Dagur - 19.01.1999, Blaðsíða 3

Dagur - 19.01.1999, Blaðsíða 3
Ik^iir ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÍAR 1999 - 3 FRÉTTIR Laun verkafólks fyr- ir neðan hættnmork Ekki eru allir sammála því að laun þingmanna séu alltoflág. Myndin er frá mótmælafundi í Reykjavík eftir umdeildar kjarabætur þingmanna. Verkalýðsforingj ar segja að ef laun jjing- mairna séu hættulega lág séu laun verka- fólks í gjörgæslu. „Það má til sanns vegar færa að grunnlaun þingmanna eru ekk- ert sérstaklega há miðað við þá ábyrgð sem þeir hafa. En ef teknir eru allir póstarnir sem þeir fá ofan á þingfararkaupið þá eru þeir komnir með ágætis laun. Og ef laun þeirra eru hættulega Iág þá eru laun verka- fólks komin í hreina gjörgæslu," segir Aðalsteinn Baldursson, for- maður Verkalýðsfélags Húsavík- ur. Olafur G. Einarsson, forseti Alþingis, sagði í samtali við Dag sl. laugardag að Iaun alþingis- manna væru orðin hættulega lág. Hann sagði jafnframt að þingmenn þyrftu að hafa bak til þola álag sem því fylgir að hækka launin jafnvel þótt verkalýðsfor- ingjar efni til útifunda vegna þess. „Eg vildi óska þess að þing- menn sem tala um að þeirra laun séu hættulega lág, velti aðeins fyrir sér stöðu þess fólks sem vinnur fullan vinnudag í ábyrgð- arstöðum en fær ekki nema 70 til 90 þúsund krónur í laun á mánuði," segir Aðalsteinn. Hann segir að hópar verkafólks sitji alltaf eftir. Þeir séu ekki í að- stöðu til að skammta sér laun né að þrýsta á með sama hætti og sumir hópar sem hafi klifrað upp launastigann á bakinu á verka- lýðshreyfingunni frá því síðustu kjarasamningar voru gerðir. Margt að miða við „Ef að laun þingmanna eru hættulega lág eru þá ekki laun verkafólks, sem eru á milli 70 til 90 þúsund krónur, hreinlega al- veg út úr kortinu og fyrir neðan hættumörkin. Þegar þingmenn segja sín Iaun of lág þá fer það bara eftir því við hvað þeir miða. Gæti þá ekki verið að viðmiðun- arhópar þeirra séu of háir. Og ég spyr, hvað ef þeir miða við verka- fólk,“ sagði Björn Grétar Sveins- son, formaður Verkamannasam- bandsins. Hann var spurður hvort verka- lýðshreyfingin muni ekki taka mið af Iaunahækkun þingmanna þegar farið verður að móta kjara- kröfurnar í haust? „Það er nú að verða svo margt sem við verðum að taka mið af næsta haust þegar kröfurnar verða mótaðar," sagði Björn Grétar. - s.DÓR Þótt bankastjórar Landsbankans séu hættir fylgja jepparnir þeim. Keyptu bankastjóra- jeppana Fyrrum bankastjórar Lands- bankans, Björgtin Vilmundar- son, Sverrir Hermannsson og Halldór Guðbjarnason, fóru formlega af launaskrá Lands- bankans um áramótin, eftir að hafa fengið átta mánaða laun og keypt jeppana sem þeir höfðu til afnota frá bankanum. Bankastjórarnir fengu átta- mánaðalaunin reyndar útborguð fljótlega eftir að þeir gengu út sl. vor. A þeim tímapunkti bauðst þeim einnig að nota áfram jeppa þá sem þeir höfðu frá bankan- um og kaupa þá samkvæmt mati. Að sögn Helga S. Guð- mundssonar bankaráðsfor- manns nýttu bankastjórarnir sér fljótlega að kaupa bifreiðarnar og var verðmat bílasala lagt til grundvallar við ákvörðun kaup- verðsins. — FÞG Kjörkassiim geymd- ur hjá sýsliunamii Taining í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík nk. fimmtudag. Kjörgögn sótt í pósthúsið. Fjölgaði um eitt þús- und mainis í ílokkn um. Kjörkassinn í prófkjöri fram- sóknarmanna í Reykjavík hefur verið komið fyrir í geymslu hjá embætti sýslumanns. Þar verður hann þar til talning atkvæða fer fram nk. fimmtudag. Um hádeg- ið daginn áður verða sótt á póst- húsið þau kjörgögn sem þar bíða. Kosningu í prófkjörinu lauk síðdegis sl. föstudag. Það hafði þá staðið yfir frá mánudegi í sömu viku. Ekki vitað uin liniikra Egill Heiðar Gíslason, fram- kvæmdastjóri Framsóknarflokks- ins, sagðist í gær ekki vita hversu margir greiddu atkvæði í próf- kjörinu, enda var um póstat- kvæðagreiðslu að ræða. Ekkert yfirlit hafi verið tekið saman um þau kjörgögn sem fólk kom með á skrifstofu flokksins auk þess að einhver íjöldi kjörgagna bíður hjá póstinum. Hann segist aðeins hafa frétt um einn einstakling sem fékk kjörgögn án þess að vita til þess að hann væri f flokknum. Hins vegar hafa engin slík mál komið til kasta skrifstofu flokksins, enda ekki annað vitað en fram- kvæmd prófkjörsíns hafi verið hnökralaus. Hann minnir einnig Sigrún Sturludóttir greiðir atkvæði í prófkjöri Framsóknar í Reykjavík og Egill Heiðar Gíslason, framkvæmdastjóri flokksins, fylgist með. Talið verður á fimmtudag en þangað til geymir sýslumaðurinn kjörkassann. á að þátttaka í prófkjörinu var bundin við flokksbundna fram- sóknarmenn sem jafnframt urðu að staðfesta það með skriflegri yfirlýsingu. I aðdraganda próf- kjörsins fjölgaði framsóknar- mönnum í borginni um eitt þús- und og eru þeir því um 2600 eða rúmlega það. Eftirvænting Nokkur eftirvænting ríkir meðal framsóknarmanna í borginni um niðurstöður prófkjörsins. Báðir þingmenn flokksins í kjördæm- inu, þeir Finnur Ingólfsson iðn- aðar- og viðskiptaráðherra og Ólafur Orn Haraldsson formað- ur umhverfisnefndar Alþingis, sóttust eftir áframhaldandi um- boði til að skipa fyrsta og annað sætið. Fyrir prófkjörið var einna helst talið að Alfreð Þorsteins- son, borgarfulltrúi og formaður veitustofnana borgarinnar, gæti sett eitthvert strik í þann reikn- ing. — GRH Lægri útgjöld atiiiumleysistryggmg- arsióðs Útgjöld atvinnuleysistryggingarsjóðs voru um 2,5 milljarðar króna á síðasta ári og eru það um 600 millljóna króna lægri útgjöld en árið 1997. Þar af var um 2,1 milljarður beinar greiðslur til atvinnulausra á móti nærri 2,8 milljörðum árið áður. Fimm hundraðasti fundur stjórnar atvinnuleysistryggingarsjóðs var haldinn í gær. I tilefni tímamótanna og vegna þess að þau ber upp á fyrstu daga árs aldraðra var Landssambandi eldri borgara afhentur Ijárstyrkur í lok fundarins. Styrknum á að verja í úrræði til að styrkja stöðu eldra fólks á vinnumarkaði. Nýtt einkennismerki ferðaþjónustu Nýstofnuð samtök ferðaþjónust- unnar, SAF, hafa Iátið hanna ein- kennismerki sitt. Efnt var til sam- keppni um merkið meðal nemenda í grafískri hönnun í Mynd- og handíðaskólanum og bárust 35 til- lögur frá 18 nemendum. Stjórn samtakanna ákvað að velja merki sem Sigurður Ólafsson hannaði. „I merki hans er vísað til ýmissa þátta sem einkenna náttúru og þjóðhætti á Islandi og má lesa það á marga vegu,“ segir í fréttatil- Sigurður Ólafsson verðlaunahafi og kynningu stjórnarinnar. Steinn Logi Björnsson, stjórnarfor- Sigurður hlaut í verðlaun flug- maður samtaka ferðaþjónustunnar, miða fyrir tvo að eigin vali með með verðlaunamerkið á milli sín. Flugleiðum. -----;------------ Siðlausar hækkanir Skatta- og gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga í landinu undanfarið ýta ekki undir gerð nýs langtímasamnings í kjaramálum fyrir almennt verkafólk, segir efnislega í nýlegri ályktun stjórnar Dagsbrúnar-Fram- sóknar. „Með þessum aðgerðum er í mörgum tilvikum svipt burtu öllum launahækkunum um áramótin sem samið var um á vormánuðum 1997," segir m.a. í ályktun stjórnarinnar. Enn fremur að „sveitarfélög- in hafa hins vegar samið við ýmsa sérhópa um umframhækknir sem vitað var að ekki var innistæða fyrir. Við höfum ítrekað varað við þess- ari stefnu opinberra aðila sem leiðir til aukins ójöfnuðar í launamál- um.“ Stjórnin segir einnig að „forsvarsmenn sveitarfélaganna hafa með þessum siðlausu hækkunum sýnt að þeir virða ekki markmið gerðra kjarasamninga."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.