Dagur - 17.12.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 17.12.1998, Blaðsíða 4
20-FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 Uggiur MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU / Utsmognir vargar Siglúsar „Þeir hafa náttúrlega vomað yfir mér siðan í æsku, svifu sjálfsagt inn í hausinn á mér og settust að um svipað leyti og munurinn á réttu og röngu, góðu og illu, “ segir Sigfús Bjartmarsson um varga íslands. Vargatal Sigfúsar Bjartmarssonar er ein athyglisverðasta hókin á markaðnum um þessijól, en þarsegir Sigfús á sinn sérstæða háttsögu íslenskra varga. - Af hverju langaði þig til að gera vörgum skil t hók? „Þeir hafa náttúrlega vomað yfir mér síðan í æsku, svifu sjálf- sagt inn í hausinn á mér og sett- ust að um svipað leyti og mun- urinn á réttu og röngu, góðu og illu. Þeir voru hið illa í náttúr- unni, óargadýrin sem herjuðu á þá friðsömu og góðu og það var því krossferðarígildi að herja á þá til varnar kolíunni og öndun- um, smáfuglunum og Iömbun- um. Og þeir voru líka djöfullega snjallir og útsmognir. Trúlega fyrir mér svona raðmorðingja- ígildi. Seinna fór ég svo að fá áhuga á samhengi þeirra í nátt- úrunni og svo hlutskipti þeirra í sögunni. Nú og svo fannst mér kominn tími á að Iýsa þessu út frá öðrum sjónarhornum en mannlegu, og þá einnig án þess að manngera skepnurnar eins og íslensk dýrasagnahefð gerir, og grænfriðungar reyndar líka.“ Það sem sannara reynist - Þií ert ekki eingöngu að snúa á haus rómantískri sýn á náttúruna er það, sýna hana sem grimma og siðlausa en ekki háleita og göf- uga? „Eg vil bara hafa það sem sannara reynist. Þessi róman- tíska sýn er sögulega ung. Sam- kvæmt gömlum ferðalýsingum sáu menn náttúruna áður fyrr út frá nytsemdarsjónarmiði ekki ólíkt og dýrin. Búsæld var falleg, fallegt í fjörðum þegar fiskaðist, sólarupprásin boðaði hlýju og dagsljós, en sólarlagið kulda og myrkur. Nú og auðn var ömur- Ieg, hrikaleiki óhugnanlegur. Siðleysi er að sjálfsögðu bara mannleg hugmynd. I náttúrunni étur einfaldlega hver annan eftir getu og lyst, grimmd fer eftir eðli og þörfum. Sumstaðar reyni ég líka að sýna hlutina út frá skynjun og heilastarfsemi skepn- anna sjálfra þó þekking manna á henni sé að vísu enn æði glopp- ótt.“ - Hversvegna notarðu ekki söguþráð til aðfleyta lesandanum áfram, ertu ekki á þvt' að hver bók eigi að segja sögu? „Ja, söguþráður getur verið með ýmsu móti. Það fer ýmsum sögum fram í þessu og sumt er beinlínis með þræði líkum og í smásögum, og svo eru þarna ör- sögur. Annað líkist kannski frek- ar einskonar ævisögu í brotum, enn öðrum er fylgt í einn ár- hring við sína endalausu ætis- leit. Svo er bókin öll með sínum hætti drög að samskiptasögu varga og manna hér í landinu, partar úr 1100 ára vargastríði plús nokkur brot úr sögu gjör- eyðingarstríðsins á hendur nátt- úrunni án þess að þetta sé svo sem mikill heimsósóma ópus.“ Dragúldin funmaurabrand- arahræ - Það hefur komið sterkt fram í viðtölum þessi jólin langþreyta á þvt' að hækur taki ofan við að vera skemmtilegar. Aðeins þær alvarlegu njóti virðingar. Hefur þú kannski aðra sýn á skemmtigildi bókmennta? „Eg hef bara gaman af því sem mér finnst gott og góður húmor er að sjálfsögðu þar á meðal. Það er nú svo einfalt. En það er auðvitað visst vandamál að mörg fyndnin nýtur sín betur munn- lega, er háð stað og stund, stemmningu og svo framvegis. Brandarinn er í eðli sínu einnota. Þessvegna er annar lestur á brandarabók líkt og að koma í líkhús, bara kuldahlátur- inn í húsverðinum og bergmálið tómt. Verst er þó þegar fyndnin verður að áráttu eða fíkn. Eg hef afar takmarkaða þolinmæði gagnvart skorti á sjálfsgagnrýni og er ansi fljótur að hætta að vorkenna slíkum mönnnum brjóstumkennanlegan angistar- rembinginn við að þykja fyndnir í hverri málsgrein, ef ekki Iínu. Nýlegt dæmi um þetta er 101 Reykjavík, ýmislegt innanum í þeirri bók reyndar, en ég er ör- ugglega ekki einn um það að leggja ekki í þá ömurlegu raun að þvælast aftur í gegnum þann Ianghund hnjótandi um dragúld- in fimmaurabrandarahræin í hveiju skrefi. Fyrir mér verður fyndni einfaldlega eins og annað að hafa innihald sem einhverju skiptir. Sé bara verið að draga dár fæ ég tómahljóð í sálina. Mér finnst líka svona almennt að besta húmorinn sé að finna í bókum sem eru alvarlegar á yfir- borðinu. Nú veit ég að sjálf- sögðu ekki hvort fólk muni hlæja yfir þessu Vargatali mínu en frá minni hendi er fullt af húmor í því. Yfirlesarinn fann hins vegar ekki nema einn brandara, sem ég ákvað reyndar að gefa líf.“ - Þú lýkur Vargatalinu á manninum. Er hann yfirvargur jarðarinnar? „Já hann hefur eins og allir vita lengi gengið fram í því eins og skynlaus skepna að eyða líf- ríkinu. En þessi þáttur fjallar þó bara um þá ófrægðu tegund veiðimanninn, það er að segja sæmilega siðlegt og hófsamt af- brigði af honum sem er að mínu viti ekki háskaleg skepna. Alveg eðlileg skepna í náttúrunni, nokkuð sem ekki verður til dæmis sagt um meirihluta AI- þingis, stjórnarmenn Landsvirkj- unar eða öfgafólk í dýravernd.“ BÆKHR Vísindi aldar innar Undur verald- ar er nýút- kominn bók sem hefur að geyma greina- l«'*< safn um raunvísindi fyrir almenn- ing. Grein- arnar eru byggðar á fyTÍrlestrum sem haldnir voru á vegum Raunvísindadeildar Háskóla Islands 1997. Tilgangurinn var að kynna almenningi við- fangsefni og aðferðir raunvís- inda og ýmis furðuverk í nátt- úru- og stærðfræði í máli og myndum. Níu raunvísindamenn rita um fræði sín í bókinni. Þeir eru Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur, Sigurð- ur Steinþórsson jarðfræðing- ur, Páll Hersteinsson líffræð- ingur, Þorsteinn J. Halldórs- son eðlisfræðingur, Már Björgvinsson efnafræðingur, Kristján Leóson eðlisfræðing- ur, Hjálmtýr Hafsteinsson tölvunarfræðingur, Reynir Ax- elsson stærðfræðingur og Þorsteinn Vilhjálmsson eðlis- fræðingur, sem er ritstjóri bókarinnar. Otgefandi er Heimskringla. Æskuslóðir í Hafnarfirði Bókaútgáfan Rauðskinna hefur gefið út bókina Af kunnum æsku- slóðum. Viðtöl við valinkunna Hafnfirðinga eft- ir Jón Kr. Gunn- arsson. Þar segja fimm Hafnfirð- ingar frá uppvexti sínum, samferðamönnum og um- hverfi. Þeir sem segja frá eru Níels Árnason, fyrrverandi bíó- stjóri, Stefán Gunnlaugsson, fyrrum bæjarstjóri, Jón M. Guðmundsson, rafvirkja- meistari, Fjóla Pálsdóttir, húsfreyja og Kristinn Guð- jónsson, húsgagnasmíða- meistari í Dvergi. Ljlíft Og gott „Maður er kannski ekki á nýjasta jeppanum en það er allavega nóg að gera. Svo er ég að spila með Rússibönunum," segir Einar Kristján Einarsson gítarleikari, sem nýlega sendi frá sér sína fyrstu geislaplötu í klassískum gít- arleik. AIls eru sjö gítarverk á þessari nýju plötu sem í heild skiptast í fimmtán Iög. Það helgast m.a. af því að tónsmíð hennar Karólínu Eiríksdóttir sem hún samdi fyrir Einar og hann frumflutti í Skál- holti hér um árið, skiptist í fjóra hluta og þá er svíta í e-moll eftir Baqh í sex hlutum. Það er skemmst frá þvi að segja að leikur Einars á þessari plötu er firna- góður. Það á í sjálfu sér ekki að koma á óvart fyrir þá sem hlustað hafa á kapp- ann í gegnum tíðina. Það er hins vegar meira undrunarefni af hverju hann hef- ur ekki fyrr gefið út plötu, því hann hef- ur flest það til að bera sem einkennir góðan túlkanda og flytjanda í klassísk- um gítarleik. Rómantískt Platan sem hljóðrituð var í Laugarneskirkju undir stjórn Jóns Skugga byrjar á „Tilbrigði um stef eftir Mozart opus 9“, sem er úr Töfraflautunni eftir Fernando Sor. Einar fer í gegn- um það verk með glæsibrag. Síðan koma tvö verk eftir Agustin Barrios, „Vals opus 8 númer 4“ og „Una limosna por el Amor di Dios“, sem halda hlustandunum vel við efnið. Þvínæst rennir Einar sér í gegn- um tónsmíðina hennar Karólínu. Þetta verk er í Ijórum hlutum. Byrjar á rólegu nótunum en síðan færist meira Qör í leikinn þar sem leikið er á gítarinn með miklum tilþrifum. Rómantíkin tekur síðan öll völd í verkum Francisco Tar- rega, „Capricho Arabe“ og Recuerdos de la Alhambra", en það síðastnefnda er með betri lögunum á plötunni. Þar fer saman hraður en þýður gítarleikur þar sem suðrænn blóðhiti kemur vel til skila. Endahnútinn á þessari ljúfu og MENNINGAR VAKTIN Eirtar Kristján Einarsson gít- arleikari sýnir það og sannar á nýju geisla- plötu sinni að hann erí fremstu röð klassískra gít- arleikara. tf. góðu plötu slær Einar síðan með „Svítu í e-moll“ eftir J.S. Bach, sem er í fimm hlutum. Þar sýnir hann svo ekki verður um villst að hann er í fremstu röð klass- ískra gítarleikara landsins. Eiguleg plata Þarna er því um ræða mjög svo eigulega plötu sem unnendur góðrar tónlistar ættu að kappkosta að eiga í sínu safni til hlustunar. Þá er plötukápan mjög vel heppnuð, enda prýðir hana málverk eft- ir Elfas B. Halldórsson. Jafnframt hefur Jón Skuggi unnið gott verk með hljóð- ritun plötunnar, þar sem Laugarnes- kirkja sannar það enn og aftur að hún er kjörinn staður til hljóðritunar. I það minnsta er hljómurinn á plötunni mjög góður.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.