Dagur - 03.12.1998, Qupperneq 5

Dagur - 03.12.1998, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 - 21 X^HT LÍFIÐ í LANDINU Farand- skugginn rokkar Rúnar Júlíusson Iætur ekki deig- an síga frekar en fyrri daginn. I það minnsta er nýjasta geisla- plata kappans, Farandskugginn, með því betra sem hann hefur sent frá sér um dagana og er þó af mörgu að taka á glæsilegum ferli hans í rokksögu landans. Með þvlbetra Sem fyrr eru þrettán lög á nýju plötunni, en Rúnar hefur löng- um haft dálæti á þeirri tölu, enda sjálfur fæddur 13. apríl 1945. Þessi plata er að mörgu leyti rokkaðri en fyrri skífur, auk þess sem allur söngur og hljóð- færaleikur er með því betra sem heyrst hefur úr Upptökuheimili Geimsteins í Keflavík. Fyrir utan eigin texta og lagasmíðar nýtur Rúnar aðstoðar manna eins og Kristjáns Hreinssonar, Sverris Stormskers að ógleymdum gítar- snillingnum Trygga Húbner og Asgeiri Oskarssyni trommuleik- ara. Þá gleður það trúlega ein- hverja að gamall samstarfsmaður Rúnars til margra ára, Gunnar Þórðarson leikur á gítar í tveim- ur lögum. Hinsvegar á Jóhann Arelíuz Ijóð við eitt besta Iag plötunnar, „Glær mjólk úr glös- um himins“ svo ekki sé minnst á Iagið „Kerfinu að kenna“ við texta Bjartmars Guðlaugssonar. Þá er „Sagan af brauðinu dýra“ við texta Kristjáns Hreinssonar gull af eir. Margbreytileg Einn helsti kostur plötunnar er hversu lögin eru margbreytileg, eða allt frá ljúfum ballöðum til harðra rokklaga. Þar nýtur Rún- ar reynslu sinnar sem einn lífs- seigasti rokkari landsins og er enn í fullu fjöri. Enda er heiti plötunnar, Farandskugginn, með vísan tii fyrstu hljómsveitarinnar sem Rúnar spilaði með, sjálfum Skuggum frá Keflavrk. -GRH Vissir þú... SVOJMA ERUHÐ Yigdís svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Vigdís svarar í 1. Vissir þú að afmælissöng- urinn er sá söngur sem oft- ast er sunginn í heiminum? Á spönsku er sagt Cump- leanos Feliz og á frönsku er það Bon Anniversaire. 2. Hann Trevor Baines frá Wright eyju hélt stóra af- mælisveislu árið 1989 og bauð 10 þús. manns til hennar. Það hefur sjálfsagt heyrst hátt í gestunum þeg- ar þeir sungu afmælissöng- inn. 3. Á Internetinu eru notuð ýmis orðatiltæki eða tölvutiltæki og eitt þeirra er LOL sem þýðir á góðri ís- lensku „Laughed out loud“ eða hlegið hástöfum og er gjarnan notað þegar fólk er að lýsa tilfinningum sínum í bréfum eða á irkinu. 4. Meðal fíll í Afríku vegur um fimm tonn og er þyngsta landspendýr sem vitað er um. Og í Afríku eru flestir fílar heims, um það bil 760 þúsund. En á Indlandi eru þeir aðeins um 20 þús. 5. Tóm Boeing 747 þota er nokkuð þung líka, vegur álíka og 67 afríkufílar. Mesta furða að hægt sé að koma þeim á loft svona yf- irleitt. 6. í Japan vinna börn mikla heimavinnu, sennilega þá mestu í heimi. Meðal- heimavinna þeirra er um níu tímar á viku á meðan bandarísk börn vinna um sex tíma heima á viku. Hvað skyldu íslensk börn nota Iangan tíma í heima- vinnuna sína? sfmann ld. 9—12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. ;ða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: ritstjori@dagur.is Svar vegna svefntraflana I tilefni af svari mínu vegna svefntruflana í síðustu viku, hringdi hjúkrunarkona sem vildi bæta um betur. Hún vakti á því athygli að ekki væri ólíklegt að maðurinn þjáðist af kæfisvefni og vaknaði þess vegna oft yfir nóttina því svefinn truflaðist við öndunarerfiðleikana. Þetta er auðvitað hárrétt og gott að fá slíkar ábendingar frá fagfólki. Þannig að verði fólk vart við svefntruflanir er rétt að kanna hvort um kæfisvefn sé að ræða. Eg þigg með þökkum ábendingar á öllum sviðum og dálk- urinn er opinn þeim sem vilja fá svör við einhverju eða koma upplýsingum á framfæri. ■ HVAD ER Á SEYÐI? SÖNGSVEITIN FÍLHARMÓNÍA Söngsveitin Fílharmónía heldur sína árlegu aðventutónleika í Langholtskirkju sunnudag- inn 6. desember kl. 20.30. Einsöngvari með kórnum verður Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran. Á þessum tónleikum nýtur kórinn fulltingis kammersveitar og er Rut Ingólfsdóttir fiðlu- leikari konsertmeistari hennar og stjórnandi er Bernharður Wilkinson. Flutt verður hátíðar- tónlist af ýmsu tagi jóla- og aðventulög sem koma fólki í jólastemningu. Miðasala er hjá kórfélögum, bókabúðinni Kilju við Háaleitisbraut, Mál og menningu Laugavegi og við innganginn. HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ Félag eldri borgara Þorraseli Opið í Þorraseli í dag frá kl. 13-17. Kaffi og meðlæti frá kl. 15-16. Laugardaginn 5. des. verður harmonikuball kl. 14-17. Ólafur B. Ólafsson leikur. Félag eldri borgara Ásgarði Bridge tvímenningur spilaður kl. 13. Bingó í kvöld kl. 19.45, góðir vinningar. Ferðir Guðríðar Einleikurinn „Ferðir Guðríðar" eftir Brynju Benediktsdóttur verður sýndur i Skemmtihúsinu Laufásvegi 22, laugar- dagskvöldið 5. desember kl. 20. Síðasta sýning fyrir jól. Sinfóníuhljómsveit Islands Tónleikar í Háskólabíói í kvöld 3. desem- ber kl. 20. Hljómsveitarstjóri Stephen Mosko, Einleikarar Unnur Sveinbjarnar- dóttir og Einar Jóhannesson. Á efnisskrá er Sinfónía nr. 3 eftir Robert Schumann, Konsert fyrir víólu, klarinett og hljóm- sveit eftir Atla Heimi Sveinsson. FAAS Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimersjúklinga og annarra minnis- sjúkra heldur aðventufund í kvöld, 3.12. í safnaðarheimili Langholtskirkju. Húsið opnað kl. 20 en fundur verður settur kl. 20.30. Kaffileikhúsið Jólabókatónaflóð í Kaffileikhúsinu. Jagú- ar, Stjömukisi og höfundar frá Máli og Menningu umbreyta fimmtudagstónleik- um Kaffileikhússins sem verða að alls- heijar „Jólabókatónaflóði11. Atvinnulíf 21. aldar Ingi Rúnar Eðvarðsson lektor við Há- skólann á Akureyri heldur íyrirlestur um atvinnulif 21. aldar í boði Félagsfræð- ingafélags íslands. Fyrirlesturinn verður haldinn í Odda, stofu 201 ld. 20.30 í kvöld. Félag kennara á eftirlaunum í kvöld er kóræfing kl. 16 í Kennarahús- inu við Laufásveg. Laugardaginn 5. des. verður skemmtifundur FKE (jólafundur) U. 14. LANDIÐ Kvennakórinn í Rangárvallasýslu Kvennakórinn Ljósbrá í Rangárvallasýslu verður með sína árlegu aðventutónleika í Hvoli, Hvolsvelli, laugardaginn 5. des- ember kl. 16. Jólatónleikar í Freyvangi Tónlistarskóli Eyjafjarðar heldur tónleika í Freyvangi sunnudaginn 6. desember ld. 20.30. Þar munu nemendur söngdeildar flytja fjölbreytta efnisskrá. Píanóundir- leik annast Dóróthea Dagný Tómasdóttir og söngkennari er Þuríður Baldursdóttir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.