Dagur - 21.01.1999, Side 2

Dagur - 21.01.1999, Side 2
18 — FIMMTUDAGUR 21. JAHÚAH 1999 ro^ir LÍFIÐ í LANDINU SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDOR SIGURDÓRSSON Sr. Baldur Vilhelmsson. Pétur Þór Gunnarsson. „Það var það sem okkur vantaði, enda var miðjan ekki naegjanlega sterk hjá okkur í fyrra. Agúst þekk- ir hvert gijót héma á malarvell- inum eftir að hafa alist hér upp og er afar ánægjulegt að sjá hann snúa aftur.“ Asgeir Elíasson, þjálfari Fram h.f., um endurkomu Ágústs Gylfasonar til félagsins. Þrefalt amen Séra Baldur Vilhelmsson, prófastur í Vatns- firði, er fyrir Iöngu orðinn þjóðsagnapersóna. Um hann eru sagðar skemmtisögur, bæði sannar og Iognar. Eina slíka birti Vestri fyrir skömmu. Þar segir að þeir Emil R. Hjartarson, skólastjóri á Flateyri, og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Isafirði, hafi verið samtímis við afleysingar í Iöggunni á Isafirði 1987. Þetta sumar gekk Halldór í hjónaband og fór athöfn- in fram í kirkjunni í Ogri. Ekki fékkst neinn organisti til að spila við brúðkaupið. Halldór fékk því Emil vin sinn til að bjarga málunum. Prestur var séra Baldur Vilhelmsson og vildi hann hafa messuform á og hjónavígsluna lið í messunni. Daginn fyrir athöfnina hringdi Emil í séra Baldur til að forvitnast um hvernig hann ætlaði að haga athöfninni. Séra Baldur las upp fyrir Emil hvernig hann ætlaði að hafa athöfn- ina og sagði að lokum: „Og svo kemur bara amen í lokin góði.“ Emil spurði séra Baldur hvort hann ætlaði að sleppa vúdsöng prests og safnaðar, sem venja er að ljúka messugjörð með. Þá sagði séra Baldur: „Það er alveg til- gangslaust. Fólk skilur þetta ekki, sem ekki er von góði. Eg sleppi þessu bara en þú getur haft amenið þrefalt ef þú vilt.“ Hótnnarbréfið Það er bölvaður dónaskapur að senda mönn- um hótanabréf um líkamsmeiðingar eða dauða þótt mönnum líki ekki eitthvað í fari manna eða störfum. Svo er aldrei að vita hvort eitt- hvað er að marka slík hótunarbréf. Pétur Þór Gunnarsson, eigandi Gallerí Borgar, sem grunaður er um málverkafalsanir og er fyrir rétti um þessar mundir, segir að hann hafi fengið hótunarbréf upp á ekkert minna en Iíf- lát. Maður verður að vona, Péturs vegna, að bréfið sé falsað. Kekkir í hafragrautimm Það hafa alla tíð verið til menn sem hafa þráð að geta ort ljóð og vísur og gert það án þess að geta það og hafa vísur þeirra og ljóð verið eins og kekkir í góðum hafragraut. Þessir menn hafa verið kallaðir leirskáld og kveðskapur þeirra hafður í flimtingum. Leirskáld hafa alltaf verið til. Flestir sem komnir eru til vits og ára kannast við nafn séra Valdimars Briem, sem orti fleiri sálma en aðrir Islendingar. Hann orti líka erfiljóð eftir pöntun. Því var einu sinni Iýst á þennan hátt af einhverjum „snillingi": Dauður maður dauður var, sendimaður sendur var uppí séra Valdhnar til að yrkja Ijóðin þar. Skúli Helgason, fyrrverandi dag- skrárstjóri Bylgj- unnar, hristir núna menningarkokkteil fyrir menningar- borgina Reykjavik árið 2000. „Iit á það sem þegnskyldu að taka þátt 1 þessu“ Það hefur verið ákveðið að menningarborgir Evrópu árið tvö þúsund verði níu en auk Reykja- víkur munu Helsinki, Bergen, Prag, Bolognia, Santiago de Compostela á Spáni, Avignion í Frakklandi, Brussel og Kraká. Skúli segist Iíta á verkefnið sem skemmtilega samkeppni við aðr- ar borgir í Evrópu. Auk hans gegnir Sigrún Valbergsdóttir framkvæmdastjórastöðu menn- ingarborgarinnar. „Mitt hlutverk er að hafa yfir- umsjón með innlendum viðburð- um sem verða á menningarár- inu. Það er heilmikill her þarna á bak við og efst trónir Þórunn Sigurðardóttir stjórnandi verk- efnisins Reykjavík menningar- borg Evrópu árið 2000 og hefur hún unnið að þessu í rúmt ár,“ segir Skúli. Ekki óánægður á Bylgjiumi Skúli starfaði áður sem dagskrárstjóri Bylgjunn- ar. Hann segir ástæðuna fyrir því að hann fari þaðan ekki vera óánægju heldur þvert á móti. Hann hafi verið með margar hugmyndir þegar hann byrjaði en ekki unnist tími til að hrinda þeim öllum í framkvæmd, en eitt af hans síð- ustu verkum á Bylgjunni hafi verið samkeppni um útvarpsþætti sem væri núna í gangi. Skúli segist hafa unnið við fjölmiðala í 15 ár og nú sé gott að skipta um starfsvettvang, alla- vega fram yfír aldamót. „Það sem menn eru að gera á vegum menningarborgarinnar er í raun- inni einstakt. Þarna er ríkisvaldið og borgin að sameinast um gríðarmikið verkefni. Þetta er stærsta hátíð sem hefur verið sett upp í þessu landi. Þannig að þetta er sögulegt tækifæri. Eg leit þannig á málin að þetta væri í raun og veru þegnskylda að taka þátt í þessu fyrst þetta var viðrað við mig.“ Flétta saman menningu og náttúru Skúli segir að ekki sé endanlega búið að ganga frá dagskránni en hún verði tilkynnt seinni part marsmánaðar. Hann segir mark- miðið vera að allir finni eitthvað við sitt hæfi. „Þarna verða verk- efni á sviði allra helstu listgreina en einnig á sviði umhverfismála, náttúruverndar, íþrótta og tóm- stunda, svo eitthvað sé nefnt." Meðal þess sem ber hæst á dag- skránni er kór sem kailast „Raddir Evrópu", hann er skipaður fólki úr menningarborgunum níu. Með kórnum syngur meðal annars Björk Guð- mundsdóttir og mun kórinn m.a. frumflytja ný verk eftir hana. Skúli segir að menningin verði ekki bara í Reykjavík árið 2000. Sveitarfélög út um allt komi að verkefninu. Þau ætli að bjóða uppá ýmislegt til afþreyinjgar fyrir ferðamenn. „Það má líta á þetta sem Island í sparifötunum þar sem að allir vinna saman að því að sýna um- heiminum hvað við getum gert á sviði lista og menningar. Það er verið að tala um að flétta sam- an menningu og náttúru. Við tjöldum öllu sem við eigum sem er þessi hreina og tæra og stór- kostlega náttúra og svo þessir andans jöfrar frá Snorra Sturlusyni til Bjarkar,“ segir Skúli. -PJESTA „Það má líta á þetta sem ísland í sparifot- unumþarsem að all- irvinna saman að því að sýna umheim- inum hvað viðgetum gertá sviði lista og menningar. “ SPJALL ■ FRÁ DEGI TIL DAGS „Bækur eru saklausir hlutir en rithöf- undar eru ægilegar verur.“ Þórbergur Þórðarson Þetta gerðist 21. janúar • 1918 mældist mesta frost í Reykjavík, - 24,5°C. • 1925 lýsti þing Albaníu yfir lýðveldis- skipulagi og Ahmed Zogoe tók við for- setaembætti. • 1932 var Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis stofnaður. • 1959 var söngleikurinn Deléríum bú- bónis eftir Jónas og Jón Múla frum- sýndur hjá Leikfélagi Reykjavíkur. • 1961 hertóku portúgalskir uppreisnar- menn farþegaskrpið Santa Maria. • 1962 var snjgfcbfna í San Francisco. Þau fæddust 21. janúar • 1849 fæddist bandaríski golfleikarinn Jack Nicldaus. • 1885 fæddist bandaríski blússöngvar- inn Leadbelly, eða Huddie William Ledbetter eins og hann hét réttu nafni. • 1895 fæddist Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. • 1905 fæddist franski tískuhönnuðurinn Christian Dior. • 1917 fæddist Jón úr Vör (Jónsson) skáld. • 1938 fæddist bandaríski plötusnúður- inn Wolfman Jack, sem hét reyndar réttu nafni Robert Weston Smith. • 1941 fæddist spænski tenórinn Plácido Domingo. Merkisdagurmn 21. jan. í dag er Agnesarmessa, en Agnes var róm- versk stúlka sem vildi heldur píslavætti en að spjallast og var sögð stungin til bana með sverði um 350. Agnes var einn helstu dýrlinga á fyrri hluta miðalda. Messa hennar var lögtekin á alþingi 1179. Hún var aukadýrlingur í Þerney á Kollafirði og Bæ í Borgarfirði. Afmælisbam dagsins Aristoteles (Telly) Savalas þekkja flestir aðallega sem lögreglustjór- ann Kojak úr samnefndum sjón- varpsmyndaflokki. Þó hafði hann leikið í fjölmörgum bíómyndum áður en hann komst í hlutverk skallans með sleikjóinn. Yfirleitt fékk hann þó ekki að Ieika annað en illmenni, og virtist fullsáttur við það. Hann fæddist 1924 í New York, en gaf upp andann 70 árum síðar, nánast upp á dag, þann 23. janúar 1994. Lét bara konuna róa! Gosi vildi breyta til og tók saman við konu. Ekki var langt um liðið þegar Gosi fór til fundar við trésmiðinn og bað hann að ráða sér heilt í vandræðum sínum. „Konan kvartar sáran undan flísum úr mér, hvað er til ráða?“ Trésmiðurinn taldi málið einfalt viðureignar og rétti Gosa örk af fínum sandpappír. Nokkru síðar hittast þeir fé- lagar á förnum vegi og trésmiður spyr hvernig gangi. „Fínt,“ segir Gosi. „Er konan hætt að kvarta," spyr smiður- inn. „Konan,“ svaraði Gosi, „mér líkaði svo vel við sandpappírinn að ég lét bara kon- una róa.“ Veffang dagsins Margmiðlunarhópurinn DIGITUS SAPI- ENS hefur sett upp heimasíðu í samstarfi við Hringiðuna www.vortex.is, þar sem finna má efni sem hópurinn hefur unnið að á sl. fjórum árum. Alveg þess virði að kíkja á http://www. digitus-sapiens.vor- tex.is Sagu daganna

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.