Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 7

Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 16. JANVAR 1999 - 23 „Ég held að aðrir séu meðvit- aðri um það en við,“ svarar Ragnheiður Björk. „Ég man eftir einum fundi hérna í byrjun með félögum okkar sem hafa reyndar tekið okkur mjög vel. Þá var ver- ið að skipa okkur í vinnuhópa og við Heiðrún lentum saman í hóp. Ég gerði athugasemd við það. Þá komu strax viðbrögð á þá leið að hér væri ekki skipt í hópa eftir kynjum og það yrði bara að hafa það þó það væru tvær konur í þessum hóp. En mín hugsun var sú að við vorum báðar svo nýjar hér og þekktum ekki vel til starfseminnar og þessvegna væri ekki rétt að við værum í hóp saman.“ Br autry ð j endur - Hefur koma ykkar ef til vill breytt íhaldsímynd kaupfélags- ins? Ragnheiður Björk segir að strax með ráðningu nýs kaupfé- Iagsstjóra í fyrra hafi ímyndin breyst og stjórn félagsins hafi sýnt með því að menn voru til- búnir til breytinga. „Stjórn markaðsmála og starfsmanna- mála eru í raun miklir grund- vallarþættir í rekstrinum og |m' var ráðning í okkar störf nokkuð eðlilegt framhald." - Þutfið þið að standa ykkur skipta um vinnustað og vinnufé- laga, heldur líka heimili, vinnu- umhverfi og vinaumhverfi..." Pólitíkin - Þú sagðir í sambandi við for- mannsstöðuna í skólafélaginu á Bifröst að þú hefðir verið yfirlýst- ur krati. Ertu það enn? „Þegar maður elst upp í litlu bæjarfélagi getur maður ekki komist hjá því að hafa skoðanir á pólitík," segir Ragnheiður Björk. „Þar er það þannig að þú ert ekki að spá í hvaða flokki þú fylgir heldur hvaða einstakling- um þú fylgir. Þeir einstaklingar sem voru að beijast fyrir málum sem mér fannst áhugaverð voru mjög oft kratar og fljótlega var ég farin að starfa með þeim. Það hélt áfram eftir að ég kom til Reykjavíkur. Þetta var mjög skemmtilegur og þroskandi tími en þar tók ég ákvörðun um að þetta væri ekki það sem ég hefði áhuga á að gera að ævistarfi. Ég var töluvert viðloðandi pólitískt starf þangað til fyrir um fimm árum, þá ákvað ég að helga mig alfarið þeim verkefnum sem ég var ráðin í hjá Olís. Þannig að ég er ekki virkur þátttakandi í starfi krata í dag.“ Heiðrún blandar sér einnig „Félagið hefur allt öðrum nnAmimdsdóttir markaðsstjonKtA_------ sem eru ífarvatninu? „Þær breytingar koma til með að opna möguleika fyrir félagið sem ekki eru til staðar í dag,“ segir Ragnheiður Björk. „Félagið hefur meiri möguleika til vaxtar og samstarfs við önnur fyrirtæki og á allt öðrum forsendum eftir þessar breytingar. Eftir því sem ég kynnist KEA betur finnst mér alveg frábært að fá tækifæri til að starfa hér og taka þátt í þess- um breytingum. Störf okkar beggja ganga þvert á starfsemi annarra deilda fyrirtækisins þannig að við fáum að komast í snertingu við mjög Ijölbreytta starfsemi. Ég tel óhætt að full- yrða að það er ekkert annað fyr- irtæki á Islandi sem gefur manni möguleika á að komast í sam- band við eins marga snertifleti í íslensku atvinnulífi og KEA.“ - Nú er KEA ekki lengur „bundið við sitt svæði" ef svo má segja. Sókn inn á höfuðborgar- svæðið er hafin og þið takið þátt í henni. „Heimurinn er alltaf að verða minni og rninni," segir Heiðrún. „Það sem núna er verið að leggja áherslu á er hagkvæmni stór- rekstrar og þá er Iitið til annarra svæða. Island er að verða einn markaður frekar en margir litlir markaðir eins og það var áður. Viðtökurnar sem Nettó í Reykja- vík hefur fengið eru auðvitað vonum framar. Það er augljóst að það var þörf fyrir þessa versl- un og þörf fyrir þessa sam- keppni vegna þess að matvöru- verslunin er nánast að verða komin á eina hendi.“ - Raddir heyrðust í upphafi um að þetta skref gæti orðið upphaf- ið að endalokum KEA. „Það er Ijóst að fólksijölgun er mest á suðvesturhorninu og þar er að finna fjölmörg sóknarfæri. Ég tel miklu frekar að þetta skref okkar að opna verslanir í Reykjavík geti orðið til þess að skapa eðlilegt jafnvægi í rekstri matvöruverslana á höfuðborgar- svæðinu og sé um leið góður kostur fyrir neytendur," svarar Ragnheiður Björk. Góðuxbær enn betur af því að þið eruð kon- ur? „Ég hugsa ekki svona,“ svarar Heiðrún. „Ég reyni að gera mitt besta og leysa hvert verkefni sem ég fæ inn á borð hjá mér eins vel og ég get með hagsmuni félagsins að leiðarljósi og með tillitssemi við viðkomandi starfs- menn. Það á ekki að skjpta máli í þessu starfí hvort ég er kona eða karl. Þá fyrst myndi ég lenda í vandræðum ef ég væri upptekin af því.“ Ragnheiður Björk segist sennilega hafa fundið meira fyr- ir þessari stöðu þegar hún byrj- aði í sínu fyrra starfi þar sem hún kom inn á vettvang sem til- einkaður var körlum áður, að reka og stjórna bensínstöðvum. Hún fann fyrir vantrausti hjá sumum í upphafi en segir menn fljótt hafa áttað sig á því að hún þættist ekki vera alvitur um allt sem tengdist bensíndælum og slíkum búnaði. „Þær sögðu mér reyndar stöllur mínar hjá öðrum olíufélögum að ég hefði rutt brautina þar því að eftir þetta fóru þau að ráða konur í sam- bærileg störf." - Brautryðjandi í skólafélagi, olíufélagi og kaupfélagi? „Þetta er samt ómeðvitað. Þegar mér bauðst starfið hjá Olís sagði ég í fyrstu nei takk af því að mér fannst það of stórt stökk frá því sem ég hafði verið að fást við, alveg eins og núna fannst mér það mikið mál að flytja til Akureyrar, ekki bara að inn í pólitísku umræðuna og ímynd kaupfélagsins: „Það má bæta því við til gamans til að af- sanna þá gömlu ldisju að það séu bara framsóknarmenn sem fá vinnu hérna, að ég var beðin um að taka þátt í slag Sjálfstæð- ismanna fyrir bæjarstjórnarkosn- ingarnar í vor. Það var mjög ánægjulegt tækifæri en það sem fyrst og fremst stöðvaði mig var að ég Talið berst að því hvernig þeim finnst að búa á Akureyri. Gefum Ragnheiði Björk orðið: „Ég hef heyrt fólk hér tala um að það hafi áhyggjur af því að íbúum fjölgi ekki mikið. Ég er nýflutt hingað og búin að ganga í gegn- um þá þolraun að leita mér að húsnæði. Fólk vill kannski ekki fjárfesta hér í steinsteypu strax, maður vill sjá hvernig umhverfið tekur á móti manni og hvernig --------dott'r starfsmannastjóri KEA eignaðist barn janúar og vildi frekar einbeita mér að foreldrahlutverkinu." Spennandl líinar fraimuidan - Hvemig sjáið þið fyrir ykkur framtíð KEA og þær breytingar manni Iíður." Það er hinsvegar illmögulegt að sögn Ragnheiðar Bjarkar, þar sem Ieigumarkaðurinn sé mjög erfið- ur. „Þetta er eitthvað sem mér finnst að bæjaryfirvöld þurfi að horfa til. Þetta er fallegur bær og nostalgían kemur óneitanlega upp í mér þegar ég horfi hérna út um gluggann á skrifstofunni minni á Pollinn alveg spegilslétt- an þá minnir það mig á lognið á Suðureyri." - Er erfitt að vera aðkomumað- ur á Akureyri? Heiðrún hefur búið á Akureyri í íjögur ár. „Ég tel að það sé ekk- ert erfíðara að komast inn í þetta samfélag heldur en hvert annað. Það hefur stundum verið sagt að það taki mann þrjátíu ár að verða Akureyringur og þá hef ég oft svarað svona í gríni að ef til vill kæri ég mig ekkert um það - ég er fyrst og fremst Þing- eyingur. Það er hinsvegar mjög gott að búa hérna og gott að ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sýnt á Stóra sviði kl. 20.00 Tveir tvöfaldir Ray Cooney í kvöld Id. - uppselt Id. 23/1 - nokkur sæti laus föd. 29/1 - nokkur sæti laus Id. 30/1 Brúðuheimili - Henrik Ibsen 7. sýn. á morgun sud. - uppselt 8. sýn. föd. - 22/1 - uppselt 9. sýn. sud. 24/1 - uppselt 10. sýn. fid. 28/1 - örfá sæti laus 11. sýn. sud.31/1 - örfá sæti laus Sólveig - Ragnar Arnalds fid. 21/1 - mvd. 27/1 A.t.h. fáar sýningar eftir Bróðir minn Ijónshjarta - Astrid Lindgren á morgun sud. kl. 14:00 - nokkur sæti laus sud. 24/1 kl. 14:00 sud. 31/1 kl. 14:00 Sýnt á Litla sviði kl. 20.00 Abel Snorko býr einn Erik-Emmanuel Schmitt í kvöld Id. - uppselt fid. 21/1-Id. 23/1 föd. 29/1 - Id. 30/1 A.t.h. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Sýnt á Smíðaverkstæði ki. 20.30 Maður í mislitum sokkum í kvöld Id. - uppselt á morgun sud.17/1 - síðdegissýning kl. 15:00 - uppselt föd. 22./1 - uppselt Id. 23/1 - uppselt sud. 24/1 - uppselt fid. 28/1 - uppselt föd. 29/1 - uppselt Id. 30/1 - uppselt Sala á sýningar í febrúar hefst þrd. 19. jan Listaklúbbur Leikhúskjallarans Með hýrri há Mánudagurinn 18/1 - Skemmti-, grin- og menningardagskrá samkyn- hneigðra. Umsjón hefur Ásdís Þórhallsdóttir. Dagskráin hefst 20:30 - húsið opnað 19:30 - miðasala við inngang Ath. breyttan opnunartíma miðasölu Miðasalan er opin mánud. - þriðjud. 13-18, miðvikud. - sunnud. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551-1200. vera aðkomumaður á Akureyri." Rætur Ragnheiðar Bjarkar eru ekki síður sterkar: „Þó ég hafi verið fímmtán ár í Reykjavík þá leit ég aldrei á mig sem Reykvík- ing. Ég verð alltaf Súgfirðingur. En þegar það barst í tal að ég væri að fara hingað þá voru mjög margir tilbúnir að vara mig við. Það væri mjög erfitt og fólki væri hreinlega hafnað. Ég hef ekki enn upplifað þessa höfnunartil- finningu og hef reyndar þá trú að þetta sé einhver gömul saga. Eitt sem ég finn alveg ótrúlega mikinn mun á er að hér er allt miklu afslappaðra án þess að það sé einhver hægagangur. Ég finn mun á því að stressstuðullinn hjá mér hefur lækkað töluvert við það að flytja hingað." LEIKFÉLAG * REYKJAVÍKURl® BORGARLEIKHÚSIÐ Stóra svið kl. 13.00 Pétur Pan eftir Sir J.M. Barrie í dag lau. 16/1 - nokkur sæti laus sun. 17/1 - örfá sæti laus lau. 23/1 - nokkur sæti laus sun. 24/1 - örfá sæti laus sun. 31/1, lau. 6/2, uppselt Stóra svið kl.20.00 Mávahlátur eftir Kristínu Marju Baldursdóttur í leikgerð Jóns J. Hjartarsonar Fös. 29/1 Verkið kynnt á Leynibar kl. 19:00 Stóra svið kl. 20.00 Sex í sveit eftir Marc Camoletti lau. 16/1 - uppselt lau. 23/1 - örfá sæti laus lau. 30/1 - nokkur sæti laus Litla svið kl. 20.00 Búa saga eftir Þór Rögnvaldsson fös 22/1 - sun 31/1 Miðasalan er opin daglega frá kl. 13 -18 og fram að sýningu sýningadaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Simi 568 8000 fax 568 0383

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.