Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 18

Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 18
34 - LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 POPPLÍFIÐ í LANDINU L. > FYLGJEHDA- FJÁRSJÓÐUn Engum blöðum er um að fletta, að sú rokkhljómsveit sem mest á skilið að nefnast risi í fyllstu orðs- ins merkingu, ROKKRISI, er tví- mælalaust fjóreykið Metallica. Með jöfnum og stigmagnandi hætti á sínum 15 ára ferli hefur sveitin náð slíkri almannahylli, að langt út fyrir raðir hins hefð- bundna rokkaðdáenda hefur náð. Hinum hörðustu af aðdáendum hennar og jafnframt þeim sem haldið hafa tryggð við hana lengst, hefur reyndar ekki alls kostar líkað það sem í seinni tíð hefur komið, með systurplötun- um tveimur, Load og Re-load, þar sem þeim finnst harkan og kraft- urinn vera farin að minnka full mikið. Eru menn ekki á eitt sáttir um þetta, en Hetfield, Ulrich, Newsted og Hammett, hafa hins vegar ekki látið þessa gagnrýni á sig fá heldur haldið áfram sínu striki á sínum forsendum og svar- að fyrir sig fullum hálsi ef svo hefur borið undir. Það sýnir sig líka að þeir eru ennþá á toppnum og geta þar með Ieyft sér að gera hlutina eins og þeim sýnist. Sem eins konar glaðning á 15 ára útgáfuferlinum, gerðu þeir fé- ♦ STELPU - STR AKAPOPP Sannkölluðu Skvísupoppplata, The boy is mine með Monicu. Nú á síðustu árum hefur hin nýja bylgja undir merki R&B verið býsna ríkjandi hér á Vesturlönd- um og margar stórstjörnur popps- ins verið undir því merkinu. Næg- ir líklega bara að nefna Fugees og Eryku Badu því til staðfestingar, hvortveggja gríðarvinsælt. Fleiri eru, svo auðvitað um hituna og eiga það flestir sameiginlegt að vera ungir að árum, oftar en ekki undir tvítugu. Táningurinn Mon- ica er þar á meðal. Stúlkan sú er ekki orðin tvítug, en hefur þó stóran hluta þessa áratugar verið poppstjarna. Hún var aðeins 12 ára er hún var uppgötvuð og hef- ur lengst af gert garðinn frægan sem annar helmingur dúettsins Brandie og Monica. Eitthvað hef- ur slest upp á hjá þeim tveimur að sagt er, allavega er nýjasta verk Monica einungis á hennar eigin nafni, The boy is mine, sem er hennar önnur plata. Samnefnt lag var reyndar gríðarvinsælt í íyrra með þeim báðum, en Monica er ein á báti á plötunni með sama nafni. Nú eins og oftast íyrri dag- inn er þetta eins konar stelpu- strákapopp og höfðar til fólks á þessum margfræga táningsaldri þegar kynin eru að móta sér skoð- anir hvort á öðru. Monica er bara hin þokkalegasta söngkona og platan líklega sömuleiðis hin dægilegasta. Allavega hefur hún verið á topp 100 í Bandaríkjunum um margra mánaða skeið. Þessir snyrtilegu menn eru án efa meðlimir vinsælustu stórrokksveitar heims, Metallica. lagarnir sér lítið fyrir á síðasta ári, undir Iok þess, að senda frá sér heila tvöfalda geislaplötu þar sem einungis voru lög eftir aðra. Sam- tals 27 upptökur/lög þar af 11 sem voru alveg nýjar af nálinni. Verður þessi hátíðargjörningur ekki talinn annað en sannkallað- ur fjársjóður fyrir fylgjendur Metallica. Margt er þama hreint afbragð t.d. fínar útgáfur af Iög- um á borð við Turn the page frá Bob Seger, Whiskey in the jar, að þeim hætti sem thin Lizzy gerði þetta gamla írska þjóðlag vinsælt og Thuesday's gone, úr smiðju Suðurríkjagoðsagnarinnar Lynyrd Skynyrd. Allt fínar útgáfur með meiru af þeim sem nýjar eru. EP platan Garage days revisited, sem þessi Garage Inc. er hálft í hvoru nefnd eftir, er svo hérna að finna einnig í heild, sem og aðrar frá- bærar túlkanir sem m.a. hafa áður komið út á B-hliðum þ. á m. Am I evil frá Diamond head, syrpa með Motorheadslögurum, sem þeir gerðu í tilefni af 50 ára afmæli Lemmy, forsprakka þeirr- ar fornfrægu járnpönksveitar og So vvhat?, pönksmíðin fræga og mjög svo umdeilda frá Anti nowhere Ieague. Hvað sem líður skoðunum á stefnubreytingu piltanna í Metallica, þá er óhætt að segja við alla aðdáendur þeirra, gamla sem nýja, nælið ykkur í gripinn, ef þið eruð þá ekki búin að þvi. Nýjustu tíðindi af jöfrunum eru svo þau, að í apríl ætla þeir að halda tvenna tónleika í heimahér- aðinu, San Fransisco, ásamt sin- fóníuhljómsveitinni þar, sem svo hugsanlega verða gefnir út síðar. RRPPSUDA Þeir eru ófáir tónlistarfræðing- arnir um heim allan, sem mikið spá í hvers vegna rappið hefur reynst svo lífseigt sem raun ber vitni. Hafa menn ályktað í ýmsa veru, en tvennslags eru skýring- arnar, að rappið sé orðið órjúf- anlegt menningarfyrirbæri am- erískra blökkumanna og njóti þannig eindregnar og elífrar hollustu og að hinir ýmsu boð- berar rappsins séu einkar lunkn- ir við að krydda það og auka blæbrigðin með öðrum tónlistar- stefnum, eru ekki svo fjarri lagi auk annarra. Bobby Digital, einn fjölmargra rappara sem vekja nú athygli, er kannski ekki að gera neitt nýtt með plötunni sinni, Soul survivor, en það að hann tengist Wu-Tan genginu, gerir það að verkum að eftir honum er tekið. Platan hans, RZA as Bobby Digital, er þó býsna áhugaverð og á köflum nokkuð grípandi, sérstaklega þar sem venjubundnum hljóðfærum er blandað saman við tölvufor- ritunina. Þá er þessi plata kannski meira aðgengileg en sumt það sem Wu-Tan hafa sent frá sér. Og svo selst hún víst vel vestra þessi eins og svo margar aðrar með köppum sem skapað hafa sér nafn. D^wr POPPFRÉTTIR Gwen Steffani og hennar fé- lagar í No doubt verða með nýja plötu í sumar. • Kraftpoppsgengið No doubt, sem svo rækilega sló í gegn með plötunni Tragic kingdom og Iögum á borð við Don’t speak, er nú væntanlega að hefja upp- tökur á arftakanum. Var upphaflega búist við að hin snoppufríða Gwen Steffani og félagar myndu hefja upptökurnar i nóvember með útgáfu í vor í huga, en sú áætlun tafðist vegna meiri afkasta við lagasmíð- ar. Er nú gert ráð fyrir plötunni í sumar. Upp- tökustjóri er Michael Berndon, sem m.a. hefur getið sér gott orð fyrir vinnu með Hole og Marlyn Manson. • Líkt og jafnan áður í byrjun árs eru verðlauna- hátíðir ýmiskonar og til- nefningar til þeirra áber- andi. I byrjun vikunnar voru t.a.m. amerísku tón- listarverðlaunin afhent, þar sem rapparinn og leik- arinn vinsæli Will Smith hlaut m.a. þrenn verðlaun. Tilnefningar til Grammy- verðlaunana eru einnig teknar að birtast og er Eric Clapton t.d. tilnefndur í „hundraðasta sinn“ • Bresku tónlistarverðlaun- in, þ.e. tilnefningar til þeirra, voru sömuleiðis birtar nú fyrr í vikunni og standa þar tvö nöfn afger- andi upp úr. Annars vegar er það fyrrum súkkulaði- drengurinn úr Take that, Robbie WiIIiams, sem hlaut sex tilnefningar og hins vegar trip hop goðin mögnuðu frá Bristol (og Is- landsvinir) Massive attack, er hlutu fimm tilnefningar. • Ofurrokktríóið breska, Bush, sem m.a. inniheldur söngvarann Gavin Rose- bane, kærasta Gwen úr No doubt til langs tíma, eru líka í plötuhugleiðingum, en eru þó heldur lengra komnir í þeim efnum. Mun, eftir því sem næst verður komist, vinnu við plötuna lokið og er hennar að vænta í mars. The scence of things mun grip- urinn nefnast og verður þriðja plata Bush. i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.