Dagur - 23.01.1999, Síða 9
8 - LAUGARDAGUR 2 3. JANÚAR 1999
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 - 9
FRÉTTASKÝRING
L
Tíagur.
Prdfkjör samfylMug-
ariimar í Reykjavík
nálgast og prófkjörs-
baráttan er komin á
fullt skrið. Dagur
kortlagði hiiiar ólíku
fylkingar og hér á eft-
ir er reynt að gera
grein fyrir helstu
stuðningsmönnum
frambjóðenda í próf-
kjörinu.
Bryndís Hlöðversdóttir alþingis-
maður er talin sigurstranglegust
alþýðubandalagsmanna í próf-
kjöri samfylkingarinnar í Reykja-
vík. Hún sagði breiðan hóp vinna
fyrir sig í prófkjörinu og sagðist
hún ekki vilja taka út úr þeim ein-
hver nöfn og gera þannig upp á
milli síns stuðningshóps.
Kosningastjóri Bryndísar er
Siguijón A. Friðjónsson, fyrrum
markaðsstjóri hjá Vífilfelli og
þekktur maður í hópi vinstri-
manna. Samkvæmt heimildum
Dags má nefna meðal virkra
stuðningsmanna Bryndísar, Leif
Guðjónsson, fyrrum starfsmann
Dagsbrúnar, og Guðmund Hjart-
arson, fyrrum Seðlabankastjóra.
Þar fara tveir menn sem kunna
vel til verka í pólitík og þekkja Al-
þýðubandalagið og verkalýðs-
hreyfinguna út og inn.
Ari Skúlason er í stuðningsliði Bryn-
dísar Hlöðversdóttur.
Úr hópi annarra virkra stuðn-
ingsmanna má nefna Ara Skúla-
son, framkvæmdastjóra Alþýðu-
sambands Islands, Einar Karl
• Haraldsson, fyrrum Þjóðviljarit-
stjóra og konu hans Steinunni Jó-
hannesdóttur rithöfund. Guð-
mundur Þ. Jónsson, formaður
Iðju, er í stuðningsmannahópi
Bryndísar, sem og Gylfi Arn-
'björnsson/'fyrrum hagfræðingur
ASÍ. Þá má nefna Arthur
Mortens, Kristinn Karlsson og
Gísla Gunnarsson, félaga hennar
úr Birtingu og Helga Hjörvar
borgarfulltrúa. Einnig Guðnýju
Gunnarsdóttur starfsmann al-
þjóðaskrifstofu HI, Katrínu Júlí-
usdóttur, framkvæmdastjóra
Stúdentaráðs, og Reyni Arn-
grímsson lækni sem mætti á opn-
unarhátíð kosningaskrifstofu
Bryndísar. Ekki má gleyma bróð-
ur hennar Jóni Hrafni Hlöðvers-
syni og föður hennar Hlöðveri
Kxistjánssyni.
Úr verkalýðshreyfmgiumi
Jóhanna Sigurðardóttir sagði að
sér fyndist léttara að vinna £
þessu prófkjöri en öðrum próf-
kjörum sem hún hefur tekið þátt
í. Hún segist finna fyrir góðum
meðbyr í prófkjörsbaráttunni en
var treg til að nefna ákveðin nöfn
stuðningsmanna nema hvað hún
sagði að Oskar Guðmundsson
væri sinn kosningastjóri. Óskar
var hér áður ritstjórnarfulltrúi á
Þjóðviljanum, var í Alþýðubanda-
laginu en fór yfir í Þjóðvaka þeg-
ar hann var stofnaður. Óskar er
margreyndur refur í pólitík og
hefur eitthvert næmasta pólitíska
nef sem til er.
Það er viðurkennt af öllum sem
rætt hefur verið við að Jóhanna
njóti stuðnings breiðfylkingar úr
verkalýðshreyfingunni, bæði sjó-
manna, iðnaðarmanna og félaga í
BSRB. Meðal virkra stuðnings-
Páii Halldórsson er með Jóhönnu f
liði.
manna Jóhönnu má nefna Pál
Halldórsson, fyrrum formann
BHMR, Svan Kristjánsson pró-
fessor og Guðrúnu Arnadóttur.
Einnig Jónas Astráðsson, Gunnar
Þórðarson trésmið, Sigurveigu
Sigurðardóttur hjúkrunarfræð-
ing og Karl Jenssen, svo einhverj-
ir séu nefndir.
Óskar Guðmundsson sagðist
verða mjög mikið var við að fólk
úr verkalýðshreyfingunni vilji
styðja Jóhönnu. Einnig sagði
hann stuðning við hana innan úr
hjúkrunargeiranum, starfsfólk á
sjúkrahúsum og heilbrigðisstofn-
unum. Eins sé mikið af fólki sem
ekki er í A-flokkunum en vill vera
í samfylkingunni.
Stuðmngur „eðalkrata“
Össur Skarphéðinsson vildi ekki
úttala sig um sín sterkustu vígi.
„Maður má ekki auglýsa styrk
sinn, þá fara aðrir að Ieita á þau
mið. En ég tel mig hafa ansi
breiðan stuðning bæði innan og
utan Alþýðuflokksins," segir Öss-
ur.
Hann er sterkur innan Alþýðu-
flokksins og nýtur ótvíræðrar vel-
vildar „eðalkrata“ af gamla skól-
anum. Aðdáendur Jóns Baldvins
Þeir Svavar Gestsson og Árni
Þór eru miklir mátar og eru þau
hjónin Svavar og Guðrún Ágústs-
dóttir borgarfulltrúi í hópi helstu
stuðningsmanna Arna, sem var
tregur til að nefna nöfn
stuðningsmanna sinna. Hann
sagðist ekki vita hvort þeir vildu
að nöfn þeirra yrðu birt í íjölmiðl-
um. Hann nefndi þó sína hægri
hönd í prófkjörsbaráttunni, Jón
Ingva Jóhannsson.
Dagur hefur heimildir fyrir því
að meðal stuðningsmanna Arna
Þórs séu Haukur Már Haralds-
son, sem um árabil hefur verið í
forystusveit Alþýðubandalagsins,
Sölvi Ólafsson, Sigþrúður Gunn-
arsdóttir og Armann Jakobsson,
sem allt er þekkt fólk úr Alþýðu-
bandalaginu. Einnig má fullyrða
að flestir helstu stuðningsmenn
Svavars Gestssonar, sem ekki eru
farnir yfir í vinstra/græna fram-
boðið, styðji Arna Þór.
Fólk úr velferðarkerfmu
„Það væri ósanngjarnt af mér að
taka út úr einhver nöfn úr þeim
fjölmenna pg breiða hópi sem
styður mig. Eg vil það ekki en get
sagt þér að stuðningsmannahóp-
ur minn er breiður,“ sagði Asta
Ragnheiður Jóhannesdóttir al-
þingismaður.
Það er vitað að hópar innan
velferðarkerfisins styðja Astu
Ragnheiði enda hefur hún látið
mjög að sér kveða á þingi í mál-
efnum þeirra. I þessum stuðn-
ingsmannahópi er margt starfs-
fólk í heilbrigðisgeiranum, fyrr-
um samstarfsfólk hennar á Trygg-
ingastofnun ríkisins, foreldrar og
aðstandendur fólks sem þarf á
velferðarkerfinu að halda. Einnig
lífeyrisþegar og aldraðir. Þá nýtur
Asta Ragnheiður stuðnings ýmiss
fjölmiðlafólks frá því hún starfaði
sem útvarpsmaður á árum áður.
Kolbrún Harðardóttir leik-
skólakennari er skrifstofustjóri
kosningamiðstöðvar Astu Ragn-
heiðar. Af öðrum virkum stuðn-
ingsmönnum hennar, samkvæmt
heimildum Dags, má nefna Garð-
ar Sverrisson, varaformann Ör-
yrkjabandalagsins, Gyðu Ragn-
arsdóttur formann MS félagsins,
Hafdísi Gísladóttur formann Fé-
lags heyrnarlausra, Pétur Ólafs-
son frá félagi aldraðra, Jarþrúði
Þórhallsdóttur, fyrrverandi for-
mann Félags einhverfra barna,
Björgu Kofoed Hansen þjónustu-
fulltrúa, Aðalheiði Fransdóttur,
baráttukonu úr Alþýðuflokknum,
Halldór Gunnarsson, frá svæðis-
skrifstofu fatlaðra og Jóhannes
Guðmundsson, formann Félags
lunga- og hjartasjúklinga.
Sighvatur Björgvinsson hjáipar
Össuri.
til hans stuðningsmanna Sighvat-
ur Björgvinsson formaður og
Birgir Dýrljörð, einhver þraut-
reyndasti kosningasmali Alþýðu-
flokksins um áratugaskeið. Össur
þykir einnig höfða vel til menn-
ingar- og fjölmiðlageirans. Kunn-
ugir merkja að einskonar óform-
legt bandalag hafi myndast milli
stuðningshópa Össurar og Jakobs
Frímanns Magnússonar um þá
tvo í efstu sætin, en hið sama er
um leið sagt um stuðnings-
mannahópa Össurar og Marðar
Arnasonar. Víst er að Össur, Jak-
ob og Mörður geta á ýmsan hátt
talist samhetjar, þar sem tveir
hinna síðastnefndu keppa um
annað sætið á eftir Össuri.
Þá þykjast menn merkja að
ýmsir sjálfstæðismenn hyggist
taka þátt í prófkjörinu og styðja
Össur í þeim tilgangi að hlutur
Jóhönnu Sigurðardóttur verði
sem minnstur, því hún er í huga
íhaldsins hinn mesti skaðræðis-
gripur í garð atvinnurekenda.
Meðal stuðningsmanna Jakobs
Frímanns Magnússonar má
nefna Dóru Hafsteinsdóttur, sem
um árabil var skrifstofustjóri Al-
þýðuflokksins, Helgu Arngríms-
dóttur, sem einnig vann á skrif-
stofu flokksins og Helga Daníels-
son, fyrrum rannsóknarlögreglu-
mann. Þessi nöfn styðja þá kenn-
ingu að stuðningsmenn Jóns
Baldvins Hannibalssonar styðji
Jakob Frímann. Meðal þeirra sem
starfa nú daglega fyrir hann má
nefna Vilhjálm Kjartansson, fyrr-
um knattspyrnumann úr Val,
Katrínu Símonardóttur og Ár-
mann Jónsson úr HÍ og Sæmund
Norðfjörð kvikmyndagerðar-
mann.
Þá nýtur Jakob Frímann stuðn-
ings úr listamannaelítu borgar-
innar og þá ekki hvað síst úr hópi
tónlistarmanna.
Gamli kjarninn
Því er haldið fram að Arni Þór
Sigurðsson, eigi að fylla það
skarð sem Svavar Gestsson skilur
eftir sig í hinum gamla og rót-
gróna kjarna Alþýðubandalags-
ins. Hann er sá í hólfi Alþýðu-
bandalagsins í prófkjörinu sem
talinn er muni veita Bryndísi
Hlöðversdóttur harðasta keppni
um efsta sætið.
Svavar Gestsson er einn afstuðn-
ingsmönnum Árna Þórs.
Úr hópi listamanna
Heimir Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalags-
ins, var eins og aðrir tregur til að
nefna nöfn stuðningsmanna
sinna, sagði það eiginlega vera
einkamál sitt hverjir þeir væru.
Hann nefndi þó Valdimar Birgis-
son, sem er kosningastjóri.
Dagur hefur heimildir fyrir því
að fjölmargir listamenn og þá
ekki sfst tónlistarmenn styðji
Heimi Má. Þar má fyrstan telja
bróður hans Rúnar Þór Péturs-
son og Helga Björnsson SSSól. I
gær kom út geisladiskur með lög-
um og Ijóðum eftir Heimi Má.
Ymsir stuðningsmenn hans úr
hópi Iistamanna eru þar flytjend-
í ÚSiífiÍÞI’ n9811,.ÚVilfe.dÓftÍt
söngkona, Páll Óskar Hjálmtýs-
son, Felix Bergsson, Rúnar Júlí-
usson, Bjartmar Guðlaugsson,
Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri,
Páii Óskar Hjálmtýsson er í stuðn-
ingshópi Heimis Más.
Andrés Sigurvinsson leikstjóri og
Björn Karlsson leikari. Sá frægi
ljósmyndari Spessi er í stuðnings-
manna hópi Heimis Más og einn-
ig Sigursteinn Másson fjölmiðla-
maður.
Horft tH hægri krata
Stefán Benediktsson er ef til vill
vanmetnasta stærðin meðal fram-
bjóðenda í hólfi Alþýðuflokksins,
en ljóst er að hann nýtur virðing-
ar og trausts mjög víða og er tal-
inn höfða til stuðningsmanna
bæði Össurar og Jóhönnu, sem
annars teljast höfða til ólíkra
hópa. Sjálfsagt er hans sterkasta
vígi að finna meðal „hægri-krata“,
einkum þeirra sem rekja má til
Bandalags jafnaðarmanna og inn-
an Alþýðuflokksins til Félags
ftjálslyndra jafnaðarmanna.
Stefán vill ekki nefna einstak-
linga. „Eg sæki fylgi almennt til
alþýðuflokksfólks og til allra sem
hafa fengið nóg af ríkjandi mis-
rétti og vilja jafnrétti og réttlæti,"
segir Stefán.
Nokkur nöfn eru nefnd í
tengslum við Stefán, þeirra á
meðal Þórður Ólafsson skrif-
stofustjóri, Eiríkur Briem fjár-
málastjóri, Jón Bragi Bjarnason
prófessor og Vilhjálmur Þor-
steinsson „tölvugúrú". Að
ógleymdum tengdaföðurnum
Binna í Blómaverkstæði Binna og
kosningastjóranum Sverri Frið-
þjófssyni í Hinu húsinu.
Höfðað tU unga fólksms
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson er úr
hópi ungliða í samfylkingunni,
kemur úr Alþýðubandalaginu.
Hann segist höfða til unga fólks-
ins, bæði innan Háskóla Islands
og íþróttahreyfingarinnar. Kosn-
ingastjóri hans er Björgvin G.
Sigurðsson, helsti talsmaður
Grósku.
Vilhjálmur er leikmaður í
knattspyrnu í meistaraflokki
Þróttar og sækir stuðning þang-
að, bæði til leikmanna og stjórn-
enda félagsins. Einnig nýtur
hann víðtæks stuðnings í Röskvu,
félags róttækra háskólanema.
Margt fólk úr framhaldsskólun-
um er að vinna fyrir Vilhjálm sem
og margt alþýðubandalagsfólk
eins og Einar Örn Davíðsson, Ar-
mann Jakobsson og Helgi
Hjörvar borgarfulltrúi.
Nútima jafnaðarmenn
Magnús Arni Magnússon er ung-
ur maður á uppleið og situr nú á
Alþingi. Hann sækir sitt fylgi
einkum til unga fólksins í flokkn-
iUfthmratr wJogÁjmihtiláskrtw?-
Á mannamótum segir hann
gjarnan í léttum dúr að hann sé
eini raunverulegi „innfæddi"
kratinn meðal ffambjóðendanna;
hinir séu „innfluttir" eða ekki í
flokknum. Hann er einnig sagður
geta höfðað til fólks sem tilheyrir
gráa svæðinu milli Alþýðuflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins.
„Eg tel mig fyrst og fremst vera
nútímajafnaðarmann og tel mig
geta skírskotað til breiðs hóps
kjósenda, en kannski ekki síst til
ungs fólks og frjálslyndra jafnað-
armanna, fólks sem t.d. fylgdi
Jóni Baldvin Hannibalssyni að
málum,“ segir Magnús Arni.
í kringum Magnús er að finna
fólk á borð við Stefán Hrafn
Hagalín ritstjóra, Hrein Hreins-
son í Grósku, Eirík Bergmann Ei-
ríksson framkvæmdastjóra Iðnó
og Hólmfríði Sveinsdóttur stjórn-
málafræðing í Kvenréttindasam-
bandinu.
Mörður Arnason er í framboði í
hólfí Alþýðuflokksins. Hann hef-
ur ekki opnað kosningaskrifstofu.
Hann segir sitt fylgi koma bæði
úr báðum A-flokkunum og frá
stuðningsfólki Þjóðvaka. Þá nýtur
hann ekki síst stuðnings þeirra
sem ákafast vinna fyrir Össur
Skarphéðinsson. Þeir Mörður
eru gamlir vinir og Mörður kepp-
ir að sæti á eftir Össuri en ekki
við hann.
Einheild
Frambjóðendur Kvennalistans
koma fram sem ein heild og forð-
ast eins og heitan eldinn að draga
hvora aðra í dilka, auk þess sem
prófkjör er óþekkt fyrirbæri hjá
samtökunum. Sex konur bjóða
sig fram í hólf Kvennalistans, en
af þeim eru þrjár taldar standa
best að vígi, Guðný Guðbjörns-
dóttir þingmaður, Guðrún Ög-
mundsdóttir varaborgarfulltrúi
og Hulda Ólafsdóttir sjúkraþjálf-
ari. Allar eiga þær það sameigin-
legt að baldand þeirra er fyrst og
fremst Kvennalistinn sjálfur, þar
sem engir „armar“ eru sagðir fyr-
irfinnast. Engin þeirra vildi nefna
sérstaka stuðningsmenn, en
nokkuð ljóst má telja að sú þeirra
sem tekst að tryggja sér óyggjandi
stuðning Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra stendur
vel að vígi.
„Ég vil ekki nefna einstaklinga
og tel að mitt bakland liggi í
Kvennalistanum í heild. Eg get
þó nefnt að ég hef fengið hvatn-
ingu í tengslum við vinnu mína
hjá Vinnueftirlitinu og sem fyrr-
verandi formaður Félags Is-
lenskra sjúkraþjálfara,“ segir
Hulda.
„I mínum huga skiptir litli
maðurinn jafn miklu máli og ein-
hver nafntogaður. Eg hef fundið
fyrir stuðningi hjá alls konar fólki
og það er breiður hópur. Eg hef í
kringum mig nokkurs konar að-
dáendahóp, en stuðningsyfirlýs-
ingar hafa ekki tíðkast innan
Kvennalistans," segir Guðrún.
„Ég sæki stuðning fyrst og
fremst innan Kvennalistans, en
hef fengið hvatningu frá fólki út
fyrir raðir samtakanna, svo sem
frá sjómönnum, trillukörlum,
kennurum og konum utan sam-
takanna. En að öðru Ieyti fínnst
mér óviðeigandi að nefna sér-
staka hópa eða einstaklinga sem
mína stuðningsmenn," segir
Guðný.
i______________________________j