Dagur - 29.01.1999, Page 4
- '*f';Ö S T frhA'GVR 2V$Ví>
FRÉTTIR
L A
Betri byggð í borginni
I febrúar verða stofnuð á höfuðborgarsvæðinu ný samtök sem hafa
þann tilgang að móta nýjar hugmyndir um umhverfis- og byggðamál.
Þau hafa hlotið nafnið „Samtök um betri byggð“ og ætla að leggja
sérstaka áherslu á þéttingu og endurnýjun byggðar.
Samtökin verða þverfagleg áhugasamtök, óháð flokkslínum og öðr-
um sérhagsmunum, að því er segir í fréttatilkynningu.
I tilkynningunni segir ennfremur að fyrstu verkefni Samtaka um
betri byggð verði kynning á nýjum valkosti í flugsamgöngum á höf-
uðborgarsvæðinu, kynning á breyttri nýtingu lands í Vatnsmýrinni og
mótun tillagna í tengslum við vinnu við svæðisskipulag höfuðborgar-
svæðisins.
Nýr meimingarvefur opnaður
Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000 opnaði vefsíðu fyrir
helgi en nú er ár þar til dagskrá menningarársins hefst.
A vefnum er að finna allar helstu upplýsingar um menningarborg-
arverkefnið, stjórn þess og starfsmenn, fjármögnun, innlend og er-
lend samstarfsverkefni. Þegar nær dregur vori verður þar að finna
nákvæmari dagskrá verkefnisins. Slóðin er www.reykjavik2000.is
LandsbanMnn í framtaksfjármögnun
Landsbankinn hefur stofnað dótt-
urfélag, Landsbankinn-Framtak
hf., sem mun hasla sér völl á sviði
fjármögnunar nýsköpunar og
vaxtagreina í íslensku viðskiptalífi,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá bankanum.
Þar segir að nýja fyrirtækið
muni leiða saman áhættuíjárfesta
og fyrirtæki í leit að fjármagni og „annast heildarlausnir með vand-
aðri áhættufjármögnun."
Fyrirtækið mun sérstaklega beina sjónum sínum að hugbúnaðar-
gerð, erfðatækni, líftækni, lyfjaiðnaði og upplýsingatækni, segir í til-
kynningunni. í upphafi mun Framtak Ijárfesta í sjóðum eða eignar-
haldssfyrirtækjum sem sérhæfa sig á þessum sviðum en síðar fjár-
festa beint í einstökum fyrirtækjum eða verkefnum.
Opmmartími Sundlaugar lengdur
Opnunartími Sundlaugar Akur-
eyrar hefur verið lengdur og er
nú opið frá því klukkan 7 á
morgnana til klukkan 21.30 á
kvöldin á virkum dögum en til
klukkan 18.30 á laugardögum
og sunnudögum.
Það er hins vegar nýmæli að
nú er hægt að komast í sund all-
an daginn á veturna en áður var
sundlauginn lokuð fyrir miðjan
daginn vegna skólasunds. Skóla-
sund fer hins vegar fram í nýju lauginni en almenningur hefur að-
gang að þeirri gömlu, og þeirri nýju reyndar líka ef lítið er um að
vera. I vor áður en ferðamannastraumurinn brestur á verður opnuð
ný afgreiðsla að sundlauginni og um leið verða teknir í notkun nýir
búningsklefar kvenna. I byggingunni verður lyfta þannig að kröfum
fatlaðra um aðgengi verður sinnt. Aðkoma að afgreiðslunni verður
þá frá bílastæði Iþróttahallarinnar. A efri hæðinni, þar sem nú eru
búningsldefar kvenna, verður aðstaða fyrir fatlaða og þangað flyst
Iíklega starfsmannaaðstaða og Ijósabekkirnir.
GG
Úr kuldammi í kuldagaila
Starfsemi 660N-Sjóklæðagerðarinnar nófst á Akureyri í húsnæði
Landsbankans á Gleráreyrum í gær. Þar var ullariðnaðarfyrirtækið
Folda fyrrum til húsa en nú hafa starfsmenn fengið nýtt hlutverk.
Fyrstu framleiðsluvörurnar verða kuldagallar og hafa 15 manns sem
tímabundið hafa verið atvinnulausir verið ráðnir til þeirra starfa.
Þeir eru allir fyrrum starfsmenn Foldu en aðeins tveir voru komnir
í fullan gang í gær. Á þriðjudag í næstu viku er búist við að full af-
köst hefjist.
Hermann Sigursteinsson, fyrrum framkvæmdastjóri Foldu, hefur
tekið til starfa hjá Sjóklæðagerðinni en hann sinnir störfum sínum í
Reykjavík. Fyrrum framleiðslustjóri Foldu, Tómas Agnarsson, hefur
tekið við framleiðslustjórn hins nýtja útibús á Akureyri. Dagur hef-
ur upplýsingar um að Sjóklæðagerðin hafi einfaldlega hringt út í
fyrrum starfsmenn Foldu og mönnun hafi verið auðveld, enda ekki
mörg önnur atvinnutækifæri á þessu sviði á Akureyri. Ein helsta
ástæða þess að Sjóklæðagerðinn stofnaði útibú á Akureyri, var sú
mikla fagþekking á sviði sauma sem fyrir er í bænum. BÞ
Það verður annað hvort stjórnin sjálf eða uppstillinganefndir hinna ýmsu kjördæmisfélaga okkar sem munu koma
með tillögu um skipan lista hreyfingarinnar í hverju kjördæmi, “ sagði Steingrímur J. Sigfússon.
Vanir pólitíkusar
í oddvitastöður
Steingrímiir J. Sigfús-
son hefur ekið um
3.500 km. á síðustu
10 dögum við að
stofna kjördæmafélög
Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framhoðs
um allt land
Steingrímur J. Sigfússon, leið-
togi Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, kom nýlega úr
10 daga ferðalagi um landið, þar
sem hann hefur verið með í að
stofna kjördæmisfélög um allt
land. Hann sagðist vera búinn að
aka um 3.500 km. á þessu tíu
daga ferðalagi og allt gengið vel
þótt vetrarfærð sé. Hann segir
mikinn móð vera í sfnu fólki út
um allt land og því bjartsýni ríkj-
andi um útkomu hreyfingarinnar
í þingkosningunum í vor.
„Það verður annað hvort
stjórnin sjálf eða uppstillinga-
nefndir hinna ýmsu kjördæmis-
félaga okkar sem munu koma
með tillögu um skipan lista
hreyfingarinnar í hverju kjör-
dæmi. Við höfum reynt að verjast
því að vera með getgátur um
hveijir skipi sæti á listunum og
eða hveijir verða oddvitar list-
anna en það kemur í Ijós innan
ekki langs tíma,“ sagði Stein-
grímurj. Sigfússon.
Oddvitamir tilbúnir
Það virðist liggja nokkuð ljóst
fyrir hverjir verði oddvitar lista
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs um allt Iand, þótt ekki
sé hægt að slá því endanlega
föstu. I Reykjavík mun Ögmund-
ur Jónasson Ieiða Iistann. Margir
koma til greina í næstu sætin á
eftir honum svo sem Svanhildur
Kaaber og Kristín Einarsdóttir,
fyrrum alþingiskona, svo ein-
hveijir séu nefndir.
Á Reykjanesi verður það án
nokkurs vafa Kristín Halldórs-
dóttir alþingiskona sem Ieiðir
listann. Þá er hugsanlegt að
Anna Ólafsdóttir Björnsson, fyrr-
verandi alþingiskona, gefi kost á
sér í pólitíska slaginn á ný, en
hún býr í Kópavogi.
Á Vesturlandi eru þeir títt
nefndir og líldegastir leiðtogar
listans Ragnar Elínbergsson í
Grundarfirði og Gunnlaugur
Haraldsson á Akranesi, báðir
margreyndir kappar í pólitík fyrir
Alþýðubandalagið og Gunnlaug-
ur fyrrum varaþingmaður. Á
Vestfjörðum er það Lilja Rafney
Magnúsdóttir varaþingmaður
sem talið er víst að leiði listann
þar.
Á Norðurlandi eystra verða
það að sjálfsögðu þeir Steingrím-
ur J. Sigfússon og Árni Steinar
Jóhannsson, sem verða í 1. og 2.
sæti listans. Ekki er víst að Hjör-
leifur Guttormsson gefi kost á
sér í framboð. Ef hann gerir það
eru allar Iíkur á að hann Ieiði
listann á Austfjörðum, ef ekki, þá
má telja víst að Þuríður Bach-
mann varaþingmaður verði í
efsta sætinu.
Á Suðurlandi hafa menn helst
stöðvast við nafn Guðmundar
Lárussonar, varaþingmanns og
fyrrverandi formanns Félags
kúabænda. Hann hefur hins veg-
ar heldur dregið úr því en hitt að
hann haldi áfram opinberri þátt-
töku í stjórnmálum en ekki gefið
afsvar.
Þá er eftir Norðurland vestra.
Þar stendur nú fyrir dyrum
grimmur prófkjörsslagur hjá
samfylkingunni og samkvæmt
heimildum Dags bíða
vinstri/grænir eftir því hver úr-
slitin þar verða. Ymsir telja að
niðurstaða prófkjörsins geti orð-
ið söguleg og dregið dilk á eftir
sér eins og svo mörg prófkjör
hafa gert að undanförnu.- S.DÓR
Skuldir í safj arðarbæj ar
aukast á ádnu
Skatttekjur á áriuu
verða 807 milljónir
króua og hækka uin
59 milljónir króna
milli ára en almennar
rekstrartekjur verða
362 milljónir króna.
Rekstrartekjur bæjarsjóðs Isa-
fjarðarbæjar og stofnana eru
áætlaðar 1.388 milljónir króna á
þessu ári en rekstrarútgjöld án
vaxta 1.180 milljónir króna. Fjár-
festingar verða 130 milljónir
króna, afborganir lána og vextir
283 milljónir króna og nýjar lán-
tökur nema 219 milljónum
króna þegar tekið hefur verið til-
lit til eignabreytinga. Fjárhagsá-
ætlun Isaljarðarbæjar 1999 var
samþykkt sl. fimmtudag.
Skatttekjur á árinu verða 807
milljónir króna og hækka um 59
milljónir króna milli ára en al-
mennar rekstrartekur verða 362
milljónir króna en rekstrarút-
gjöld bæjarsjóðs 1.109 milljónir
króna. Mest fer til fræðslumála,
eða 273 milljónir króna, 119
milljónir til félagsþjónustu, 69
milljónir til yfirstjórnar, fjár-
magnskostnaður 62 milljónir,
íþrótta- og æskulýðsmál 58 millj-
ónir og til hreinlætismála fara 55
milljónir króna. 10 milljónum
króna verður varið til endurbóta
á Safnahúsinu við Eyrargötu og
17 milljónum króna til sundlaug-
ar á Suðureyri. Gert er ráð fyrir
að greiða 155 milljónir króna í
afborganir langtímalána og 30
milljónir króna vegna ýmissa
skammtímalána. Heildarlántök-
ur eru áætlaðar 219 milljónir
króna og munu heildarskuldir
því aukast um 34 milljónir króna
á árinu. Ljóst er því að rekstur
Isafjarðarbæjar verður erfiður á
árinu 1999. GG