Dagur - 23.01.1999, Blaðsíða 3
LAVGARDA GUR 23 . JANÚAR 19 9 9 - JJI
T>j&pr
SÖGUR OG SAGNIR
Laufás
Betrí stofa.
1927. Hann sat á Alþingi
frá 1923 til 1934 og
myndaði ríkisstjórn
Framsóknarflokksins
með stuðningi eins þing-
manns Alþýðuflokksins,
stjóm Tryggva Þórhalls-
sonar, sem sat til vorsins
1932. Sama ár varð hann
bankastjóri Búnaðar-
bankans. Síðustu tvö
árin var hann á þingi fyr-
ir bændaflokkinn. Kona
hans var Anna Guðrún
dóttir Klemensar Jóns-
sonar landritara og ráð-
herra og konu hans Þor-
bjargar Stefánsdóttur.
Tryggvi og Anna eignuð-
ust fjóra syni og þijár
dætur. Þegar Tryggvi
Þórhallsson flutti með
fjölskyldu sína í Ráð-
herrabústaðinn við Tjarn-
argötu lagðist búskapur
af í Laufási.
Fyrsta afgreiðsla og
skrifstofa Tímans var í
Laufási. A þessum tíma
var það til siðs á meðan
blöðin voru smá í sniðum
að skrifstofa og afgreiðsla
þeirra væri á heimili rit-
stjórans. Fyrsti ritstjóri
blaðsins var Guðbrandur
Magnússon, sem var
mikill vinur Tryggva og
Onnu. Guðbrandur bjó
hjá þeim hjónum í Lauf-
ási. Hann giftist Matt-
hildi Kjartansdóttur árið
1918 og bjuggu þau
þann vetur í Laufási.
Seinna urðu þau kaupfé-
lagsstjórahjón í Hergilsey
í Landeyjum. A sama
tíma bjuggu í Laufási
Dóra Þórhallsdóttir og
Asgeir Asgeirsson, og auk
þess bjuggu þar í einni
stofu Þorkell Jóhannes-
son síðar háskólarektor
og Arnór Siguijónsson
rithöfundur.
Húsið í Laufási er lítið
breytt frá upphaflegri
gerð sinni og stendur í
stórum og vel grónum
garði. A sumrin sést varla
í húsið frá götunni vegna
laufskrúðs gróskumikilla
tijáa. En þegar trén hafa
fellt sumarskrúðið blasir
við höfðinglegt hús sem
er mjög sérstakt sökum
margra kvista á þaki og
glæsilegs anddyris. Yfir
aðaldyrum hússins
stendur letrað LAUFÁS
og ártalið 1896. I garðin-
um framan við húsið kúr-
ir hestasteinninn með
járnhringnum sem beislistaum-
um þarfasta þjónsins var tyllt í
meðan menn stöldruðu við.
Upp úr 1930 voru Ijósið og
hlaðan rifin. Á þeim slóðum er
nú sendiráð Noregs.
Þórhallur Bjarnason biskup.
Þess má að lokum geta, að
húsbændur í Laufási fóru gjarn-
an ferða sinn á léttakerru með
skyggni og var hesti beitt fyrir.
Borðstofa.
Húsið í Laufási er lítið breytt frá upphaflegri gerð sinni og stendur í stórum og vel grónum garði. Niðjar Þórhalls biskups og Valgeröar hafa búið í húsinu og sýnt heimilinu sem þau sköpuðu
__________fullan sóma og ríkir þar sami glæsileikinn og fyrrum. Myndirnar tók Gunnar V. Andrésson fyrir Tímann árið 1974.
>»* t $ i m tt i i j i»t nútnt * * ÍHNBKÍ ♦ ví > > > n t,t t > i *i h u n,t * i nj 1111 h 11 i'H 11111 n .hlöioyj Hð u>á 'tfeð*