Dagur - 23.01.1999, Page 6

Dagur - 23.01.1999, Page 6
VI-LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 MINNINGA GREINAR Jóhann Kristtnsson frá Austurhlíð Jóhann Kristinsson fæddist 24. maí 1958 í Austurhlíð í Bisk- upstungum og lést 30. des 1998. Foreldrar Jóhanns eru Kristinn Ingvarsson f. 1922 og Sigríður Guðmundsdóttir f. 1934, bændur í Austurhlíð. Jó- hann var annar í röð fjögurra systkina: Magnús f. 1953, Guð- mundur f. 1962, d. 1973 og Kristín Heiða f. 1964. Jóhann var ókvæntur og barn- laus. Hann stundaði búskap alla sína tíð í Austurhlíð ásamt foreldrum sínum og Magnúsi bróður sínum. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þegar blánaði yfir berjamó bemskunnar fórum við krakkarn- ir í túninu ósjaldan upp í fjall og kepptumst við að fylla krúsir okk- ar af þessum ávöxtum jarðarinnar sem biðu eftir því að mæta vörum okkar eða skreyta skyrið heima á bæjunum. Við þessar aðstæður var gott að eiga stóran bróður sem vissi manna best hvar gjöfulustu lyngin var að finna og hann var fús til að aðstoða litla putta sem gekk illa að koma höndum yfir skoppandi berin. Og þegar við fórum öll saman arkandi yfir blauta mýrina niður að tjörn til að veiða silung, varstu leiðtoginn í broddi fylkingar og við stubbarnir Iögðum mikið á okkur til að halda í við þig, þú varst svo stórstígur og fórst svo létt með að stökkva yfir keldumar en það var spurning um að halda mannorðinu að komast með tærnar þar sem þú hafðir hælana. Svo mikið litum við upp til þín. En aldrei sýndir þú okkur yfirgang þó þú létir okkur stund- um spenna bogann til fulls og alltaf komstu til hjálpar ef hindr- unin var óyfirstíganleg fyrir klof- stutta. Eg get enn fundið fyrir að- dáuninni sem fór um sál og lík- ama þegar þú sviftir mér yfir botnlaust dý eða kastaðir mér yfir einhvern skurðinn. Svo átaka- laust og eins og þú hefðir þetta allt í hendi þér. I seinni tíð fann ég svipaða tilfinningu þegar þú Ieiddir okkur Grámúsarflokkinn um fjöll og firnindi þar sem þú þekktir hverja þúfu og hvern stein. Naust þín vel í hlutverki kóngsins með jöfnuð að Ieiðar- ljósi. Settir okkur þó eina ófrávíkj- anlega reglu: I hestaferðum inn til fjalla mátti engin klukka vera meðferðis. Stemmningin hveiju sinni átti að ráða ferðinni en ekki vísir á skífu. Þetta er góð regla sem þessi fámenni flokkur verður nú að reyna að halda í heiðri en við fráfall þitt erum við nánast eins og höfuðlaus her. En eitt er víst, það verður oft áð í Grámús- arferðum framtíðarinnar og drukkin skál í minningu kóngsins. Það er af miklu að taka þegar horft er til baka og ég geymi allar góðu minningarnar sem ég á um þig og með þér, í fráteknu hólfi í hjartanu og geng að þeim vísum þegar mig langar að hafa þig hjá mér. Eg veit ekki hvar ég á að byija þakkarlistann en ég þakka þér sérstaklega velvildina við börnin mín, Melkorku og Kristin. Þakka þér það traust sem þú sýndir mér með því að fá mig alltaf til ykkar á vorin til að að- stoða við sauðburðinn, og veita mér þannig árlega sálarhreinsun. Þakka þér fyrir að draga mig upp í hlíðar Högnhöfðans og annarra íjalla og láta mig öskra, svitna og hlaupa á eftir óþægum rollum. Þakka þér alla reiðtúrana og allan sönginn. Þakka þér öll snörpu skoðanaskiptin um landsins gagn og nauðsynjar. Þakka þér alla kjötskrokkana sem þú hefur fært mér í gegnum tíðina. En ég þakka þér fyrst og síðast bróðurþelið hlýja og trygga. Eg má til með að vitna í lokin í Einar gamla Ben. því á góðum stundum varstu nánast í beinu sambandi við hann: Svo há og vtð er hjartans auða borg, að hvergi kennir rjáfurs eða veggjar. En leiti eg manns, ég lít um múgans torg; þar lifir kraftur, sem minn vilja eggjar. Hvað vita þessir menn um sælu og sorg, er supu aldrei lífsins veig í dreggjar. Ég þrái dýrra vín og nýja vini og vel mér sessunaut af Háva kyni. Elsku Jói, síðustu þijú árin hef- ur þrengt harkalega að því oln- bogarými sem þér hefur alltaf ver- ið nauðsynlegt. Ég virði þínar ákvarðanir sem ekki voru alltaf eins og við hin vildum hafa þær og svo var einnig um þína síðustu ákvörðun í þessu lífi. Það verður jú hver að ráða sínum næturstað. Þin systir, Kristín Heiða. *** „Að hittast og gleðjast hér umfáa daga, að heilsast og kveðjast það er lífsins saga.“ Einhversstaðar standa þessi orð og koma þau mér oft í hug þegar ég heyri andlát náinna ættingja. Svo er einnig nú þegar Jóhann bróðir minn hefur fallið frá fyrir aldur fram. Eitt af því dýrmætasta sem við mannanna börn eigum er heilsan og ef hún bregst verða málin alvarleg. Það gerðist hjá þér elsku Jói minn. Heilsan brást þér illilega fyrir þremur og hálfu ári síðan, sú þrautaganga er fyrst og fremst búin að vera þér og okkur sem næst þér stóðum, mjög erfið- ur tími. Að Ieiðarlokum óska ég þess og við trúum því öll að þeim þrautum sé nú lokið. Þegar leiðir skilja Jói minn, hrannast minn- ingamar að mér. Þú varst nátt- úrubam af Guðs náð, mér fannst þú vera fæddur náttúrufræðingur. Sjálf náttúran og skepnurnar voru þér hugleiknar og þar bar hæst sauðkindina, hún var númer eitt hjá þér til lokadags. Enda voru horn af sauðkindum og leggir af hrossum það fyrsta sem þú fórst að leika þér að sem barn. Þú trúð- ir statt og stöðugt á þetta drifhvíta náttúruíyrirbæri. Þær eru orðnar æði margar elsku bróðir, haust- leitimar okkar saman inn á há- lendið. Þá vorum við báðir £ ess- inu okkar, oft með fallega dilka á undan okkur og við veltum fyrir okkur hvað þetta eða hitt lambið væri með góð læri eða gott bak. Þetta eru dýrmætar minningar sem ég bróðir þinn geymi með sjálfum mér og þær verða ekki frá mér teknar. Foreldrar okkar eign- uðust Qögur börn og nú eftir dauða þinn stöndum við aðeins tvö eftir á lífi úr þeim systkinahóp því við misstum Guðmund bróður árið 1973. Megi góður Guð styrkja foreldra mína í þessari miklu sorg sem nú knýr dyra í annað sinn. Elsku Jói minn, við höfum ver- ið hlið við hlið í 40 ár, nánast óslitið. Eg sakna þín sárt en ég hugga mig við að þú sért laus við þær miklu þjáningar sem fylgdu sjúkdómi þínum. Við skiljum um stund en hittumst aftur síðar og þá förum við á brúnum viljugum gæðingum að smala sauðfé. Sæll að sinni kæri bróðir. Þinn bróðir Maggi Austurhlíð. *** Fátt er það sem er sjálfgefið í þessum heimi og ef til vill einna síst traust vinátta. Þó virðist hún svo sjálfsögð og án allra tímamarka meðan hún varir að hún verður órjúfanlegur hluti af daglega lífinu. Dauðinn sem hins vegar er sjálfgefinn, er okkur alla jafna svo fjarlægur að við leiðum ekki hugann að hon- um dags daglega. Vorið 1986 kom ég fyrst að Austurhlíð og kynntist þá heimil- isfólkinu þar lítillega en auðfund- ið var á falslausu og yfirveguðu andrúmslofti að þar bjó gæðafólk sem kunni að taka á móti gestum. Haustið eftir hófust svo kynni okkar fyrir alvöru þegar við fórum að smala með þeim nokkra daga inn í Úthlíðarhraun, Brúarár- skörð og næsta nágrenni. Upp frá því þróuðust kynni okkar í djúp- stæða vináttu sem byggð er á traustum grunni. Við Jói urðum mjög nánir og persónulegir vinir, höfðum í grundvallaratriðum sömu lífsvið- horf og áhugamál. Það sem ein- kenndi Jóa vin minn var að hann var ekki staðlaður eins og flestir í dag og ekki var hann steyptur í sama mót eins og þeir sem byrja kornungir á leikskólum og eru upp frá því mataðir á skoðunum og námsefni. Hann kynnti sér þá hluti sem hugur hans stóð til og dró sínar eigin ályktanir og gat verið mjög rökfastur þó skoðanir hans sam- ræmdust ekki hugmyndum Qöld- ans. Alltaf var hann dlbúinn að taka upp hanskann fyrir þá sem minna máttu sín og stundum svo rækilega að mér fannst úr hófi keyra. Einn var sá kostur Jóa sem mér virðist vera á miklu undan- haldi í okkar samfélagi, en það var að tala helst aldrei illa um fólk sama hvemig það hafði hagað sér eða komið fram við hann. Hann einfaldlega vorkenndi því og ef hann vildi benda manni á eða kenna manni eitthvað, þá var það gert á mjög nærgætinn hátt. Eitt bros- getur dimmu t dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð i nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur i brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. / Ive iðrar margt lif eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Ben. úr Einræðum Starkaðar) Jói var sérstaklega hjartahlýr, barngóður og næmur á tilfinning- ar annarra. Hann tók það mjög nærri sér ef einhverjum í kringum hann leið illa og heilsu og velferð annarra lét hann sig miklu skipta. Það skýrir ef til vill að einhverju leyti afstöðu hans til síns eigin sjúkdóms. Hann gerði í aðalatrið- um aðeins tvær kröfur til lífsins, að vera heilbrigður og að vera bóndi, þess vegna sætti hann sig aldrei við sjúkdóminn sem gerði honum í rauninni hvorugt kleift. Jói var fyrst og fremst sauðijár- bóndi enda sauðljárrækt honum í blóð borin. Hann hafði sérstakt dálæti á hrútum og átti ávallt af- bragðs fé, eins og vigtarseðlar síð- ustu hausta bera glöggt vitni. En hrossin skipuðu líka stóran sess í lífi Jóa, honum gekk vel í sinni hrossarækt þó ekki væri hún stór í sniðum eða löguð að kröfum markaðarins, heldur hafði hann sín eigin markmið. Kröfurnar voru miklar um vilja, þol og mýkt sem hann taldi vera á hröðu und- anhaldi í hrossaræktinni almennt. Það voru hans bestu stundir þeg- ar hann var vel ríðandi í góðra vina hóp á fjöllum og margar óborganlegar minningar eigum við úr fjölmörgum hestaferðalög- um og smalamennskum þar sem hann var ávallt titlaður kóngur- inn. I Fákum Einars Benedikts- sonar er meðal annars komist svo að orði: Sá drekkur hvem gleðinnar dropa í grunn, sem dansar áfákspori yfir grund. í mannsbarminn streymir sem aðfalls unn af afli hestsins og göfugu lund. Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur. Og knap- inn á hestbaki er kóngur um stund, kórónulaus á hann riki og álfur. Kæri vinur, ég gæti haldið endalaust áfram að segja frá þér og okkar samskiptum og vináttu en ég held að þér þætti ég vera kominn nú þegar langt yfir strik- ið, því það var ekki þín deild að hæla þér eða sitja undir einhveij- um lofrullum eins og þú orðaðir það. Vertu sæll kæri vinur, minning- in um góðan dreng og traustan vin skipar stóran sess í lífi okkar. Það skarð sem nú hefur myndast í vinahópinn verður ekki fyllt í þessu lífi. Þínir vinir, Grétar, Ollý og böm. *** Sú dapurlega frétt barst um Bisk- upstungur á næstsfðasta degi ný- liðins árs að Jói í Austurhlíð hefði kvatt heiminn þá um morguninn. Það er erfitt að átta sig á þessum kalda veruleika. Við Jói höfum þekkst svo lengi sem ég man eftir mér, enda hefur samgangur milli Helludals og Austurhlíðar verið mikill í gegn- um tíðina og aldrei borið þar skugga á. Jói hafði sjö ár fram yfir mig í aldri og hefur hann því ver- ið innan við fermingu þegar ég man fyrst eftir honum. Allar göt- ur síðan hefur hann verið sjálf- sagður hluti af mínu nágrenni. Þegar ég minnist hans kemur fyrst upp í hugann hans hlýja við- mót og hvað hann var góður og tryggur félagi. Hann var fróður og tók vel eftir öllu sem fyrir augu hans bar og hafði skoðanir á flestu, maður kom ekki að tóm- um kofunum þegar maður ræddi við Jóa, þó ekld værum við alltaf sammála. Það sem oftast bar á góma í okkar umræðum var land- búnaðarpólitíkin og þar með byggðaþróun á Islandi. Það kom líka fyrir að við ræddum við- kvæmari og persónulegri mál. Það var innihald í öllu sem hann sagði, ekkert bull, hann ígrundaði vel sínar meiningar og stóð fast á sínu. Mannþekkjari var hann góður, tók vel eftir einkennum fólks. Hann var mildur í dómum Ui i f.y i I sínum um náungann, honum var tamt að taka málstað þeirra er minna máttu sín, enda alinn upp með slíkt viðhorf að leiðarljósi. Eg fer ósjálfrátt að bera okkur Jóa saman og sé að við áttum býsna margt sameiginlegt. Báðir miklir dreifbýlismenn, við unnum okkar átthögum og vildum helst ekki annars staðar búa. Við trúð- um á landbúnaðinn og byrjuðum báðir barnungir að stunda bú- skap af kappi, en örlögin hafa hagað því þannig til hjá okkur báðum að við erum horfnir til annarra starfa þó þau kaflaskipti hafi orðið með ólíkum hætti. Jói var eitt af mestu náttúru- börnum sem ég hef kynnst, hann var vel að sér um jarðsöguna, gróðurríkið og ekki síst dýraríkið. Því kynntist maður best í ógleym- anlegum smalamennskum, sem við fórum saman um Úthlíðar- hraun og aðrar slóðir, stundum bara tveir, þá náðum við afar vel saman. Jói var rammíslenskur bóndi í húð og hár. Sauðfjárrækt- in var hans fag og hans helsta áhugamál. Hann var mjög íjár- glöggur. Til marks um það þá þekkti Jói mínar kindur mun bet- ur en ég sjálfur svo ég mátti oft skammast mfn. Það þurfti því ekki að undra að í fjárbúskapnum náði hann árangri sem verður honum alltaf til sóma, fjárstofn- inn hans var slíkur að ég hygg að ekki sé ofsagt að hann hafi nálg- ast landsmælikvarða hvað varðar afurðir og myndarleika. Jói var hagur til allra verka og snyrtimennska var honum í blóð borin og má ég ekki gleyma að minnast þess hversu greiðvikinn hann var, hann lagði fram mörg dagsverk þegar ég var að basla í minni uppbyggingu, það stóð alltaf til að ég gerði honum greiða í staðinn, en ég er hræddur um að þar sé ég enn í skuld. Fyrir fáeinum árum fór Jói að kenna sér meins sem reyndist honum þungbært. Það er alltaf jafn sárt að finna hvað mannanna gæðum er misskipt, ekki síst þeg- ar fólk í blóma lífsins þarf að þola slíkar þjáningar að þvf verður ekki vært og getur ekki lifað sínu lífi með eðliíegum hætti. Og sárt er að geta ekki orðið vini að liði í slíkum erfiðleikum. Jói minn, í mínum huga skilur þú eftir skarð sem erfitt verður að fylla. Fyrir okkur sem þekktum þig ert þú persóna sem ekki er hægt að gleyma, við huggum okk- ur við að nú hefur þú verið leyst- ur frá þrautum og framundan hjá þér er iíf sem verður þér Iéttbær- ara. Þakka þér fyrir samfylgdina. Þeir bræðurnir Steini og faðir minn vilja þakka af heilum hug þær góðu samverustundir sem þeir áttu með þér. Þeim varstu tryggur. Kæru vinir Sigga, Kristinn, Stína, Maggi, Rósa, Ingvar og systkinabörnin. Ykkar missir er mestur og mikið hefur verið á ykkar herðar Iagt í veikindum Jóa. Mín samúð er öll hjá ykkur. Erfitt er að finna orð sem eiga við á svo erfiðum tímum, Iífið verður að fá að halda áfram. Eg vona að góðar vættir styrki ykkur í sorginni og hjálpi ykkur að horfa fram á veg- inn. Blessuð veri minning Jóa í Austurhlíð. Kristófer Tótnasson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.