Dagur - 23.01.1999, Blaðsíða 6
VI-LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999
MINNINGA GREINAR
Jóhann Kristtnsson
frá Austurhlíð
Jóhann Kristinsson fæddist 24.
maí 1958 í Austurhlíð í Bisk-
upstungum og lést 30. des
1998. Foreldrar Jóhanns eru
Kristinn Ingvarsson f. 1922 og
Sigríður Guðmundsdóttir f.
1934, bændur í Austurhlíð. Jó-
hann var annar í röð fjögurra
systkina: Magnús f. 1953, Guð-
mundur f. 1962, d. 1973 og
Kristín Heiða f. 1964.
Jóhann var ókvæntur og barn-
laus. Hann stundaði búskap
alla sína tíð í Austurhlíð ásamt
foreldrum sínum og Magnúsi
bróður sínum.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Þegar blánaði yfir berjamó
bemskunnar fórum við krakkarn-
ir í túninu ósjaldan upp í fjall og
kepptumst við að fylla krúsir okk-
ar af þessum ávöxtum jarðarinnar
sem biðu eftir því að mæta vörum
okkar eða skreyta skyrið heima á
bæjunum. Við þessar aðstæður
var gott að eiga stóran bróður sem
vissi manna best hvar gjöfulustu
lyngin var að finna og hann var
fús til að aðstoða litla putta sem
gekk illa að koma höndum yfir
skoppandi berin. Og þegar við
fórum öll saman arkandi yfir
blauta mýrina niður að tjörn til að
veiða silung, varstu leiðtoginn í
broddi fylkingar og við stubbarnir
Iögðum mikið á okkur til að halda
í við þig, þú varst svo stórstígur og
fórst svo létt með að stökkva yfir
keldumar en það var spurning um
að halda mannorðinu að komast
með tærnar þar sem þú hafðir
hælana. Svo mikið litum við upp
til þín. En aldrei sýndir þú okkur
yfirgang þó þú létir okkur stund-
um spenna bogann til fulls og
alltaf komstu til hjálpar ef hindr-
unin var óyfirstíganleg fyrir klof-
stutta. Eg get enn fundið fyrir að-
dáuninni sem fór um sál og lík-
ama þegar þú sviftir mér yfir
botnlaust dý eða kastaðir mér yfir
einhvern skurðinn. Svo átaka-
laust og eins og þú hefðir þetta
allt í hendi þér. I seinni tíð fann
ég svipaða tilfinningu þegar þú
Ieiddir okkur Grámúsarflokkinn
um fjöll og firnindi þar sem þú
þekktir hverja þúfu og hvern
stein. Naust þín vel í hlutverki
kóngsins með jöfnuð að Ieiðar-
ljósi. Settir okkur þó eina ófrávíkj-
anlega reglu: I hestaferðum inn
til fjalla mátti engin klukka vera
meðferðis. Stemmningin hveiju
sinni átti að ráða ferðinni en ekki
vísir á skífu. Þetta er góð regla
sem þessi fámenni flokkur verður
nú að reyna að halda í heiðri en
við fráfall þitt erum við nánast
eins og höfuðlaus her. En eitt er
víst, það verður oft áð í Grámús-
arferðum framtíðarinnar og
drukkin skál í minningu kóngsins.
Það er af miklu að taka þegar
horft er til baka og ég geymi allar
góðu minningarnar sem ég á um
þig og með þér, í fráteknu hólfi í
hjartanu og geng að þeim vísum
þegar mig langar að hafa þig hjá
mér. Eg veit ekki hvar ég á að
byija þakkarlistann en ég þakka
þér sérstaklega velvildina við
börnin mín, Melkorku og Kristin.
Þakka þér það traust sem þú
sýndir mér með því að fá mig
alltaf til ykkar á vorin til að að-
stoða við sauðburðinn, og veita
mér þannig árlega sálarhreinsun.
Þakka þér fyrir að draga mig upp
í hlíðar Högnhöfðans og annarra
íjalla og láta mig öskra, svitna og
hlaupa á eftir óþægum rollum.
Þakka þér alla reiðtúrana og allan
sönginn. Þakka þér öll snörpu
skoðanaskiptin um landsins gagn
og nauðsynjar. Þakka þér alla
kjötskrokkana sem þú hefur fært
mér í gegnum tíðina. En ég þakka
þér fyrst og síðast bróðurþelið
hlýja og trygga.
Eg má til með að vitna í lokin í
Einar gamla Ben. því á góðum
stundum varstu nánast í beinu
sambandi við hann:
Svo há og vtð er hjartans auða borg,
að hvergi kennir rjáfurs eða veggjar.
En leiti eg manns, ég lít um múgans
torg;
þar lifir kraftur, sem minn vilja
eggjar.
Hvað vita þessir menn um sælu og
sorg,
er supu aldrei lífsins veig í dreggjar.
Ég þrái dýrra vín og nýja vini
og vel mér sessunaut af Háva kyni.
Elsku Jói, síðustu þijú árin hef-
ur þrengt harkalega að því oln-
bogarými sem þér hefur alltaf ver-
ið nauðsynlegt. Ég virði þínar
ákvarðanir sem ekki voru alltaf
eins og við hin vildum hafa þær
og svo var einnig um þína síðustu
ákvörðun í þessu lífi. Það verður
jú hver að ráða sínum næturstað.
Þin systir, Kristín Heiða.
***
„Að hittast og gleðjast hér umfáa
daga,
að heilsast og kveðjast það er lífsins
saga.“
Einhversstaðar standa þessi orð
og koma þau mér oft í hug þegar
ég heyri andlát náinna ættingja.
Svo er einnig nú þegar Jóhann
bróðir minn hefur fallið frá fyrir
aldur fram. Eitt af því dýrmætasta
sem við mannanna börn eigum er
heilsan og ef hún bregst verða
málin alvarleg. Það gerðist hjá þér
elsku Jói minn. Heilsan brást þér
illilega fyrir þremur og hálfu ári
síðan, sú þrautaganga er fyrst og
fremst búin að vera þér og okkur
sem næst þér stóðum, mjög erfið-
ur tími. Að Ieiðarlokum óska ég
þess og við trúum því öll að þeim
þrautum sé nú lokið. Þegar leiðir
skilja Jói minn, hrannast minn-
ingamar að mér. Þú varst nátt-
úrubam af Guðs náð, mér fannst
þú vera fæddur náttúrufræðingur.
Sjálf náttúran og skepnurnar voru
þér hugleiknar og þar bar hæst
sauðkindina, hún var númer eitt
hjá þér til lokadags. Enda voru
horn af sauðkindum og leggir af
hrossum það fyrsta sem þú fórst
að leika þér að sem barn. Þú trúð-
ir statt og stöðugt á þetta drifhvíta
náttúruíyrirbæri. Þær eru orðnar
æði margar elsku bróðir, haust-
leitimar okkar saman inn á há-
lendið. Þá vorum við báðir £ ess-
inu okkar, oft með fallega dilka á
undan okkur og við veltum fyrir
okkur hvað þetta eða hitt lambið
væri með góð læri eða gott bak.
Þetta eru dýrmætar minningar
sem ég bróðir þinn geymi með
sjálfum mér og þær verða ekki frá
mér teknar. Foreldrar okkar eign-
uðust Qögur börn og nú eftir
dauða þinn stöndum við aðeins
tvö eftir á lífi úr þeim systkinahóp
því við misstum Guðmund bróður
árið 1973. Megi góður Guð
styrkja foreldra mína í þessari
miklu sorg sem nú knýr dyra í
annað sinn.
Elsku Jói minn, við höfum ver-
ið hlið við hlið í 40 ár, nánast
óslitið. Eg sakna þín sárt en ég
hugga mig við að þú sért laus við
þær miklu þjáningar sem fylgdu
sjúkdómi þínum. Við skiljum um
stund en hittumst aftur síðar og
þá förum við á brúnum viljugum
gæðingum að smala sauðfé. Sæll
að sinni kæri bróðir.
Þinn bróðir Maggi
Austurhlíð.
***
Fátt er það sem er sjálfgefið í
þessum heimi og ef til vill einna
síst traust vinátta.
Þó virðist hún svo sjálfsögð og
án allra tímamarka meðan hún
varir að hún verður órjúfanlegur
hluti af daglega lífinu. Dauðinn
sem hins vegar er sjálfgefinn, er
okkur alla jafna svo fjarlægur að
við leiðum ekki hugann að hon-
um dags daglega.
Vorið 1986 kom ég fyrst að
Austurhlíð og kynntist þá heimil-
isfólkinu þar lítillega en auðfund-
ið var á falslausu og yfirveguðu
andrúmslofti að þar bjó gæðafólk
sem kunni að taka á móti gestum.
Haustið eftir hófust svo kynni
okkar fyrir alvöru þegar við fórum
að smala með þeim nokkra daga
inn í Úthlíðarhraun, Brúarár-
skörð og næsta nágrenni. Upp frá
því þróuðust kynni okkar í djúp-
stæða vináttu sem byggð er á
traustum grunni.
Við Jói urðum mjög nánir og
persónulegir vinir, höfðum í
grundvallaratriðum sömu lífsvið-
horf og áhugamál. Það sem ein-
kenndi Jóa vin minn var að hann
var ekki staðlaður eins og flestir í
dag og ekki var hann steyptur í
sama mót eins og þeir sem byrja
kornungir á leikskólum og eru
upp frá því mataðir á skoðunum
og námsefni.
Hann kynnti sér þá hluti sem
hugur hans stóð til og dró sínar
eigin ályktanir og gat verið mjög
rökfastur þó skoðanir hans sam-
ræmdust ekki hugmyndum Qöld-
ans. Alltaf var hann dlbúinn að
taka upp hanskann fyrir þá sem
minna máttu sín og stundum svo
rækilega að mér fannst úr hófi
keyra. Einn var sá kostur Jóa sem
mér virðist vera á miklu undan-
haldi í okkar samfélagi, en það var
að tala helst aldrei illa um fólk
sama hvemig það hafði hagað sér
eða komið fram við hann. Hann
einfaldlega vorkenndi því og ef
hann vildi benda manni á eða
kenna manni eitthvað, þá var það
gert á mjög nærgætinn hátt.
Eitt bros- getur dimmu t dagsljós
breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð i nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur i brjósti,
sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
/ Ive iðrar margt lif eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
(Einar Ben. úr Einræðum Starkaðar)
Jói var sérstaklega hjartahlýr,
barngóður og næmur á tilfinning-
ar annarra. Hann tók það mjög
nærri sér ef einhverjum í kringum
hann leið illa og heilsu og velferð
annarra lét hann sig miklu skipta.
Það skýrir ef til vill að einhverju
leyti afstöðu hans til síns eigin
sjúkdóms. Hann gerði í aðalatrið-
um aðeins tvær kröfur til lífsins,
að vera heilbrigður og að vera
bóndi, þess vegna sætti hann sig
aldrei við sjúkdóminn sem gerði
honum í rauninni hvorugt kleift.
Jói var fyrst og fremst sauðijár-
bóndi enda sauðljárrækt honum í
blóð borin. Hann hafði sérstakt
dálæti á hrútum og átti ávallt af-
bragðs fé, eins og vigtarseðlar síð-
ustu hausta bera glöggt vitni. En
hrossin skipuðu líka stóran sess í
lífi Jóa, honum gekk vel í sinni
hrossarækt þó ekki væri hún stór
í sniðum eða löguð að kröfum
markaðarins, heldur hafði hann
sín eigin markmið. Kröfurnar
voru miklar um vilja, þol og mýkt
sem hann taldi vera á hröðu und-
anhaldi í hrossaræktinni almennt.
Það voru hans bestu stundir þeg-
ar hann var vel ríðandi í góðra
vina hóp á fjöllum og margar
óborganlegar minningar eigum
við úr fjölmörgum hestaferðalög-
um og smalamennskum þar sem
hann var ávallt titlaður kóngur-
inn. I Fákum Einars Benedikts-
sonar er meðal annars komist svo
að orði:
Sá drekkur hvem gleðinnar dropa í
grunn,
sem dansar áfákspori yfir grund.
í mannsbarminn streymir sem
aðfalls unn
af afli hestsins og göfugu lund.
Maðurinn einn er ei nema hálfur,
með öðrum er hann meiri en hann
sjálfur. Og knap-
inn á hestbaki er kóngur
um stund,
kórónulaus á hann riki og álfur.
Kæri vinur, ég gæti haldið
endalaust áfram að segja frá þér
og okkar samskiptum og vináttu
en ég held að þér þætti ég vera
kominn nú þegar langt yfir strik-
ið, því það var ekki þín deild að
hæla þér eða sitja undir einhveij-
um lofrullum eins og þú orðaðir
það.
Vertu sæll kæri vinur, minning-
in um góðan dreng og traustan
vin skipar stóran sess í lífi okkar.
Það skarð sem nú hefur myndast
í vinahópinn verður ekki fyllt í
þessu lífi.
Þínir vinir, Grétar, Ollý
og böm.
***
Sú dapurlega frétt barst um Bisk-
upstungur á næstsfðasta degi ný-
liðins árs að Jói í Austurhlíð hefði
kvatt heiminn þá um morguninn.
Það er erfitt að átta sig á þessum
kalda veruleika.
Við Jói höfum þekkst svo lengi
sem ég man eftir mér, enda hefur
samgangur milli Helludals og
Austurhlíðar verið mikill í gegn-
um tíðina og aldrei borið þar
skugga á. Jói hafði sjö ár fram yfir
mig í aldri og hefur hann því ver-
ið innan við fermingu þegar ég
man fyrst eftir honum. Allar göt-
ur síðan hefur hann verið sjálf-
sagður hluti af mínu nágrenni.
Þegar ég minnist hans kemur
fyrst upp í hugann hans hlýja við-
mót og hvað hann var góður og
tryggur félagi. Hann var fróður og
tók vel eftir öllu sem fyrir augu
hans bar og hafði skoðanir á
flestu, maður kom ekki að tóm-
um kofunum þegar maður ræddi
við Jóa, þó ekld værum við alltaf
sammála. Það sem oftast bar á
góma í okkar umræðum var land-
búnaðarpólitíkin og þar með
byggðaþróun á Islandi. Það kom
líka fyrir að við ræddum við-
kvæmari og persónulegri mál.
Það var innihald í öllu sem hann
sagði, ekkert bull, hann ígrundaði
vel sínar meiningar og stóð fast á
sínu. Mannþekkjari var hann
góður, tók vel eftir einkennum
fólks. Hann var mildur í dómum
Ui i f.y i I
sínum um náungann, honum var
tamt að taka málstað þeirra er
minna máttu sín, enda alinn upp
með slíkt viðhorf að leiðarljósi.
Eg fer ósjálfrátt að bera okkur
Jóa saman og sé að við áttum
býsna margt sameiginlegt. Báðir
miklir dreifbýlismenn, við unnum
okkar átthögum og vildum helst
ekki annars staðar búa. Við trúð-
um á landbúnaðinn og byrjuðum
báðir barnungir að stunda bú-
skap af kappi, en örlögin hafa
hagað því þannig til hjá okkur
báðum að við erum horfnir til
annarra starfa þó þau kaflaskipti
hafi orðið með ólíkum hætti.
Jói var eitt af mestu náttúru-
börnum sem ég hef kynnst, hann
var vel að sér um jarðsöguna,
gróðurríkið og ekki síst dýraríkið.
Því kynntist maður best í ógleym-
anlegum smalamennskum, sem
við fórum saman um Úthlíðar-
hraun og aðrar slóðir, stundum
bara tveir, þá náðum við afar vel
saman. Jói var rammíslenskur
bóndi í húð og hár. Sauðfjárrækt-
in var hans fag og hans helsta
áhugamál. Hann var mjög íjár-
glöggur. Til marks um það þá
þekkti Jói mínar kindur mun bet-
ur en ég sjálfur svo ég mátti oft
skammast mfn. Það þurfti því
ekki að undra að í fjárbúskapnum
náði hann árangri sem verður
honum alltaf til sóma, fjárstofn-
inn hans var slíkur að ég hygg að
ekki sé ofsagt að hann hafi nálg-
ast landsmælikvarða hvað varðar
afurðir og myndarleika.
Jói var hagur til allra verka og
snyrtimennska var honum í blóð
borin og má ég ekki gleyma að
minnast þess hversu greiðvikinn
hann var, hann lagði fram mörg
dagsverk þegar ég var að basla í
minni uppbyggingu, það stóð
alltaf til að ég gerði honum greiða
í staðinn, en ég er hræddur um
að þar sé ég enn í skuld.
Fyrir fáeinum árum fór Jói að
kenna sér meins sem reyndist
honum þungbært. Það er alltaf
jafn sárt að finna hvað mannanna
gæðum er misskipt, ekki síst þeg-
ar fólk í blóma lífsins þarf að þola
slíkar þjáningar að þvf verður ekki
vært og getur ekki lifað sínu lífi
með eðliíegum hætti. Og sárt er
að geta ekki orðið vini að liði í
slíkum erfiðleikum.
Jói minn, í mínum huga skilur
þú eftir skarð sem erfitt verður að
fylla. Fyrir okkur sem þekktum
þig ert þú persóna sem ekki er
hægt að gleyma, við huggum okk-
ur við að nú hefur þú verið leyst-
ur frá þrautum og framundan hjá
þér er iíf sem verður þér Iéttbær-
ara.
Þakka þér fyrir samfylgdina.
Þeir bræðurnir Steini og faðir
minn vilja þakka af heilum hug
þær góðu samverustundir sem
þeir áttu með þér. Þeim varstu
tryggur.
Kæru vinir Sigga, Kristinn,
Stína, Maggi, Rósa, Ingvar og
systkinabörnin. Ykkar missir er
mestur og mikið hefur verið á
ykkar herðar Iagt í veikindum Jóa.
Mín samúð er öll hjá ykkur. Erfitt
er að finna orð sem eiga við á svo
erfiðum tímum, Iífið verður að fá
að halda áfram. Eg vona að góðar
vættir styrki ykkur í sorginni og
hjálpi ykkur að horfa fram á veg-
inn.
Blessuð veri minning Jóa í
Austurhlíð.
Kristófer Tótnasson.