmargar upphring- ingar og hrós frá fólki fyrir glerskreytingu sem ég gerði fyrir vélasalinn á Nesjavöllum um ferð gufunnar uppeftir jarðskorpunni. Fólki líður vel með hlutunum mínum og það gleður mig alveg óskaplega mikið." En auk höklanna og batíkverkanna sýnir Sig- rún nú þjóðbúninga sem hún hefur hannað á dúkkur. „Mynstur er alveg eins og músík. Ef maður fer ekki eftir grundvallarreglunum, þá verður lagið falskt. Þetta verður að vera harm- oní og samspil og það er það sem ég er að fá fram með búningunum. Ég er að skapa nokkurs konar hreyfilist. Listagildið kemur fram í hreyfilistinni." LÓA Sigrún Jónsdóttir, kirkjulistakona, erá landinu til að halda jól og sýningu í List- húsi Ófeigs sem lýk- urþann 9.desember. SPJALL ■ FRÁ DEGI TIL DAGS Sá sem sýslar við eld hlýtur að brenna sig. Brunasárin köllum við reynslu. Erích Kiistner Þetta gerðist 3. desember • 1685 var gyðingum bannað að setjast að í Stokkhólmi. • 1941 fórst togarinn Sviði frá Hafnar- firði út af Snæfellsnesi með 25 manna áhöfn. • 1947 var leikritið Sporvagninn Girnd eftir Tennessee Williams frumsýnt í Bandaríkjunum. • 1967 -gerði suðurafríski skurðlæknirinn Christian Barnard fyrstu hjartaígræðsl- una. • 1984 létust 2000 manns þegar eitraðar loftegundir bárust út í andrúmsloftið í Bhopal á Indlandi. Þau fæddust 3. desember • 1857 fæddist pólski rithöfundurinn Joseph Conrad. • 1883 fæddist austurríska tónskáldið Anton von Webern. • 1895 fæddist í Bretlandi sálfræðingur- inn Anna Freud, dóttir Sigmunds. • 1903 fæddist þýsk-bandaríski stærð- fræðingurinn John von Neumann. • 1911 fæddíst ítalska tónskáldið Nino Rota. • 1922 fæddist sænski kvikmyndatöku- maðurinn Sven Nykvist. • 1930 fæddist franski kvikmyndagerðar- maðurinn Jean-Luc Godard. Vísa dagsins Olafur Ragnar Grímsson forseti Islands hefur heldur dregið úr veitingu Fálkorðu. Auðunn Bragi Sveinsson kvað þess vegna. Ólafur er öðlingur allir drengnum hossa. Hann er ekki örlátur um of á fálkakrossa. Afmælisbam dagsins Norðmenn hafa gaman af að rífast um fleira en Leif og Snorra. Til dæmis rífast þeir sumir hverjir óspart við Dani um það hvort Ludvig Holberg (1684-1754) hafi verið norskur eða danskur. Hol- berg var fæddur í Björgvin í Nor- egi, en bjó í Danmörku þar sem hann skrifaði öll sín leikrit og ljóð ásamt sögu Danmerkur og ritgerð- um um ýmis efni. A þeim tíma var sama tungumálið talað í Noregi og Danmörku. 7-9-13! Tveir gamlir kunningjar hittast í matsaln- um á elliheimilinu, eins og þeir gera reyndar á hverjum degi. „Jæja, félagi, er minnið nokkuð farið að bila hjá þér,“ segir annar. „Nei, ekki ennþá," svarar hinn, en bætir snarlega við „sjö, níu, þrettán" og bankar í borðið til öryggis: „Vonum bara það besta.“ Síðan líða tvær til þrjár mínútur, og þá segir hann stundarhátt: „Hvernig er þetta, ætlar enginn að fara til dyra?“ Veffang dagsins The Últimate Science Fiction Web Guide, kallast þetta vefsetur og virðist við fyrstu sýn býsna nálægt því að standa undir nafni: www'.magicdragon.com/Ultimate SF/SF-Index.html

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.