Dagur - 09.02.1999, Síða 1

Dagur - 09.02.1999, Síða 1
T Afstýrðu meiðmgum með hjálp myndavéla Lögregla hefur getað afstýrt alvarlegitm of- beldisverkmn í miðbæ Reykjavíkur með hjálp löggæslumynda- véla. Enginn „stóri bróðir“, segir formað- ur KÍ. Böðvar Bragason, Iögreglustjóri í Reykjavík, segir að lögreglan hafi gripið inn í óæskilega atburðarás í miðbæ Reykjavíkur með aðstoð löggæslumyndavélanna frá því að þær voru settar upp. „Þessar myndavélar hafa þegar gert okk- ur kleift að grípa inn í atburði, þar sem hætta var á meiðslum og kannski öðru verra. Því tel ég um mjög mikilvæga framför að ræða. Astandið í miðbænum hefur batnað. Við getum nú haldið uppi öflugri löggæslu vegna myndavélanna," segir Böðvar. Ólíklegustu mál Böðvar segist hafa verið ötull talsmaður þess að myndavélarn- ar yrðu settar upp og fór hann m.a. til Bretlands til að kynna sér starfsaðferðir lögreglunnar þar. Hann segir reynsluna frá útlönd- um sýna að hægt sé að upplýsa „hina ólíklegustu hluti“ með að- stoð vélanna en fjöldi tilvika þar sem vélarnar hafa gagnast á Islandi liggur ekki fyrir. Spurður hvort nokkur hætta sé á að ofbeldisvettvang- urinn muni færast frá miðbænum úr sjónmáli myndavél- anna, telur Böðvar svo ekki vera. „Oll tölfræði sem við höfum frá útlöndum bendir til að verulegur árangur náist og það er engin ástæða til að ætla annað, en að hið sama muni ger- ast hér,“ segir lögreglustjóri. Enginn „stóri bróðir“ Áhyggjur af auknu ofbeldi hafa ekki síst kristallast í grunnskól- um að undanförnu. Nýlega komu upp sex lögreglukærur vegna nemenda í Hagaskóla og það leiðir hugann að því hvort eftirlitsmyndavélar í skólum séu næsta skref. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarafélags Islands, vill láta skoða þann möguleika. „Ef þjóðfélagið er almennt sam- mála um að mikil- vægt sé að vakta ákveðna staði með myndavélum, held ég að skólar séu engin undantekn- ing. Tilgangurinn er einkum að koma í veg fyrir vanda- mál og í einherjum tilfellum hjálpa myndavélar eflaust einnig við að upplýsa hverjir eru brotlegir við Iög og reglur. Eg hef ekki viljað líta á þetta út frá hug- takinu „stóri bróðir". Hvers rétt erum við að verja? Við erum að vernda rétt hins almenna borg- ara og þess vegna sé ég þetta ekki undir neikvæðum formerkj- um,“ segir Eiríkur. Ofbeldi eykst Formaður KÍ er nýkominn til landsins frá alþjóðlegri ráðstefnu þar sem skólastjórnendur lýstu þungum áhyggjum af auknu of- beldi í skólum. Þar var mikið rætt um aukið eftirlit, ekki síst í ljósi skelfilegra mála í nágranna- löndunum, líkt og þegar ráðist var inn í leikskóla í Skotlandi og kennari og nemendur myrtir. Hugmyndir um vopnaleit í skól- um komu upp en Eiríkur segir slíka umræðu vonandi ekki henta Islandi að svo komnu máli. Samt geti allt gerst hér sem átt hafi sér stað úti í heimi. „Al- menn skoðun er að ofbeldi hafi almennt aukist í vestrænum samfélögum og hið sama á við um Island," segir Eiríkur. Ennþá er ekki vitað til að skólastjórar grunnskóla hafi sett upp öryggismyndavélar en á framhaldsskólastigi hafa mynda- vélar verið í notkun í heimavást Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkóki. Þar hafa mál verið upplýst með aðstoð upptöku og virðist sátt meðal nemenda og skólastjórnenda um tiltækið eftir nokkra andstöðu í fyrstu. - BÞ Eftirlitsmyndavélar miðborgar Reykjavíkur skila árangri. Ungir viljaí eina sæng Ungliðahreyfingar beggja A- flokkanna, Verðandi og Sam- band ungra jafnaðarmanna, hafa sent frá sér yfirlýsingar um að sameina beri ungliðahreyfing- arnar og þá þrjá flokka sem standa að samfylkingu jafnaðar- manna. „Sameiningin er óhjá- kvæmileg að mínu mati. Ferlið er það langt komið að ekki verður aftur snúið," segir Kolbeinn Stefánsson, formaður SUJ, í samtali við Dag. Aðspurður hvort ungliðahreyfingarnar væru al- mennt fúsari til sameiningar en hinir eldri svaraði Kolbeinn neit- andi. „Það var þannig Árni Þór Sigurðsson sem hafði frumkvæði að því að leggja þetta fram eftir prófkjörið í Reykjavík og ég held að þetta sé yfirgnæfandi vilji út yfir öll aldursmörk," segir Kol- beinn. - FÞG Bandarískur túristi sem átti leið framhjá Tjörninni í gær lenti óvart á löngu spjalli við grágæsir. Fiðurfénu og ferðalanginum virtist koma vel saman en engum sögum fer afþví hvaða mál var talað. mynd: hilmar Uppstillingarnefnd vill að Kristinn H. leiði listann. Kristinní 1. sætinu Nafn Magnúsar Reynis Guð- mundssonar, stjórnarformanns Ishúsfélags ísfirðinga, er ekki að finna á tillögu sjö manna upp- stillingarnefndar sem skilaði Kjördæmaráði framsóknar- manna á Vestljörðum tillögu að framboðslista um helgina. Ekki var einhugur um tillöguna en samkvæmt henni skipar Krist- inn H. Gunnarsson alþingis- maður fyrsta sætið og Ólöf Guð- ný Valdimarsdóttir arkitekt í Reykjavík 2. sætið, en hún er fædd og uppalin á Núpi í Dýra- firði. Tveir af sjö nefndarmönn- um greiddu atkvæði gegn því að Ólöf Guðný skipaði 2. sætið. Kjördæmaþing kemur saman 20. febrúar nk. og þar verður til- Iaga uppstillingarnefndar lögð fram. Búast má við að kosið verði um öll efstu sæti listans. 1. sætið eða ekkert Magnús Reynir gaf kost á sér í 1. sætið eftir að ljóst var að Gunn- laugur Sigmundsson alþingis- maður mundi ekki leita eftir endurkjöri þótt uppstillingar- nefnd hafi verið búin að bjóða honum það sæti. „Það var aldrei inni í dæminu að efnt yrði til prófkjörs um skip- an framboðslista Framsóknar- flokksins þ\T á kjördæmaþingi í haust var ákveðið að stilla upp. Magnús Reynir Guðmundsson er ekki á þessum lista uppstill- ingarnefndar enda gaf hann kost á sér í 1. sætið, eða ekkert sæti ella,“ segir Kristinn Jón Jónsson, formaður uppstillingarnefndar. „Ég er eina konan sem verður í baráttusæti á Vestfjörðum við næstu kosningar. Verði þessi listi samþykktur á kjördæmaþinginu mun ég sem og aðrir framsókn- armenn á Vestfjörðum stefna ótrauð að því að ná tveimur mönnum á þing,“ segir Ólöf Guðný Valdimarsdóttir. — GG Afgreiddir samdægurs Venjulegir og demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.