Dagur - 23.01.1999, Qupperneq 8

Dagur - 23.01.1999, Qupperneq 8
vm -LAUGARDAGUR 23. JAWÚAR 1999 MINNINGARGREINAR Johanna Lilja Antonía Þorsteinsdóttir Andlát Aðalheiður Pétursdóttir áður til heimilis á Hjallabraut 33, Hafnarfirði, andaðist á Sól- vangi miðvikudaginn 13.janúar. Ágúst Einarsson frá Hömrum í Þverárhlíð, EIli- heimilinu Grund, áður Berg- þórugötu 29, lést á Landspítai- anum 14.janúar. Ásgrímur Björnsson til heimilis að Hvanneyrarbraut 55, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar aðfaranótt 14. jan- úar. Björnfríður Sigurðardóttir Iést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð sunnudaginn 17. jan- úar. Davíð Guðmundsson andaðist á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi sunnudaginn 17. janúar. Einar Friðfinnsson Borgartanga 1, Mosfellsbæ, lést miðvikudaginn 20. janúar. Guðlaug Bergmann Iést laugardaginn 16. janúar. Guðríður Björg Júlíusdóttir andaðist í Sjúkrahúsi Bolung- arvíkur, 15.janúar. Gyða Guðmundsdóttir Hólmgarði 9, andaðist fímmtu- daginn 14. janúar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Hannes Garðarsson Þormóðsgötu 20, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar mánudaginn 18.janúar. Ingibjörg Guðmundsdóttir sjúkraliði andaðist á hjúkrunar- heimilinu Skjóli laugardaginn 16. janúar. Jens Kjartansson fyrrverandi bóndi, Þórdísar- stöðum, Eyrarsveit, andaðist að kvöldi 14. janúar. Jóhann Frímann Pétursson frá Lækjarbakka, Skagaströnd, lést 13. janúar. Kári Tryggvason kennari og rithöfundur, frá Víðikeri, Kópavogsbraut 1A, andaðist á Landspítalanum laugardaginn 16. janúar. Kristinn Eggertsson lést á heimili sínu að kt'öldi laugardagsins 16. janúar. Lárus Ingi Guðmundsson Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, lést á gjörgæsludeild Land- spítalans mánudaginn 18. jan- úar. Leó Ottósson Hverafold 64, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 28. desember. Margrét Dagbjartsdóttir Höskuldarvöllum 19, Grinda- vík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 14. janúar. Oddgeir Einarsson Gnoðarvogi 78, lést af slysför- um föstudaginn 15.janúar. Ólafur Þorsteinn Stefánsson fyrrum bóndi, Víðihóli, Fjöll- um, til heimilis á Miðvangi 22, Egilsstöðum, áður Löngumýri 12, Akureyri, andaðist aðfara- nótt miðvikudagsins 13.janúar. Ólöf Matthíasdóttir Kópavogsbraut 1-B, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 14. janúar. Pálína Þorsteinsdóttir frá Hlíð í Álftafírði andaðist 14. janúar. Sigríður Skúladóttir Briem Sunnuflöt 18, Garðabæ, er iát- in. Stefanía Aðalsteinsdóttir Miklubraut 13, Reykjavík, lést aðfaranótt þriðjudagsins 12. janúar. Þóra Briem er látin. Þórarinn Magnússon kennari frá Vestmannaeyjum, Asparfelli 6, Reykjavík, lést mánudaginn 18.janúar. Þórunn Björgúlfsdóttir Stekkjarhvammi 66, Hafnar- fírði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi míðvikudaginn 20. janúar. Jóhanna L. A. Þorsteinsdóttir var fædd á Akureyri 3. des. 1917. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Steinþórsson frá Hömrum við Ak- ureyri, fæddur 19. júní 1884, dá- inn 4. júlí 1945 og fyrri kona hans, Jóhanna Antonsdóttir frá Stóragerði í Myrkárdal, fædd 31. des. 1879, dáin 6. des. 1917. Þau hjónin voru þremenningar að frændsemi. Áður en Jóhanna Ant- onsdóttir dó frá dóttur sinni að- eins þriggja daga gamalli bað hún kunningjakonu sína og góðan ná- granna að annast fyrir sig barnið í veikindum sínum. Það gerði hún ekki aðeins, heldur ólu þau, hún og maður hennar, hana upp að öllu leyti. Þessi góðu hjón hétu, Guðný Þorláksdóttir, fædd 20. júlí 1870, dáin 17. janúar 1948 og Sigtryggur Gissurarson, fædd- ur 16. apríl 1875, dáinn 4. apnl 1955. Sjálf höfðu þau eignast börn sem öll dóu í frumbernsku, nema sonurinn Haukur, sem var 7 ára, þegar þau tóku Jóhönnu og dó aðeins 14 ára gamall. Þor- steinn kvæntist öðru sinni. Var síðari kona hans Marselína Hans- dóttir frá Myrká í Hörgárdal. Hún var fædd 27. ágúst 1899, dáin 3. ágúst 1987. Þau bjuggu á nokkrum stöðum , en lengst af að Efri-Vindheimum á Þelamörk og eignuðust saman sex börn. Þau eru: 1) Baldur, fyrrum bóndi og bifreiðastjóri að Ytri-Bægisá II, nú búsettur á Akureyri, kvæntur Unni Herbertsdóttur. 2) Steinþór, fyrrverandi bifreiðastjóri á heima á Akureyri. Sambýliskona hans er Elsa Aðalsteinsdóttir. 3) Hans Hjörvar, býr á Akranesi. Áður bif- reiðastjóri og síðar vélstjóri á fískiskipum. Kona hans er Helga Þórisdóttir. 4) Hulda, fyrrum hús- freyja að Efri-Vindheimum, var gift Einari Steindórssyni, sem nú er látinn. Hulda dvelur á vist- heimilinu Hlíð á Akureyri. 5) Hildigunnur, húsfreyja að Keldu- landi, Akrahreppi, Skagafirði, gift Stefáni Hrólfssyni bónda þar. 6) Þórunn Guðríður, starfsstúlka í Hlíð, gift undirrituðum. Árið 1937, hinn 3. okt. giftist Jóhanna Kristni Gunnsteini Kristjánssyni, ættuðum úr Ólafsfirði. Hann var fæddur 26. sept. 1916, dáinn 7. maí 1996. Foreldrar hans voru Eugenía Hólmfríður Jónsdóttir og Kristján Magnússon. Börn Jó- hönnu og Kristins eru: 1) Fóstur- sonurinn Haukur Sigtryggur Valdimarsson, fyrrum bóndi, nú búsettur á Dalvík, kvæntur Mar- gréti Kristinsdóttur. Faðir hans var Valdimar, sonur Sigtryggs fósturföður Jóhönnu, sem ávallt reyndist henni sem góður bróðir. 2) Guðný, gift Lárusi Erni Stein- grímssyni, bifreiðastjóra. 3) Svana Hólmfríður, sjúkraliði, gift Herði G. Jóhannssyni, rafvirkja. 4) Kristján Þorsteinn, plötusmið- ur, kvæntur Ingu Vestmann. Barnabörnin eru orðin 13 og barnabarnabörnin tvö. Jóhanna andaðist að hjúkrunarheimilinu Seli 23. desember sl. og fór útför hennar fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 6. janúar sl. Haustið 1957 fluttum við hjón- in til Akureyrar og bjuggum fyrsta árið í Ránargötu 26. Eitthvert sinn, er ég kom heim til mín, sat kona í eldhúsinu hjá Þórunni, sem ég hafði ekki áður séð. Hún heilsaði mér glaðlega, kynnti sig og bauð mig velkominn í ná- grennið, sagðist hafa frétt að syst- ir sín væri flutt til bæjarins og að sig hefði Iangað til að ná sam- bandi við okkur. Hér var þá kom- in mágkona mín, Jóhanna Þor- steinsdóttir, sem ég að vísu vissi af, en hafði ekki áður hitt. Þessi heimsókn hennar varð upphafið að kynnum okkar og fjölskyldna okkar, sem síðar varð að vináttu og varað hefur til þessa dags. Og nú er Ieiðir skilja, um sinn, er mér Ijúft og skylt að þakka Jóhönnu, sem að öðrum ólöstuðum átti stærstan þátt í hversu ánægjuleg samskipti fjölskyldnanna hafa ætíð verið, en þau hafa verið margvísleg, s.s. heimsóknir, gjafir, afmælis- og jólaboð að sumarleyf- isferðunum ógleymdum. Gamalt máltæki segir „Fjórð- ungi bregður til fósturs." Það er trú mín, að það hafi verið Jó- hönnu Þorsteinsdóttur lán að Ienda hjá þeim mætu manneskj- um, sem Guðný og Sigtryggur áreiðanlega voru, enda bar hún fulla virðingu fyrir þeim og mat þau mikils. Það sýnir nafngift dótturinnar, m.a. Þau Jóhanna og Kristinn byggðu sér íbúðarhúsið Ægisgötu 19, árið 1944 og áttu þar heima æ síðan, meðan líf og heilsa entist. Þangað var gott að koma. Bæði voru þau góð heim að sækja, ávallt hlý í viðmóti, glaðsinna og hvergi voru veitingarnar til spar- aðar. Veislurnar hennar Jóhönnu gleymast áreiðanlega seint, enda var hún prýðilega vel verki farin og snyrtimennskan jafnan í fyrir- rúmi. Það sýndi brauðið sem hún bakaði og ekki síður fötin sem hún saumaði á börnin sín, átti enda til slíkra að telja. Eg trúi því Iíka að hún hafi skilað þeim arfi áfram til afkomenda sinna, a.m.k. ber handbragð dætranna þess glöggt merki. Já, margt var skraf- að og skeggrætt, hvort heldur var yfir kaffibolla eða spilum, því þau Kiddi, eins og Kristinn var oftast nefndur af kunnugum, höfðu mjög gaman af að spila. Þá flugu spaugsyrðin á báða bóga og hvorki olli það sút né sárindum þótt meðspilararnir sýndu lítil til- þrif í spilaíþróttinni, skemmtileg- ast var bara að spilið gengi greitt. Þrátt fyrir rausn, var enginn auður í búi hjá þeim Kidda og Jó- hönnu. Hún þurfti Iengstum að vinna utan heimilis jafnframt uppeldi barnanna og öðrum heimilisstörfum. Þau hjónin voru líka mjög samhent og báru hag barna sinna mjög fyrir brjósti. Fóstursonurinn var þar engin undantekning. Raunar var fjöl- skyldan öll samrýnd. Lengst af unnu hjónin hjá sama vinnuveit- anda, t.d. allmörg ár við skógerð hjá J.S. Kvaran, en síðan í fjölda ára á Skógerð Iðunnar. Þrátt fyrir mikla vinnu, utan heimilis sem innan, tók Jóhanna virkan þátt í félagsstörfum. Þau hjónin voru bæði meðal stofnenda Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri og voru gerð að heiðursfélögum þeirra samtaka. Þá var Jóhanna yfir 50 ár í Kvenfélaginu Hlíf, sat í stjórn þess einhver ár og lagði því félagi til ómælda vinnu. Enn má nefna, að Jóhanna mun ein- hver ár hafa verið félagi í stúkun- ni Isafold, enda var hún bindind- ismanneskja á áfengi alla sína ævi. Jóhanna hafði ákveðnar skoðanir á málum, var hreinskipt- in og sagði meiningu sína. Líklega hefur hún haft talsvert skap, en tamið það vel. Eg get trauðla Iok- ið þessum fátæklegu orðum, nema minnast á sumarferðirnar okkar. Fjölskyldur okkar höfðu þann sið, að fara saman í sumar- leyfi. Var aðaltilgangurinn sá að skoða Iandið, njóta samveru og hvíldar úti í hreinni náttúrunni. Tjöldum, mat og eldunaráhöldum var þá hlaðið í bílana, svo sem rýmið leyfði, ekið á daginn en tjaldað að kveldi í ijóðri, grænni laut eða sléttum bala. Þetta reyndust ætíð stórskemmtilegar ferðir. Raunar held ég að engir hafi notið þeirra betur en börnin. Þó verð ég að segja að margar af mínum ánægjulegustu endur- minningum, eru bundnar þessum ferðum. Oft var veðurútlit ekki gott í upphafi ferða. Hins vegar man ég ekki eina einustu ferð, að við kæmum ekki heim í sól og blíðu, a.m.k. voru allir með sól í hjarta. Kæra mágkona, ég veit að þér var missirinn sár, þegar lífsföru- nautur þinn kvaddi. Þá var hugg- un að eiga mannvænleg börn, sem kappkostuðu að endurgjalda Kirkjustarf sunnudaginn 24. janúar_____________________________ Akureyrarkirkja Sunnudagur 24. janúar. Sunnudagaskólinn kl. 11:00 í safnaðarheimilinu. Guðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur messar. Kl. 17:00 fundur í Æskulýðsfélaginu. Mánudagur 25. janúar. Biblíulestur í safnað- arheimilinu kl. 20:30 í umsjá sr. Guðmundar Guðmundssonar. Glerárkirkja Sunnudagur 24. janúar. Barnasamvera og guðsþjónusta kl. 11:00. Sameiginlegt upp- haf. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnunum. Fundur æskulýðsfélagsins er kl. 20:00. Hjálpræðisherinn, Hvannavöllum 10, Akureyri Sunnudagur kl. 11. Sunnudagaskóli. Sunnudagur kl. 16:30. Bæn. Sunnudagur kl. 17. Almenn samkoma (í um- sjón æskulýðsins). Sunnudagur kl. 20. Unglingasamkoma. Mánudagur kl. 15. Heimilasamband. Kaþólska kirkjan, Eyrarlandsvegi 26, Akureyri Messa laugardag kl. 18 og sunnudag kl. 11. Eyrarbakkakirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Stokkseyrarkirkja Messa kl. 14:00, Ólafsfjörður Messa á Hornbrekku kl. 11 Messa í Ólafsfjarðarkirkju kl. 14. Molasopi á eftir. Þriðjudagur 26. janúar 1999. Fundur hjá RÚN, samtökum um sorg og sorgarvið- brögð í safnaðarheimilinu kl. 20:30 Miðvikudagur 27. janúar 1999. Mömmumorgunn í safnaðarheimilinu kl. 10-12. Reykjavíkurprófastdæmi vestra Áskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00. Kaffi eftir messu. Hrafnista Guðsþjónusta kl. 15:30. Árni Bergur Sigur- björnsson. Bústaðakirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjón- usta kl. 14:00. Organisti Guðni Þ. Guð- mundsson. Pálmi Matthíasson. Starf TTT mánudag kl. 17:00. Dómkirkjan Guðsþjónusta kl. 11:00. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Elliheimilið Grund Guðsþjónusta kl. 10:15. Friðrikskapella Kyrrðarstund í hádeginu á mánudag. Léttur málsverður I gamla félagsheimilinu að stundinni lokinni. Grensáskirkja Barnastarf kl. 11:00. Munið kirkjubilinn! Guðsþjónusta kl. 11:00. Barnakór Grensás- kirkju syngur undir stjórn Margrétar Pálma- dóttur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Ólafur Jóhannsson. Hallgrímskirkja Messa og barnastarf kl. 11:00. 5 ára börn í Hallgrímssókn boðin sérstaklega velkomin og verður þeim afhent bókin „Kata og Óli“. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Sigurður Pálsson. Landspítalinn Messa kl. 10:00. Sr. Ingileif Malmberg. Kveðjumessa sr. Jóns Bjarman. Háteigskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Messa kl. 14:00. Organisti Jakob Hallgrimsson. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. alla ykkar ást og umhyggju. Von- andi eigið þið Kiddi nú þráða endurfundi. Sjálfum finnst mér að vinahópurinn hafi minnkað verulega, við fráfall ykkar. Við systir þín óskum þér velfarnaðar á nýju tilverustigi. Far þú í friði og hafðu þökk fyrir allt og allt. Fjöl- skylda mín sendir börnum Jó- hönnu og öðrum ástvinum henn- ar hugheilar samúðarkveðjur. Blessun Guðs fylgi ykkur öllum. Langholtskirkja Messa kl. 11:00. Prédikunarefni: Trúar- reynsla-kristin mystik. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson. Ein- söngur Guðríður Þóra Gísladóttir. Kaffisopi eftir messu. Barnastarf i safnaðarheimili kl. 11. Laugarneskirkja Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Prestur sr. Bjarni Karisson. Organisti Gunnar Gunn- arsson. 12 spora hópur kl. 20:30. Kynningarfundur. Neskirkja Barnasamkoma kl. 11:00. Starf fyrir 8-9 ára á sama tíma. Opið hús frá kl. 10:00. Guðs- þjónusta kl. 14:00. Organisti Reynir Jónas- son. Sr. Halldór Reynisson. TTT-starf (10-12 ára) mánudag kl. 16:30. Seltjarnarneskirkja Messa kl. 11:00. Organisti Kristín G. Jóns- dóttir. Prestur sr. Guðný Hallgrímsdóttir. Barnastarf á sama tima. Æskulýðsstarf fyrir 9. og 10. bekk kl. 20-22. Reykjavíkurprófastdæmi eystra Árbæjarkirkja Guðsþjónusta kl. 11. Organleikari Pavel Smid. Vænst þátttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. Foreldrafundur eftir guðs- þjónustuna í kirkjunni. Barnaguðsþjónusta kl. 13:00. Foreldrar, afar og ömmur velkomin með börnunum. Prestarnir. Breiðholtskirkja í dag fáum við góða heimsókn í Breiðholts- kirkju í Mjódd. Þá mun sr. Kjartan Jónsson, kristniboði og framkvæmdastjóri Sambands íslenskra kristniboðsfélaga, prédika við messu kl. 11 og jafnframt mun hann kynna kristniboðsstarfið í máli og myndum. Kangakvartettinn, sem vakið hefur mikla at- hygli fyrir fallegan og lifandi söng á undan- förnum misserum mun syngja í messunni. Að messu lokinni verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarheimilinu og gefst kirkju- gestum tækifæri til að ræða við sr. Kjartan um málefni kristniboðsins. Sr. Gísli Jónass. Digraneskirkja Messa kl. 11. Prestur dr. Sigurjón Árni Eyj- ólfsson. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Léttar veit- ingar eftir messu. Kl. 20:30. Hjónastarf, fyr- irlesari Ólafur M. Hakansson, læknir.TTT- starf 10-12 ára á vegum KFUM & K og Digraneskirkju kl. 17:15 á mánudögum. Fella- og Hólakirkja Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti Lenka Mátévoá. Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Umsjón Hanna Þórey Guðmundsdóttir og Ragnar Schram. Prestarnir. Starf fyrir 9-10 ára drengi á mánudögum kl. 17:30. Grafarvogskirkja Sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju kl. 11. Sunnudagaskóii I Engjaskóla kl. 11. Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Lárus Guðmundsson, fyrrverandi sendiráðsprestur í Danmörku, prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Hrönn Helgadóttir. Unglingakór Grafarvogs- kirkju syngur. Hjallakirkja Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. íris Krist- jánsdóttir þjónar. Þórey Heiðdal syngur við píanóundirleik Alberts Guðmundar Jóns- sonar. Félagar úr kór Hjallakirkju leiða safn- aðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13. Kópavogskirkja Barnastarf kl. 11 í safnaðarheimilinu Borg- um. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Kópavogs- kirkju syngur. Organisti Kári Þormar. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Samvera Æskulýðsfélags- ins kl. 20 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja Krakkaguðsþjónusta kl. 11. Fræðsla og mikill söngur. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Organisti Gróa Hreinsdótlir. Sóknarprestur. Sigurður G. Flosason.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.