Dagur - 11.02.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 11.02.1999, Blaðsíða 5
FIMMTVDAGUR 11. FEBRÚAR 1999 - 21 LÍFIÐ í LANDINU „Þegar ég var átján ára“ „Við kynntumst í gegnum frænda hans og systur mína, “ segir Oddný Jóns- dóttir í Hafnarfirði, sem hér er ásamt Björgvini Ingvarssyni, eiginmanni sínum. CLjósmyndast. MYND, Hafnarfirði.J „Við kynntumst þegar ég var átján ára og Björgvin nítján og var það í gegnum frænda hans og systur mína, sem þá voru byrjuð saman og eru hjón í dag. Síðan þetta var eru liðin mörg ár og við Björgvin erum nú komin vel yfir þrítugt," segir Oddný Jónsdóttir í Hafnarfirði. Þann 25. júlí í fyrrasumar gaf sr. Sig- urður Helgi Guðmundsson Oddnýju og Björgvin Ingvarsson saman í hjónaband við athöfn í Víðistaðakirkju. „Sigurður Helgi er okkar prestur, hann fermdi mig og skírði son okkar, Birgi, sem er þriggja ára gamall. A eftir gift- ingarathöfninni var svo veisla í Skátaheimilinu við Víðistaða- tún, þar sem komu boðsgestir okkar, alls um 80 talsins. Síðan fórum við í brúðkaupsferðalag og dvöldumst í nokkra daga í sumarbústað í eigu rafiðnaðar- manna í Hraunborgum austur í Grímsnesi," segir Oddný. Að uppruna er Oddný Hafn- firðingur en Björgvin er Reyk- víkingur. Og þau hafa valið sér að búa til framtíðar í Firðinum og eiga skemmtilega íbúð í Mosahlíðarhverfi í Hafnarfirði, nýjasta hverfi bæjarins. „Okkar framtíðaráform eru kannski helst þau að Ijúka við íbúðina endanlega og koma okkur vel fyrir hérna,“ segir Oddný, sem er hjúkrunarfræðingur og starfar sem slík á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði. Björgvin Ingvarsson er hinsvegar rafiðnaðarmaður og starfar hjá Rafstjórn, en það fyr- irtæki vinnur mikið við uppsetn- ingu loftræstibúnaðar. -SBS. Sigrún og Sæmimdur Gefin voru saman í hjónaband í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ þann 22. ágúst sl. sumar, af sr. Þór Haukssyni, Sigrún Þor- steinsdóttir og Sæmundur Þ. Sigurðsson. Heimili þeirra er að Markholti 17b í Mosfellsbæ. (Ljósmyndast. Sigríðar Bach- mann.) bækurB Audlegð Auður úr iðrum jarðar, Saga hitaveitna og jarðhitanýtingar á Islandi er 12. bindið í ritröð- inni Safn til iðnsögu Islend- inga. Höfundur er Sveinn Þórðarson. Hið íslenska bók- menntafélag gefur út. Er þetta fyrsta alþýðlega yf- irlitsritið um sögu jarðhitanýt- ingar á tslandi. Fjallað er meðal annars um sambúð landsmanna og jarðhitans í tímans rás, allt frá laugarferð- um fornmanna til beislunar háhitasvæða. Kvískerjabók Ut er komin Kvískerjabók, sem gefin er út til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Oræfum. Utgefandi er Sýslu- safn Austur-Skaftafellssýslu. t bókinni er fjöldi greina eftir einstaklinga sem kynnst hafa Iv/ískerjaheimilinu og átt samsterf við ábúendur þar. í Kváskerjabók birtast greinar um nýjar rannsóknir á fjöl- mörgumsviðum, en Kvískerja- bræður eru löngu þjóðkunnir fyrir rannsóknir sínar á sögu og náttúrufari Austur-Skafta- fellssýslu. Rúmlega 30 höfundar leggja til efni í bókina. Einnig eru í ritinu þættir og endur- minningar um Kvískerjaheim- ilið, sögu staðarins, þjóðfræði og fleira. Þá er þar að finna ritaskrá Kvískerjabræðra. Ein rj ómabolla í lagi SVOJMA ER LIFIÐ Pjetur St. flrason skrifar Pjetur svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Pjetur svarar í símann kl. 9—12. Föstuinngangur er í næstu viku. Danskir og norskir fluttu þann sið til landsins á síðustu öld að borða bollur í upphafi Iönguföstu. Þessa dagana eru bakarar Iandsins komnir á fullt að undirbúa bolludaginn. Hvaða áhrif hefur þetta rjómabolluát á þá sem eru veikir fyrir hjarta? Nikulás Sigfússon er læknir Hjartaverndar. Hann segir það ekki hafa mikið að segja fyrir blóðfituna að borða feitmeti annað slagið, það séu almennar neysluvenjur fólks sem að skipti mestu máli. Miklvægast til að lækka blóðfitu sé að neyta fljótandi feiti í stað fastrar feiti. „Það eru daglegar neysluvenjur fólks sem ráða blóðfitunni. Það eru bara öfgar að hætta við svona gamlar tradisjónir eins og að hætta að borða saltkjöt og baunir á sprengidaginn eða fá sér rjómabollu á bolludaginn." Það eru til margar gerðir af bollum, vatnsdeigsbollur, ger- bollur, rommbollur, jarðaberjabollur o.m.fl. I bakaríum er hægt að fá bollur sem á eftir að setja krem og rjóma á. Þær getur fólk skreytt sjálft eftir smekk. Sumir vilja rommbollur með miklu rommi aðrir vilja lítið romm. Síðan eru til allskonar teg- undir af sultum sem að hægt er að hafa með bollunum. Fyrir þá sem ekki vilja rjóma er hægt að fá krembollur eða rúsínubollur. Algengt er að fyrirtæki bjóði starfsmönnum sín- um uppá bollur. Það sagði mér bakarameistari að bolludagur- inn væri gósentíð bakarans og að hasarinn byrjaði í bakaríinu hjá sér miðvikudag fyrir bolludag. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. ;ða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: ritstjori@dagur.is Peimavmir Ung kona frá Ghana langar að eignast pennavini á Islandi. Hún hefur áhuga á tísku, ferðalögum, lestri góðra bóka og að horfa á kvikmyndir. Hún er tuttugu og tjögurra ára og skrifar ágæta ensku. Ahugasamir geta sent bréf til: Miss Janet Jackson P.O. Box 117 Oguaa Central, Ghana West Africa ■ HVAD ER Á SEYDI? JAZZ í DJÚPINU Jazztríóið Svartfugl heldur tónleika í Djúpinu, kjallara veitingastaðarins Hornsins \ið Hafnarstræti, í kvöld kl. 21. Tríóið flytur eigin útsetningar af verkum eftir Cole Porter, eitt af helstu tónskáld- um bandarískrar jazz og dægurlaga menningar. Svartfugl skipa Sigurður Flosason saxófónleikari, Björn Thorodd- sen gítarleikari og Gunnar Hrafnsson bassaleikari. HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ Kappræður um karlamál I kvöld 11. febrúar gengst Karlanefnd Jafnréttisráðs fyrir kosningafundi í sal Ráðhúss Reykjavíkur kl. 20.30. Á fund- inn er boðið forystumönnum Framsókn- arflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstir hreyfingar-Græns framboðs. Fundurinn mun snúast um jafnan rétt og jafna möguleika kynja með sérstakri áherslu á þau mál sem Karlanefnd Jafn- réttisráðs hefur beitt sér fyrir. Hana-nú Kópavogi Fundur um Póllandsferð verður í dag 11. febrúar kl. 17.00 í Gjábakka. Loka- útkall. Leikhúsferð sunnudaginn 28. febrúar. Rommí í Iðnó. Pantanir í síma 554-3400. Félag eldriborgara Ásgarði, Glæsibæ Brids, tvímenningur kl 13.00 skrásetning fyrir þann tíma. Bingó ld. 19.45. Kaffi- stofan er opin kl. 10.00-13.00. Félag Kennara á eftirlaunum I dag ld. 16.00 verður kórinn í Kennara- húsinu við Laufásveg. í sátt við landið Málefnanefndir Sjálfstæðisflokksins efna til ráðstefnu um virkjanir og verndun há- lendisins í Valhöll í dag. Ráðstefnan hefst kl. 16.00 og er áætlað að hún standi til kl. 18.00. Erindi á ráðstefn- unni flytja: Þórður Friðjónsson ráðuneyt- isstjóri, Theodór Blöndal iðnrekandi, Steinn Logi Björnsson framkvæmda- stjóri, Soffía Lárursdóttir bæjarfulltrúi. Jónas Elíassson prófessor og Styrmir Gunnarsson ritstjóri. Ráðstefnan er öll- um opin. Sýningarlok í gallerí Geysi Sýningu Stefáns Sigvalda Kristinssonar í Gellarí Geysi, Hinu Húsinu v/Ingólfstorg lýkur þann 14. febrúar nk. Stefán Sig- valdi er fjölfatlaður og sýnir bæði teikn- ingar og oh'umálverk. LANDIÐ Fræðslufundur með Ara Trausta I kvöld gengst Félag vélsleðamanna í Eyjafirði fyrir fræðslufundi í Blómaskál- anum Vín við Hrafnagil kl. 20.30. Gest- ur fundarins verður Ari Trausti Guð- mundsson, veðurfræðingur og mun hann einkum fjalla um þær breytingar sem eru að verða á jöldum landsins. Einnig mun hann fjalla um veðurfar til fjalla og vera með myndasýningu. Píanótónleikar í Freyvangi í kvöld kl. 20.30 verða tónleikar píanón- emenda Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Tón- leikarnir verða í Freyvangi og koma þar fram lengra kontnir píanónemendur, af öllu starfsvæði Tónlistarskólans og flytja Ijölbreytta dagskrá. Aðgangur er ókeypis og eru foreldrar og aðrir velunnarar skól- ans hvattir til að mæta og hlýða á þessa ungu píanóleikara.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.