Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 6

Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 6
22 - LAU G A R DAGU R 16. JANÚAR 1999 rD^tr LÍFIÐ í LANDINU Heiðrún Jónsdóttir starfsmannastjóri og Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir markaðsstjóri. Hvorug þeirra segist líta sérstakiega á sig sem konu í æðstu stjórn KEA. Störfþeirra markist miklu fremur af faglegum metnaði fyrir hönd félagsins og starfsmanna. myndir: brink Þæreru fyrstu konumar til að taka sæti í fram- kvæmdastjóm Kaupfé- lags Eyfirðinga, KEA. RagnheiðurBjörk Guð- mundsdóttir er mark- aðsstjóri ogHeiðrún Jónsdóttir erstaifs- mannastjóri. Báðar komu þær til starfa hjáfélaginu í septem- berá liðnu ári. í viðtali ræða þærum sjálfa sig, KEA, Bifröst, pólit- íkina ogAkureyri. Ragnheiður Björk er uppalin á Suðureyri við Súgandafjörð en bjó í Reykjavík í 15 ár áður en hún kom til Akureyrar. Hún tók stúdentspróf frá Verslunarskól- anum en þegar hún var þrítug fór hún í rekstrarfræðinám á Bifröst og útskrifaðist þaðan fyr- ir átta árum. „Eg gerði þar loka- ritgerð um Olís ásamt félögum mínum og það varð til þess að mér var boðin vinna hjá fyrir- tækinu og þar starfaði ég þang- að til ég kom hingað," segir Ragnheiður Björk. Heiðrún er Þingeyingur með stóru Þ-i. „Já, ég er hógvær eins og aðrir Húsvíkingar," segir hún og brosir. Hún er fædd og uppal- in á Húsavík, fór á Bifröst þegar hún var 16 ára, en þá var Sam- vinnuskólinn á menntaskólastigi, tók síðan tvö ár í Verslunarskól- anum og útskrifaðist þaðan með stúdentspróf. Þá starfaði hún í einn vetur sem au-pair í Þýska- landi en kom svo heim og nam lögfræði í fimm ár, útskrifaðist vorið 1995. I þijú ár starfaði hún sem héraðsdómslögmaður á Lög- mannsstofu Akureyrar. Óvænt breyting - Hvað varð til þess að þið skipt- uð um starfsvettvang? „Mér bauðst þetta starf,“ svar- ar Ragnheiður Björk. Hún hafði ekki hugsað sér að flytja til Ak- ureyrar og var ekki í leit að öðru starfi þegar tækifærið bauðst. „Þegar mér bauðst starfið sagði ég nei takk en síðan var því fylgt ágætlega eftir, mér var boðið að koma í heimsókn og kynna mér hvað þetta fæli í sér. Mér leist mjög vel á allar aðstæður og hafði reyndar mjög fljótlega séð eftir því að hafa afþakkað starfið í upphafi. Eg sá að það voru miklar breytingar í vændum hjá fyrirtækinu og hér var ungur og sprækur maður tekinn við sem kaupfélagsstjóri. Það er mjög spennandi að fá tækifæri til að taka þátt í þeim breytingum sem í vændum eru.“ Heiðrún var ekki orðin leið á lögmannsstarfinu og ekki í leit að öðru starfi. Hún fór í barns- burðarleyfi um áramótin 1997- 1998 og ákvað síðan að taka hliðarspor: „Mér finnst mjög spennandi tímar framundan hjá KEA, það eru miklar breytingar þannig að ég ákvað að prófa að taka smá hliðarspor, öðlast reynslu á stjórnunarsviði og kynnast viðskiptaheiminum bet- ur,“ segir Heiðrún. „Mér Iíkaði mjög vel í lögfræðinni. Eg tel einnig að reynslan sem ég hef fengið í gegnum lögmannsstörf- in muni nýtast mér vel í þessu nýja starfi. I starfi starfsmanna- stjóra koma upp mörg álitaefni um réttindi og skyldur starfs- manna og þá getur lagaþekking verið nauðsynleg. I báðum störf- unum reynir mikið á mannleg samskipti og oft þarf að taka á viðkvæmum málum." Kaupfélagið var keppinaut- nrlnn - Eruð þið samvinnumanneskj- ur? Eruð þið kaupfélagskonur? Heiðrún segist hlynnt sam- vinnuhugsjóninni sem slíkri, hún sé góð og gild og alls ekki úrelt. „Aftur á móti gefur sam- vinnufélagsformið fyrirtækjum ekki nægjanlega möguleika á að fá viðbótar fjármagn inn í rekst- urinn á sama hátt og hlutafé- Iagsformið býður upp á. Það hefur sýnt sig á undanförnum árum að þetta rekstrarform hef- ur ekki hentað sérstaklega vel hér á landi. Mín persónulega skoðun er að það þurfi að breyta rekstrarforminu til að ná betri árangri en auðvitað dugar það eitt og sér ekki.“ - Þannig yrði kaupfélagið að minnsta kosti meira lifandi og reksturinn skilvirkari? „í raun og veru bara betur undir það búið að taka þátt í samkeppni," svarar Heiðrún. Ragnheiður Björk tekur undir skoðun Heiðrúnar á samvinnu- hugsjóninni. „En varðandi það að vera kaupfélagsmanneskja þá er ég nú ekki alin upp sem slík. Pabbi var með verslun á Suður- eyri við Súgandafjörð frá því ég man eftir mér og kaupfélagið var hinu megin við götuna. Eg eign- aðist fyrsta búðarsloppinn tólf ára gömul og stóð þarna fyrir innan borð í öllum skólafríum. Þannig að það var mjög Ij'arri mér að fara á Bifröst með það í huga að hann væri samvinnu- skóli. En síðan þegar ég fór að horfa hlutlaust á málið og skoða hvaða menntun var í boði þá var það eitthvað sem var ekki hægt að hafna,“ segir Ragnheiður Björk en hún var f fyrsta árgangi nemenda eftir að skólinn varð Samvinnuháskólinn á Bifröst. Þafer brosa báðar að tilhugsun- inni úm samvinnumanneskjuna í sjálfum sér. „Af mínum skóla- félögum á Bifröst var ég talin ólíklegust til að fara til starfa hjá samvinnuhreyfingunni," segir Heiðrún, „og Ragnheiður Björk bar sama titil í sínum árgangi þannig að enginn veit sína æv- ina fýrr en öll er.“ „En af því að þú spurðir um þetta," bætir Ragnheiður Björk við. „Eftir að hafa verið hér í Ijóra mánuði þá finn ég ekki mikinn mun á því að hafa starf- að hjá hlutafélagi áður og sam- vinnufélagi í dag. Þegar maður er komin á vinnustaðinn þá snýst þetta um arðbæran rekst- ur...“ Og setninguna klára þær saman: „Hagsmuni félagsins, góða samstarfsmenn og að ná árangri." Faglegur metnaður í fyrirrúmi - Eruð þið konur á framabraut, hvað sem það merkir nú? „Eg heyri aldrei talað um karla á frambraut,“ svarar Ragnheiður Björk, „þannig að ég hef ekki tengt þessa hugmynd við mig heldur. Eg lít á mig sem góðan starfskraft sem hefur áhuga á að taka þátt í þeirri starfsemi sem hér er. Eina skiptið sem kven-eitt- hvað hefur náð yfirhöndinni hjá mér í þessum málum var þegar ég var á Bifröst. Þá komst ég að því að það hafði engin kona verið for- maður skólafélagsins í áttatíu ára sögu skólans og það var mjög verðugt vígi að fella. Sérstaklega af því að ég hafði verið yfirlýstur krati Iíka þá var þetta mildl áskor- un. Eg fór í þessa kosningabar- áttu og hafði það og held að hvorki félagsstarfíð né skólinn hafi liðið fyrir það. Að öðru leyti Iít ég ekki á þetta út frá kynferði." „Eg er í raun og veru ekkert upptekin af því hvort ég er kona eða ekki og lít alls ekki á mig sem konu á framabraut," segir Heiðrún. „Þó við séum fyrstu konurnar í framkvæmdastjórn KEA þá finnst mér það ekki skipta máli. Það sem skiptir mig máli er að nýta hæfileika mína, menntun, reynslu og orku í það sem ég er að gera.“ - Þið eruð semsagt ekkert sér- staklega meðvitaðar um það að þið eruð konur í stjómunarstöð- um og íframkvæmdastjóm KEA?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.