Dagur - 16.01.1999, Side 19
LAUGAKDAGVR 16. JANÚAR 1999 - 3S
LÍFIÐ 1 LANDINU
Fyrír austan. Mynd þessi er úr í litlu sjávar-
piássi austur á fjörðum, en þar hafa menn
róðið lífróður síðustu daga til þess að bjarga
atvinnulífi staðarins. Búlandstindur hf. hefur
ákveðið að hætta þar starfsemi, en nú virð-
ast heimamenn reyndar vera búnir að bjarga
málunum fyrir horn. Hver erþessi staður?
Ólátaskólar. Mikið hefur gengið á í grunn-
skólum Reykjavíkur á fyrstu skóladögum ný-
byrjaðs árs og þessi mynd var tekin í einum
skólanum, þar sem óeinkennisklæddar
iöggur hafa staðið vaktina svo aiit fari vel
fram. Einmitt í þeim skóla sem myndin var
tekin í hefur ástandið verið sýnu verst. Hver
er þessi skóli?
Hnattfarinn. Á fyrsta degi nýbyrjaðs árs
lagði bandarískur milljónamæringur upp í
hnattferð héðan frá landi og mun á næstu
þremur árum hafa viðkomu í öllu heimsins
álfum og kynna sér þar mannlíf og náttúru-
far sem hann mun og segja frá á bandarísk-
um sjónvarpsstöðvum. Hvað heitir þessi
ferðalangur og hvaðan aflandinu lagði hann
upp í ferðalag sitt?
íþróttamaðurínn. Sá kappi serm hér sést á
mynd var á dögunum útnefndur fþróttamað-
ur KA. Hvað heitir hann og á hvaða íþrótta-
móti erlendis náði hann afbragðsgóðum ár-
angri á dögunum?
Leiðin austur. Sem betur fer er veður
sjaldnast jafn snæiduvitiaust einsog var sl.
þriðjudag þegar mönnum voru allar bjargir
bannaðar til þess að komast austur fyrir
fjalll. Bæði Hellisheiði og Þrengsli lokuð.
Hve langt er frá Reykjavík og austur á Sel-
foss og hve iangt úr Reykjavík og í Þorláks-
höfn um Þrengsli?
1. Hverjir voru hinir upp-
haflegu Fjölnismenn?
2. Hvaða sveit landsins er
lýst með eftirfarandi
hætti? Þjórsá og Hvítá
afmarka sveitina í austri
og vestri. I norðri Stóra-
Laxá og Sandlækjarós, í
suðri Merkurlaut í
Merkurhrauni. Sveitin er
að mestu sléttlend, en
Vörðufell setur þó sterk-
an svip á Iandslag. I
austan og sunnanverðri sveitinni er
hraun er kallast Þjórsárhraun.
3. Hann var fæddur á Höfðaströnd í
Skagafirði á 3. áratug aldarinnar, en fór
ungur suður til Reykjavíkur þar sem
hann lauk stúdents- og síðar Iögfræði-
prófi. Hann gerðist umsvifamikill kaup-
sýslumaður og verslunarhættir hans eru
sagðir hafa valdið straumhvörfum í lífs-
kjörum almennings. Maðurinn sem hér
er spurt um lést 1991. Hver var hann?
4. Hvert var útgerðarfyrirtækið sem árið
1924 keypti eignir á Hjalteyri við Eyja-
fjörð og reisti þar 1937 síldarverk-
smiðju, sem þá var talin hin stærsta í
Evrópu?
5. „Þú komst í hlaðið í hvítum hesti. / Þú
komst með vor í augum þér. / Eg söng
og fagnaði góðum gesti, / og gaf þér
hjartað í bijósti mér.“ Hver orti svo?
6. Yfir hvaða svæði á landinu nær Engi-
hlíðarhreppur?
7. Hvað heitir það strýtumyndaða fjall,
sem lengi hefur verið einskonar ein-
kennistákn Reykjaness?
8. Hvaða ráðherraembættum gegndi Ragn-
hildur Helgadóttir í ráðherratíð sinni frá
1983 til 1987, þ.e. í ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar?
9. Hvar á landinu er Orlygshöfn?
10. Spurt er um gróinn verslunarstað á
landsbyggðinni. Bæjarstæðið er fagurt
og bærinn skartar fallegum, vel hirtum,
gömlum húsum frá 19. öld. Höfnin er
sérstök af náttúrunnar hendi og bærinn
er mikið sóttur af ferðamönnum sem
gjarnan fara í sjóferðir og skoða eyjar,
fugla og dýralíf. A stað þessum er kaþ-
ólskt nunnuklaustur. Hver er staðurinn?
LAWD OG
ÞJÓD
Vm V \
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar
Svör:
•ijjæij uinssacj
paui jsáj ja uias luijoqsppjájs ia ■() ]
•ijpfupi uinuæq b ia iec[ uias
jeuossjejo spSg ujesefuipq iiiÁj uuungejs
13 injsejqqaci -igpyeq e uui iiuiXaijs uias
iec| ijegeA ega qiA uuni8 13 8o piofjsqaijeg
uepiaAuejn 8o -ueuuns piA ia ujpqs8X|io-6
•luuiuipfjs
in ioj uossuiu^ijeH JPO ua euiuiofjs i uui
uioq uossjeg uuiojsioq 8o uinuis umjjæ
-quis suisqqo|jsipæjsqefq iciiaqpei npn
-isqpiq ijqundeuiij unacj p us ‘euoqpeisi
-gSuqpaq ijjæquia qia qoj unq leSacj S86f
sjsneq [ij pecj iba 8o £861 Quoa pnpuXui
ieA uipfjsspjji ppæiuin iac[ bij euaqpei
-e[euiejuu3ui iba iijjopeSpH inp|iqu8ey8
•n[sXssujeAeunH-mjsny
i jepeSueg iijá jæu inddaiqiepqqiSug-p
•OAS IJIO UI3S UOSSUPJ3JS QIACQ IBA gBcJ'S
•npupuoAS jeuunpjXqs
-joQ[-sioqj nSis i iba uias ‘qq injjnpjaAyj-j,
■dneqSen J uossupf luqej-g
■uinpio umssacj
Qsui jsXj 13 njsÁsssuiy i iddsiqepisqq'j
•uos
-spunuiæs seuipjL 8o uossinjsj mjjofuXig
‘uosejsjo peiuoyj ‘uossuijiSjjen seuof-j
•ujoqsqejiocj J mjsne
13 *unj j£ 8o ssoqsg p injsne nis -unj *
•oppf
j nuijpuieiejsioui eqsjACUipueqq eudQ
9 jjoS qecj 15138 uinunSop e uias uossjisj
-JOcj giequiayy iijisq issscj mpeuiejjpicjj *
•uinjjOASuicj eij eujs pioj j ddn ip8ej uiss
uejjjeuq imjæij issscj iijisq sisSog uqf
ijpqseSeH *
•qjASjepgisig *
Fluguveiðar aö vetri (100)
Tékkamir veiða vel
Fyrir nokkrum misserum tóku að
berast fregnir af „tékknesku“ að-
ferðinni í erlendum tímaritum um
fluguveiðar. Sagt er að Tékkarnir
sópi til sín verðlaunum og athygli
á alþjóðlegum mótum þar sem
keppt er í fluguveiðum.
Hér er ekki mælt með þ\d að
gera fluguveiðar að keppnisgrein.
En árangur Tékkanna er eftirtekt-
arverður, því þeir nota sérstaka að-
ferð við veiðar á urriða, bleikju,
harra og öðrum tegundum sem
heiðra ár þeirra.
FLUGUR
Stefán Jón
Hafstein
skrifar
Þrjár í röð
Fyrir það fyrsta eru nymfurnar þeirra sér-
stakar. Ég mun tala um þær síðar, ég held
nefnilega að aðferðin sé mikilvægari en
útlit flugnanna. Læt mér nægja að segja
þetta: þær eru oftast dökk-tvílitar (skipt
um miðju) á bognum krók, #8-12, vel
þyngdar, bakið er með döklditaðri plast-
ræmu eftir endilöngu og koparvír vafið
yfir. Einfalt. Ég held að við ættum að
nota okkar eigin ágætu púpur og nymfur
- með þessari aðferð.
Þeir veiða með þrjár á taumi.
Fyrir straumvatn
Þessi aðferð mun henta vel á tiltölulega
straumhörðum stöðum, vatnið þarf ekki
að vera dýpra en í
mjóalegg, en má
alveg taka manni
í Iæri. Kjörin að-
ferð víða á Is-
landi.
Sjálfur hef ég
ekki prófað að
gagni. Og
skammast mín
hálfpartinn fyrir.
Málið er að mér
leiðist svo að
veiða með
„dropper" - tveim-
ur flugum á taumi. Hvað þá þremur. En
þetta skulum við samt prófa næsta sum-
ar:
Níu til tíu feta stöng er nauðsynleg.
(Tékkarnir nota rúm 10 fet.) Taumurinn
er jafn langur stönginni, 8-10 pund að
styrk efst. A hann eru hnýttar þrjár nymf-
ur, vel þyngdar. „Kúpur“ (púpur með
kúluhaus) eru kjörnar að mínu mati. Bil-
ið milli þeirra er haft 50 sentimetrar.
Tvær efri flugnanna eru hnýttar við
tauminn með hefðbundnu lagi (íærið það
af öðrum en mér), og dingla frá aðal-
taumi í 10 sentimetra fjarlægð.
Taumurinn grennist Ifaman við efstu
flugu, fer niður í 6-4 pund, eftir því hvað
menn treysta sér til. Ég myndi ekki bjóða
urriða neitt minna en 6 pund.
Þar sem taumur og lína mætast þarf að
vera eitthvað sem augað getur fylgt. Mál-
ið er einfaldlega það að maður þarf að
geta fylgt línunuenda eftir með augum til
að sjá naumar tökur. Vegna þess að nymf-
urnar eru þyngdar svo vel er ekki víst að
venjulegur tökuvari (strike indicator)
fljóti. En að mínu mati nægir hann vel
eigi að síður, hann gegnir hlutverki sínu
þótt hann sökkvi örlítið, þ\i færið er
alltaf stutt. Svo má nota skært garn og
hnýta smá stubb á línuna.
Þetta er sem sagt heilmikil útgerð.
En þar rneð má segja að vandamálum
okkar sé lokið.
Veiðin
Köstin eru stutt. Þau eru eiginlega engin.
Veiðimaðurinn velur sér góðan stað,
steina sem gott væri að láta sökkva bak-
við, eða streng sem fellur fallega fram.
Hann dregur út svo sem einn metra af
línu fram af stönginni og er það allt og
sumt. Nú eru úti þrjú fet af línu og 10 fet
af taumi. Þessu vippar maður upp fyrir
sig í strauminn - upp og aðeins út á við.
Þessar fá að kynnast tékknesku aðferðinni í vori
Nymfurnar sökkva hratt niður að
botni og koma á fleygiferð í átt til
manns. Ekki er ástæða til að taka
inn slaka, heldur horfa bara fast á
tökuvarann eða annað sem notað
er til að gefa til kynna hvernig lín-
an hreyfist. Um leið og vart verð-
ur við kipp, hik eða rás út úr
straumi þarf að bregða við. Það
gerir maður með að lyfta stöng-
inni snöggt, en frá upphafi heldur
maður þannig að höndin sem
heldur um stöngina notar einn
fingur til að klemma línuna fasta. Hin
höndin er Iaus.
Taki ekki fiskur strax kemur línan niður
til móts við veiðimanninn undan straumi;
hann lyftir stönginni örlítið til að taka inn
slaka og fylgja nymfunum vel eftir þegar
þær færast nær. Þegar flugurnar þyrlast
niður fyrir hann Iætur veiðimaðurinn
stangaroddinn fylgja á eftir og vísa niður
á við aftur án þess að taka í. Línan réttir
svo úr sér; ef engin taka er á því augna-
bliki má undirbúa næsta kast. Kast tvö er
aftur upp, en aðeins meira þvert en fyrst.
Þessu næst kemur ef til vill þriðja kastið,
sem er enn meira þvert en hin fyrri.
Þannig skárar maður strenginn fyrir
framan sig áður en maður tekur 2-3 skref
niður og heldur áfram með mismunandi
„köstum“ uppfyrir sig.
Aldrei nein
bakköst. Bara
vippa þessu rétt
uppfyrir sig og
passa að lína og
taumur leggist
fram, fylgjast síð-
an vel með, Iáta
stangaroddinnn
fylgja nymfunum
eftir meðan þær
koma skrallandi
niður með
straumi. Sáraein-
falt.
Hvert er „trixið“?
Nymfumar eru þungar, þær fara rakleiðis
niður og berast fyjáislega með straumi
eins og æti þar sem fiskurinn Iiggur.
Hann þarf ekki að elta fluguna. Bilið á
milli flugnanna tryggir mismunandi dýpt
í vatni, hámarkskynningu með lágmarks-
fyrirhöfn. Tékkarnir láta því nægja eitt
rennsli á hvem punkt, eru fljótir að kasta
einu sinni til þrisvar þar sem þeir standa
og færa sig fljótt neðar til að flugurnar
finni „nýja“ fiska.
Ábendingar
Rek flugnanna á að vera fyjálst. Veiði-
maðurinn á að bregða við um Ieið og lín-
an hagar sér afbrigðilega. Hann á að vera
sérstaklega vel á varðbergi þegar flugum-
ar eru komnar vel niður fyrir hann og
straumurinn lætur þær „sveiflast" að
landi. Þetta er hin vel þekkta dauða-
stund. Ef flugurnar eru komnar alveg
niður fyrir veiðimanninn og Iiggja beint
án þess að taka hafi fengist, borgar sig að
gefa smá kipp áður en þær eru rifnar upp
í næsta kast. Þessi erting kveikir oft í fiski
sem hefur elt.
Þyngsta flugan á að vera í miðjunni.
Ekki spyrja mig hvers vegna. En það
virkar.
Kosturmn?
Kosturinn er að mínu mati að aðferðin
hvetur mann til að lesa vatn í staðinn fyr-
ir að þrusa bara út og vona það besta.
Ekkert gerir til þótt veður sé vont og
blási, maður er ekki að kasta. Og yfirferð-
in er mikil: maður kannar mikið vatn á
stuttum tíma. Og svo er þetta mjög ár-
angursrík aðferð. Það segja allir sem
prófað hafa.
Svo nú er bara að bíðar vors!
i