Dagur - 17.12.1998, Page 1
Fimmtudagur 17. desember 1998
Ritsafn Þorsteins frá Hamri,
eins merkasta skálds íslend-
inga á þessari öld, ermeðal
jólabókanna í ár,
„Þetta er heildarútgáfa að því leyti að
þarna má heita að sé allt sem ég hef samið
og sett á bók á 40 ára höfundarferli,11 seg-
ir Þorsteinn frá Hamri um nýútkomið rit-
safn. „Tvær bækur sem ég sendi frá mér
eru þarna þó ekki. Hin fyrri er Skuldaskil,
fróðleiksþættir sem upphaflega birtust í
blöðum, meira og minna unnir upp úr
prentuðu efni án sjálfstæðrar úrvinnslu.
Hin er Ætternisstapi og átján vermenn,
úrval úr útvarpsþáttum, gefin út 1987,
meginmálið yfirleitt úr prentuðum ritum,
þótt það væri tengt saman og matreitt ým-
islega af mér. Hvorug þessara bóka átti
heima í þessu safni. En þarna eru sem
sagt ljóðabækur mínar allar þrettán, og
þrjár skáldsögur sem mér finnst ágætt að
fá á prent aftur. Þeim var vel tekið á sín-
um tíma. Þær hefur reyndar ekki borið
hátt í umræðunni síðan, en þó finn ég fyr-
ir þeim í undiröldunni. Svo er þarna
heimildaþátturinn um Hallgrím smala,
sem kom út 1990.“
- Hefur ekki hvarflaö að þér að skrifa
fjórðu skúldsöguna?
„Það hefur ekki freistað mín, hvað sem
verða kann. Eg á þó ekki von á þvf eins og
sakir standa."
- Hefur eitthvert umfjöllunarefni heillað
þig öðru fremur?
„Það sem eftir mig liggur ætti að vitna
best um það. Ætli það sé ekki maðurinn,
mannlífið, með sínum ýmsu blæbrigðum
samkvæmt tímaskeiðum og tíðaranda."
- Lestu eldri verk þtn?
„Eg hugsa ekki mikið um minar eldri
bækur dags daglega en við ýmis tækifæri
hef ég þurft að rifja þær upp. Vegna út-
gáfu þessa ritsafns las ég að sjálfsögðu
bækur mínar vel og vandlega yfir. A stöku
stað fannst mér að mér bæri siðferðileg
skylda til að bæta úr skák, þar sem forðum
hefur skort á þolinmæði. Þetta á einkum
við um fyrstu tvær Ijóðabækur mínar. Ur
þeim hef ég fellt nokkuð, lagfært annað
lítillega og fært í það horf sem mér þótti
líklegt að orðið hefði við agnarlítið nánari
yfirvegun á sínum tíma. I seinni bókunum
hef ég einungis hnikað til orðum á örfáum
stöðum, en raunar nánast endurkveðið
ein Ijögur Ijóð. Sama málið gegnir um
skáldsögurnar, þar hef ég endurskoðað
ýmislegt smávegis. Þessar lagfæringar eiga
sér gamla sögu margar hverjar, sumar eru
lítið yngri en fyrsta prentgerð. Á einum
stað í Ijóði vík ég meira að segja til horfs
sem er eldra en gerð þess í frumprentun;
fannst það betra, svona eftir á að hyggja.“
- Heldurðu að það sé reyndin að með
tímanum verði stíll skálda agaðri og þau
notist viðfærri orð?
„Eg geri ráð fyrir að það sé misjafnt en
líkast til er sú raunin um sjálfan mig. Eg
hygg að með aldrinum hafi ég hneigst til
agaðri vinnubragða. Annars dæma aðrir
um það. En agi þarf ekki endilega að hafa
í för með sér færri orð.“
- Er eitthvað öðru fremur sem hefur mót-
að þig sem skáld?
„Ef ég færi að nefna eitthvað tvennt eða
þrennt sem stæðist þá væri ég að Ijúga
með þögninni um svo ótal margt annað.
Einhvern veginn fór það bara svo að
skáldskapurinn tók að draga mig að sér
kornungan. Og svo fór sem fór. En „mað-
urinn í Iandinu, landið í manninum" eins
og Jóhannes úr Kötlum kvað, eiga þarna
örugglega hlut að máli, svo eitthvað sé
nefnt, og þá í víðara samhengi en þessi
orð ein saman tjá. Eg á aldrei gott með að
fjölyrða um skáldskap minn.“ - KB
■ 39300r)
SHARR VCM300SM
• Tveggja hausa
• Árs minni
• 8 liða
• Scart tengi
• Aliar aðgerðir á skjá
islenskur leiðarvísir
SHARR VCM51SM
’ Fjögura hausa
* Árs minni
* Myndvaki
* 8 liöa 2xscart tengi
* SP/LP
* Allar aðgerðir á skjá
' Sjálfvirkur hreinsi-
þúnaður
íslenskur leiðarvísir
* Fjögura hausa
* Árs minni * Myndvaki
* 8 liða * 2xscart tengi
* Nicam Sterfó
SP/LP • Ntsc afspilun
Allar aðgerðir á skjá
Sjálfvirkur hreinsi-
búnaður
* íslenskur leiðarvísir
wmrmrmm
ii/i ■immumNf.mut
Æ
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
Umboösmemn um land ai/í
Umboðsmenn: Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi. Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi. Vestfirölr: Geirseyrarbúðin, Patreksfiröi. Rafver, Bolungarvík. Straumur, (safiröi. Noröurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.Verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri.
KEA, Lónsbakka. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Lóniö Þórshöfn. Austuriand: Kaupfólag Vopnfiröinga.Vopnafiröi. Kf. Hóraösbúa, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kaupfólag Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. Vólsmiðja Hornafjaröar, Höfn Hornafiröi. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás,
Þorlákshöfn. Geisli.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn.Keflavík. ^