Dagur - 05.01.1999, Qupperneq 3
PRJÐJUDAGVR S. JANÚAR 19 9 9 - 19
D^ur
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
„Sögustund
Björk ætlar að hafa tónleikana sína í Þjóðleikhúsinu I kvöld og annað kvöld meira í ætt við „sögustund" en fyrri tón-
leika. Hún vildi lítið hús með einbeitingu og tvenna tónleika til að gera örugglega sitt besta.
Björk verðurmeð tón-
leika í kvöld og annað
kvöld íÞjóðleikhús-
inu. „Þetta verður
meiri sógustund [en
síðustu tónleikar], “
segirBjörk um þessa
lokatónleika í
Homogenic-túmum.
- Hvemig undirbýrðu þig þegar
þú ætlar að gera virkilega góða
tónleika?
„Besti undirbúningurinn er
bara daglegt líf ef einhver getur
það - það er víst nógu erfitt eins
og það er, að púsla þessu öllu
saman, félagslífinu, ástarlífinu,
fjölskyldunni, vinnunni. Eins
og kona sem hjálpaði mér
stundum og heitir Gaggalú
sagði þegar ég var 17 ára í tím-
um hjá henni: „Ef lífið hingað
til er ekki nógu góð æfing fyrir
tónleika þá getur ekkert undir-
búið þig.“ Ef þú gast ekki lífið
þá geturðu ekki gert tónleika,"
sagði Björk á blaðamannafundi
fýrir áramót.
„Ég geri samt hluti eins og
raddæfingar. Þegar ég er að
túra geri ég raddæfingar tvo
tíma á dag,“ segir hún.
Reglur eru öryggisnet
- Ertu á einhverju sérstöku fæði,
kannski húin að yfirgefa lamba-
kjötið og farin yfir í grænmetis-
fæðið?
„Ég þarf prótein en það fer
bara eftir því hvernig ég er
stödd. Það er líka mikilvægt að
vera ekki með mjög mikið af
reglum, ná balans þama á milli.
Ef ég bý til reglur í dag þá eiga
þær ekki við eftir mánuð. Ég er
allt önnur manneskja, búin til
úr allt öðrum frumum eftir
mánuð. Reglur geta líka virkað
sem eins konar öryggisnet sem
þýðir að maður tekur enga
sénsa. En þegar ég er að ferðast
mikið, segjum kannski á tveggja
mánaða túr með fimm tónleika
á viku og flýg líka fimm sinnum
á viku, þá er svo mikið í loft-
ræstingum á flugvélum og hót-
elum að maður verður að borða
engar mjólkurvörur, ekkert ger,
engan sykur."
A ferðalagi þarf Björk að
þjálfa meira en venjulega og
hún syndir kannski klukkutíma
á dag til að styrkja lungun.
„Maður gerir ekkert annað,
maður híttir ekkert fólk, maður
hringir ekki heim af því að
maður er að spara röddina.
Maður er bara í „concentration
camp“,“ segir hún og tekur því
ekki fjarri að stunda lfkams-
rækt.
„Stundum er ég í líkams-
rækt, stundum labba ég mikið,
stundum syndi ég. Það er aldrei
spurning um að nenna eða ekki
því að þá væri ég í öðru starfi.
Það er bara spurning um hvað á
við, hvað ég þarf. Það hafa
komið tímabil þar sem ég hef
þjálfað í líkamsrækt tvo til þrjá
tíma á dag í eitt til tvö ár. Það
hafa verið tímabil þar sem ég
hef ekki gert það og þá hef ég
kannski verið meira að synda
eða setið heima hjá mér að
vinna við textagerð kannski sex
tíma á dag og verið að gera
„beat“ nokkra tíma á dag og
söngæfingar klukkutíma á dag.
Þú veist...þetta breytist í hverri
viku.“
„Kokkteill“
Hugmyndin að tónleikunum í
Þjóðleikhúsinu kviknaði yfir
kaffibolla með Asmundi Jóns-
syni og Einari Erni Stefánssyni
og var ákveðið að slá tónleikun-
um saman við upptöku heimild-
armyndar um tónleikaröðina.
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður
hefur unnið fýrir Björk auk
þess að vera einn af frumkvöðl-
um Tals og var hann einn af
þeim sem komu samstarfinu á
koppinn. Björk segir að ástæð-
an fyrir samstarfinu við Tal sé
ekki pólitísk yfirlýsing af sinni
hálfu heldur „kokkteill af
nokkrum hlutum“.
„Það sem réð mestu hjá mér
að fá stuðning við þessa tón-
leika var að þessir tónleikar
skipta mig rosalega miklu máli
og ég vildi fá að gera þá á
ákveðinn hátt. Það eru ekkert
rosalega mörg sæti í Þjóðleik-
húsinu. Til að geta gert tvenna
tónleika kvöld eftir kvöld og
flogið inn öllu fólkinu, sem
vinnur með mér, og gert þetta
án þess að „kompromissera“
þurfti ég stuðning," segir hún.
Björk segist ekki vera pólit-
ísk, „ekki í þeim skilningi, ég
hef alltaf skilað auðu. En ég er
í persónulegri pólitík ef hún er
til. Það eru þá meira tilfinn-
ingamál og mannréttindi og
svoleiðis hlutir. Ég hef alltaf
verið fylgjandi því að það sé
ekki einokun á Islandi. Allir
sem hafa áhuga á tónlist á ís-
landi hafa rekið sig á að miða-
verð á erlendar hljómsveitir er
fáránlegt. Miðaverðið hefði
þurft að vera helmingi hærra ef
ég hefði gert þetta án þessa fýr-
irtækis og mér finnst það ekki
vera mannréttindi," svarar „ein-
staklingshyggjumanneskjan"
Björk.
Eins og í geðveiku stærð-
fræðiprófi
Ekki komast jafn margir og
vildu á tónleika Bjarkar því að
sætin í Þjóðleikhúsinu eru fá,
um eða yfir 450 stykki hvort
kvöld, og því margir sem missa
af tónleikunum. „Ég er fyrst og
fremst að vernda lögin mfn og
er ekki að þykjast gera þetta af
neinu öðru en eigingjörnum
ástæðum. Ég vil hafa síðustu
tónleikana af Homogenic
tvenna. Mig langar að taka þá
upp. Báðir tónleikarnir verða
teknir upp af Sjónvarpinu. Ég
vdl hafa tvenna til að það sé
nógu mikil pressa til að við ger-
um okkar besta. Tvennir tón-
leikar minnka álagið. Ef það
eru bara einir tónleikar er mað-
ur eins og í geðveiku stærð-
fræðiprófi," segir hún og lofar
ólíkum tónleikum en þeim sem
voru næstir á undan.
„Þetta verður mjög innhverf-
ur túr,“ segir hún. „Síðustu tón-
leikana sem ég gerði hérna fyrir
tveimur árum var ég í Laugar-
dalshöllinni. Þá var mikið af
lögum þar sem fólk gat hlaupið
um og dansað og verið voðalega
kátt. Þetta verður meiri sögu-
stund og þá er ég ekki að
heimta athygli. Þetta er bara
spurning um að ég ber ábyrgð á
lögunum mínum sem foreldri
og ég þarf að útvega þeim þá
umgjörð sem þau eiga skilið.
Mér finnst alveg jafn verðmætt
að hoppa um allt og skemmta
sér og dansa eins og að setjast
niður og hlusta á góða sögu.
Þetta eru bara tveir ólíkir hlutir
og það verður bara að vera það
sem á við þá stundina."
„Ég er mjðg sérvitur“
- Hefurðu fylgst með tslensku
söngkonunni Öldu Björk eða
öðrum íslendingum sem hafa
verið að gera það gott í Bret-
landi?
„Fólk heldur að ég fylgist
með öllu en ég er mjög sérvitur
og hef alltaf verið mjög sérvitur.
Ég á mínar uppáhaldshljóm-
sveitir og ég hlusta á þær og
fylgist með þeim og mínum
vinahóp, mest fólki sem ég hef
verið að vinna með, vinum og
vinum vina minna, fólki sem ég
þekki eins og Móu og Möggu
Stínu og Emilíönu og GusGus.
Þetta er meira minn vinahópur,
vinir vina minna, kunningjar.
Mér finnst þau frábær, æðis-
Ieg,“ segir hún og heldur áfram:
„Ég held að þetta sé spurn-
ing um sjálfstraust. Fyrir 30
árum var popptónlist á íslandi
meira að apa eftir útlenskum
hljómsveitum. Málið er að Eng-
lendingar þurfa ekki fleiri ensk-
ar hljómsveitir. Þeir eru orðnir
hundleiðir á þeim. Fólk vill
heyra eitthvað sem það hefur
aldrei heyrt. Ég hef aídrei heyrt
þessi Iög hennar Oldu en Emilí-
ana, Magga Stína og Móa eru
konur sem eru algjörlega í
karakter og eru að gera sitt,
ekki að vinna eftir einhverjum
reglum. Það er akkúrat það sem
er mest aðlaðandi." -GHS
„Mérfinnst alvegjafn verðmætt að hoppa
um allt og skemmta sérog dansa eins og að
setjast niður og hlusta á góða sögu. Þetta em
hara tveirólíkirhlutir“...
MENNINGAR
LIFID
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
skrifar
Frumkvöðlarn-
ir í Iðnó hleypa
af stokkun-
um Hádegis-
leikhúsi í
febrúar og
verður
spennandi að fylgjast með
þróuninni á þeim bæ því þar
er á ferðinni enn ein nýjung-
in í íslensku leikhúslífi.
Fyrstu leikritin eru verð-
launaleikrit eftir Kristján
Þórð Hrafnsson, Hallgrím
Helgason og Bjarna Bjarna-
son verða sýnd í febrúar, í
eina viku hvert.
„Við byijum á þessu en
höfum fleiri verk í bakhönd-
inni, þar á meðal nokkur er-
lend verk og svo koma tvö
verk úr samkeppninni til
greina," segir Magnús Geir
Þórðarson, Ieikhússtjóri Iðnó.
Öll verkin þrjú eru afar
ólík. Aður hefur komið fram
að „Leitum að ungri stúlku"
Ijallar um unga stúlku sem
fer í viðtal vegna hlutverks í
k\dkmynd. Þúsund eyja sósa
eftir Hallgrím Helgason er
drepfyndinn einleikur um
farþega, sem er óþolandi
sessunautur í flugvél. Sam-
eiginlegur vinur eftir Bjama
Bjarnason gerist á kaffihúsi
og fjallar um fólk sem hittist
þar og þekkist meira en það
gerði ráð fyrir í upphafi.
Leikarabömin í Pétri Pan
Sýningin um
Pétur Pan og
Vöndu
Borgarleik-
húsinu hef-
ur hlotið
góðar við-
tökur.
Börnin
sem taka
þátt í sýn-
ingunni
eru
óvenju-
mörg að þessu
sinni og leikarabörnin þó
nokkur. Til að svala forvitn-
inni má nefna að Finnur
Guðmundsson, sem leikur
Óhrein, er sonur Guðmundar
Ólafssonar og Olgu Guðrún-
ar Árnadóttur og sveinarnir
tveir, sem skipta með sér
hlutverki Mikka, bróður
Vöndu, eru Ammundur
Björnsson, sonur leikaranna
Björns Inga Hilmarssonar og
Eddu Heiðrúnar Backman,
og Hjalti Rúnar Jónsson, son-
ur Maríu Sigurðardóttur leik-
stjóra. Týnda strákinn Flaut-
ar leikur Jón Magnús Arnars-
son, sonur Arnars Jónssonar
og Þórhildar Þorleifsdóttur
og Nebba leikur Steindór
Grétar Jónsson, sonur Ragn-
heiðar Steindórsdóttur
leikkonu og Jóns Þórissonar
leikmyndahönnuðar. Júlía
Aradóttir
Matthíassonar
leikara leikur
einn tvíburann
í verkinu og
Oddný Arn-
arsdóttir Jóns-
sonar og Þór-
hildar Þor-
Ieifsdóttur
leikur haf-
ÞórhHdur Þor/eifs-
dóttir.
meyju,
indíána
°g
Edda Heidrún
Eackman.
sjoræmngja.
Hæfileikarík þessi börn og
kannski eiga einhver þeirra
eftir að verða áfram á sviðinu
í framtíðinni.