Dagur - 29.01.1999, Qupperneq 11
X^«ir.
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 - 27
LIFIÐ I LANDINU
MEINHORNID
• Meinhyrning-
ur dagsins styð-
ur reykingabann
á vinnustöðum
nema á sínum
eigin. Hann
vinnur sem sé
einn og stór-
reykingar hans
á vinnustað er
ekki versti
mengunarvald-
urinn þar. Oft-
lega hefur
meinhyringur
reynt að svæla
sjálfan sig út af
skrifstofunni,
en aldrei tekist.
Hinsvegar er
hann slík ham-
hleypa til verka
að endar gjarn-
an í svitabaði og
meðfylgjandi
Iykt og þá er
ekki lengur líft
á staðnum og
hlaupið heim í
öðruvísi bað
eða úðað 8x4
eða öðru
flugnaeitri.
Óhófleg táfyla
hefur og oft
hrakið mein-
hyming út í
hreina loftið og
heim eftir nýj-
um sokkum. Og
á stundum getur
hyrningur ekki
setið gegnt
tölvuskjánum
þegar hans eigin
andlyla endur-
kastast þaðan
framan í hann
og þá er ótæpi-
lega gleypt ópal.
• Reykingar eru
ugglaust meira
heilsuspillandi
en lylur marg-
víslegar, en ekki
alltaf eins ill-
þolandi og þær.
FOLKSINS
Öfugmælaarkitekt
MAGNUS H. GISLASON
SKRIFAR
Fystu landsmálablöðin sem ég leit aug-
um, voru Tíminn, Dagur, Isafold og
Vörður. Allt voru þetta vikublöð tengd
stjórnmálaflokkunum, Framsóknar-
flokknum og íhaldsflokknum, eins og
hann hét þá. Framsóknarmenn gáfu út
Tímann og Dag. Ihaldsmenn Isafold og
Vörð. Öll voru þessi blöð keypt á heimili
mínu, Eyhildarholti en algengast hygg
ég það þó hafa verið, að menn keyptu
aðeins sín eigin flokksblöð.
Einstakur maður mun hafa haldið
blöðunum saman en ekki fleygt þeim að
lestri Ioknum. Þetta var viðráðanlegt
með blöðin voru ekki nema 4-8 síður.
Nú er slík hirðusemi borin von. Nú er
dagblaðaútgáfan orðin alls ráðandi og
blaðsíðuijöldinn orðinn slíkur, Morgun-
blaðið sem að auki er orðið burðardýr
fyrir allskonar auglýsingapésa, að jafna
má við þokkalega bók. Auk þess er mik-
ið af lesefni blaðanna þannig að það
freistar ekki til varðveislu. Eg hef því
þann háttinn á að ldippa úr blöðunum
það efni sem mér þykir, af einhverjum
ástæðum, rétt að geyma um sinn.
Fyrir nokkru var ég að blaða í þessum
úrklippum. Kom þá upp í hendur mínar
grein eftir Jón þingmann Kristjánsson
er hann nefnir „Óháð blöð eða frétta-
bréf stjórnmálaflokka". Þessi ritsmíð
Jóns birtist i Degi-Tímanum 15. ágúst
1997. Nú er það svo að mér finnst Jón
alltaf vera heldur þvoglumæltur í skrif-
um sínum. Þegar búið er að blása burtu
orðafroðunni verður stundum lítið eftir.
Háð og óháð
Þótt grein Jóns sé alllöng rúmast í raun-
inni allt efni hennar í fyrirsögninni. Að
dómi Jóns skiptast blöð í tvo flokka
„Háð blöð og óháð“. „Háð“ eru þau blöð
sem gefin eru út af stjórnmálaflokkum
eða tengd þeim. Önnur blöð eru óháð,
burt séð frá því hverjir eru eigendur
þeirra eða útgefendur.
Þetta er fljótfærnisleg ályktun og
raunar beinlínis röng. Eg starfaði um
skeið við tvö blöð sem tengd voru
stjórnmálaflokkum, Tímann og Þjóðvilj-
ann. Sérstakt útgáfufélag annaðist
rekstur Þjóðtiljans og svo skilst mér að
því hafi einnig verið háttað með Tim-
ann, þegar hann Ioks andaðist undir rit-
stjórn Jóns Kristjánssonar. Að sjálfsögðu
túlkuðu þessi blöð sjónarmið þeirra
flokka sem að þeim stóðu. Þau voru
einnig opin fyrri öðrum sjónarmiðum.
Eg fullyrði að á þeim árum þegar ég var
innandyra hjá þessum blöðum heyrði
það til hreinna undantekninga að al-
mennar fréttir væru litaðar pólitískum
viðhorfum.
Háð eigenduin sinum
Að segja að blöð eða fjöimiðlar yfirleitt
séu „óháð“ ef þau eru ekki gefin út af
stjónmálaflokkum eða tengd þeim er
auðvitað tómt rugl. Hver er ekki ein-
hveijum eða einhveiju háður hvort
heldur er um að ræða einstaklinga eða
fyrirtæki'? Hver eru svo þessi „óháðu“
blöð hans Jóns Kristjánssonar? Er það
Morgunblaðið? Er það ekki gefið út af
hlutafélagi eða útgáfustjórn, hvað sem
það nú kallast? Ætli það séu ekki sæmi-
lega gildir sjálfstæðismenn sem mynda
þann hóp? Skyldi Morgunblaðið í engu
vera háð þeim söfnuði. Hvað um DV og
Dag? Er ekki útgefandi Dags fyrirtæki
sem nefnist Dagsprent? Mér skilst að
útgáfustjórinn sé Eyjólfur nokkur
Sveinsson. Nefnist ekki útgefnadi DV
„Frjáls fjölmiðlun," Er ekki Sveinn
nokkur Eyjólfsson stjórnarformaður
þess fyrirtækis og útgáfustjóri og fram-
kvæmdastjóri áðurnefndur Eyjólfur
Sveinsson?
Auðvitað eru þessi blöð, eins og Qöl-
miðlar yfirleitt háðir eigendum sínum.
Menn geta svo deilt um hvort heppi-
legra er eignarhald flokkspólitískra aðila
eða annarskonar hagsmunasamtaka.
Svæðisútvarp
Pétur
Guðjónsson
skrifar
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
iesendasfðu:
460 6122
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
Undanfarin 10 ár hafa
útvarpsstöðvar ráðist
inn á markaðinn og er
svo komið að úrvalið er
mikið. Það hefur alltaf
verið ofar mínum
skilningi, af hverju
skylduáskrift Ríkisút-
varpsins hefur ekki
verið aflögð. Hvernig
getur það talist sann-
gjarn leikur að frjálsu stöðvamar keppi
við sjálft RÚV, sem þarf ekki eingöngu
að byggja rekstur sinn á auglýsingatekj-
um. Þó hefur Islenska útvarpsfélagið
dafnað vel í harðri samkeppni við ris-
ann, þrátt fyrir allt.
Það sem einkennir „frjálsu“ stöðvarn-
ar í dag, kannski fyrir utan Bylgjuna, er
tónlist og Iétt spjall. Þetta kalla frjöl-
miðlarýnar „bullútvarpsstöðvar". Af
hverju? Ég held reyndar að tilkoma
þessara stöðva sé upphaflega
vegna þess að þetta er
ódýrasta leiðin til að reka út-
varp, en þó gefið góða raun.
Frostrásin er ein af þess-
um „bullútvarpsstöðvum"
sem er staðbundin í Eyjafirð-
inum. Stöðin hefur verið í
fullum rekstri síðan í maí
1997 en var áður tímabund-
ið jólaútvarp. A þessum tíma
hafa skoðanakannanir sýnt
að ótvíræður vilji er hjá aug-
lýsendum og hlustendum að
hafa útvarp sem þetta á Ak-
ureyri. “
Maigir valkostir
Það er þó ekki hægt að segja að
Frostrásin standi jafnfætis stóra bróður
í Fjölnisgötunni í samkeppninni. Þetta
eru tveir valkostir af sjö á Akureyri en
þó er um ólíka miðla að ræða. Það sem
þessir aðilar eiga þó sameiginlegt er
sami auglýsingamarkaðurinn. Þar hefur
litli bróðir staðið mun betur því það eru
einu tekjurnar sem reka þannig útvarps-
stöð. Það er ekki nema eðlilegt að ein-
hver munur sé á dagskrárgerð þar sem
annar aðilinn sækir tekjur sínar í vasa
einstaldinga.
Komin tU að vera
Mér þykir líka ástæða að koma með at-
hugasemd varðandi grein í Degi 7. jan-
úar 1999 þar sem var viðtal við Björgólf
Jóhannsson í „Hvað finnst þér um út-
varp og sjónvarp". Þar er spurt: -Hvern-
ig finnst þér svæðismiðlarnir, RÚVAK
og Aksjón standa sig?
Undirritaður bendir góðfúslega á að
það er einn kostur eftir. Annað hvort er
blaðamður sem spyr illa upplýstur eða
svona gleyminn. Ekki nema hvort
tveggja sé og einhverjir hagsmuna-
árekstrar jafnvel líka. Nema þá að
svæðisútvarp sé ekki útvarji sem býður
upp á fréttir af svæðinu, fylgist með at-
burðum líðandi stundar á Akureyri og
gefi bæjarbúum tækifæri að nýta sér
nærveru útvarpsins.
Það er svo mat hvers og eins hvort
það sem Frostrásin býður upp á sé
skemmtilegt, en Frostrásin er til staðar
fyrir hlustendur - og komin til að vera.
VEÐUR
Vedriö í dag...
Siurnan- og síðan suðvestanátt, víða hvassviðri eða
stormur, en sums staðar rok eða 10 vindstig á Vestfjörðum
og Norðurlandi þegar liður á daginn. Rigning um land allt,
síst þó norðaustan- og austanlands. Sums staðar má gera
ráð íyrir mikilli rigningu vestan- og suðvestanlands. Mjög
svo hlýnandi veður, hiti allt að 8 til 10 stig norðanlands
og austan undir kvöldið.
Blönduós
Akureyri
Fim Fös
■7 1 \ J S / i / M "v*
Egilsstaðir
v 7 v
Bolungarvík
Fös Lau
Mán Þrt
7*^* j jss jy /-* v
Reykjavík
Kirkjubæjarklaustur
V* J 7/ r* J^
Stykkishólmur
^ / j^^- j j r- j^
Stórhöfði
Cel.
| , | " | ' ■ j j ^
Flm Fös
Mán Þri
*t* j j/// v r y ; m^*^ ;./
Veðurspárit 28 1.1999
VEÐURSIOFA
W ÍSLANDS
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður
með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s.
k
Dæmi: » táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegiun
Allgóð vetrarfærð er nú á öllum aðalvegum landsins nema
að Breiðdalsheiði er ófær.
66'N
SEXTIU
OG
SEX
NORÐUR