Dagur - 05.01.1999, Page 4

Dagur - 05.01.1999, Page 4
20-ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999 XfcS^MT' BRÉF TIL KOLLU Elsku Kolla. Hvað hefðir þú gert í mínum sporum? Hefðir þú hafnað boði um að fara í óperuna, að sitja pn uppáklædd í stúku í UiMS Kennedy Center, hlusta á tónlist Mozarts og snæða síðan kvöldverð á dýrasta veitingastað Washington? Hefði það nokkru sinni hvarflað að þér að hafna slíku boði? Það hvarflaði ekki að mér, ekki eitt augnablik. Klukkan sjö á annan í jólum settumst við hjónin upp í bílinn, hann í íslenzka þjóðbúningnum og ég í rauða flauels- kjólnum, sem ég keypti forðum daga í Kína. Skórnir voru líka antique, gylltir með bláum semelíusteinum, ættaðir frá Spáni. Jafnvel smábörnin á heimilinu höfðu orð á því, hve við værum glæsileg. Þetta minnti mig á gamla daga heima í Reykjavík, þegar paSbi og mamma voru að búa sig í leikhúsið á annan í jólum. Eg var stolt af því að eiga svona fallega og fína foreldra. Þá klæddi fólk sig miklu sjaldnar upp á heldur en núna. Eg settist undir stýri, og skömmu seinna vorum við mætt við hús gestgjaf- anna. Það stendur við virðulegustu götu borgarinnar, byggt í byrjun aldar í keis- aralegum stíl. Þá óðu menn í peningum og vildu endurreisa Evrópu f nýja land- inu. Hjónin stóðu við dyrnar og biðu þess að vera leidd út í bflinn. Hún var á háum hælum og hann slæmur til hnésins. Við þekktum þau ekki neitt. Höfðum séð þeim bregða fyrir í samkvæmum vetr- arins. Vissum, að þau voru forrík og sátu í stjórnum flestra menningarstofnana borgarinnar. En þetta var líka allt og sumt. Við höfðum ekki hugmynd um, af hverju þau höfðu valið okkur sér til sam- lætis þetta jólakvöld. Hvað bjó að baki? Hvað gat Island gert fyrir þau? Að missa af Kennedy Center Þetta eru mjög sérstök hjón, eiginlega öðru vísi en allir aðrir, sem ég hef séð. A vissan hátt svipar þeim til hússins, sem þau búa í. Síðbúnir fulltrúar hinna keis- aralegu hirða gömlu Evrópu. Já, það er einmitt það sem þau eru. Hallirnar í Pét- ursborg voru þeirra heimili í bernsku. Svo að nú geturðu reiknað út, hvað þau eru gömul. Bæði afskaplega fíngerð og smávaxin. Hún dregur hárið upp frá enn- inu og bindur það í hnút eins og baller- ína. Há kinnbeinin fela hugsanleg elli- mörk. Grár augnskuggi ber sama Iit og kjóllinn, sem hún klæðist. Sérhannaður í París, með síðum ermum og knipplingum í hálsinn. Perlufestin er erfðagripur. Hann er í svörtum kjólfötum með barða- stóran hatt á höfðinu. Það horfa allir á þau. Ég hlakka til að eiga með þeim kvöldstund. Ég verð að skjóta því hér inn í, að mér urðu á alveg hroðaleg mistök strax í upp- hafi kvöldsins. Ég fann ekki Kennedy Center. Eða það er að segja, ég missti af Kennedy Center. Ég veit þú skilur þetta ekki, Kolla mín, en vegakerfið hér í Am- eríku er ekkert einfalt, og ef maður gerir ein lítil mistök, þá getur maður bara misst af heilli óperusýningu. Og það lá við þetta kvöld. Ég undir stýri, með þessi keisaralegu hjón í baksætinu, tók vitlausa beygju. Eg sá bara Kennedy Center í fjar- lægð hinum megin við hraðbrautina. Og áður en ég vissi af, var ég komin yfir ána inn í annað fylki á Ieið út í sveit. Það var hvergi hægt að snúa við. - Ég svitna enn við tilhugsunina. - Konan í baksætinu sagði ekki orð, en ég heyrði manninn hennar fussa. „Nú gerðirðu mistök. Hvernig ætlarðu að komast til baka?“ „Ég veit það ekki, svaraði ég, geturðu vísað mér leiðina?" „Nei, það geri ég ekki. Þú verður að ráða ffam úr þessu sjálf.“ Það var greini- lega farið að þykkna í honum. Jón Bald- vin var orðlaus. Sé ég slæm að rata, þá er hann verri. Loksins, loksins, fann ég útgönguleið, gat snúið við. Náði í leikhúsið þremur mínútum fyrir sýningu. Gamli maðurinn sagði ekki orð. Konan brosti og var búin að fyrirgefa mér. Ógleymanlcgt fólk Tónlistin var svo yndisleg, að mér tókst að gleyma þessu leiðindaatviki - alla vega fram að hléi. Brottnámið úr kvennabúr- inu er reyndar fáránleg saga, en var ekld kvöldið okkar að verða enn fáránlegra? I hléinu kom sjálfur óperustjórinn, Placido Domingo, til að heilsa upp á tigna gesti. Hann kyssti hjónin okkar bak og fyrir. Alþýðlegur maður og kurteis. Það var boðið upp á kaffi og kex. Gamli mað- urinn tók handfylli af kexi og hámaði það í sig. Var enn ekki farinn að segja neitt. Skyldi hann vera Iangrækinn? I öðrum þætti sofnaði hann og umlaði mikið í svefninum. Skyldi honum leiðast óperur? Það hlýtur að vera, því að í seinna hléi tók hann frakka sinn og hatt og vildi fara. Konan fékk hann til að fresta brottför, þar til soldáninn hefði gefið brezka hefðarfólkinu frelsi. „Heldurðu, að þú ratir á veitingahús- ið?“ Svei mér þá, ef hann var ekki glott- andi. - Jú, hann var svo sannarlega lang- rækinn. Skyldu þeir hafa verið svona við hina keisaralegu hirð? Hann meinti auð- vitað að sendiherrar eiga að hafa bílstjóra - jafnvel á sjálfum jólunum. Nú vissi ég, af hveiju hann var fúll. Við fengum bezta borðið á staðnum, og þjónarnir voru á hjólum í kringum okkur. Þessir nýju vinir okkar voru greinilega aufúsugesdr. Gamli maðurinn pantaði kartöflu og spínat, hún bað um fiskiboll- ur. Þau eru bæði mjög lítil, eins og ég sagði þér áður. Rauðvínið var himneskt og upplífgandi eftir hremmingar kvölds- ins. Ég hafði hugsað mér að spyrja þau spjörunum úr, heyra ævisöguna yfir kvöldmatnum. En mér tókst ekki að toga orð út úr gamla manninum. „Hefur þú verið lengi þátttakandi í við- skiptalífi borgarinnar?" vogaði ég mér að spyrja. „Erá því að ég man eftir mér“, svaraði hann stuttur í spuna. - Löng þögn. - „Pabbi verzlaði með loðfeldi í Pétursborg." Hún sat hinum megin við borðið og talaði bara við Jón Baldvin. Ég heyrði, að hún var að segja honum frá kettinum, sem þau áttu í sautján ár. Ynd- islegur og gáfaður köttur, sem dó að lok- um í fanginu á henni. Þegar hann var búinn með kartöfluna og spínatið, bað hann um reikninginn. Bragðaði ekki á rauðvíninu. Dró þykkt umslag upp úr bijóstvasanum og taldi úr því dollaraseðla. Þetta minnti mig á pabba í gamla daga. Alltaf beinharðir peningar. Traustvekjandi. „Allir tilbúnir?" Hann var staðinn upp. Ég hafði rétt tíma til að Ijúka úr glasinu mínu. Ég rambaði á höllina þeirra aftur. Það var ekki laust við, að ég fyndi til samúðar, þegar ég horfði á hann staulast inn um þessar stóru dyr. Gamall maður með mikla fortíð. Hún sneri sér við í dyragættinni og veifaði keisaralegri kveðju. Mjög sérstakt fólk, ógleym- anlegt. En viti menn, Kolla. Hann hringdi í dag, þessi elska. Þakkaði fyrir blómin og sagðist vera búinn að fyrirgefa mér. Hlakkaði til að sjá okkur aftur. Hvað segirðu um það? Eða eru þér farnar að ofbjóða sög- urnar úr samkvæmislífinu? Skal bæta úr því næst. Þín Bryndís „Ihléinu kom sjálfur óperustjórinn, Placido Domingo, til að heilsa upp á tigna gesti. Hann kyssti hjónin okkar bak og fyrir. Alþýðlegur maður og kurteis. Það var boðið upp á kaffi og kex. Gamli maðurinn tók handfylli af kexi og hámaði það í sig. Var enn ekki farinn að segja neitt. Skyldi hann vera langrækinn?" Svör Fréttagetraun í áramótablaði Hér eru birt svör við fréttaget- rauninni sem birtist í blaðinu á gamlársdag á bls. 39. Birt er númer spurningarinnar og síðan sá bókstafur sem stend- ur fyrir rétt svar l.)a 2.)b 3.)b 4.)b 5.)b 6.)b 7.)a 8.)b 9.)b 10.)c 11.)a 12.)a 13.)a 14.)b 15.)a 16.)c 17.)b 18.)a 19.)a 20.)c 21.)c 22.)c 23.)a 24.)a 25)a. Poppgetraim í áramótablaði 1. Anna Hildur Hildibrands- dóttir. 2. Sheryl Crow. 3. Rafnjónsson. 4. Ginger Spice. 5. RúnarJúlíusson. 6. Depeche Mode. 7. Boyzone. 8. Leikkonunni frægu Marlyn Monroe og fjöldamorðingjanum Charles Manson. 9. Geirfuglarnir. 10. Charlie Watts. 11. Helgi Björnsson í söngvaleikritinu Meiri Gauragangur eftir Olaf Hauk Símonarson. 12. ElIen Kristjánsdóttir. 13. Ensími. 14. Manic Street Preachers. 15. Casino. ló.Akranesi. 17. Aerosmith. 18. Silt. 19. Jón Olafsson. 20. Þorvaldur Bjarni Þorvalds- son og Selma Björnsdóttir. Jólakrossgátan Leiðrétting Röng skýring er í reit sem er hinn sjötti reitur frá hægri í níundu röð að neðan. Rétt skýring er ögun. Bent skal á að nægilegt er að senda málsháttinn sem bókstafirnir í tölusettu reitun- um mynda sem lausn á gát- unni.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.