Dagur - 03.12.1998, Síða 7

Dagur - 03.12.1998, Síða 7
Xfc^MT FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 - 23 LÍFIÐ í LANDINU Það gleymist gjarnan að með hinum lágu bótaupphæðum er ekki aðeins verið að lítilsvirða öryrkjann, heldur einnig börn hans. Afléttum aðskflnað- arstefnuimi Dagurfatlaðra erí dag. Hérfara á eftir kaflar úr ávarpi Ör- yrkjabandalags ís- lands í tilefni dagsins. Vart þarf að fara mörgum orðum um að þeim öryrkja sem einung- is getur reitt sig á bætur al- mannatrygginga er í reynd hald- ið frá eðlilegri þátttöku í mann- Iífinu. Hann má kallast góður ef hann þarf ekki að leita á náðir hjálparstofnana, en tölur sýna að rúmur helmingur skjólstæð- inga Hjálparstofnunar kirkjunn- ar og Rauða krossins eru öryrkj- ar - fólk sem vegna fötlunar og veikinda hefur ekki til hnífs og skeiðar. Aðskilnaðaxstefna á grund- velli fötlunar Til viðbótar við þessar Iágu bæt- ur er hér á landi beitt ýmsum stjórnvaldsaðgerðum sem sporna gegn atvinnuþátttöku ör- yrkja, menntun og tjölskyldulífi. Hér er fyrst og fremst um að ræða jaðarskatta og tekjuteng- ingar sem gagnvart öryrkjum ná út fyrir öll réttlætis- og skyn- semismörk. Má í því sambandi minna á að bæði prestastefna og umboðsmaður fatlaðra hjá Sam- einuðu þjóðunum hafa gagnrýnt það að hér á landi skuli tekju- trygging öryrkja háð tekjum maka þeirra, gagnstætt því sem viðgengst um atvinnuleysisbæt- ur og aðrar tryggingabætur. Það vekur þvf óneitanlega nokkra furðu að á sama tíma og stjórn- málamenn hafa hvað mestar áhyggjur af stöðu fjölskyldunnar og háum jaðarsköttum skuli þeir ekki hefjast handa þar sem gróf- legast er grafið undan fjölskyld- um og jaðarskattar koma harð- ast niður. Hér er með öðrum orðum um aðskilnaðarstefnu að ræða - að- skilnaðarstefnu sem grundvöll- úð er á fötlun. Siðferðisbrestur ráðamanna Öryrkjabandalag Islands hefur vakið athygli á því að á síðustu 5 árum hafa örorkulífeyrir og tekjutrygging einungis hækkað um þriðjung þess sem Iágmarks- laun hafa hækkað á sama tíma. Öryrkjabandalagið hefur einnig vakið athygli á því að ekkert ná- grannaríkja okkar ver eins litlu broti þjóðartekna sinna til ör- yrkja og umhugsunarvert hvort ekki sé löngu orðið tímabært að bandalagið kynni þessa þjóð- arsmán fyrir helstu samstarfs- ríkjum okkar á vettvangi Norð- urlandanna og Evrópu, kynni þetta að minnsta kosti fyrir þeim erlendu gestum og blaða- mönnum sem hingað koma. Gjá milli þings og þjóðar Það gleymist gjarnan að með hinum Iágu bótaupphæðum er ekki aðeins verið að lítilsvirða öryrkjann, heldur einnig börn hans. Þeim gengur misvel að skilja að fátæktin sem þeim er gert að búa við á rætur að rekja til fötlunar móður eða föður, hvað þá að þau geti skilið þann hug sem býr að baki hinum lágu bótum - hugsunarhátt þeirra manna sem gera börnum ókleift að taka þátt í félags- og tóm- stundastarfi með jafnöldrum sínum, fara með þeim £ ferðalög, læra á hljóðfæri, æfa íþróttir o.s.frv. Hvort heldur okkur líkar það betur eða verr verðum við að horfast í augu við þá staðreynd að framganga íslenskra ráða- manna í málefnum öryrkja end- urspeglar ekki aðeins alvarlegan siðferðisbrest, heldur er hún óhagkvæm og skammsýn - sáir fræjum fordóma og grefur und- an þeim síðferðisgildum sem við viljum gjarnan trúa að hér hafi verið höfð að leiðarljósi í bráð- um þúsund ár. Nýlega birti Félagsvísinda- stofnun Háskólans niðurstöður umfangsmestu könnunar sem gerð hefur verið á viðhorfum Is- lendinga til velferðarmála. Ein- hver afdráttarlausasta niður- staða þeirrar könnunar var sú að yfirgnæfandi meirihluti þjóðar- innar er búinn að fá nóg af þvf hvernig farið er með öryrkja í þessu ríka landi. Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill að tryggingabætur öryrkja verði hækkaðar. Þetta gengur þvert á þá forgangsröðun sem ráða- menn hafa fylgt og sýnir að hér hefur almenningur orðið fyrri til að átta sig á hve röng og siðlaus stefna stjórnvalda er í málefnum öryrkja. Sú gjá sem þarna er staðfest milli þings og þjóðar sýnir að meðal hins óbreytta al- mennings er að verða hugarfars- breyting, að daunillt loft for- dómanna er þar á verulegu und- anhaldi. Áskorun til Alþingis Um leið og Öryrkjabandalag Is- lands þakkar þeim fjölmörgu að- ilum, kirkjunnar mönnum, land- lækni, fjölmiðlum og almenn- ingi, þann stuðning sem auð- fundinn hefur verið á síðustu vikum, skorar bandalagið á Al- þingi að aflétta því neyðará- standi sem ríkir í tryggingamál- um öryrkja og búa svo um hnúta að bætur dragist aldrei aftur úr þróun launavísitölu. Bandalagið skorar á Alþingi að viðurkenna hina margvíslegu sérstöðu öryrkja með því að hækka grunnlífeyri sérstaklega og mest hjá þeim sem verða fyrir varanlegri örorku á æskuárum. Hafa ber í huga að hér er um að ræða fólk sem ekki hefur átt þess kost að ávinna sér lífeyris- sjóðsrétt, eignast húsnæði og njóta þeirra launa og Iífsfylling- ar sem heilbrigðri starfsævi fylg- ir. Þvert á móti hefur það, oft frá unglingsaldri, búið við þrengstu fjárhagsskorður sem þekkjast og borið margvíslegan kostnað af fötlun sinni. Að síðustu skorar Öryrkja- bandalag Islands á stjórnvöld til að afnema þegar í stað skerð- ingu bóta vegna tekna maka og létta til muna jaðarsköttum af því fólki sem harðast verður fyr- ir þeim. Baráttan gegn aðskilnaðar- stefnu íslenskra stjórnvalda er hvorki kjarabarátta né mannúð- arbarátta. Hún er mannréttinda- barátta. Veðrið í dag... Norðan gola eða kaldi en stinningskaldi austast í fyrstu. É1 við norðausturströndina fram eftir degi, en annars léttir til víðast hvar. Frost um allt land. mti 7 tn o stig Reykjavík Akureyrí Lau Sun Mán 9 Fös Lau Sun Mán mm -----------------------------15 —^ \ -15 10- -10 =• " 5 -5- - 0 -10- wm uM S2 SA3 SA4 ASA5 SSA3 SSA2 SA4 SSA3 S3 SSV2 S2 S3 SA3 S3 SV3 S3 SSA3 SSA3 Stykkishólmur Egilsstaðir - /— L 1. SSV3 SA4 SA4 A4 SSA3 S3 SSA4 SSA4 SA3 °9 Fös Lau Sun Mán mm m -r--------—---------------------- 5- o- -5- -10 Bolungarvík Fös Lau Sun Mán mm aoir SV3 S3 S2 ANA3 NNA3 SV3 S4 SSA3 NA5 15 -10 5 0 VSV2 NA1 SSV3 S3 SSA2 V2 S3 SSV3 S3 Kirkjubæjarklaustur 9 Fös Lau Sun Mán mm m N / ji ■1 SSV2 VNV2 SSA2 SA3 NA2 NV2 SA2 SSA2 SSV2 Blönduós Stórhöfði :9 Fös Lau Sun Mán mm_ 1M ■ ■ !9 Fös Lau Sun Mán mm 10-1------ -------- -------- -------h15 SSV2 SSV2 S3 A2 SSV2 SSV2 S2 SSA2 ASA1 SSV3 SA3 SSA6 ASA8 A4 VNV2 SA5 SSA4 SV6 Veðurhorfur næstu daga Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tínia úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan. Færð á vegum Nokkur hálka er á Hellisheiði, í Þrengslum og á vegum í Ámessýslu. Á vestanverðu landinu er snjóföl á flestum vegum á Snæfellsnesi og norður yfir Holtavörðuheiði. Skafrenningur er á Fróðárheiði og mjög hvasst. Á Vestfjörðum er víða snjókoma á heiðum, ófært er um Hrafnseyrarheiði og þungfært á Dynjandisheiði. Hálka er á öðrum leiðuni og skafrenningur og hálka á Kletthálsi. Á norðanverðu landinu er hálka á Mývatns og Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði. Athygli er vakin á að Veðurstofan spáir versnandi veðri á Norðurlandi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.