Dagur - 17.12.1998, Qupperneq 5

Dagur - 17.12.1998, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 - 21 LÍFIÐ í LANDINU á ferð, lendir í ýmsum haettum, slasast á fæti og hittir drauma- mann sinn, bjargar honum úr lífshættu og sefur hjá honum eftir að verstu tungumálaörðug- leikarnir hafa verið yfirstignir. Bókin er fremur tilþrifalítil og tilgangur sögunnar ekki mjög Ijós. Helst að manni detti í hug að verið sé að leggja áherslu á það hversu nauðsynlegt er að þekkja sjálfan sig og takmörk sín og að einvera skerpi athyglisgáf- una, geri innri styrk og duldum hæfileikum betra fyrir að brjót- ast fram. Guðrún hefur greinilega skoðað nokkuð sögu Sama og leggur áherslu á þá trú að Samar séu eða hafi verið seiðmenn mildir og ráðið yfir duldum öfl- um, en í vestrænum þjóðfélög- um er trú mjög sterk á forna og frumstæða þjóðflokka sem taldir eru í náinni tengingu við náttúr- una. En hún potar líka dálítið í kynjamisrétti og kynþáttamis- rétti og svona læðir því inn í sög- una að ekki sé rétt að fara illa með minni máttar. Gefur í skyn að kristnir menn séu lítið um- burðarlyndir og eigi erfitt með að sætta sig við annarskonar trú eða aðra guði. I heild rennur sag- an í gegn, það stendur ekkert sér- stakt uppúr en sem óður til fortíðar er hún þokkaleg og við því að búast að umhverfið, hið óblíða Island og norðurhjarinn þar sem Samar búa, höfði nokkuð til íbúa hér á landi sem vegna bú- setu geta samsamað sig aðstæð- um. Bókin er 240 bls. að Iengd og er gefin út af Fróða en ekki bókaútgáfu Guðrúnar og manns hennar, Leiðarljósi, eins og bú- ast hefði mátt við. „Bókin er fremur tilþrifalítil og tilgangur sögunnar ekki mjög ljós.“ U 2J I' *;j J' m lfigdís Stefánsdóttir skrifar Þörfin fyrir ör- yggi þess ein- falda er sterk og kemur fram í mörgum bók- um um fortíð- ina sem komið hafa út hin síð- ustu ár. Guð- ____________ rún Bergmann hefur sent frá sér skáldsöguna Utisetan sem á að gerast á níundu öld, í veröld Sama sem hún kýs að kalla Sáma. Bókin fjallar um unga stúlku, 13-14 ára gamla, segir smávegis frá uppvexti hennar og tilurð en meiri hluti bókarinnar er helgaður útisetu hennar á eyju sem líkast til er Island. Það fer ekki á milli mála að Guðrún hefur lesið bækur eins og Mammútaþjóðin, Heimur bjarnarins mikla og Konan sem man eftir þær Auel og Lindu Lay Schuler sem Ijalla um sömu hluti og meira að segja hægt að rekja atburðarásina að nokkru úr þeim bókum. Ung stúlka, ein AfturtU fortíðar? SVOJMA ER LIFIÐ Vigdís svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skiptar Vigdís svarar í símann kl. 9-12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. iða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: ritstjori@dagur.is Gleðileg jól og farsælt kom- andi ár á nokkrum þjóð- tungum. Afríka - Geseénde Kersfees en ‘n gelukkige nuwe jaar Argentína- Felices Pasquas Y felices ano Nuevo Brasilía- Boas Festas e Feliz Ano Novo Búlgaría - Vesela Koleda i chestita nova godina! Shen Dan Kuai Le Xin Nian Yu Kuai (Mandarin) Kína - Shen tan jie kuai Ie. Hsin Nien Kuaile Króatía- Sretan Bozic Tékkóslóvakía - Stastne a ves- ele vanoce a stastny novy rok! Dannmörk - Glædelig Jul og godt nyt ár Holland - Vrolijk Kerstfeest en een Gelukkig Nieuw Jaar England - Merry Christmas and a Happy New Year Grænland - Jutdlime pivdlu- arit ukiortame pivdluaritlo! Esperanto - Felican Kristnaskon kaj Bonan Novjaron! Filippseyjar - Maligayang Pasko Finnland - Hauskaa Joulua ja onnellista uutta vuotta! Frakkland - Joyeux Noel et Bonne Année! Irland - Nollaig chridheil agus Bliadhna mhathúr! Þýskaland - Frohe Weihnachten und ein glúckliches Neues Jahr! Grikkland - Hronia polla kai eytyhismenos o kainourios hronos Hawai- Mele Kalikimaka ame Hauoli Makahiki Hou! Ungvetjaland- Kellemes karacsonyi uennepeket es boldog ujevet! Indonesía - Selamat Hari Na- tal dan Selamat Tahun Baru! Irak - Idah Saidan Wa Sanah Jadidah Ítalía - Buon Natale e Felice Anno Nuovo! Japan - Meri Kurisumasu sos- hite Akemashite Omedeto! Latína - Natale hilare et Ann- um Faustum! Malta- Nixtieklek Milied tajjeb u is-sena t-tabja! Portúgal - Feliz Natal e um Prospero Ano Novo Rúmenía - Craciun fericit si un an nou fericit Rússland - S nastupaius- hchim Novym godom i s Rozhdestvom Khristovym! Serbía- Hristos se rodi Slovakía - Sretan Bozic or Vesele vianoce Spánn - Feliz Navidad y Prospero ano nuevo! Tyrkland - Noeliniz kutlu ols- un ve yeni yilinis kutlu ols- un! Ukraina- Z novym rokom i s rizdvom Hrystovym! Víetnam - Chuc mung nam moi va Giang Sing \ari ve Wales - Nadolig Llawen a Blwyddyn Newydd Da!“ HVAD ER Á SEYDI? TÓNAVEISLA Á SÚFISTANUM Fimmtudaginn 17. desember ræður tónlistin ríkjum á Súfistakvöldi Máls og menningar, Laugavegi 18. Leikið verður af fjórum nýút- komnum geisladiskum, Tómas R. Einarsson og hljómsveit hans kynna diskinn A góðum degi, Rússíbanar leika af Elddansinum, Ellen Krist- jánsdóttir læðist um með lög af samnefndum diski og Einar Kristján Einarsson leikur á klass- ískan gítar af nýjum sólódiski sínum. Dagskráin hefst klukkan 20:30 og er öllum opin meðan húsrúm Ieyfir. HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ Happdrætti bókatíðinda Vinningsnúmer í happdrætti Bókatíðinda 16. desember: 91.115. Útgáfutónleikar í Iðnó Fimmtudagskvöldið 17. desember heldur saxófónleikarinn Jóel Pálsson útgáfutón- leika í Iðnó til kynningar á geislaplötu sinni „Prím“ sem kom út fyrir skömmu. Tónleikarnir hefjast kl. 21. Bókaupplestur og Bellatrix Bókaupplestur og Bellatrix á Síðdegis- tónleikum Hins Hússins og Rásar 2, föstudaginn 18. desember kl. 17.00 á Geysi-Kakóbar. Aðgangur ókeypis. Rit- höfundarnir Guðjón Sigvaldason, Mikael Torfason, Auður Jónsdóttir og Huldar Breiðfjörð lesa úr nýútkomnum bókum sínum. Að bókalestri loknum spilar hljómsveitin Bellatrix á síðustu síðdegis- tónleikum ársins. Boðið verður upp á jólaglögg og piparkökur. Jólasveinn í súpunni Þjónn í súpunni hefur tekið miklum breytingum frá því það var frumsýnt í sumar sem leið. Stekkjastaur hyggst stinga sér á kaf í súpu dagsins á föstu- dagskvöldið í Iðnó og bregða á leik með þjónunum í súpunni. Miðapantanir í síma 530-3030. LANDIÐ Jólastofa í Samlaginu Á aðventunni er sérstök Jólastofa í Sam- laginu listhúsi á Akureyri. Þar eru félag- ar í Samlaginu með til sölu og sýnis margs konar listræna og fallega gjafa- vöru. Ymsar uppákomur verða í Samlaginu á aðventunni. I dag klukkan 17.00 mun Guðmundur Ármann bjóða gestum og gangandi að vinna í grafík, til dæmis jólakort, merkispjöld eða smámyndir. Boðið er upp á jólaglögg og piparkökur á sunnudögum fram til jóla. Útgáfutónleikar Helga og hljóðfæra- Ieikaranna. Útgáfutónleikar Helga og hljóðfæraleik- aranna í tilefni af útkomu geislaplötunn- ar „Endanleg hamingja“ verða í Deigl- unni á Akureyri fimmtudaginn 17. des- ember kl. 21.00.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.