Dagur - 21.01.1999, Blaðsíða 1
I
Hann hefurað baki mikla reynslu í
leikstjóm, hejur leikstýrt einum
fimmtán verkum. Tuttugu ogfimm
ára reynslu í myndlist. Tvö hund-
mð útvarpsþættir, tuttugu og
fimm sjónvarpsþættir. Þetta sam-
einarhann í vinnslu á myndbönd-
um ofýmsu tagi.
„Þegar þetta sameinast í einu auga, þá hlýtur
að koma eitthvað meira en venjulegt út,“ segir
listamaðurinn Om Ingi og hlær við. Dagur
heimsótti hann í „kjallarastúdíóið11 hans í
Klettagerðinu á Akureyri.
Við göngum í gegnum vinnustofuna og niður
í kjallarann. Þar er hvorki vítt til veggja né hátt
til lofts en þó er þar að finna fullkomið mynd-
vinnsluver sem Örn Ingi hefur komið sér upp.
Minnimáttarkeimd ekki til
„Eg byrjaði sem myndlistarmaður og lét mig
mikið dreyma um að gera einhvern tíma Ieik-
mynd við leikrit, sem svo rættist með Sveini
Einarssyni og leikritinu um Sólon Islandus. Þá
varð það ekki stöðvað. I kjölfarið á því og fleiru
fór ég að Ieiðbeina úti um allt land fólki sem
hungraði og þyrsti í allt. Þá fór ég jafnvel að
leiðbeina við eitthvað sem ég nánast kunni
ekki en Iærði um leið. Eg hef aldrei uppgötvað
þessa háu þröskulda sem menn eru að tala um
að hafa miklar áhyggjur af. Minnimáttarkennd
og skortur á sjálfstrausti, það á ég bara er ekki
til.“
Varðandi peningahliðina er speki Arnar Inga
einföld: „Maður gengur fyrir jákvæðri sjálfs-
blekkingu, trú á það að aðstæður verði manni
hagstæðar, að maður sjálfur standi sig og svo
framvegis. En ég hef verið alveg ótrúlega róleg-
ur yfir því þó hér hafi skóflast upp milljóna
skuldir. Eg er rólegur jafnvel þó ég hafi ekki
komið neinu frá mér í eitt ár, bara myndað og
myndað en brosað í bankanum."
Það sem ég get og vil
Örn Ingi tók upp, vann og gaf út íjölbreytt tónlistarmynd-
band með norðíenskri tónlist ásamt tveimur þáttum um
að fá mér hljóðgræjur og annað slíkt sem er
það besta sem gerist í veröldinni. Myndin
hefur frekar verið í fyrirrúmi heldur en hljóð-
ið.“
- Hvar stendur þitt stúdíó tæknilega séð mið-
að við það sem best eða fullkomnast gerist hér
ú landi?
„Eftir því sem ég best veit er ég fremstur á
landinu. Eg segi það vegna þess að inni í
þessu myndbandstæki er sérbyggt, rándýrt
tengisett sem breytir digital-signali til sam-
ræmis við klippisignal tölvuforritsins þannig
að það tapast ekkert í myndgæðum sem er
gríðarlega mikilvægt atriði. Þetta er eina
stykkið á landinu og að því leyti er ég fremst-
ur. Sjónvarpsstöðvarnar eru komnar með
digital vélar en svo framarlega sem þær eru
ekki með þetta stykki þá stend ég að því leyti
framar."
Tæknilega séð virðist Örn Ingi vel birgur.
Utskýringarnar sumar hljóma að vísu eins og
latína í eyrum blaðamanns en Ijóst er að hann
er komin með öflugt stúdíó í kjallarann hjá
sér. Hann segist þó eiga í nokkrum vandræð-
um með ýmislegt er varðar „bransann" sjálfan
og ber siðferðinu í þeim slag ekki fallega
sögu. Höfundarréttur hugmyndasmiða sé til
að mynda lítt eða ekki virtur og sé þar mikill
munur á hvað varðar höfuðborgarsvæðið
annars vegar og Akureyri til dæmis hins veg-
ar.
I fyrrasumar segist hann til dæmis hafa
verið mjög óánægður með Ferðamálamiðstöð
Eyjaíjarðar og sjónvarpsstöðina Aksjón vegna
myndbands sem hann bjó til fyrir Ferðamála-
miðstöðina. „Myndbandið var einungis unnið
með það í huga að vera til kynningar fyrir
ferðaskrifstofur og ferðaráðstefnur og skýrt
tekið fram í samningi að sýningar í sjónvarpi
kæmu ekki tii. Engu að síður „gaf‘ Ferða-
málamiðstöðin að mér forspurðum sjónvarps-
stöðinni Aksjón það til sýningar og þar var
höfundalistinn aftan af og sjónvarpsstöðin
gerði myndbandið að sinni eigin framleiðslu.
Þannig var myndbandið sýnt daglega í hálfan
mánuð þar til þeir skildu alvarlegar athuga-
semdir mínar. Höfundalistinn var þá settur
inn aftur og myndbandið sýnt allt sumarið án
þess að nokkur greiðsla kæmi til mín.“
Örn Ingi hefur lagt mikið undir en segir það erfiðast að
fást við siðferðið í þessum bransa: „Það sem ég er mest
hræddur um er að einhver taki frá manni það sem mað-
ur á. Slíkt gæti breyst í sakamál." - HI
Úrn Ingi Gíslason íverinu sínu. Myndver, hljóðver, fjölföldunarverksmiðja. „Eftirþví sem ég
best veit er ég fremstur á landinu," segir Örn Ingi um ákveðna tækni sem hann hefuryfir
að ráða. mynd: brink
Eskifjörð og Neskaupstað þar sem mannlíf og menning
spiluðu saman. „Frá mínum bæjardyrum séð var mark-
miðið með þessum myndböndum að þau væru yfirlýsing
af minni hálfu um það hvað ég gæti og hvað ég vildi. Að
ná inn fyrir raunverulegum kostnaði er íjarlægt markmið.
Eg vil reyndar sérhæfa mig í menningarefni og er búinn
2