Dagur - 11.02.1999, Qupperneq 1

Dagur - 11.02.1999, Qupperneq 1
þurfi að vinna lengur fyrir Helene Smte, 31 árs, e, «****“* séu allt öðttlvlst her en t sama kaup. Hun segir að ^ mND: PJETUR Iben Höjer (nr~cj) Z-r Allt önnur viðhorf í Danskir hjúkrumifræð- ingar erufamir að hjúkra íslenskum sjúklingum og þeim erbara vel tekið. „Dejligt, “ segja sumirís- lendingamir. Aðstæður hérem alltaðraren þær em vanar. Ríksspítalar hafa ráðið fimm eða sex danska hjúkrunarfræðinga til starfa á Landspítalann og Vífils- staðaspítala og von er á fleirum. Helene Strate er 31 árs hjúkrun- arfræðingur frá Kaupmanna- höfn. Hún lauk námi fyrir tveim- ur árum og hefur starfað í tvö ár á deild fyrir sykursjúka við Bispe- bjerg-spítalann í Kaupmanna- höfn en ákvað að skella sér til Is- lands því að kærastinn hennar er norskur og hann hefur dvalist hér að undanförnu og tekið þátt í að stofna fríkirkju. „Aðstaðan er góð á sjúkrahús- um í Danmörku en oft vantar hjúkrunarfræðinga því að þeir vilja fara á námskeið og auka við menntun sína ef þeir möguleika geta, sérstaklega ungu hjúkrun- arfræðingunum. Þeir hafa mik- inn metnað," segir Helene en hún starfar við taugalækninga- deild á Landspítalanum. Hún kom til Iandsins í ágúst í fyrra, tók þá strax til starfa og er þegar farin að tala töluverða íslensku. Liggja lengur inni Helene Iíst vel á aðstöðuna hjá íslenskum hjúkrunarfræðingum og lætur vel af samanburðinum. Hún bendir á að á Landspítalan- um sé minni hraði og stress og manneskjulegra viðmót, sérstak- ara og nánara samband milli hjúkrunarfræðings og sjúklinga. I Danmörku hefur kostnaðurinn mikið að segja í umönnuninni og stjórnendur, læknar og hjúkrun- arfólk verða alltaf að hafa fjár- haginn í huga. Henni virðist sem sjúldingarnir séu sendir mun fyrr heim, í sjúkraþjálfun eða á hjúkr- unarheimili, en hér. „Að meðaltali virðast þeir ligg- ja mun lengur inni hér, hér eru ekki sömu möguleikar til sjúkra- þjálfunar og pláss vantar á hjúkr- unarheimilum,“ segir hún og kvartar ekki undan því þó að ís- lenskir hjúkrunarfræðingar hafi lengri vinnuviku en þeir dönsku og hún verði því að vinna meira fyrir sömu krónutölu. „Það er ekki hægt að bera sam- an Danmörku og Island. íslend- ingar hafa allt annað hugarfar til vinnu en Danir. Hér skiptir at- vinnan miklu meira máli og hefur talsverðan forgang í lífi fólks. Dan- ir vinna bara til að hafa í sig og á.“ Hin fótbraut sig Iben Höjer Larsen er 24 ára hjúkrunarfræðingur frá Hjörring á Norður-Jótlandi. Hún kom til landsins við annan hjúkrunar- fræðing fyrir mánuði en sú datt í hálkunni nokkrum dögum eftir komuna, fótbraut sig og er því farin aftur heim til Danmerkur til að jafna sig. Þær munu vinna á Vífilsstaðaspítala næsta hálfa árið ásamt enn einni sem nú er nýkomin til starfa. Vífilsstaða- spítali er fyrsti fasti vinnustaður- inn hennar Iben því að hún er nýskriðin úr skólanum. „Við höfðum áhuga á að koma hingað til að sjá eitthvað annað en það sem við þekktum og at- huga hvort við gætum bjargað okkur og þrifist vel. Þetta virtist vera ágæt aðferð til að fá reynslu sem hjúkrunarfræðingar og við vildum fara til einhvers norræns lands,“ sagði Iben þegar blaða- maður settist niður með henni á Vífilsstöðum nýlega. Allt dauðhreinsað Iben hefur áður starfað stuttlega á skurðdeild Rigshospitalet í Kaupmannahöfn og segir að munurinn sé mikill á hraða og vinnu milli lungnadeildarinnar á Vífilsstöðum og Kaupmanna- hafnar. I Danmörku gangi allt út á hraðann og svo sé allt svo dauð- hreinsað. Hér sé mun rólegra andrúmsloft og heimilislegt með myndum á veggjum, fallegum gardínum og vel tekið á móti fólki en kannski liggi munurinn einfaldlega í deildunum sjálfum. A skurðdeild væri kannski sami hraðinn og í Danmörku. „Hér eru allt önnur viðhorf til sjúklinga og umönnunar þeirra en ég er vön. Þeir liggja lengi inni, eiga að læknast á spítalan- um og hafa það gott. Hér er margt sem við getum lært af. Presturinn er til dæmis mun meira á spítalanum en við erum vön,“ segir hún. Dönsku hjúkrunarfræðingarnir láta vel af móttökum starfsfólks og sjúldinga og segja alla reiðu- búna að reyna að tala við þær þó að tungumálið geti reynst hindr- un. Samfélagið sé lítið og Iben segir að það hafi komið sér skemmtilega á óvart hve fljótt það var að fréttast þegar vinkona hennar fótbrotnaði. Jafnt starfs- fólk sem sjúklingar hafi spurt sig frétta og sent vinkonunni kveðj- ur. Það hafi verið notalegt. -GHS Þvottakerti 15 Hitastillir stiglaus Vinduhraði 900 - 500 sn/mfn. Sjálfvirk vatnsskömtun Öryggislæsing Tromla ryðfri Mál: hxbxd 85x60x60 cm ( Þvottavél WG1035 • Tekur 5,0 kg • Þvottakerfi 15 • Hitastillir stiglaus ■ Vinduhraði 1000 - 600 sn/mfn. • Sjálfvirk vatnsskömtun • Öryggislæsing • Belgur ryðfrir • Tromla ryðfrí • Mál: hxbxd 85x60x60 cm Kr. 49.900." stgr. Þvottavél WG 1235 • Tekur 5,0 kg • Þvottakerfi 15 • Hitastillir stiglaus • Vlnduhraöi 1200 - 600 sn/mín. • Sjálfvirk vatnsskömtun • Öryggislæsing • Belgur ryðfrfr • Tromla ryðfrí • Mál: hxbxd 85x60x60 cm Kr. 52.900." stgr. Þurrkarí SG 510 • Barki fylgir • Tekur 4,5 kg • Snýr tromlu í báðar áttir • Ryöfrí tromla ■ Hnappur fyrir kaldan blástur • Tvö þurrkkerfi • Barkifylgir • Mál: hxbxd 85x60x54 cm Kr.29.900." stgr. N I Lóamúla Sími 533 2800 Þurrkán - Með þéttibúnaöi (þárf ekki barka) • Tekur 5,0 kg • Snýr tromlu í báðar áttir • Ryöfrí tromla • Valhnappur fyrir venjulegt eða viðkvæmt tau • Tvö þurrkkerfi * Aövörunarljós fyrir vatnslosun • Aðvörunarljós fyrir lósigti • Rúmmáltromlu 106 Itr. ■ Stórt hurðarop 40 cm • Hægt að breyta hurðaropnun • Mál: hxbxd: 85x60x60 cm Xt. 56.900.- ftgr.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.