Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 20

Dagur - 16.01.1999, Blaðsíða 20
36- LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1998 RAÐAUGLYSINGAR A T V I N N A Ríkistollstjóri auglýsir laust starf við tollendurskoðun Embætti ríkistollstjóra starfar samkvæmt lögum nr. 55/1987 og fer í umboði fjármálaráðherra með yfirstjórn tollheimtu og tolleftirlits. Starfið felur meðal annars í sór: • Eftirlit með framkvæmd tollstjóraembættanna á toll- afgreiðslum vegna inn- og útflutnings. • Miðlun upplýsinga til starfsmanna tollsins, við- skiptalífsins og almennings um tollskýrslugerð og tollafgreiðsluhætti. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af tollamál- um og hafi menntun á verslunar- og/eða viðskipta- sviði. Einnig er starfsreynsla á þessu sviði mikils metin. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, skulu berast ríkistollstjóraemb- ættinu, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík, eigi síðaren 31. janúar 1999. Áætlað er að ráða í starfið frá og með 1. mars nk. eða samkvæmt samkomulagi. Frekari upplýsingar veita Jóhann Ólafsson, starfs- mannastjóri, og Matthías Berg Stefánsson, deildar- stjóri endurskoðunardeildar, í síma 560 0500. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Reykjavík, 7. janúar 1999, ríkistollstjóri. Slökkvistöð Akureyrar Vegna fjölgunar á vakt eru lausar til umsóknar fjórar stöð- ur slökkviliðsmanna hjá Slökkviliði Akureyrar. Starfið felst í vaktavinnu vegna slökkvi- og sjúkraflutningaþjónustu, auk ýmissa starfa sem þessu tvennu fylgir. Útkallsskylda er utan vinnutíma. Einnig vantar menn til sumarafleysinga á tímabilinu maí til september 1999. Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði sbr. reglugerð um réttindi, menntun og skyldur slökkviliðs- manna og samþykkt fyrir Slökkvilið Akureyrar. Helstu atriði þeirra eru: - Vera á aldrinum 20-28 ára, reglusamir og háttvísir. - Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heil- brigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. - Hafa iðnmenntun, sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. - Hafa ökuréttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið. - Hafa góða almenna þekkingu, þ.m.t. nokkra tungumála- kunnáttu og gott vald á íslenskri réttritun. Laun samkvæmt kjarasamningi Landssambands slökkvi- liðsmanna eða STAK og launanefndar sveitarfélaganna. Upplýsingar um starfið gefa slökkviliðsstjórar á slökkvi- stöðinni, Árstíg 2, en upplýsingar um kaup og kjör gefur starfsmannastjóri í síma 462 1000. Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar Akureyrar- bæjar, Geislagötu 9, en þar fást einnig umsóknareyðu- blöð, ásamt úrdráttum úr reglugerð um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og samþykkt fyrir Slökkvilið Akureyrar. Umsóknarfrestur er til 29.01. 1999 Starfsmannastjóri. A KÓPAVOGSBÆR Lausar stöður við leikskóla Marbakki v/Marbakkabraut, sími 564 1112 100% staða leikskólakennara. Á Marbakka er unnið eftir hugmyndafræði þar sern áhersla er lögð á skapandi starf og skapandi hugsun. Upplýsingar gefa leikskólastjórar, Svana Kristinsdóttir og Þórdís G. Magnúsdóttir. Dalur v/Funalind, sími 554 5740 Tvær 100% stöður leikskólakennara. Til greina kem- ur að skipta þeim í hlutastöður. í Dal er sérstök áhersla lögð á samskipti og unnið með hugtökin virð- ingu, ábyrgð og sjálfstæði. Upplýsingar gefur leik- skólastjóri, Sóley Gyða Jörundsdóttir. Arnarsmári v/ Arnarsmára, sími 564 5380. 100% staða leikskólakennara. 100% staða matráðs. í Arnarsmára er áhersla lögð á frumkvæði, vináttu og gleði. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Brynja Björk Krist- jánsdóttir. Athygli er vakin á því, að fáist ekki leikskólakennarar í stöðurnar verða ráðnir aðrir með uppeldismenntun eða leiðbeinendur, ófaglærðir starfsmenn. Ennfremur gefa upplýsingar leikskólafulltrúi, Sesselja Hauksdóttir, og leikskólaráðgjafi, Gerður Guðmunds- dóttir, í síma 554 1988. Starfsmannastjóri Starf tækniteiknara á Tæknideild Laust er til umsóknar starf tækniteiknara á tækni- deild Akureyrabæjar í starfinu felst m.a. gerð og viðhald grunnkorta, mæliblaða, vinnuteikninga af götum og holræsum og vinna við gerð útboðsgagna. Nær öll þessi vinna er unnin með aðstoð tölvu. Einnig tilheyrir starfinu varðveisla og uppröðun teikninga, almenn afgreiðsla og skrifstofustörf. Æskilegt er að um- sækjandi hafi reynslu af tölvunotkun við teiknistörf, ritvinnslu og skýrslugerð.Laun skv. kjarasamningi STAK og Launanefndar Sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið gefur Gunnar H. Jóhann- esson deildarverkfræðingur og upplýsingar um kaup og kjör veitir starfsmannadeild. Síminn er 462-1000. Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9 á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 3. febrúar 1999 Starfsmannastjóri Eiginn herra! Frjáls vinnutími. Ótakmörkuð umsvif á heims- vísu, þess vegna. Einstakt tækifæri. Upplýsingar gefur Díana í síma 897-6304. Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf á vegum verkefnisstjórnar bókhalds- og upplýsinga- kerfisins AGRESSO hjá Reykjavíkurborg. Meginverkefnin eru: • Aðstoð við þróun þeirra möguleika sem AGRESSO býður upp á. • Innleiðsla og uppsetning nýrra kerfishluta í sam- vinnu við söluaðila. • Aðstoð við notendur kerfisins. • Upplýsingagjöf og ýmiskonar bókhaldsuppgjör. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun á viðskiptasviði eða sambæri- leg menntun. • Reynsla og þekking á bókhaldi, bókhaldskerfum og tölvuvinnslu. • Lipurð í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal skilað til borgarbókhalds Ráðhúsi Reykjavíkur eigi síðar en 29. janúar nk. Nánari upplýsingar veitir Snorri Snorrason borgar- bókhaldi í síma 563-2000 eða í tölvupósti snorrisn@rvk.is. Reykjavíkurborg borgarbókhald Sálfræðingur Skólaskrifstofa Vesturlandsumdæmis sem hefur aðsetur í Borgarnesi óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa Skrifstofan annast greiningar- og ráðgjafarþjónustu við fjórtán grunnskóla og þrettán leikskóla á Vesturlandi; nánar tiltekið fyrir öll sveitarfélög í Vesturlandskjördæmi önnur en Akraneskaupstað og auk þess Reykhólahrepp í Austur-Barðastrandarsýslu. Ráðningarkjör eru í samræmi við kjarasamning Launanefndar sveitarfélaga og Sálfræðingafélags islands. Nánari upplýsingar gefur Snorri Þorsteinsson, forstöðumaður, sima 437 1480 eða 437 1526. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1999. Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra Sjálfsbiörg er landssamband hreyfihamlaðra með 17 aðildarfélög um land allt. Hlutverk þess er m.a. að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra í þjóðfélaginu. Félagsmálafulltrúi Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, óskar eftir að ráða félagsmálafulltrúa í 1/2 starf. Helstu verkefni félagsmálafulltrúans er úthlutun svokallaðra P-merkja fyrir hreyfihamlaða, upplýsingasöfnun um málefni fatlaðra og kynning á réttindamálum þeirra á opinber- um vettvangi, fyrirgreiðsla og ráðgjöf við félagsmenn, yfirumsjón með félagsstarfi unglinga, námskeiðahald og tengsl við aðildarfélög Sjálfsbjargar um land allt auk annarra tilfallandi verkefna. Menntun á sviði félagsvísinda er æskileg eða mikil reynsla af félagsstörfum. Umsóknir skal senda Sjálfs- björg, landssambandi fatlaðra, Hátúni 12, 105 Reykjavík, merktar „félagsmálafulltrúi'1 fyrir 23. janúar nk. Einnig má senda umsóknir í tölvupósti til: mottaka@sjalfsbjorg.is. Upplýsingar veita Sigurður Einarsson og Rannveig María Þorsteinsdóttir í síma 552 9133.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.