Dagur - 23.01.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 23.01.1999, Blaðsíða 2
H-LAUGARDAGUR 23. JAXÚAR 1999 SÖGUR OG SAGNIR FREYJA JÓNSDÓTTIR skrifar Myndin á forsíðimni er af dyraloftinu í Laufási, þar sem er eius konar altari. Aðr- ar myudir skýra sig sjálfar, þar sem vel sést að höfðingjasetr- ið sem Laufásvegur tekur nafn af, er ekki síður glæsilegt inuau dyra en utan. Niðjar Þórhalls hiskups og Valgerðar hafa húið í húsiuu og sýnt heimil- iuu sem þau sköpuðu íullan sóma og ríkir þar sami glæsileikiuu og fyrrum. Myudimar tók Guuuar V. Audrés- son fyrir Tímaun árið 1974. Þórhallur Bjarnarson presta- skólakennari, síðar biskup, keypti Móhús 1896. Talið er að býlið hafi dregið nafnið af mó sem tekinn var upp í Vatnsmýr- inni og þurrkaður á holtinu við bæinn. Sama ár byggir Þórhallur hús það sem enn stendur á horni Laufásvegar og Bragagötu. Húsið var keypt tilhöggvið frá Noregi. Hann skírði það Laufás eftir fæð- ingarstað sínum, Laufási við Eyjafjörð. Jafnframt hóf hann búskap og byggði gripahús á Ióð- inni auk heygeymslu. Fjósið rúmaði átta nautgripi sem heyjað var fyrir í landi Laufáss. Eftir að Þórhallur hafði Iátið stækka tún- ið og endurbæta, kom af því góð- ur heyfengur enda náði það alla leið þar sem nú heitir Hljóm- skálagarður. I þá daga var Laufás talsvert utan við þéttbýliskjarn- ann. Þegar Laufásvegur var lagð- ur dró hann nafn sitt af býlinu. I Laufási hafa niðjar Þórhalls Bjarnarsonar og Valgerðar Jóns- dóttur konu hans búið allt fram á þennan dag. Fyrsta brunabótavirðingin á húsinu var gerð 26. júní 1896 þegar það var í byggingu. Þar segir að húsið sé byggt úr bind- ingi, 14 'A x 13 'A álnir að grunn- fleti, klæddum með tvöfaldri borðaklæðningu, með pappa og járni yfir á þijá vegu og með járn- þaki á súð. Þá var búð að setja gólf og loft í húsið og skipta því niður í herbergi, fyrir utan þakloftið sem var einn geymur. Kjallari er undir öllu húsinu. Við vesturhlið hússins eru gaflsvalir með sjónpalli. I september sama ár var bygg- ingu íbúðarhússins lokið. I virð- ingu sem þá var gerð á húsinu segir að á aðalhæð séu þrjú íbúð- arherbergi, eldhús, búr og gang- ur. Herbergin eru með veggja- pappír, þiljuð og máluð og öll með tvöföldum Ioftum. Tvö af herbergjunum eru með pappa í Ioftum og eitt með gifsplötum. A hæðinni eru þrír ofnar og ein eldavél. Uppi eru fimm herbergi, þiljuð og máluð, eitt herbergið er með veggjapappír. Þar eru þrír ofnar. I kjallara eru þrjú herbergi og þvottahús með innmúruðum vatnspotti. Gólf á milli kjallara og hæðar eru öll tvöföld. Á sömu lóð hefur verið byggt hús úr steini og timbri, 9 x 13 álnir að grunnfleti. Austurenda þess á að nota fyrir heygeymslu. Veggir á þeim hluta eru úr bind- ingi klæddir járni og þak er úr jámi á langböndum. Vesturend- inn á þessu húsi er að nokkru leyti bvggður. úr steini og að norðan úr timhri með járnklædd- um vegaunj-eg með járnþaki á langböndum. Þessum hluta hússins er skipt í þrennt, uppi á loftinu er íbúð með þremur þilj- uðum herbergjum. Eitt þeirra er málað og með lítilli eldavél. Und- ir íbúðinni er íjós, allt þiljað að innann, í þvf eru átta básar auk nokkurra bása fyrir kálfa. Undir þessum hluta hússins er kjallari sem í er haughús. Við norðurhlið hússins er byggður skúr úr steini nema gafl- inn sem er úr timbri, hann er með járnþaki á langböndum, 9 x 4 álnir að grunnfleti. Við suðurhliðina er skúr með steinhliðum og timburgafli að framan, grunnflötur 7 'á x 4 áln- ir. Á honum er járnþak á lang- böndum. I íbúðinni á fjósloftinu bjó fjósamaðurinn með sína fjöl- skyldu. Aðal bústofninn í Laufási voru kýr en einnig voru hænsi og tveir til þrír hestar. I Laufási var seld mjólk til bæjarbúa. I Vatnsmýrinni og túninu þar sem Tívolí og Vetrargarðurinn voru síðar reist var beitiland fyrir kýrnar. Þegar búskap var hætt í Laufási félck Geir í Eskihlíð afnot af hluta Iandsins. Árið eftir að Þórhallur Bjarnar- son varð biskup byggði hann stóra viðbyggingu við austurgafl íbúðarhússins sem var bruna- metin í október 1909. Hún er 14 'A x 9 'á álnir að grunnfleti, tví- lyft með risi, byggð af bindingi klædd með plægðum borðum og járni yfir bæði á þaki og á þrem- ur hliðum. MiIIigólf er í öllum bitalögum. Niðri eru tvö íbúðar- herbergi og gangur, í norðara herberginu var skrifstofa biskups en kölluð biskupastofa, allt þiljað og með striga og pappír á veggj- um og loftum. Allt málað. Þar er einn ofn. Uppi eru tvö íbúðarher- bergi, einn fastur skápur og gangur sem allt er með sama frá- gangi og niðri. Þar eru tveir ofn- ar. Kjallari er undir allri viðbygg- ingunni, kalkdreginn að innan og hólfaður í þrennt. Við norðurhlið er inngönguskúr með risi og byggður eins. í honum er einn gangur niðri og íbúðarherbergi uppi, þiljað og málað. Kjallari er þar undir sem í er salerni, gang- ur og geymslukompa. Þórhallur Bjarnarson var fædd- ur 2. desember 1855 sonur Bjöms Halldórssonar skálds og prests í Laufási við Eyjafjörð og konu hans Sigríðar Einarsdóttur frá Saltvík á Tjörnesi. Hann varð stúdent frá Reykjavíkurskóla 1871 og lauk guðfræðiprófi frá Hafnarháskóla árið 1883. Þór- hallur var stundakennari við Lærða skólann í Reykjavík, síðan prestur í Reykholti frá 18. mars 1884 til 19. mars 1885, var einnig skipaður prófastur í Borg- arfjarðarsýslu. Hann var í eitt ár prestur á Akureyri og um tíma kennari í prestaskólanum og dómkirkjuprestur í Reykjavík. Skipaður lektor frá 30. maí 1894. Þórhallur Bjarnarson varð biskup 19. september 1908 og gegndi því embætti til æviloka. Hann var formaður Búnaðarfé- lags íslands frá 1900 til 1907. Með biskupsembættinu og bú- skapnum stundaði Þórhallur rit- störf og eftir hann er til mikið af frumsömdum og þýddum bókum og greinum. Kona Þórhalls var Valgerður, dóttir Jóns Halldórs- sonar hreppstjóra á Bjarnastöð- um í Bárðardal og konu hans Hólmfríðar Hansdóttur. Jón lést af slysförum áður en börn hans voru uppkomin og fór Valgerður tveggja ára gömul í fóstur til Tryggva Gunnarssonar banka- stjóra. Börn Þórhalls og Valgerðar voru: Tryggvi, prestur að Hesti í Borgarfirði, síðar forsætisráð- herra og bankastjóri; Svava kona Halldórs Vilhjálmssonar skóla- stjóra á Hvanneyri; Björn sem lést í Noregi 1916 og Dóra kona Ásgeirs Ásgeirssonar sem síðar varð forseti íslands. Valgerður Jónsdóttir lést 28. janúar 1913. Þórhallur Bjarnason biskup lést 15. desember 1916. Að föður sínum látnum fluttist Tryggvi, eldri sonurinn, með ljöl- skyldu sína frá Hesti til Reykja- víkur og tók við búi í Laufási. Hann var síðan settur dósent við guðfræðideild Háskólans frá des- ember 1916 til september 1917. Tryggvi var ritstjóri Tímans sem þá var nýstofnað stjórnmálablað og gengdi því starfi til ársins Úllen, dúllen, doff... Hfcw m m Er það þannig sem þú velur þér vörsluaðila fyrir þinn lífeyrissparnað? • Hér er vænlegri leið. • Kynntu þér ávöxtun hinna ýmsu sjóða undanfarin ár. • Avöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um ávöxtun í framtíð, en ... • gefur til kynna að árangursríkri fjárfestingarstefnu hafi verið fylgt. • Það er einfaldlega ekki um aðra betri leið að ræða til þess að velja vörsluaðila. • Því skaltu ekki nota "úllen dúllen doff". Kynntu þér því Lífeyrissjóðinn Hlíf! Raunávöxtun Hlífar: 1993 8,95% 1994 9,93% 1995 7,93% 1996 17,3% 1997 13,5% Meðaltöl raunávöxtunar Hlífar: 5 ár 11,5% 4 ár 12,2% 3 ár 12,9% 2 ár 15,4% Rekstrarkostnaður: 0,17% af eign Lífeyrissjóðurinn Hlíf var stofnaður árið 1963 og stendur því á gömlum merg. Séreignardeildin var stofnuð 30. júní 1998 og hefur nú þegar fengið nokkrar milljónir til vörslu. Þú ert boðin(n) velkominn í sjóðinn til okkar. Athugið: Allir sem eru með persónubundinn kjarasamninggeta einnig greitt samtryggingargjaldið (10% )t Lífeyrissjóðinn Hlif. Lífeyrissjóðurinn Hlíf, Borgartúni 18,105 Reykjavík. Kennit. 620169-3159. Sími 562-9952, fax 562-9096, netfang: valdimar@hlif.rl.is

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.