Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 11

Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 - 27 Maftar UMSJÓN: PJETUR ST. ARASON Sá semferðast uin heiminn kemst ekki hjá því að verða var við mikinnfjölda Austur- lenskra veitingastaða. Réttjyrir ofan Hlemm íReykjavík erBan- Thai veitingahúsið, það stendurvið Lauga- veg 130. Tómas Boonchang hefurrekið það í átta áreða frá því íjanúarl992.Á tímabili voru þrjú tæ- lensk veitingahús í Reykjavík en núna er Tómas einn um hit- una. Ban-Thai veitingastaðurinn er á tveimur hæðum, þegar maður kemur inn af götunni kemur maður inní lítinn veitingasal en á efri hæð veitingastaðarins er salur sem getur tekið 40 manns í sæti og segir Tómas að sé til- valinn fyrir veislur, fjölskyldur eða hópa. „Verðið á matnum hefur ekki hækkað neitt á þessum árum sem eru liðin síðan ég opnaði hérna, en hráefnið hefur hækk- að.“ Tómas segir þó að sam- keppnin hafi aukist. Það séu komnir skyndibitastaðir sem selji mat útúr húsi, mat sem fólk borðar annars staðar en á stöð- unum sjálfum. Tómas segist vilja vanda til verka, hann selji sig dýrar en skyndibitastaðirnir sem selji tæ- lenskan mat. Hann segist til dæmis ekki skera niður kjöt eða grænmeti nema rétt áður en hann þurfi að nota það. Því allir viti jú að grænmeti sé fljótt að þorna upp og skemmast eftir að það er skorið niður. Hann segist elda allt jafnóðum, sérstaklega fyrir viðskiptavininn. ,;Stundum sé ég að fólk er að flýta sér þeg- ar það kemur hingað, þá segi því hvað það tekur tekur Iangan tíma að elda hvern rétt. Það er munur á skyndibitastöðum og þessum stað, hráefnið sem ég kaupi er annað en hráefnið sem skyndibitastaðirnir nota. Eg sel mig dýrara en þeir og það hlýtur að vera munur á matnum," segir Tómas. Hver fjölskylda hefur sitt eigið krydd Ban-Thai veitingahúsið er fjöl- skyldufyrirtæki. „Það er bara fjölskyldan sem vinnur hérna og ég vil vanda til verka, þess vegna vil ég ekki hafa of margt fólk. A efri hæðinni voru sæti fyrir fimmtíu en það var of þröngt. Þú veist að þegar maður þarf að flýta sér þá gerir maður hlutina ekki eins vel. Konan mín eldar hjá mér, við viljum ekki hafa það öðruvísi. Það hefur fólk komið hérna inná staðinn til þess að vinna hjá mér, en það er alltaf einhver úr fjölskyldunni sem eldar.“ I Tælandi er það siður að hver íjölskylda blandar sjálf sitt eigið krydd. Þannig er bragðið af matnum mjög mismunandi eftir heimilum, því að kryddið er ekki eins. Matargerðin er því per- sónulegri. Tómas segir þó að yngra fólkið vilji frekar kaupa tilbúin krydd útí búð en eldra fólkið blandi sín eigin krydd. Hann segist fá krydd beint frá Tælandi en sumt blandi hann sjálfur. Hann segir tælenskan mat vera líkari indverskum en kín- verskum. Þó tælenskur matur sé oft sterkt krydd- aður þá sé hann öðruvísi sterkur en sá indverski. Tómas segir vera mun á kryddinu eftir því hvaðan það komi og tek- ur sem dæmi að Matsamum- kryddið sé mis- munandi eftir því hvort það komi frá Tælandi eða Indlandi. Tæ- lenskt Matsamum sé öðruvísi en indverskt Matsamum. „Eg get ekki sagt að okkar matur sé veikari en sá indverski ég held að þetta sé svipað. Okk- ar matur er þó öðruvísi sterkur. Ég vara fólk stundum við þegar það er að spytja um sterk krydd- aðan mat, því ég vil að fólk sé ánægt með matinn hjá mér og komi aftur og aftur. Súrsæti maturinn okkar er öðruvísi en sá kínverski, ef þú borðar hann oft þá finnurðu muninn. Ef maður borðar súrstætt sjaldan, tvisvar, þrisvar finnst honum hann vera að borða sama matinn, en sá sam borðar súrsætan mat oft finnur mun- • _ « ínn. Mtniur á mat- argerð Asíbúa Það er sama hvort það er matur vín eða tónlist, því oftar sem þessa er notið þá þroskast smekkurinn. Tómas segir al- gengt að Vesturlandabúar sjái ekki mikinn mun á asískri mat- argerð. Þetta sé eins og með „Stundum séégað fólk erað flýta sér þegarþað kemur hingað,þá segi því hvað það tekurlang- an tíma að elda hvem rétt. “ Tómas og Dúna Boonchang sem reka veitingahúsiö Ban-Thai við Laugaveg. kynþættina. íslendingar sjái það á fasi fólks og útliti hvort þeir komi frá Ameríku, Englandi, Þýskalandi eða Noregi. Þeir sjái hinsvegar engan mun á Víetnömum, Tælendingum eða Kínverjum. Eins sé þetta með matargerðina en mikill munur sé á matargerð þessara þjóða, en fyrir Vesturlandabúum er þetta svipað. Þó að auðvitað sé sumt svipað. Tómas segir Tælendinga leggja mikið í sína matargerð, þeir verja löngum tíma í eldhús- inu. Uppskriftin sem hann laumaði að okkur er hins vegar einföld. „Fólk langar stundum að elda sjálft, þetta eru ekki flóknar uppskriftir, það er ekki erfitt að elda þessa rétti,“ segir Tómas. Uppskriftirnar eru miðaðar við að hægt sé að nálgast efnið í réttina í næstu búð, þó má benda á að í Reykjavík og á stærri stöðum á landsbyggðinni er hægt að nálgast flest efnin sem notuð eru í tælenska matar- gerð. Tómas eftirlét okkur upp- skrift að Karrí-kjúklingi í sætri jarðhnetusósu. Pha - Naeng Kai (Hentar þremur til fjórum) Efni: 400 grömm kjúklingur, skorin í teninga 3 tsk. rautt karrý mauk eða Pha - naeng karrýmauk 2 bollar kókoshnetumjólk 'A bolli ristaðar jarðhnetur 2'A tsk. fiskisósa 'A tsk. salt 3 tsk. sykur 1 rauður chili sneyddur mjög þunnt 6 fersk eða þurrkuð Iime lauf Aðferð: 1) Hitið, yfir meðlhita, einn bolla af kókoshnetumjólk á pönnu þangað til olían kemur á yfirborðið, bætið karrýinu saman við og Ieyfið suðunni að koma upp, hrærið stans- Iaust. 2) Setjið kjúklinginn samanvið, setjið annan bolla af kókos- hnetumjólk samanvið og Iátið sjóða í fimm mfnútur. 3) Blandið afganginum af inni- haldinu, fyrir utan lime lauf- in, saman f skál. Meðan að kjúklingurinn sýður. 4) Hellið úr skálinni á pönnuna og leyfið því að sjóða í fimm mínútur. Hrærið vel. Bætið lime laufunum samanvið og takið af hellunni. 5) Berið fram með hrísgrjónum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.